Vísir - 21.03.1977, Page 24
VÍSIR
Mánudagur 21. mars 1977
Stálu bíla-
þœtti Vísis
og mynda-
vélum
Ómars
„Það var kannski ekki allt
mitt vit i töskunni en mikið af
þvi, svo að ég er heldur illa
settur” sagði Ómar Ragnars-
son, fréttamaður og skemmti-
kraftur, þegar Visir ræddi við
hann I morgun, en á föstudag-
inn var stoliö frá ómari
svartri handtösku með
myndavélum, linsum og
reiknitölvu að andvirði nálægt
300 þúsund krónum. Auk þess
voru I töskunni landakort,
minnisbækur, topplyklasett og
sitthvað fleira, sem hann hef-
ur alltaf með sér á ferðalögum
sinum.
„Ég veit ekki hverju þjóf-
arnir hafa verið að sækjast
eftir” sagði Ómar „kannski
þaöhafi veriðefnið I bllaþátt
I VIsi, sem átti aö birtast í dag,
en handrit af þættinum og
myndir tilheyrandi honum
voru meðal annars I töskunni,
og þeir, sem hirtu töskuna
hafa þvi getað lesiö bilaþátt-
inn á föstudaginn, en ég er nú
búinn aö skrifa hann aftur fyr-
ir hina”.
Ómar haföi verið að leggja
af stað að heiman frá sér við
Háaleitisbraut og veriö búinn
að setja töskuna út fyrir úti-
dyrnar, en brugöið sér aðeins
inn fyrir aftur. En þegar hann
kom út á tröppurnar var
svarta taskan horfin.
Þeir, sem eitthvað kynnu aö
vita um þetta mál, eru beðnir
að snúa sér til rannsóknarlög-
reglunnar en best væri ef þeir,
sem tóku tösku Omars
ófrjálsri hendi, skiluðu henni
sjálfir sem fyrst.
Féll í höfnina
Kona féll I höfnina I Reykja-
vik um miðnætti aðfaranótt
sunnudags.
Hún mun hafa fallið milli
skips og bryggju en konan var
aökveöja einhvern um borð i
skipi sem var aö leggja úr
höfn. Henni var strax bjargað
og hún flutt á slysadeild.
—EA
Talsvert af
innbrotum
um helgino
Nokkuð var um innbrot um
heigina. Meöal annars var
brotist inn i Hafplast i Hraun-
bæ 102 og þaðan stolið pen-
ingakassa og nokkrar
skemmdir unnar. Þá var einn-
ig farið inn i kjallara I sama
húsi. Reyndust 3 unglingar
vera þarna að verki.
Aðfaranótt laugardags var
brotist inn i kjörgarö og fyrir-
tæki við Hverfisgötu. Þeir sem
þar voru að verki náðust. Þá
var einnig brotist inn I Virkni
við Ármúla og stolið þaðan 10-
15 þúsund krónum og brotist
var inn i Radióbæ og einhvef ju
af peningum stolið. Ekki var
ljóst hvort fleiru hefði verið
stolið þaðan.
— EA
FANGI í FRÍI RÉÐST Á
HÁALDRAÐAN MANN
Rúmlega tvitugur refsifangi
sem var ileyfi frá Litla-Hrauni,
réðst á 83ja ára gamlan mann
um helgina. Barði hann gamla
manninn svo illa að hann þurfti
að liggja á gjörgæsludeild um
tima. Þegar siðast fréttist átti
að flytja gamla manninn á al-
menna deild.
Gamli maðurinn var einn
heima á laugardag á heimili
sinu við Fálkagötu. Barið var að
dyrum og fór hann til dyra. Fyr-
ir utan var ungur maður sem
spurði eftir manni i húsinu.
Reyndist sá ekki vera heima.
Maðurinn bað þá gamla mann-
inn um að gefa sér vatn, og ætl-
aði hann að gera það.
Þá skipti engum togum að
refsifanginn réðst á gamla
manninn og barði hann með
hnefum og kaffikönnu. Siðan
leitaði hann að peningum og
fann 40-50 þúsund krónur i veski
hjá gamla manninum. Slapp
hann út með peningana.
Þegar gamli maöurinn rank-
aði við sér gat hann hringt á lög-
regluna. Sá talsvertá höfði hans
og var hann fluttur á slysadeild.
Þaðan var hann fluttur á gjör-
gæsludeild Landspitalans en
siðan stóð til að flytja hann á al-
menna deild.
Lögreglan fékk lýsingu á
manni sem sést hafði á Fálka-
götunni seinni part laugardags
eða um það leyti sem þetta
gerðist. Fannst maðurinn siðan
um miönætti. Þá átti hann eftir
17 þúsund krónur og kvaðst hafa
eytt hinu I leigubila og vin.
Refsifangi þessi mun hafa
fengið 3-4 daga leyfi frá Litla-
Hrauni til að vera við jarðarför.
Hann mun þó ekki hafa mætt við
jarðarförina, þegar til kom.
Maðurinn hefur áður lent i
höndum lögreglunnar vegna
árásar. —EA
NÝR TOPPUR í
HRINUNNIVIÐ
Enn er ekkert lát á jarð-
skjálftahrinunni við Kröflu þótt
Iiðið sé hátt á þriðju viku frá þvi
aö hún hófst. Um helgina færðist
hún I aukana og mældust 140
skjálftar i gær. Hafa þeir ekki
áður orðiö fleiri I þessari hrinu.
Tveir þeirra urðu um eða yfir 3
stig á Richterkvarða.
1 morgun voru ekki horfur á
aö um aukningu yrði að ræöa á
skjálftavirkninni þennan sólar-
hringinn. Laust fyrir kl. 9 höföu
þó mælst 90 jarðskjálftar.
Fólk varö vart viö marga
stærstu skjálftana um helgina
bæði I Kröflubúðum og Reyni-
hlið.
SKJÁLFTA-
KRÖFLU
Stöðvarhúsið ris áfram til-
tölulega hratt og I morgun var
það orðið 9,26 mm hærra að
noröan en sunnan. Það sam-
svarar tæplega hálfs metra
landrisi á svæðinu.
Að sögn Guðmundar Inga
Haraldssonar jarðfræöings sem
er nú á vakt i Reynihliö, er enn
ekkert hægt að segja hvaö úr
þessum hræringum veröur.
Hafa menn ekki lengur neitt til
að miða viö og þvi erfitt um alla
spádóma. Auk þess sem fylgst
er með jaröskjálftamælum i
Reynihlið og Gjástykki sagði
Guðmundur aö fylgst væri með
hitastigi I kringum Leirhnjúk
og mældar sprungur þar sem
hafa gliðnaö svipaö og fyrir
undangengin landsig.
— SJ
jafna
siðasta skákin. Fari hins vegar
svo aö þeir verði þá jafnir má
segja að þeir hefi nýtt einvigi
Tefldar verða tvær skákir i röö
þar til annar hefur náð einum og
hálfum vinning úr einhverri
þeirra. Það er þvi fræðilegur
möguleiki á þvi að einvigið
standi fram á vor. —SG.
Loks tókst Hort að
Gifurleg spenna rikti á skák-
einvigi Horts og Spasskys I gær
þegar þeir áttust við i 10. skipti.
Aldrei þessu vant kom Spassky
ekki til leiks i prjónavestinu
sinu, heldur var hann kiæddur
jakkafötum, ljósri skyrtu meö
rautt bindi. Hvort sem þessi
breytti klæðnaður hefur haft
áhrif eða ekki, þá gafst Spassky
upp I 34. leik og eru þeir kappar
nú jafnir með fimm vinninga
hvor.
Hort mætti ábúðarmikill til
leiks og lét talsvert að sér
kveða. Hann kvartaöi undan á-
havða I áhorfendum frammi á
göngum og varö Guðmundur
Arnlaugsson yfirdómari að
sussa á æsta áhorfendur sem
ræddu hástöfum um skákina, en
áhorfendur hafa eflaust verið
hátt á sjötta hundraö þegar flest
var.,
A morgun fer fram 11. umferð
og 12. umferð á fimmtudaginn,
en það á jafnframt að vera
A minútunni kiukkan tvö setur Guðmundur Arnlaugsson yfirdómari kiukkuna af stað og Hort á
fyrsta leik. Spassky virðist þungbúinn I sparifötunum. — (Visismynd Loftur)
SUMUS
UNA
Lítil trilla
strandaði
Litil trilla strandaði undan
Vogunum á laugardaginn. Var
einn maður um borð og hefur
Bakkus liklegast verið með i
förum. Manninum var engin
hætta búin en farið var að
trillunni á báti og maðurinn
sóttur.
— EA
Guðbjartur
Pólsson lótinn
Guðbjartur Þóröur Pálsson,
bifreiöastjóri lést að heimili
sinu i nótt.
— SG
Var Csom skipað að
tapa fyrir Karpov?
„Nú velta menn þvi fyrir sér
hvort Csom yfirsást þessi ein-
faldi leikur eða hvort hann hafi
fengiö annarlegt boð um að hlifa
heimsmeistaranum.
...Það vakti grunsemdir ann-
arra keppenda á mótinu, að eft-
ir 47. leik hófu þeir
austantjaldsmenn samræður
yfir skákborðinu, en slikt er
óvenjulegt þegar meistarar
sitja að tafli, þvi ósennilegt er
aö Karpov hafi verið að bjóða
Csom jafntefli.”
Það vakti gifurlega athygli
þegar ungverski skákmeistar-
inn Csom var búinn að fá upp
unna biðstöðu gegn Karpov, en
tapaöi siðan skákinni á afmælis-
mótinu i Þýskalandi. Orðrómur
er á kreiki um að þarna hafi
ekki verið allt meö felldu og
kemur það fram I fréttum Jóns
Hálfdánarsonar frá Bad
Lauterberg á fimmtu siðu I Visi
i dag.
—SG.
Karin Söder kemur til íslands í dag:
Eina konan í embœtti
utanríkisráðherra
Sænski utanrikisráöherrann,
Karin Söder, kemur i opinbera
hcimsókn til lslands I dag og
dvelur hér tvo daga.
Karin Söder er eina konan,
sem gegnir embætti utanrikis-
ráðherra i heiminum. Hún er
ráðherra i rikisstjórn Thor-
björns Falldins, sem tók við
völdum i Sviþjóð siðastliðið
haust.
Hinn nýi utanrikisráðherra
Sviþjóðar mun eiga hér fund
meö Einari Agústssyni, utan-
rikisráðherra og embættis-
mönnum utanrikisráðuneytis-
ins. Þá mun sænski ráðherrann
einnig hitta að máli forseta
íslands.
Karin Söder hefur lagt á það
áherslu, aö styrkja tengsl Svi-
þjóðar við frændþjóðirnar á hin-
um Norðurlöndunum og telur aö
samstarf Norðurlanda eigi að
hafa forgang umfram tengsl
svia við önnur riki.