Vísir - 28.07.1977, Page 10
10
Fimmtudagur 28. júli 1977. VISIR
VÍSIR
C'tjíefandi: Heykjaprent lif
Framkvapindastjóri: Davift (iuómundsson
Hilstjórar: l»orstt*inn l’álsson ábm.
Olafur Hajínarsson.
Hitstjórnarfulltrúi: Bragi Guömundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guömundur G. Pétursson.
L msjón meft llelgarblafti: Arni Þórarinsson. Blaftamenn: Anders Hansen, Anna Heiftur Oddsdóttir,
Edda Andrésdottir, Kinar K. Guftfinnsson, Elias Snæland Jónsson, Finnbogi Hermannsson, Guftjón ,
Arngrimsson. Hallgrimur H. Helgason, Kjartan L. Pálsson. Oli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Syeinn^"
Guftjónsson. Sæmundur Guftvinsson. iþróttir: Björn Blöndal. Gylfi Kristjánssón. C tlitsteiknun: Jón
Oskar Hafsteinsson, Magnús Olafsson. I.jósmyndir: Einar Gunnar Einarsson. Jens Alexandersson,
Loftur Asgeirsson.
Siihistjúri: Páll Stefánsson Auglýsingastjori: Porsteinn Fr Sigurftsson
Dreifingarstjóri: Sigurftur H. Pétursson.
Auglys ingar: Siftumúla K. Simar XL’L’liO. Kdlill. \skril targjald kr. IIMHI á mánufti innanlands.
Algreiftsla : Stakkliolli 2-1 simi Klilill Verft i laiisasölu kr. 70 eintakift.
Hitstjórn : Siftiimiila II. Simi Klilill. 7 linur. I’reiitun: Blaftaprent lif.
Hvers vegna
skömmtunarkerfi?
Stjórnmálamenn hafa lengi haft all-ríka tilhneig-
ingu í þá átt að stýra atvinnustarfseminni með hafta-
og skömmtunarreglum af ýmsu tagi. Með valdatöku
viöreisnarstjórnarinnar á sínum tíma var þó stigið
stórt skref til aukins frjálsræðis. En á síðustu árum
hefur aftur gætt vaxandi áhuga á hafta- og skömmt-
unarkerfinu.
Er þetta því furðulegra, þegar á það er litið, að
reynsla annarra þjóða sýnir, svo að ekki verður um
villst, að frjálst markaðskerfi leiðir til mestrar verð-
mætasköpunar og minnstrar verðbólgu. Verðlags-
haftakerfið, sem við höfum búið við hefur engu
breyttt um dýrtíðina. Reyndar má færa rök fyrir því,
að þetta kerfi haf i fremur aukið verðbólguna en dreg-
ið úr henni. Hallarekstursstefna gagnvart opinberum
fyrirtækjum á vinstri stjórnarárunum ber vitni þar
um.
Þó að staðreyndirnar tali allt um kring, virðast
stjórnmálamenn enn trúa á haftareglurnar. Þjóðverj-
ar, sem búa við mjög frjálst markaðskerfi, hafa hvað
minnsta verðbólgu í Evrópu um þessar mundir. Við
righöldum á hinn bóginn í verðlagshaftakerfið og bú-
um við mesta verðbólgu i allri álfunni og þó víðar
væri leitað.
Reynt hefur verið að koma í veq fyrir, að fyrirtæki
skiluðu arði eða hefðu möguleika á að mynda eigið
f jármagn til uppbyggingar og endurnýjunar. Jafnvel
rikisfyrirtækin verða að lúta þessu lögmáli. Yfirvöld
virðast heldur vilja, að borgararnir auki viðskipta-
hallann við útlönd með misjafnlega nytsömum inn-
f lutningi.
Með þessu móti verða fvrirtækin smám saman háð-
ari skömmtunarstjórum kerfisins. Viðhorfið er þann-
ig, að jafnvel borgaraleg blöð býsnast yfir því, að
fyrirtæki eins og Flugleiðir skili nokkrum hagnaði,
sem þó er ekki nema brotabrot-af þeirri f járfestingu,
sem fyrir dyrum stendur vegna endurnýjunar á flug-
vélakosti.
Þegar búið er að þrengja að atvinnufyrirtækjunum
frá öllum hliðum, koma stjórnmálamennirnir og
segja, að ekki megi hækka vexti, því þá stöðvist at-
vinnureksturinn í landinu. Atvinnulifinu á þanniq að
halda gangandi með því að taka sparifé almennings
fyrir óverulegt endurgjald. Stjórnmálamennirnir
kalla þetta réttilega vinstri pólitík.
Ríkissjóður er eini aðilinn í þjóðfélaginu, sem hefur
heimild til að bjóða sómasamlegt endurgjald fyrir
fjármagn. Bankarnir, sem standa eiga undir lána-
þjónustu við atvinnufyrirtæki og einstaklinga, fá ekki
að greiða sparif járeigendum sama endurgjald fyrir
innlánsfé og ríkissjóður.
Á þennan hátt nýtur ríkissjóður forréttinda á kostn-
að annarra, jafnvel bankanna svo ekki sé talað um
fyrirtækin. Meðan þannig er búið að fyrirtækjarekstr-
inum, að hann má ekki skila arði er lítil von til þess, að
borgararnir hafi áhuga á að beina peningunum beint
inn í atvinnulífið. Yfirvöld vilja heldur, að þeim sé
breytt í steypukrónur eða frystikistukrónur.
Sumir kalla það íslenska atvinnustefnu að setja
fyrirtækin undir skömmtunarstjórakerfi og koma í
veg fyrir beina þátttöku almennings í fyrirtækja-
rekstri. Stjórnmálamennirnir vilja einfaldlega koma í
veg fyrir, að yfirráðin yfir f jármagninu dreifist, því
að það dregur úr þeirra eigin völdum.
Fátt er þó mikilvægara til viðhalds lýðræðisskipu-
laginu en treysta f járhagslegt sjálfstæði borgaranna.
Ein leið i því efni er að opna möguleika fyrir, að yf ir-
ráðin yfir f jármagninu dreif ist, því að það dregur úr
þeirra eigin vöidum.
Fátt er þó mikilvægara til viðhalds lýðræðisskipu-
laginuen treysta fjárhagslegt sjálfstæði borgaranna.
Ein leið í því efni er að opna möguleika fyrir almenn-
ing til beinnar þátttöku í fyrirtækjarekstri. En það
gerist ekki í verulegum mæli, nema fyrirtækin fái að-
stöðu til að greiða þeim arð, sem leggja fram fjár-
magnið. Eins er með bankana, þeir fá ekki sparifé al-
mennings, nema borga fyrir það.
Verðbólgan vex
ef vextir af
*
innlendu fjór-
magni lœkka
Að undanförnu hefur verið
mikill hávaði i þeim Alþýðu-
bandalagsmönnum um efna-
hagsmál.
í fyrsta lagi hefur þar borið á
útdráttum i úr tveimur eða
þremur gömlum skýrslum,
gerðum i og fyrir ráðherratið
Magnúsar Kjartanssonar, undir
nafninu „lslensk atvinnu-
stefnai’ Er siðan milli útdrátta
skotið inn gömlum lummum úr
trúarjátningum sósialista um
vonda og feita karla sem fást
við það sér til skemmtunar að
plata verkafólkið og hafa út ur
þvi fé.
I öðru lagi hefur verið hamast
á móti vaxtahækkunum þar sem
„málgagn þjóðfrelsis og
sósialisma” hefur boðað arðrán
gamals fólks og unglinga, sem
enn hafa ekki haft vit á þvi að
taka fé sitt út úr bönkum og öðr-
um innlánsstofnunum. Til þess
að halda hinu sósialistiska
samræmi i hagkerfinu verða
islenskir sparifjáreigendur að
sæta margfalt verri kjörum i
sinu eigin landi en erlendir aðil-
ar. Alþýðubandalagsmenn tima
sem sagt ekki að borga Islend-
ingum sömu vexti og erlendum
aðilum
I þriðja lagi hafa verið miklar
hugleiðingar um rikidæmi til-
tekinna einstaklinga sem þjóðin
treystir betur en þeim Alþýðu-
bandalagsmönnum að fara með
sameiginleg mál sin.
I fjórða lagi hefur verið kvart-
að yfir þvi að nokkur fyrirtæki
greiði ekki tekjuskatt. Á sama
tima er boðað að allur rekstur i
landinu sé aðþrengdur vegna
vaxtaokurs. Enginn útskýrir þó
hvernig fyrirtæki, sem eru á
hausnum vegna hárra vaxta-
greiðslna eigi að geta verið af-
lögufær um miklar upphæðir i
tekjuskatt. Þetta er þó liklega
aðeins hið. sósialistiska sam-
ræmi i hagkerfinu.
íslensk atvinnustefna.
1 sambandi við fyrst talda atr-
iðið „Islensku atvinnustefnuna”
furðar fólk sig á þvi, hvers
vegna þeir Alþýðubandalags-
menn tóku ekki mark á áð-
urnefndum skýrslum meðan
þeirvoru sjálfir viö stjómvölinn
ogsjálfurMagnús Kjartansson i
embætti iðnaðarráðherra. Þá
var öldin önnur og ferðalög til
Sviss og vestur um haf taldar
vænlegri við uppbyggingu iðn-
aðar á Islandi.
Nú er hins vegar róið á önnur
mið og boðað að enginn megi
hreyfa sigi atvinnuuppbyggingu
á íslandi sér og öðrum til
bjargar nema rikið. Það á aö
standa fyrir öllu nema rekstri
bakaria og rakarastofa að fólki
skilst. Eru þetta dvænt verðlaun
tilbakaranna fyrir að skjóta sér
fram hjá verðlagslöggjöfinni,
oghelstspáirfólki það að næsta
tiskustefna Alþýðubandalagsins
eftir „íslensku atvinnustefn-
una” verði einhver hártisku-
stefna.
Sem beturfererhin „Islenska
atvinnustefna” Alþýöubanda-
lagsins ekki nema orð og
islenska þjóðin mun rækilega
sjá fyrir þvi að hún verði aldrei
annað. Þessi tiskustefna Al-
þýðubandalagsins liggur á lik-
börunum en fólkið hlær.
Vextir og verðlag.
Arðrán sparifjáreigenda er
hins vegar miklu alvarlegra í
Vilhjálmur Egilsson
viðskiptafrœðingur
skrifar um
efnahagsstefnu
Alþýðubandalagsins
og segir, að lágir
vextir munu þýða enn
þá meiri rýrnun á því
innlenda frjálsa
fjármagni, sem
fyrirtœkin eigi kost á.
V" J
þvi máli hefur Alþýðubandalag-
inu tekist að spila á stundar-
hagsmuni Sambandsins og
plata i lið með sér stóran hluta
Framsóknarflokksins. Sam-
bandið gengurblinttilþess leiks
að eyða innistæðum i innláns-
deildum kaupfélaganna og
Samvinnubankanum með
neikvæðum raunvöxtum. Þeir
sjá ekki, ao et svo heldur sem
horfir, munu þeir eftir nokkur
ár þurfa að taka erlend lán til að
fjármagna reksturinn. Þá verð-
ur lánskjörunum ekki ráðið en
útlendingaþóknun Alþýðu-
bandalagsins hins vegar
fullnægt.
Alþýðubandalagsmenn halda
þvi fram, að lækkun vaxta muni
draga úr verðbólgunni. Lægri
vaxtakostnaður fyrirtækjanna
veitti aukið svigrúm til kaup-
hækkana, sem annars færu út i
verðlagið. Þessu hafa ótrúleg-
ustu aðilar trúað. Staðreyndin
er hins vegar sú, aö þetta er al-
rangt Lægri vextir þýða ennþá
meiri rýrnun þess innlenda
frjálsa fjármagns, sem fyrir-
tækin eiga kost á að fá að láni.
Og þegar rýrnun fjármagnsins
er komin á það stig, að
skömmtunarreglur hrökkva
ekki lengur til við að halda
fyrirtækjunum gangandi, verð-
uraðfá fjármagn annars staðar
að. En hvar á að fá slikt
fjármagn? Til þess eru nokkrar
leiðir.
I fyrsta lagi má nefna skyldu-
sparnað fyrirtækja i formi
skatta til fjárfestingarlána-
sjóða. Þessi leið hefur verið far-
in hér á landi og niðurstaðan af
henni er ekki sú, að kostnaður
fyrirtækjanna lækki, þar sem i
stað vaxtagreiðslnanna hafa
komið skattar til lánasjoðanna.
I öðru lagi má nefna framlög
rikisins til lánasjóðanna. Þessi
framlög eru að sjálfsögðu feng-
in með sköttum af almenningi
og auk þess að þarna er verið að
færa fjármagn frá launþegum
til atvinnurekenda, verður
niðurstaðan sú, að verðbólgan
minnkar ekki, þvi að skattarnir
hækka verðlagið sbr. söluskatt,
tolla og vörugjald.
I þriðja lagi má svo nefna
skyldusparnað einstaklinga i
alis kyns sjóðum svo sem
lifeyrissjóðum. Þeir sjóðir hafa
hingað til lánað litið fé til at-
vinnurekstursins heldur mestan
parttilsjóðsfélaga sjálfraá lág-
um vöxtum. Ef svo heldur fram
sem horfir, verða sjóðirnir
hreinir gegnumstreymissjóðir
innan tiðar. Lækkun vaxta þar
mundi einungis hraða þeirri
þróun, en ekki hafa áhrif á verð-
lagið.
1 fjórða lagi má svo taka
erlend lán. Það hefur verið gert
i miklum mæli, og vextirnir af
þeim lánum eru ekki á okkar
valdi, Hins vegar verðum við að
borga þá svikalaust og aukning
erlends fjármagns á kostnað
þessinnlenda með lækkun vaxta
á innlendu fjármagni, leiðir þá
ekki til lækkunar verðlagsins
heldur þvert á móti. Bæði þurfa
fyrirtækin að greiða háa vexti
til útlendinga, og þar sem þær
vaxtagreiðslur ganga inn í þjón-
Arðrán gagnvart sparifjáreigendum er alvarlegt mál. Þar hefur
Alþýðubandalaginu tekist aö spila á stundarhagsmuni
Sambandsins og þannig platað í lið með sér stóran hluta Fram-
sóknarflokksins.