Vísir - 21.03.1977, Qupperneq 4

Vísir - 21.03.1977, Qupperneq 4
Mánudagur 21. mars 1977 vigm Þrjátíu ára valdatök Kongressf lokksins voru slitin upp um helgina eft- ir stórsigra Janata- flokksins i þingkosning- unum, þar sem Indíra Gandhi forsætisráöherra varö að þola niður- lægjandi ósigur í sínu kjördæmi og náöi ekki einu sinni kosningu á þing. Talning var rúmlega hálfnuö, en þó var Ijóst, að kosningabandalag stjórnarandstöðuf lokk- anna f jögurra haföi unniö mikla sigra og á góðri leiö meö að vinna fleiri. Ferenginn i grafgötur um, að það voru neyðarástandslögin og handtökur stjórnarandstæð- inga, sem urðu Kongressflokkn- um að falli, en þau mál voru sett algjörlega á oddinn i þessum kosningum. bar við bættust óvinsældir og beiskja vegna harðrar framgöngu yfirvalda i vönunaraðgerðum til lausnár fjólksfjölgunarvandamálinu Stjórnarandstaðan í sigurvímu begar ljóst varð, að hverju stefni um úrslit kosninganna var neyðarástandslögunum af- létt i morgun, en fyrir þrem mánuðum haföi Indira numið úr gildi þyngstu frelsisskerðingar- ákvæði þeirra til þess að eðlilegt kosningastarf gæti farið fram. Um land allt fögnuðu stuðningsmenn stjórnarand- stöðunnar og voru strax i nótt komnir út á strætin til þess að krefjast sigurs. begar siðast fréttist af taln- ingu, hafði Janataflokkurinn hlotið 135 þingsæti, en Kongressflokkurinn 109 og aðrir flokkar minna. Hafði bilið litið brúast frá þvi, að talið hafði verið i 224 kjördæmum, en þá hafði Jantaflokkurinn 122 þing- sæti og Kongressflokkurinn 94. Janataflokkurinn, kosninga- bandalag fjögurra stærstu stjórnarandstööuflokkanna, hafði lofað kjósendum sinum að hann mundi nema neyðar- ástandslögin úr gildi, ef hann kæmist valda. Beindi hann spjótum sinum i kosningabar- áttunni fyrst og fremst að Indiru. Indíra komst ekki á þing t Rae Bareli heimakjördæmi Indiru tapaði hún með 55 þúsund atkvæða mun fyrir Raj Narain. Sonurhennar, Sanjay, sem bauð sig fram i fyrsta skipti til þings i nágrannakjördæminu, Amethi, tapaði með 75 þúsund atkvæða Indverjar felldu Indíru Gandhi og Kongressflokkinn Indversk kona með barn á armi gengur að kjörborðinu. — 320 milljónir voru á kjörskrá, og kjörsókn var meiri en dæmi eru áður um í Indlandi. Indlra Gandhi á kosningafundi i Uttar Pradesh, en þvl er nú spáð, að stjórnmálaferill honnar á Pnrlí) . flokkurinn mundi tapa miklu af meirihluta sinum. En fæstir gerðu sér grein fyrir, hvilikt hatur rikti meðal hinna 320 milljón kjósenda landsins. Flestir voru þeirrar skoðunar að Indira hefði gert skyssu, þegar hún boðaði til kosn- inganna fyrr i vetur. Viröist hún hafa misreiknað sig illilega i út- reikningum sinum. bótt stjórnarandstaðan hefði verið i molum með leiðtoga sina i fangelsum fram á elleftu stundu, tókst henni á aðeins 3 mánaða bili að skipuleggja kosningabaráttuna. Indira hafði reitt sig á að bættur efnahagur landsins undir hennar stjórn og aukið öryggi i innanlandsmál- um kynni að vega upp á móti óánægjunni vegna réttinda- skerðingarinnar, en það brást algjörlega. Hurfu efnahagsmál- in alveg i skugga neyðar- ástandslaganna. bar við bættist siðan óánægja með son hennar, Sanjay, sem hefur verið litt þokkaður af alþýðu vegna óbilgirni i fram- kvæmd vönunaraðgerða og út- rýmingu fátækrahverfa. Úr fortiðinni skyggðu svo enn á gömul hneykslismál vegna spillingar stjórnmálamanna og embættismanna Kongress- flokksins, þar sem Indira sjálf var ekki undanskilin. mun. — brir ráðherrar úr stjórn hennar náðu ekki kjöri, og eins nokkrir aðstoðarráðherrar. beirra á meðal voru Bansi Lal, varnarmálaráöherra og Hari Ram Gokhale, dómsmálaráð- herra, en þeir voru meðal aðal- hvatamanna neyðarástands- laganna. Raj Narain, sem fór með sig- ur af hólmi i kjördæmi Indiru, sagði, þegar úrslitin lágu ljós fyrir þar: „Sigurinn yfir Indiru Gandhi er sigur lýðræðis og borgararéttinda.” Valdaferill œttarinnar á enda Indira Gandhi (59 ára), sem hefur veriö forsætisráð- Jagjivan Ram, einn af leiötog- um stjórnarandstöðunnar, sem hefur áöur átt ráöherrasæti i stjórnum Kongressflokksins (27 ár ráöherra). Hann þykir llklegastur til þess að að verða forsætisráöherra þeirrar stjórn- ar, sem viö tekur. herra Indlands slðustu 11 ár, og oft kölluö voldugusta kona heims, hefur . óskað viðtals i dag við forseta Indlands, Fakruddin Ali Ahmed, og þykir liklegt að hún muni biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Eftir ósigur hennar og sonar hennar, sem margir vildu lita á sem arftaka hennar siðar meir i stjórnmálum Indlands, telja margir, að á enda sé runn- ið valdaskeið þessarar voldugu ættar. Heita má, að Indira og áður faðir hennar, Jawaharlal Nehru hafi stjórnað Indlandi óslitið frá þvi landið öðlaðist sjálfstæði 1947. Menn búast við þvi, að Indira játi ósigur sinn og flokks sins i dag, og þvi er spáð, að stjórn- málaferill hennar sé þar meö á enda. Liklegastur arftaki henn- ar sem leiðtogi Kongressflokks- ins þykir vera Yeshwantrao Chavan, utanrikisráðherra, sem hélt velli i sinu kjördæmi með miklum meirihluta. Misreiknaði kjósendur betta óskaplega tap Kongress- flokksins og Indiru fer fram úr þvi, sem menn höfðu búist við fyrir kosningarnar. Að visu blasti við vegna óvinsælda neyðarástandslaganna og vön- unaraðgerðanna að Kongress- Chirac sigraði í París Tveir frambjóðendur hægri flokkanna. T.v. Jacques Chirac, sigurvegari kosninganna I Parls, sem bar sigurorð af D’Ornano, (t.h.) iðnaðarráðherra og frambjóðanda D’Estaings forseta Stjórn Valery Giscard D’Estaing Frakklands- forseta beið enn eitt áfallið, þegar kosninga- bandalag sósialista og kommúnista sigraði frambjóðendur hennar i sveitar- og bæjar- stjórnarkosningum um helgina. Eini meiriháttar sigurinn, sem stjórnarmeirihlutanum féll I skaut I þessari seinni umferö kosninganna, vartviræður, þvi aö þaö var sigur Jacques Chiracs i Paris, sem er viss um aö verða fyrsti borgarstjóri Parisarborgar I heila öld. Sigur Chiracs var þó um leiö ósigur D’Estaings forseta, þvl aö frambjóöandi hans, D’Ornano iönaðarráðherra, varö að lúta i lægra haldi. Raunar gekk fram- bjóðendum hans viðast verr en frambjóðendum Chiracs D’Estaing forseti lét Chirac vikja úr forsætisráðherraembætti i fyrrasumar eftir ágreining þeirra um leiðir til aö sigrast á kosningabandalagi vinstri- manna, sem hafa jafnt og þétt aukið við sig fylgi i kosningum undanfarinna ára — Vildi Chirac boða til kosninga áður en kjör- timabilið rynni út, en D’Estaing ekki. Eftir úrslitin i gær þykir útilok- aö fyrir stjórnarflokkana annað en biða með þingkosningarnar þar til næsta ár, þegar kjörtima- biliö rennur út og vonast til þess .að bæta stöðu sina áöur. — Lita flestir á sveitarstjórnarkosning- arnar sem könnun á þvl, hvernig flokkunum mundi vegna i þing- kosningum. begar siðast fréttist af talningu leit út fyrir, aö kosningabanda- lagið bætti viö sig 1% frá þvi um helgina fyrir viku og fengi 52%, meöan hægri flokkarnir sætu enn með 46%. Vinstrimenn eru greinilega i meirihluta I landinu”, sagði Francois Mitterrand, leiðtogi sósialista, sigri hrósandi, en minnstu munaði, að hann sigraöi D’Estaing i forsetakosningunum 1974. Hann sagði það „mjög vel hugsanlegt og jafnvel liklegt” að kosningabandalagið ynni sigur i þingkosningunum að ári. Af stjórnarinnar hálfu varð enginn til þess að andmæla full- yrðingum Mitterands, enda sitja sósialistar og kommúnistar I meirihluta i tveimur þriðju hinna 221 stærri borga og bæja I Frakk- landi eftir úrslitin. Kosningabandalag sósíalista og kommúnista með meirihluta í 2/3 stœrri borga og bœja í Frakklandi. — Spáir ekki góðu fyrir stjórnarflokkana i þingkosningunum að ári.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.