Vísir - 24.04.1977, Síða 19
VISIR Sunnudagur 24. apríl 1977
19
HALLDÓR LAXNESS
Skrifaði um Halldór
óður en
hann
— segir Bjarni Bragi
Jónsson
hagfrœðingur
„Bækur Halldórs Laxness hafa
það gildi fyrir mann að maður sér
jafnan samtima sinn i spegli
Halldórs” sagði Bjarni Bragi
Jónsson, hagfræðingur Seðla-
banka tslands, þegar við stöðvuð-
um hann á förnum vegi og lögðum
fyrir hann spurningar.
„Það er sama hvað Halldór
verður gamall hann heldur
stöðugt þeim hæfileika að sjá
samtima sinn á sinn sérstaka
hátt.
Jafnframt þessu rifjar hann
upp minningu þjóðarinnar langt
aftur i aldir og þar finna menn
sjálfa sig.”
Er langt siðan að þú fórst að
lesa bækur Halldórs?
„Það er ekki eins langt og vera
skyldi. Vefarann mikla frá
Kasmir las ég til að mynda ekki
fyrr en eftir siðustu áramót. Ég
las hann þá með „Úngur ég var”.
Það var góð samlesning.
Ég skrifaði á sinum tima
þriggja siðna langhund um Lax-
ness i skólablað Menntaskólans i
Reykjavik meðan ég var þar við
nám. Þá ritsmið gerði ég áður en
ég hafði lesið nokkuð eftir hann!
Ég studdist þá við afmælis-
greinar sem skrifaðar höfðu verið
um Halldór Laxness i Timarit
Máls og menningar af frelsuðum
meðhaldsmönnum hans, eins og
ég var þá einnig.”
ég las eftir
Bjarni Bragi Jónsson: — Vefarinn mikli frá Kasmir og Úngur eg
var voru góð samlesning.
75 ára
PETER HALBERG
Um skáldverk Halldórs Laxness
frá Sölku Völku til Gerplu
Verð kr. 4080, - bœði bindin
EIGNIST
ALLAR BÆKUR
HALLDÓRS LAXNESS
Við bjóðum yður allar fáanlegar
bœkur skáldsins með
AFBORGUNARKJÖRUM
Ýmsar bækur Halldórs Laxness á öðrum mál-
um:
ensku: Salka Valka (1) Christianity at Glacier A Quire of Seven
dönsku: Ar og dage i Brattekád Atomstationen De islandske Sagaer og andre Essays Den store Væver fra Kashmir
þýsku: Sein eigener Herr islandglocke Seelsorge am Gletscher
frönsku: Salka Valka Le Paradis Retouré
spönsku: Paraiso reclamado Novelas Escogides Salka Valka
f innsku: Tunnustan AAaata (Skáldatimi)
sænsku: Gerpla (í pöntun)
1JF BÓKABÚÐ
MÁLS OG MENNINGAR,
LiuLi Laugavegi 18, Sími 24240