Vísir - 28.07.1977, Side 5
VISIR Fimmtudagur 28. júll 1977.
ARABARNIR ERU AÐ
KAUPA UPP LONDON
— Þeir hafa peninga eins og sand og hika ekki við að borga
margfalt verð fyrir hallir, villur eða hótel sem þá langar í
Ekki er vitað til aö neinn arabi
hafi enn boöiö i Big Ben, en hver
veit....?
Umsjón: Óli Tynes
--------y
London virðist vera i
sérstöku uppáhaldi hjá
arabískum oliufurstum
sem vilja fjárfesta i
fasteignum. Sem dæmi
má nefna að fyrir
nokkru skipti lúxus-
hótelið Carlton Tower,
um eigendur og
kaupverð var sem
svarar tæpum fimm
milljörðum islenskra
króna.
Enn er ekki vitað hver kaup-
andinn er, en það er þó enginn
vafi á þvi að það eru oliupeningar
sem koma fyrir hótelið. Engir
aðrirhefðu efni á að greiða svona
hátt verð.
Carlton Tower er i Kensington
og þar búa yfirleitt ekki aðrir en
milljónamæringar og stjórnar-
erindrekar. Hótelkaupin eru
nokkuð dæmigerð fyrir arabiskar
fjárfestingar. Arabarnir hafa
sérstakt dálæti á steypu þvi:
„hún er svo varanleg. Auk þess er
London svo þægileg borg að búa
i.”
Listinn yfir lúxushótel sem
arabar hafa keypt er orðinn ansi
langur. Efst á honum er hið fræga
Kensington hótel sem fór fyrir
ótaldar milljónir.
Margfalt verð
bað er ákaflega erfitt fyrir hina
bresku eigendur að segja nei, þvi
það verð sem er boðið er nánast
óraunhæft. Fyrir Carlton hóteliö
var til dæmis greitt fjórfalt þaö
verð sem fyrri eigendur greiddu
fyrir það árið 1972. Hvert her-
bergi kemur út á sextán og hálfa
milljón króna.
bað er enginn vafi á að arabar
hafa sérstaka ást á Englandi og
Englendingum. Ein ástæðan kann
aö vera sú að málið er þeim ekk-
ert vandamál: margir þeirra
voru við nám i Englandi á yngri
árum.
Þá fór yfirleitt vel á með aröb-
um og Englendingum meðan þeir
siðarnefndu höfðu hvað mest
áhrif i Mið-austurlöndum. Breska
stjórnin hefur enda verið fremur
hlynnt aröbum i viðureign þeirra
við Israel.
Arabarnir sýna áhuga sinn og
ást á þvi sem enskt er með þvi að
fjárfesta gifurlegar upphæðir i
höllum, hótelum, risastórum vill-
um, allskonar fyrirtækjum og
listaverkum.
Það hefur ekki verið tekið
saman hvað þeir hafa samtals
fjárfest mikið en það er ekki
undir þrjúhundruð milljörðum.
Velta sér í aurum
En það er ekki nema
„oliudropi” miðað við þann auð
sem arabarikin eiga. Þegar full-
trúar OPEC rikjanna komu
saman i Stokkhólmi á dögunum
til að reikna út hvað þeir þyrftu
að fá fyrir oliuna sina, reiknuðu
sænskir hagfræðingar út að
samanlagðar tekjur þeirra yrðu á
þessu ári yfir átta þúsund
milljarðar.
A hverju ári heimsækja meira
en fjögurhundruð þúsund Arabar
London. Sumir þeirra fara ekki
leynt með auðævi sin og spilavitin
fagna þeim sem góðum gestum.
FERÐAVORUR
MJÖG MIKIÐ ÚRVAL
SAl /1
BiJÐIJM Rekin af Hjélparsveit skáta Reykjavik
SNORRABRAUT 58.SIMI 12045
Flestir hafa þó fremur hægt um
sig og fjárfesta i steypu.
Arabarnir I London hafa orð á
sér fyrir að vera yfirleitt mjög
hæglátir oglitiöáberandi. Að visu
fékk Yamani, oliumálaráðherra
Saudi-Arabiu, einusinni stór-
magasinið Harrods, til einka-
skoðunar og innkaupa I tvo tima,
eftir lokun, en þaö mæltist svo illa
dæmi, og nota villuna fyrir
sumarhús eftir að hann er sestur i
helgan stein.
Arabiskir nágrannar
,,My God”
Um svipað leyti var sautján
herbergja hús selt fyrir 1,2
milljónir punda og hópur ungra
fyrir aö það
endurtekið.
hefur ekki verið
Arabisk hverfi
Hugmyndirnar um hina stór-
auðugu oliufursta sem fleygja
stórum seðlum i allar áttir um
leiö og þeir stika inn i eitthvert
lúxushótelið ásamt kvennabúri
sinu, lifvörðum og þjónum, eiga
ekki við um þá sem gista London.
Þeir eru harðskeyttir og dug-
legir viðskiptajöfrar, sem eru
ákaflega fágaðir og kurteisir i
framgöngu og láta litið á sér
bera.
Þegar peningar eru notaðir
gerist það yfirleitt hljóðlega, i
gegnum svissneska banka. Svo
hljótt fara málin aö bresku
seljendurnir og lögmenn þeirra
hafa oft ekki hugmynd um hverj-
um þeir eru að selja.
Einstök hverfi i London eru far-
in að bera merki um þessa arab-
isku „innrás”. 1 Kensington eru
þannig mörg nafnskiltin á villun-
um með arabisku letri. Og á skilt-
um læknanna i Harley stræti er
búið að stækka skiltin, þannig að
auk ensku, frönsku og þýsku, eru
þau nú lika á arabisku.
Sá þriðji kom...
Það er enginn vafi á að verð-
miklar fasteignir eru efst á inn-
kaupalista arabisku milljóna-
mæringanna. Og yfirleitt fá þeir
það sem þeir vilja, þvi það getur
enginn keppt við þá um verðið.
1 siöasta mánuði var Ibúða- og
húsa „komplex” selt i heilu lagi i
London. Verðið var yfir þrjátiu og
þrjár milljónir króna fyrir hverja
ibúð, sem var langt yfir markaðs-
verði. Enginn vissi hver kaup-
andinn var, en það er enginn vafi
á þvi hvaðan úr heiminum hann
var ættaður.
Þegar stórútgerðarmaðurinn
Ravi Tikko, setti tuttugu her-
bergja lúxusvillu sina á markað-
inn fyrir nokkrum mánuðum vildi
hann fá minnst tvær og hálfa
milljón sterlingspunda fyrir
hana.
Tveir arabiskir millar buðu i
hjallinn, en svo kom sá þriöji
fram á sjónarsviðið. Það var hans
hátign Khaled, konungur
Saudi-Arabiu. Hinir kaupendurn-
ir drógu sig snarlega I hlé, en
kóngurinn snaraði út þrem
milljónum punda fyrir herleg-
heitin.
Sögur eru á kreiki um að hann
ætli brátt að segja af sér konung-
araba lét sér ekki nægja eitt,
heldur keyptu þrjú við sömu götu,
fyrir fjórar milljónir.
A listaverkauppboðunum hjá
Christie og Sotheby, þar sem
listaverk og antik skipta um eig-
endur, fyrir milljónir, i hverri
viku, eru arabarnir einnig fasta-
gestir. Þeir borga hvað sem er, og
London er þvi að verða sá staður
þar sem „raritetin” koma á
markaðinn.
En arabarnir setja einnig svip á
bæinn með öðrum hætti. Það er
farið að gefa út blað á arabisku, i
London, og arabiskum nemend-
um við fræga og dýra heimavista-
skóla fjölgar stöðugt.
Bretar hafa auðvitað ekkert á
móti þvi að fá allar þessar
milljónir inn i landið, en þetta
gengur nú samt ekki alveg vand-
ræðalaust fyrir sig. Bretar eru jú
sumir hverjir dálitið snobbaöir og
sumum þeirra þykir arabisku
millarnir hafa meiri peninga en
vit.
Sérstaklega hefur breskum
fyrirmönnum i Kensington og
fleiri finum hverfum, þótt litið i
það varið að fá arabiska ná-
granna. „Sumir þeirra kunna
ekki einusinni að nota gull-
skreyttu klósettin sin”, segir einn
Bretanna, með fyrirlitningu.
Sögurnar vinsælar
Ekki hefur þó komið til neinna
stórvandræða eða átaka af þess-
um völdum, ennþá að minnsta-
kosti. Það er ákaflega erfitt að
rifast við alla þessa peninga.
Þess i stað skemmta Bretar sér
viö að segja sögur af aröbunum.
Ein sú vinsælasta er um oliufurst-
ann sem kom inn i finustu kjóla-
verslun borgarinnar og keypti
þar fleiri ferðatöskur af dýrum
kvöldkjólum.
Afgreiðsludaman var i hinum
mestu vandræðum. Hún vildi ekki
móðga gestinn úr eyðimörkinni,
en gat þó ómögulega látið hann
gera svona vitleysu.
Hún ræskti sig þvi og sagöi
vandræðalega og kurteislega i
senn: „Afsakið hátign, en þessir
kjólar eru allir af mismunandi
stærðum.”
Hans hátign brosti góðlátlega:
„Hafið ekki áhyggjur af þvi frök-
en, þaðeru konurnar minar lika.”
Spánskar
postulínsstyttur
Erum að taka upp 170 tegundir
af spönskum postulínsstyttum
★
Lítið á fallegt styttuúrval
Kynnist góðu verði
mr
ni.i.--
KRISTAJH
Laugaveg 15 sími 14320