Vísir - 21.03.1977, Qupperneq 9
vism i Mánudagur 21. mars 1977
Ekki var tekið
nœgilegt tillit til
ýmissa ábendinga
skólamanna
Skólastjórafélag Reykjavikur
hefur harmaö þau mistök, sem
urðu við framkvæmd sam-
ræmdra prófa I niunda bekk
grunnskóla.
A fundi i félaginu var samþykkt
ályktun, þar sem segir, að skóla-
menn hafi oftsinnis á fundum sin-
um og á fundum með starfsmönn-
um menntamálaráðuneytisins
„gagnrýnt ákveöin fram-
kvæmdaratriði og bent á nauösyn
þess aö skólunum sé veittur næg-
ur aðlögunartimi til umfangsmik-
illa breytinga á starfsemi sipni.
Það er skoðun fundarins aö ekki
hafi veriö tekið nægilegt tillit til
ýmissa ábendinga þeirra aöila,
sem sjá eiga um framkvæmd
mála”, segir i ályktun fundarins.
—ESJ
„Til þess að heimili á starfs-
svæði sjóðsins njóti fyrir-
greiðslu hans óskum við eftir
þvi að fá fjármagn þaö sem
heimilið sparar tii vörslu”,
sögðu þeir Baldvin Tryggvason
sparisjóðsstjóri og Jón G.
Tómasson formaður stjórnar
sjóösins á fundi með frétta-
mönnum i gær. En sparisjóður-
inn á um þessar mundir 45 ára
afmæii.
Það kom fram á fundinum aö
mikill hugur er hjá forráöa-
mönnum Sparisjóös Reykja-
vikur aö taka upp þá nýbreytni
aö lána til endurbóta á gömlum
húsum og gera þannig ungu
fólki kleift aö setjast aö i hinum
eldri hverfum.
En til þess aö slikt væri mögu-
legt þyrfti nýtt fjármagn.
Baldvin Tryggvason minnti á
aö ákveöinn hluti innstæða lána-
stofnana væri bundinn hjá
Seðlabanka Islands. Er þetta fé
notaö til afuröasölulána. Spari-
sjóöur Reykjavikur hefur hins
vegar frá upphafi lánaö ein-
göngu einstaklingum og nýtist
sjóðnum þvi ekki hiö bundna fé.
Sagöi Baldvin aö hann vildi
helst aö sparisjóöur-
inn fengi lán hjá Seöla-
bankanum til þess ao geta lánaö
til endurbóta á eldra húsnæöi.
Þaö kom fram hjá Baldvin að
um siöustu áramót voru um 303
milljónir i þessum bundnu inni-
stæöum hjá Seölabankanum, en
eru núna 370 milljónir. Ef jafn-
viröi þeirrar upphæöar væri
lánaö til endurbóta á gömlu hús-
næöi væri þvi hægt aö lána 500
manns um 600 þúsund kfonur.
—EKG
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis 45 ára:
VIUA LÁNA TIL ENDUR-
BÓTA Á GÖMLU HÚSNÆDI
Skákað á
Snœfellsnesinu
Skákmóti barnaskólanna i
Snæfellssýslu lauk fyrir stuttu.
Fimm lið tóku þátt I keppninni,
lið frá Hellissandi, Ólafsvfk,
Grundarfirði, Stykkishólmi og
Laugargerði. Hart var barist i
mótinu eins og vera ber, og ekki
er gott að segja hvernig þeim
Spassky og Hort hefði farnast I
leik á móti mörgum þeim sem
þarna tefldu. Keppninni lauk
meö sigri iiðs Grundafjarðar-
skóla sem fékk 28 og hálfan
vinning af fjörutiu mögulegum.
—GA/BC
Grundarfirði.
Það var stundum hugsaö þungt i keppnissalnum.
Vfsismyndir: Bæring Cecilsson
Sigurvegurunum afhent siguriaunin.
Helga Evsteinsdóttir Rósa Hjörvar.
Gáfu glitofið veggteppi
Kvenféiagasambandi tsiands var tilkynnt um þaö hinn 14.
febrúar siðast liðinn aö börn Rósu Hjörvar hefðu gefið sambandinu
glitofið veggteppi úr búi hennar. Skal þaö varöveitt i minningu
tveggja kvenna, Rósu Hjörvar og Helgu Eysteinsdóttur sem óf
teppiö.
Helga Eysteinsdóttir var afar listræn og var þetta fyrsta stóra
teppið sem hún óf. Hún gaf þaö Rósu, sem sendi þaö á Iðnsýninguna
i Reykjavik þar sem þaö fékk verölaun. Verölaunaskjaliö fylgir
teppinu. Þess má geta að Helga var móðir hins kunna listamanns
Asmundar Sveinssonar myndhöggvara.
Rósa Hjörvar lést fyrr á þessu ári 85 ára gömul. Hún var gift
Helga Hjörvar.
Veggteppið veröur varðveitt aö Hallveigarstöðum I Reykjavik.
—EKG
Fyrstu heiöursborgarar Kópavogs, Hulda Jakobsdóttir og Finnbogi
Rútur Valdimarsson, með heiðursborgarabréfið.
Finnboga og
Huldu afhent
heiðurs-
borgarabréf
Fyrstu heiðursborgurum Kópa-
vogs, hjónunum Finnboga R.
Valdimarssyni og Huldu Jakobs-
dóttur, hefur veriö afhent
heiðursborgarabréf.
Forseti bæjarstjórnar Kópa-
vogs, Axel Jónsson, afhenti þeim
bréfið I hófi, sem bæjarstjórnin
hélt þeim. Flutti hann viö það
tækifæri ávarp og þakkaði þeim
mikilsverö störf f þágu Kópavogs.
Ólafur Jónsson, bæjarfulltrúi, tók
i sama streng.
Finnbogi þakkaði bæjarstjórn
þá viröingu, sem honum og konu
hans væri sýnd, og óskaði Kópa-
vogi allra heilla um ókomna tima.
—ESJ.
Canon
FTB með
Þitt er tœkifœrið
Tœkifœrisverð — Tcekifœriskjör
„Má bjóða þér alvöru myndavél" á tœkifœrisverði
moi tœkifœriskjörum Vegna niðurfellingar
vðrugjalds og hagstœðra
pa getum við nú
boðið tœkifœriskjör
Gegn staðgreiðslu fáið þér 5%
afslátt — Ef þér greiðið helm-
ing kaupverðs greiðist
afgangur með
3 mánaðarlegum
afborgunum
linsu 50 mm
f. 1/8 og tösku
kr. 101.590.-
Nú kr. 93.355.-
Canon EF með
linsu 50 mm
f. 1,8 og tösku
kr. 158.000 Nú kr. 145.190.-
Canon F-l m 50 mm linsu
f. 1,8 og tösku kr. 185.591,-
Nú kr. 170.543.-
Canon F-l Body 135.150.-
Canon EF Body 122.090.-
Canon FTB Body 73.250.-
Canon
Austurstrœti 7 Sími 10966
n