Tíminn - 05.12.1968, Side 7
FTMMTUDAiSUR 5. desember 1968.
TIMINN
Heimavistarskóli
við Steinsstaðalaug
Kylega var staddiur hér í borg
inmi Björo Bgilsson, oddviti
í Skagafirði. Tíminn
tækifærið og spurði
'hanm um ýmdslegt varðandi
sfcóliamiálni í sveitinni og hér-
aðinu ylfirleitt, en fyrir noklkr-
um áruim komu Lýtingar upp
myndartegu skólahúsi hjá sér,
sem stendur við Steinsstaða-
laug.
— Hvað er langt síðan
kennsla hófst í skólaMsinu?
— Bygging skólah'ússins
hófst árið 1946. Húsiinu var
ekki að fullu lokið fyrr en
laust eftir 1960, en kennsla
hófst í því strax á árinu 1949.
Þá var þar eingöngu barnaskóli
og allt fram til ársins 1965,
þegar stofnuð var unglinga-
deild við sfcólann.
— Hvernig er aðstaða þarna
fyrir unglingafcennslu?
— Fyrsta veturinn var að-
eins um fyrra stig skyldunáms-
ins að ræða. En svo gerðist
það, að á árinu 1965 keypti
Lýtingsstaðahreppur jörðina
Laugarból, sem liggur að skóla
ióðinni. Þar var íbúðarhús,
heitt vatn og góðar lóðir sem
fylgdu. Haustið 1966 var lokið
endurbótum á ibúðarhúsinu,
svo að þar var hægt að koma
fyrir heimavist fyrir ungling-
ana. Þá var hægt að hefja \
kennslu í báðum bekkjum
skyldunámsins við skólann. Á
því ári keypti ríkið og hreppur
ínn gamalt samkomuhús þarna
á staðnum. Það var endurbætt
og ^ett í það kennslustofa.
svo alls voru kennslustofurnar
orðnar fjórar í skólanum.
þrjér í sjálfri skólabygging-
unni og ein í endurbættu sam
komuihúsinu.
— Hefur svo unglinga
kennsla farið fram í skólanum
síðan?
— Já, já. Hún hefur farið
fram í þessu húsnæði. f ungl-
ingadeildinni hefur verið nokk
uð af nemendum úr öðrum
sveitum, bæði unglingar utan
úr Fljótum og annars staðar
að. Skólinn hefur verið full-
skipaður eftir þvi sem húsnæði
hefur leyft, og fjórir kenndu
þar s.l. vetur. /
— Nú hefur verið sagt, að
fyrirhugað væri að bygaja
heimavistarskóla i Varmahlið?
— Unglingaskóli byrjaði
þar árið 1966. eða ári síðar en
hjá ofckur. En kennsla hefur
þar farið fram í félagsheimil-
inu, og heimavistin hefur verið
í kjallara hússins. Og manni
heyrist að þeir sem þar ráða
málum telji þessa vist í félags
heimilinu ekki heppilega til
frambúðar.
— Og kemur til máls að þið
sláið ykkur saman?
— Það liggur efckert fyrir
um það, eins og er.
—En hver er þín skoðun á
málinu?
— Ég tel hagkvæmara bæði
fyrir rífcið og þá sem borga
hlutann á móti ríkinu, að
u*
Rætt við
- !
Björn Egils-
son, oddvita
byggja heimavist við Steins-
staðaskóla, þvi að þá mundi
vera hægt að kenna þar öllum
unglingum úr héraðinu, sem
ekki fara í skólann á Sauðár-
króki. Þetta yrði mikið
heppilegra og ódýrara en að
byggja allt upp að nýju í
Varmahlíð. Eins og kunnugt er,
þá er Steinsstaðaskólinn ekki
nema 10 fcm sunnar en Varma-
hlíð, og aðstaða að engu leyti
verri en í Varmaihlíð til skóla-
halds. Ég lít svo á, að staðar-
val til fcennsluhalds á þessu
svæði eigi ekki að vera tilfinn-
ingamá.1, heldur verði hagsýni
og hagræði haft í huga. En ef
á að ræða málið út frá hinni
tilfinningalegu hlið málsins, þá
má benda á, að Sveinn Pálsson
fæddist á Steinsstöðum, en
hann var eins og kunnugt er,
einn gagnmenntaðastur íslend-
ingur á sdnum tíma, og því eigi
í kot vísað að gera Steinsstaði
að skólasetri.
— En hafa ekki verið byggð
ir aðrir skólar i héraðinu und
anfarið?
— Það er nýreist gagnfræða
skólahús á Sauðárkróki, eða
nokkur hluti þess, sem notað-
ur verður í vetur. Það var full
þörf á þessu og þegar skóla-
byggingunni er lokið, á skól-
inn að geta rúmað alla nemend
ur í hóraðinu í þriðja og fjórða
bekk gagnfræðasti.gsins. Skól-
inn er fyrst og fremst reistur
fyrir bæinn, en hreppsfélög í
nágrenninu, eins og Ripur-
hreppur og Skarðshreppur
munu ætla að fá inni fyrir
skyldunámið í þessum nýja
sfcóla Sauðárkróks.
GOLDEN ICELAND
er tvímælalaust bezta gjöfin til ættingja
og vina erlendis
Síimivcl
Golden lceland eftir franska rithöfundinn Samivel
er sígilt landkynningarrit á ensku, sem að list-
rænni gerð lesmáls og mynda, ber af flestum
öðrum samkynja bókmenntum. Þetta er bókin
sem mun bera hróður íslands um allan heim.
VERÐ KR. 698,00.
ALMENNA BÓKAFÉLAGID
LOFTSIGLINGIN
Loftsiglingin eftr Per Olof Sundman, er trábær saga
byggð á sönnum heimildum. Hún lýsir fífldjarfri filraun
sænsks verkfræðings, S- A. Andrées og tveggja félaga
hans til að sigla í loftbelg yfir Norðurpóiinn. Þeir
félagar lentu í hinum verstu hrakningum og tilrauninni
lauk með miklum harmleik, sem uppgötvaðist ekki fyrr
en rúmum 30 árum eftir að leiðangur Andrées lagði upp
frá Svalbarða. Bólcin er frumleg og rauntrú frásögn
mikils skáids af þessum atburðum og hlaut bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs 1967.
Verð til félagsmann er kr. 395,00.
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ