Vísir - 24.04.1977, Blaðsíða 3

Vísir - 24.04.1977, Blaðsíða 3
VÍSIR Sunnudagur 24. apríl 1977 ] 1 * Viö kaþólska skirn i klaustrinu Clervaux 1923, þar sem hann var skiröur fullu nafni Haiidór Kiijan Marie Pierre Laxness: ,,l>eir klæða sig helgilinum framan i lýönum eins og seiö- skrattar...” scgir i Vefaranum mikla. „Þvl bækur hans hafa góðan sess i hillunni, sem Megas kallar Gullstrandarlengj- una....” tryggð við misvondan málstað. Að visu gætir spyrill þess jafnan að ýja að þessu af yarfærni og hátignarlegri kurteisi. Og þá er glott i góðu og sagt, að þeir yrðu litilsvirði sem rithöfundar, sem héldu dauðahaldi I isma og kenningar, sem væru fyrir bl I breytilegum heimi hjá nýju fólki. Sennilega hefur maðurinn aldrei átt aðeins einn sannleika, þótt hann léti þannig. Halldóri Laxness verður hvergi skipað niður I fátæklegt flokkakerfi þessa lands og er bættur skaðinn. Þó hef ég oröiö þess var, að mörgum fram- sóknarmanni er ósárt um hann. Góðir og geðprúðir menn úr þeim flokki skipta skapi og lit- um þegar Halldór er nefndur. Hann, sem notaði heimsfrægð slna til að ófrægja islenska bændastétt. Forðum vildi hann sópa bændum af jörðum for- feðra sinna og setja þá niður á byggilega staði. Siðar moka oni skurðina, llfæðar Islensks bændasamfélags. Sannkristnu fólki er ekki um hann gefið, þvi að eftir hann liggja óguðleg skrif. Islenskum burgeisum og sjálfsbjargar- mönnum stóö stuggur af kommúnistanum alræmda, sem vildi ryðja þeim og þeirra úr veginum að betri heimi. Svo kom I ljós, að Halldór Laxness vildi ekki steinrenna með sósíalismanum, ganga I björg eða eiga sálufélag við tröll. Gömlum félögum hans úr nátt- tröllahópi ofbauð hin svikula lund, en hinir, sem fyrr óttuðust hann, bjuggust til að slátra kálfi til fagnaðar. En þó eru þeir enn ekki vissir I sinni sök. Þeir vita ekki hvar þeir hafa hann. Stúdentar, sem áöur gerðu hann að heiðursfélaga, mótmæltu honum nú á dönsku. En er þó ekki brátt runnin stundin, er Islenskir bændur og launþegar, hægri menn og vinstri, hvers konar framsókn- armenn og þurrundnir málfræö- ingar og aðrir stafsetningar- gerðarmenn flykkjast og hveli- sprengja þennan oflátung, sem gefur öllum langt nef er það passar i rithöfundarferil hans Nei, þeir festa ekki á honum hönd frekar en fyrri daginn. Þeir standa f hnapp og lita upp til hans I fjandsamlegri lotn- ingarstellingu. Hver er þessi maður? hugsa þeir. Er hann trúður sem leikur stórkost- legan rithöfund til að draga dár að okkur? Eöa er hann stórkost- legur rithöfundur, sem leikur trúð I sama tilgangi? Þeir blða sérhverrar bókar hans í eftirvæntingu. En hér á landi seljast þær I stærra upplagi en aðrar bækur. Allur þorrinn kaupir þær til lestrar og lætur ekki aftur fyrr en lokið er. Sumir geta ekki verið þekktir fyrir annað. Einstaka menn safna og veröa jafnvel aö kaupa bækur, sem þeir hafa enga þörf fyrir, eins og leikgerðir af skáldsögum hans,svoekki verði gat I safninu. Þvi bækur hans hafa góðan sess I hillunni, sem Megas kallar Gullstrandar- lengjuna. Halldór Laxness bjó til nýja skáldsögu. Hannskrifaði jafnvel allar fornsögurnar um með einni bók. Hann bjó til nýja Is- lensku. Honum er engin kýr heilög. Kannski er það þess vegna, sem hann er lifandi stórveldis- draumur þessarar litlu þjóðar. Ég veit ekki hver hann er eða hvað hefur vakað fyrir honum. En gjarnan má af hendingu láta fylgja hér kafla úr Vefaranum mikla frá Kasmfr, sem Hallberg vitnar til í óásjálegu smáriti, sem fyrir nokkrum árum var selt á bókamarkaðinum fyrir 21 krónu og 50 aúra. ,,Allt blekkíng! Skáldin hafa aldrei borið byröar lýðsins. Þeir eru hatursmenn lýðsins. Þeir eru ógnendur lýðsins. Þeir eru skækjur lýðsins. Þeir æpa að lýðnum. Þeir hrækja á lýöinn. Þeir smjaðra fyrir lýðnum og ljúga. Þeir klæða sig helgillnum framan i lýðnum eins og seið- skrattar. Þeirskrækja framan i hann eins og kona með jóðsótt. Þeir gleypa eld, steypa sér koll- hnis og fara gegnum sjálfa sig framan I lúðnum, — alt I voninni um að geta lagt hann undir sig, geta troðið sér upp i æðstu sæt- in, svo drottningarnar smyrji fætur þeirra með balsami og þerri með hári sinu. Takmark þeirra er eins og rómversku keisaranna að láta taka sig i guðatölu I lifenda lifi.” „Sennilega hefur maðurinn aldrei átt aðeins einnsannleika, þótt hann léti þann- 3 Halldór cr mikill náttúruskoðari. Þessa mynd tók Loftur Asgeirsson af skáidinu og eiginkonu hans, Auði Sveinsdóttur við Gljúfrastein fyrir fáum vikum. Halldór Guðjónsson, þriggja ára. ...og löngu siðar með dóttur sinni Guðnýju. Við matborðið i Gljúfrasteini.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.