Tíminn - 27.11.1968, Síða 3
MEBVTKUDAGUR 27. nóvember 1968.
TIMINN
REIDHESTUR SELDUR A 60 ÞUSUND!
06-Reykjavík, þriðjudag.
Aðalsteinn Þorgeirsson bóndi
á Korpúlfsstöðum seldi ekki
alls fyrir löngu sjö vetra hest
fyrir 60 þúsund krónur. Er
þetta hæsta verð sem greitt
hefur verið fyrir geltan hest
hér á landi, svo vitað er, að
isinnsta kosti hið hæsta í krónu
tfora.
Kaupandinn er Ulrieh Marth,
Sandhólaferju. Mun hann selja
hestinn úr landi og fer hann
áleiðis til Þýzkalands n.k. föstu-
dag.
— Ég keypti þennan hest
þegar hann var þriggja vetra,
sagði Aðalsteinn í viðtali við
Tímann. Ég tamdi hann sjálfur
og hefur mér oft verið boðinn
dáfallegur skildingur fyrir
hann síðan. Þessi hestur er á-
kaflega fagur, jarpur og lit og
ber sig vel. I^g ætlaði aldrei
að láta Jarp frá mér, en þegar
mér voru boðnar 60 þúsund
krónur í hann, stóðst ég ekki
mátið.
— Ég veit ekki til að geltur
hestur hafi áður verið seldur
fyrir jafnhátt verð hér á landi.
Enda er þetta mikill kostagrip
ur og afar fagur, sagði Aðal-
steinn.
Aðalsteinn Þorgeirsson á hestinum sem hann seldi fyrir 60 þús. krónur.
(Tímam.:—GE)
KRAFTBLÖKKINNI GEFID FRÍ -
SJÓMENN STANDA VIÐ SKAK
OÓ-Reykjavík.
Þeir sem eru 'ó sfldveiðum fyrir
Austurlandi hafa ekki bleytt nót
í marga sólarhringa og eru sjó-
menn að verða úrkula vonar að
meiri sfld fáist á þessum slóðum
á vertíðinni. Hefur verið svo
dauft yfir síldveiðunum, að sjó-
mennimir eru farnir að standa
við handfæri og draga ufsa.
Hafnarfjörður
Fundur verður í Framsóknarfé-
lagi Hafnarfjarðar fimmtudaginn
28. nóvember klukkan 20.30 að
Strandgötu 33. Helgi Bergs ritari
Framsóknarflokksins mætir á fund
inum og ræðir aðild íslands að
EFTA og fleira. Hann mun síðan
svara fyrirspurnum fundarmanna.
Stjórnin.
Borgfirðingar
Framsóknarfélögin í Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu halda sameigin
legan fund í Sam
komuhúsinu
Borgarnesi á~
laugardaginn kl.
2 e.h. — Um-
ræðuefni: Efna-
hagsráðstafánir
og stjórnmálavið
horfið. Framsögu
menn verða:
Steingrímur Her
mannsson, framkvæmdastjóri, og
alþingismennirnir Ásgeir Bjarna-
son og Halldór E. Sigurðsson. —
Öllum er hcimill aðgangur að fund
ínum.
Hefur ufsaveiðin verið góð og
eru nú margir bátar sem stunduðu
sfld í haust og vetur komnir með
handfærarúllur og fá þá kraft-
blokkin og milljónanæturnar að
hvílast, meðan karlarnir standa
við skakið. Hafa bátar komið með
allt að 16 lestum af ufsa úr róðri
til Neskaupstaðar undanfarið. —
Þótt ekki fáist hátt verð fyrir ufs-
ann, þykir sjómönnum skárra að
stunda þær veiðar en láta eins og
þeir séu á sfld og stunda í raun-
inni enga veiði.
Veður hefur verið sæmilegt fyr
ir austan og gæftir á handfæri
góðar, en landlega er nú vegna
brælu úti fyrir.
STUTTAR
FRÉTTIR
Stangaveiði
Aðalfundur Stangaveiðifélags
Reykjavikur var haldinn 17.
nóv. í stjörn fyrir næsta kjör-
tímabil voru kjörnir Axel Aspe
lund, form., Stefán Guðjohn-
sen, varaform.; Guðni Þ. Guð-
mundsson, gjaldkeri; Árni
Kristjánsson, ritari og Hannes
Pálsson, fjármálaritari.
StuSningur
Stjórn Rithöfundasambancjs
íslands hefur gert ályktun, þar
sem lýst er yfir stuðningi við
frumvarp Tómasar Karlssonar
um stofnun sjóðs til að kosta
kynningu á verkum íslenzkra
h.öfunda erlendis.
Nýr formaSur
Aðalfundur Félags íslendinga
í London var haldinn 4. nóv.
síðastliðinn. í stjórn voru kjörn
ir Ólafur Guðmundsson, form.;
Valdimar Jónsson, varaform.;
Páll Heiðar Jónsson, ritari; Sig
urður Kristjánsson, gjaldkeri;
og Svandis Jónsdóttir Witch
meðstjórnandi. Fráfarandi for
maður Jóhann Sigurðsson ósk-
aði hinum nýgjörna formanni
gæfu og gengis, en hann þakk-
aði Jóhanni frábærlega vel unn
in störf í þágu félagsins.
Gullna hliðið
FB-Reykjavíik, mánudag
Ungmennafélag Hrunamanna
frumsýnir 1. des. Gullna hliðið
eftir Davíð Stefónsson, en þess
má geta, að á þessu ári verður
félagið 60 ára.
Helgi Skúlason er leikstjóri
í Gullna hliðinu, en Jón bónda
leikur Guðmundur Ingimars-
son, Kerlinguna leikur Sigur-
björg Hreiðarsdóttir, Vilborgu
grasakonu leikur Eyrún Guð-
jónsdóttir og Óvininn leikur
Jóhannes Helgason. Söngva hef
ur SigurðuT Ágústsson æft.
Búningar voru fengnir að láni
hjó Þjóðleikhiúsinu, en heima
menn smiðuðu og máluðu leik
tjöldiji.
Gullna hliðið verður sýnt að
Flúðum, en þar sem leiktjöld
eru mjög þung í vöfum, verður
ekki hægt að sýna leikritið
annars staðar, en ákveðið er,
að hafa nokkrar sýningar að
Flúðum. Frumsýningin er eins
og fyrr segir sunnudagskvöld-
ið 1. desember.
Ljósastilling
PE-Hvolsvelli, þriðjudag
Á þriðjudag, miðvikudag og
fimmtudag í næstu viku verð-
ur ókeypis ljósathugun á bif-
reiðaverkstæði Kaupfélags
Rangæinga á Hvolsvelli. Það er
bifreiðaeftirlitið og lögreglan
á staðnum sem standa fyrir
þessari athugun á bifreiðaljós
um.
Næg atvinna
AA-Höfn, Hornafirði, miðvikud
Tíu bátar stunda róðra frá
Höfn um þessar mundir, og hef
ur afli verið sæmilegur þegar
gefið hefur. Er næg atvinna
hjá fólki hérna, og lítur ekki
út fyrir atvinnuleysi á næst-
unni, svo lengi sem bátarnir
róa og eitthvað aflast.
Þrír bátar eru með linu og
hafa fengið að undanförnu
6—8 lestir í róðri. Togbátar
hafa komið með 12—20 tonn
eftir þriggja daga útivist. Fyrri
part vikunnar voru slæmar
gæftir, en bátarnir réru aftur
í dag.
Styrkur
ísienzkir aðilar — 20 alls
— hafa nú síðan 1962 tekið
þátt í Cleveland áætluninni
fyrir starfsmenn á sviði æsku-
lýð_s- og barnaverndarmála.
Árið 1969 gefst tveimur ís-
lendingum kostur á að taka
þátt í námskeiðinu. Þeir sem
hug hafa á að sækja um styrki
þessa snúi sér til Fullbright
skrifstofunnar, Kirkjutorgi 6.
Styrkur
Norsk stjórnvöld hafa ákveð
ið að veita íslenzkum stúdent
styrk til háskólanáms í Noregi
næsta skólaár. Umsækjendur
séu á aldrinum 20—30 ára.
Umsókn berist menntamála-
ráðuneytinu fyrir 15. desember.
Fiskiræktarsjóður
Á aðalfundi LÍS var sam-
þykkt eftirfarandi tillaga: í
framhaldi af fyrri tillögum
LÍS um stofnun Fiskiræktar-
sjóðs, telur fundijrinn rétt að
tekjur sjóðsins verði árlegt
framlag úr ríkissjóði og fram-
lag frá vatnsaflsstöðvum.
FÉLAGSMÁLA-
RÁÐSTEFNA
SAMB. ÍSL.
SVEITARFÉLAGA
FB-Reykjavík. þriðjudag.
Dagana 20. til 22. þessa mán
áðar var haldin ráðstefna Sam
bands íslenzkra sveitarfélaga,
um félagsmál. Ýmsar ályktan-
ir voru gerðar á ráðstefnunni
og fara þær hér á eftir:
Meðferð félagsmála:
Ráðstefnan beinir því til
stjórnar sambandsins, að hún
Vinni- að því, að gerðay verði
breytingar á lögum, þannig að
sveitarstjórnir fái heimild til
að fella undir eina stjórn með-
ferð félagsmóla í sveitarfélag-
inu með stofnun sérstaks fé-
laigsmálaráðs, eins og nú er í
Reykjiavík.
Fræðslustarfsemi barna-
verndarráðs
Ráðstefnan beinir því til
barnaverndarráðs, að það beiti
sér fyrir víðtækri fræðslustarf
semi, svo sem ráð er fyrir gert
í 60. gr. laga um vernd barna
og unglinga. ■y
Æskulýðsmál
Ráðstefnan beinir þeirri á-
skoru til stjórnvalda, að sett
verði lög um æskulýðsmál, er
gangi í svipaða átt og frum-
varp þess efnis, sem lagt var
fram á seinasta Alþingi.
Einnig beinir ráðstefnan því
til stjórnar samhandsins, að
hún beiti áhrifum sínum til að
sveitarfélögin efli æskulýðs
starf sitt og hefji samstarf sín
á milli á því sviði.
Byggingasjóður
aldraðs fólks
Ráðstefnan telur. nauðsyn
bera til, að Byggingarsjóður
aldraðs fól'ks verði efldur,
þannig að • hann verði færari
um að gegna því mikilsverða
hlutverki, sem honum er ætlað.
Skipan Tryggingaráðs
Ráðstefnan lýsir fyllsta stuðn-
ingi við þá ósk, sem Samband
íslenzkra sveitarfélaga hefur
þegar borið fram, að það fái
fulltrúa í Tryggingaráði og
skorar á félagsmálaráðherra að
beita sér fyrir lagasetningu í
þessu skyni.
Löggjöf um Stjórnarráðið
Ráðstefnan telur nauðsyn-
legt, að við setningu nýrra laga
um Stjórnarráð íslands verði
athugað vandlega, hvoirt ekki
sé rétt að sameina í eitt róðu-
neyti sem flest málefni, sem
til félagsmála teljast.
Endurskoðun laga um
meðlagsgreiðslur
Ráðstefnan telur brýna nauð
syn bera til, að endurskoðuð
verði löggjöf um greiðslu með-
laga í því skyni, að koma á
hagkvæmara innheimtufyrir-
komulagi. Væntir ráðstefnan
þess, að félagsmálaráðuneytið
beiti ser fyrir slíkri endurskoð-
un í samræmi við þingsálykt-
una-tillögu, sem borin var fram
á síðasta Alþingi að tilhlutan
íamhandsins.
Sjúkrasamlög taki þátt í
kostnaði við tannlækningar
Ráðstefnan telur eðlilegt, að
tannlækningar verði kostaðar
að meira eða minna leyti af
sjúkra samlögum og óskar.
að stjórn sambandsins stuðli að
framgangi þess.
I