Vísir - 28.07.1977, Qupperneq 4
Harðir bardagar hafa
nú geisað i Eþiópíu, á
tvennum vigstöðvum, i
eina tíu daga og virðist
sem stjórnarher
Mengistus, ofursta,
gangi ekki alltof vel.
Undanfarna daga hefur
vigvöllurinn við landa-
mærin að Sómaliu
stækkað töluvert og i
hinum enda landsins
hafa fylkingarnar tvær
sem berjast fyrir frelsi
Eritreu, sameinast.
Fréttastofan í Addis Ababa
sagði i morgun að bardagarnir
við fastaher Sómalfu hefðu
breiðst út og væri nú barist á
miklu stærra svæði en áður. Hún
sagði einnig að eþiopski herinn
hefði ,,þurrkað út” fjölmennar
hersveitir frá Sómalíu í Bale
héraði, sem er um 250 kilómetra
frá þvi sv ði sem hingað til hefur
talist til vigvallarins.
Sómalia hefur hinsvegar neitað
að hermenn úr fastaher landsins
taki nokkurn þátt i þessum bar-
dögum. Stjórnin styður Frelsis-
hreyfingu Vestur-Sómaliu, með
hergögnum, þjálfun og ýmsu öðru
en fæst ekki til að viðurkenna
þátttöku i bardögum.
I tilkynningu frá Frelsisfylk-
ingunni sjálfri, sem gefin var út i
London, i morgun, segir að harðir
bardagargeisi enn, tiunda daginn
i röð og að fylkingin hafi betur i
þeirri viðureign.
Tólfhundruð kilómetrum norð-
ar i landinu eru einnig bardagar.
Þar hafa tvær frelsisfylkingar
Eritreu herjað á stjórnarherinn
undanfarin ár. Þessar fylkingar
hafa nú ákveðið að sameinast
gegn óvini sinum.
Stórveldin eru heldur ekki
áhugalaus i þessum átökum (eins
og búast mátti við). Bandarfkin
og Bretland hafa sagst vera
reiðubúin að senda hergögn til
Sómaliu. Sómalia hefur hingaðtil
verið á rússneska hergagna-
markaðinum, en vinskapurinn
kólnaði þegar Sovétrikin fóru að
senda hundruð tonria af hergögn-
um til geggjaða fjöldamorðingj-
ans i Addis Ababa.
x. * i
V,
mmm *
Frá Eþióplu: Eins og venjulega eru það hinir saklausu sem liða mest.
Fjöldamorð í
Ef Salvador?
Kaþólsk hjálparstofnun í
Suður-Ameríku hefur sak-
að ríkisstjórn El Salvador
um að hafa myrt þúsund
manns. Jafnframt hafa
samtök presta í Suður-
Ameríku fordæmt fjöl-
miðla heimsins fyrir að
segja ekki satt frá atburð-
unum sem gerðust í El
Salvador í febrúar síðast-
liðnum.
Að sögn yfirvalda, á sinum
tima, létu sex manns lifið og
fimmtiu særðust i átökum sem
urðu i kjölfar forsetakosninga.
Tvö hundruð voru sagðir hand-
teknir.
Þessar fréttir birtu fjölmiðlar
og ekki er vitað til að málið hafi
verið kannað niður i kjölinn.
Kirkjusamtök
saka fjölmiðla
um að þegja
yfir ódœðum
Samkvæmt þvi sem prestarnir
segja voru atburðirnir miklu al-
varlegri og ljótari.
Þeir halda þvi fram að hundruð
hafi verið drepnir og að þúsund
hafi horfið og ekki sést siðan.
Þeir, og kaþólska hjálparstofnun-
in, telja að stjórnin beri ábyrgð á
dauða að minnsta kosti þúsund
manna.
Reynt að
sprengja
leiðsluna
Atvinnulaus loðdýra-
veiðimaður var í gær sak-
aður um að hafa reynt að
skemma oliuleiðsluna
miklu í Alaska, með því að
sprengja hana í loft upp.
Reyndar tókst honum ekki
aðsprengja hana i loft upp,
dynamithleðsla hans var
svo lítil að hún skekkti
bara eina undirstöðuna.
Hinsvegar varð að loka leiðsl-
unni vegna tæknigalla, annars-
staðar og er það i fjórða skipti
sem leiðslunni er lokað siðan oli-
an byrjaði að renna eftir henni
tuttugasta júni siðastliðinn.
Ekki er vitað til þess að loð-
dýraveiðumaðurinn tilheyri nein-
um sérstökum samtökum, en
samt mun til athugunar að herða
til muna öryggiseftirlit við leiðsl-
una. Það er reyndar ekkert smá-
verk að passa hana, þvi hún er
1.280 kilómetra löng.
NÝJU rÖTIN BEGINS
Einn af þingmönnum
stjórnarandstöðunnar í
Israel las í gær á þingi
upp úr hinni vinsælu sögu
H.C. Andersen, ,,Nýju
fötin keisarans", til þess
að lýsa áliti sínu á
árangrinum af heimsókn
Begins, forsætisráðherra
til Bandaríkjanna.
Begin hefur verið gleiður yfir
árangrinum af þeirri ferð og
meðráðgjafar hans og flokks-
bræður ekki siður. Þingmönn-
um verkamannaflokksins, sem
er i stjórnarandstöðu, þykir að
þarna sé verið að gera mikið úr
engu.
Þeir segja að undirtyllur Beg-
ins keppist við að fullvissa hann
um að góður árangur hafi náðst,
alveg eins og skraddarar
keisarans hafi sagt honum hvað
nýju fötin hans væru falleg.
Begin kemur til Washington ásamt Alizu, konu sinni.
Sally
mátti
alveg
Sally Ball, í Sout-
hampton í Englandi,
hafa verið dæmdar
skaðabætur vegna þess
að vinnuveitandi henn-
ar rak hana eftir að
hafa séð af henni
nektarmyndir í tíma-
riti.
Sally sem er 16 ára, vildi
ekki sætta sig við þetta og
þær fóru i hár saman hún og
eigandi hárgreiðslustofunn-
ar sem hún vann á.
Dómari sem fjallaði um
málið hélt með Sally og sagði
að þar sem enginn viðskipta-
vinanna hefði kvartað og
enginn af hinum starfsmönn-
unum neitað að vinna með
henni, hefði verið ástæðu-
laust að reka hana.