Tíminn - 05.12.1968, Side 1
Gerizt áskrifendur að
Trmanum.
Hringið í síma 12323
mmm
266. tbl. — Fimmtudagur 5. des. 1968. — 52. árg.
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrir augn
80—100 þúsund lesenda.
I
Fluttu ■ 19,
farangrinum til útlanda
KJ-Reyikjavik, miðviikudag.
í fyrirspurnartíma í Sameinuðu
Alþingi í dag svaraði viðskipta-
málaráðherra m.a. fyrirspurn frá
Jóni Skaftasyni um innlausn á
íslenzkum seðlum í erlendum
bönkum síðustu fjóra mánuði.
Svar ráðherrans var stutt og lag
gott: 19.2 milljónir.
Jón Skaftason þakkaði ráðherra
stutt og skýrt svar, og sagði að
þetta sýndi að allmikið kvæði að
fjárflótta úr landinu.
Þess má geta, að aðeins er nú
hægt að skipta 100 króna seðl-
um í erlendum bönkum, svo þetta
getur orðið nokkuð fyrirferðar-
mikill ,,farangur“ hjá fólki sem
fer með mikið af hundraðköllum
út til að láta skipta þeim.
Þó að það hafi ekki komið
fram í umræðum á Alþingi vegna
fyrirspurnarinnar, þá er ekki úr
vegi að benda á að e.t.v. eiga þessi
miklu seðlaviðskipti rætur sínar
að rekja til þess að á tímabili
í haust mun hafa verið mjög hag
kvæmt fyrir fsleridinga að skipta
hundrað króna seðlum í bönkum
í London. Fékk fólk þá mun
meira fyrir islenzku krónuna þar
með því að kaupa pund, heldur
en ef það keypti gjaldeyri í bönk
um hér heima. Þetta var í beinu
sambandi við 20% innflutnings-
gjaldið, sem sett var á, og þurfti
að greiða vegna gjaldeyriskaupa
hér, en auðvitað ekki í London.
Er talað um dæmi þess að fólk
hafi farið með tugi þúsunda með
sér út í hundrað köllum, og
skipt sinni upphæðinni í hverjum
banka, en ekki var hægt að
skipta nema lítilli upphæð í hverj
um banka.
Framhald á bls. 14.
Verið er að skipa upptækum veiðarfærum upp úr togbátunum í gærmorgun.
(Tímamynd GE)
Hefst verk-
fallsalda í
Frakklandi?
NTB-Paris, miðvikudag.
Víðtækasta vinnustöðvun
siðan í verkfalla- og óeirðaöld
unni s.l. vor, vofði yfir de
Gaulle, forseta, og stjórn hans
í dag, en 57000 fastráðnir
starfsmenn hjá Renault-bíla-
verksmiðjunum sem eru rdkis-
reknar, ætla að láta hálfs dags
vinnustöðvun koma til fram-
kvæmda á morgun, fimmtu-
dag. Vinnustöðvun þessi verð
ur fyrsta skipulagða mótmæla
starfsemin gegn hinni ströngu
sparnaðarásetlun frönsku stjórn
arinnar, en óttast er að frek
ari vinnustöðvanir fylgi á
eftir.
Fimm af sjö verksmiðjum
Renault-bílahringsins verða fyr
ir barðinu á vinnustöðvun
starfsmannanna, en verksmiðj
urnar eru staðsettar í nánd
við París og í Norður-Frakk-
landi. Vinnustöðvunin var til-
kynnt af tveim stærstu verka
lýðssamböndum Frakklands,
OGT, sem kommúnistar ráða,
og DFDT, þar sem jafnaðar-
menn halda um stjórnartauma.
Framhald á bls. 14
ALGJORT ONGÞVEITI
I MÁLUM TOGBÁTA
FB-Reykjavík, miðvikudag. | við land, en á aðalfundi LÍÚ í 11. desember var öUum þeim bát-
Það mun vera samhljóða álit dag komst Sverrir Júlíusson for- um, sem sekir liafa orðið um fisk
flestra, að ekki megi dragast maður sambandsins svo að orði, | veiðibrot frá ársbyrjun 1965 til
lengur að ákveða, hvað gert verð að algjört öngþveiti hafi ríkt I 1. desember í ár, gefnar upp sak-
ur í sambandi við togvciðar hér í togveiðunum lengi undanfarið. ir. Á mánudag voru svo fjórir
Halda gerlinum á lífi
í gialdþrota fyrirtæki
tGÞ—Reykjavík, miðvikudag.
Þessa dagana er verið að fara yfir bókhald Sana h.f. á Akureyri, sem lýst hef-
ur verið gjaldþrota. Fyrirtækið er enn starfrækt með fimm mönnum, þar sem óger-
legt er talið að loka því, þrátt fyrir gjaldþrotið, þar sem gífurleg verðmæti mundu
fara forgörðum með slíkum aðgerðum. Þykir tapið vera orðið nóg. Nauðsynlegt er
m.a. að starfrækja fyrirtækið til að halda lífi í ölgerlinum, og einnig til að koma í
verð á annað hundrað tonnum af bjór, sem þar eru á lager.
Kröfulýsingarfrestur vegna
gjaldþrotsins verður ekki út-
runninn fyrr en í april í vor
Hins vegar má reikna með því
að hægt verði að setja eigur
fyrirtækisins á uppboð upp úr
áramótunum.
1
Það, sem mun hafa orðið
Sana h.f. að falli er hár stofn-
kostnaður. Fyrirtækið seldi
vel eina helztu framleiðslu-
vöru sína Thule-ölið, en það
dugði ekki til að mæta þeim
byrðum. sem stofnað hafði
verið til í byrjun.
Ekkert liggur enn fyrir um
e.ndanlegar skuldir fyrirtækis-
ins. Talað hefur verið um
milljónaskuld í útihúi Lands-
bankans á Akureyri, en ein-
staklingsábyrgðir munu vera
fyrir miklu af ikuldunum við
útibúið, og eru fjárhagslega
sterkir aðilar í þeim ábyrgð-
um, eins og Eyþór Tómasson
í Lindu, sem er einn af hlut-
höfunum í Sana h.f. Þá hefur
■það vakiö athygli í þessu máli
að kona útibússtjóra Lands-
bankans á Akureyri er einn af
hluthöfunum í Sana h. f.
Sana h.f. er búið nýjum vél-
um til ölgerðar og gosdrykkja
framleiðslu og byggði á sínum
tíma hús vfir starfsemi sína á
Oddeyri. Engar horfur eru á
öðru en verksmiðjan haldi á-
fram starfsemi sinni í höndurn
nýrra eigenda, þegar gjald-
þrotamálið hefur verið til
lykta leitt. Þá er líka til sá
möguleiki að fyrirtækið verði
áfram í höndum núverandi eig
enda, og þá verði viðhöfð sú
aðferð, að núverandi eigendur
bjóði að greiða vissan hluta af
kröfunum, og eftirstöðvarnar
verði látnar niður falla.
bátar teknir að ólöglegum veið-
um út af Gróttu, og hafa þeir
allir hlotið dóm, 40 þúsund kr.
sekt og afli og' veiðarfæn verið
gerð upptæk.
Við hringdum í dag í Óskar
Magnússon skipstjóra í Vestmanna
eyjum og spurðum hann um álit
hans á þessum málum. Sagði
,hann m.a.:
— Það verður að gera eitt-
hvað í þessu og það stxax. Á-
standið hefur verið ómögulegt,
enda þótt mér hafi líkað prýði-
lega, að allir hafa getað veitt
inni í landhelgi og ekkert hefur
verið gert, aðeins kært, og svo
hafa menn fengið að fara út aftur
og halda áfram veiðum. En þetta
er auðvitað ófært í raun og veru.
Ég fyrir mitt leyti vil að öllum
verði leyft að veiða inn að þrem
ur mílum, allt í kring um
landið, á þessum trollveiðum, en
síðan verði allt friðað þar fyrir
innan eins og fyrr.
— Ég tel ekki neina hættu
stafa af þessum togveiðum inn
að þremur mílunum. Við þurfum
ekki að óttast ofveiði lengur, þar
sem við erum lausir við alla út-
lendingana, sem áður voru hér
alveg upp í fjöru. Viðhorfið er
allt annað núna en þá.
Um dómana yfir bátunum fjór
um fyrir skömmu, sagði Óskar:
— Dómsmálaráðherra er bara að
fría sig. Hann hefur hvorki frið
Framhald á bls. 14.