Vísir - 21.03.1977, Síða 23

Vísir - 21.03.1977, Síða 23
V Neytendasamtök- in kynnt betur Ég tel fulla þörf á því að þessi samtök séu kynnt miklu betur, og mér hefur ekki fundist nóg gert að þvi. Sumir hafa litla sem enga hugmynd um samtökin eða hvernig þau starfa. Það ætti að vera sjálfsagður hlutur að sem flestir neytendur væru meðlimir samtakanna. Mér þykir það þvi gott ef blað- ið birtir fleiri greinar, ef þær verða til þess að styrkja þessi samtök, sem hlýtur að vera hagsmunamál allra. Guðrún hafði samband við blað- ið: Um daginn sá ég grein hjá ykkur i Visi um Neytendasam- tökin. Var það tekið fram að slikar- greinar yrðu af og til i blaðinu. Þetta þykir mér mjög svo timabært. Mér þykir það sorglegt að við neytendur skul- um ekki standa betur saman en raun ber vitni og að Neytenda- samtökin skulu ekki vera miklu sterkari og fjölrhennari en þau eru. Takk fyrir leikrit út- varpsins og fleira gott Guðmundur hafði samband við blaðið: ig|i Utvarpið finnst mér eiga skil- ið að fá þakkir fyrir oft prýðileg leikrit sem flutt eru á fimmtu- dagskvöldum. Ég hlusta alltaf á þessi leikrit og veit um mjög marga sem gera það alltaf. Auðvitað kemur það fyrir að flutt eru leikrit sem maður er ekkert yfir sig ánægður með, en það er sjaldnast hægt að gera öllum til hæfis. En yfirleitt eru leikritin mjög góð, og ég hef oft- astnær verulega ánægju af þvi að eyða stund við útvarpstækið á þessum kvöldum. Reyndar á útvarpið þakkir skilið fyrir fleira. Dagskrá þess býður oft upp á gott efni sem vill fara framhjá mörgum. Ég held lika að menn dæmi dagskrána lélega án þess að vita hvað hún hefur upp á að bjóða. Það sýnir sig þegar maður kveikir á tæk- inu og fer að hlusta, að þar er margt gott á ferðinni. Tívólí og útsýnisflug Haraldur örn Haraldsson hringdi. Ég er með hugmynd um hvort ekki mætti stofna almennings- hlutafélag um starfrækslu Tivolis i tengslum við. flug- þjónustu. Þessar flugvélar yrðu skrúfuþotur sem þyrftu stutta flugbraut og flygju útsýnisflug reglulega. Ég vildi að flugvélarnar sem keyptar yrðu, væru frá sem flestum löndum, þannig að fjöl- breytni rikti varðandi flugvéla- tegundir. SALA verötryggöra spariskírteina ríkissjóös hefst þríðjudaginn 22. mars í#) SEÐLABANKI ÍSLANDS Texti fylgi fréttunum J.B. skrifar: Birta mætti útdrátt úr frétt- Mig langar að koma þvi til unum rétt eins og þegar islensk- sjónvarpsins að það ihugi hug- ur texti fylgir erlendum mynd- mynd sem fram hefur komið, og um sjónvarpsins. Þetta held ég kom reyndar fram i sjónvarps- að yrði mjög vel þegið af þeim þætti, að texti fylgdi t.d. fréttum sem ekki heyra, og þegar maður svo að heyrnarlausir gætu fylgst hugsar út i það þá er þetta i raun með þeim jafnt og aðrir. og veru sjálfsagt.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.