Tíminn - 05.12.1968, Qupperneq 8
8__________________________________________________TIMINN_________________ _______________FIMMTUDAGUR 5. desember 1968.
EINAR ÁGÚSTSSON:
ÞINGMANNAFUNDUR-
INN I BRUSSEL
Eins og komið hefur fram að
undanförnu sótti ég fund Norð
ur-Atlantshafsþingsins, sem
haldið var í Briissel dagana 11.
—15. f.m. Þegar ég kom heim
h'áðu forráðamenn félaganna
Varðbergs og Samtök um vest-
ræna samvinnu að segja nokk-
uð frá þessum fundi. Það g,erði
ég hinn 23. nóvember s.l. og
fer hér á eftir það helzta, sem
þar kom fram.
Eins og sjálfsagt flestir vita
var Atlandshafsbandalagið eða
Nato stofnað hinn 4. apríl
1949 í Washington og verður
því senn 20 ára gamalt. 12
ríki undirrituðu stofnsamning-
inn: Belgía Danmörk, Frakk-
land, fsland, Ítalía, Kanada,
Holland, Noregur, Portúgal,
Bretland og Bandaríkin. Hinn
22. október 1951 fjölgaði aðild-
arríkjunum í 14, þar sem bæði
Grikkland og Tyrkland undir-
ritUðu samninginn þann dag og
þrem árum síðar eða í desem-
ber 1954 bættist Vestur-Þýzka
land í hópinn. Urðu ríkin
þannig 15 og hefur sú tala hald
izt síðan.
Norður-Atlantshafssamning-
urinn er í 14 greinum og eru
helztu greinarnar vafalaust
þessar:
a) 6. greinin, sem ákvarðar
það svæði, sem samkomulagið
tekur til, b) 5. greinin, sem
kveður á um það að vopnuð
árás á einn aðilann eða fleiri
í Evrópu og Norður-Ameríku,
eins og þar segir, skuli -talin
árás á þá alla, og c) 2. grein-
in sem hvetur til efnahagssam-
vinnu á milli aðildarríkjanna
og vinsamlegra milliríkjavið-
s'kipta.
Það tók nokkur ár að breyta
samningnum í stofnun, ef svo
má að orði komast. Starfsem-
in var í smáum stíl í fyrstu,
en er nú orðin all umfangs-
mikil. Nú eru stjórnardeildirn
ar aðallega tvær, annars vegar
sú sem annast varnarmál sam-
takanna, SACEUR og hins veg
ar er svo Nato-ráðið, þar sem
öll ríkin eiga fasta fulltrúa
með sendiherranafnbót. Jafn-
framt starfa ýmsar nefndir og
ráð að málefnum samtakanna
og ein slík er þingmannasam-
band Nato eða Norður-Atlants
hafsþingið eins og það mun
nú heita. Þetta samband var
stofnað árið 1955, aðallega fyr-
ir forgöngu norska þingmanns
ins Finn Moe, sem enn sækir
fundi þess.
Þingmannasambandið hefur
fastar skrifstofur í Briissel. Þar
starfar fastráðinn framkvæmda
stjóri og nokkurt starfslið að
því takmarki samtakanna að
glæða áhuga aðildarríkjanna á
starfsemi Nato kynna það
starf, sem þar fer fram og auka
eftir föngum alveg sérstaklega
þá efnahagslegu samvinnu sem
2. grein samningsins fjallar
um og ég áðan nefndi. For-
seta kýs sambandið hins vegar
til 1 árs í senn, sitt árið frá
hverju landinu Síðastliðið kjö:
tímabil gegndi þessu starfi
Séð yfir hinar nýju aðalstöðvar NATO i Brússel.
þingmaður frá íslandi Matthías
Á. Mathiesen og vil ég gjarn-
an láta það koma fram hér,
að hann þótti hafa rækt for-
setastörfin með prýði.
Auk Matthíasar sóttu fund
inn að þessu sinni Benedikt
Gröndal, Friðjón Þórðarson og
, ég.
Þinginu var skipt í 5 nefnd-
ir: Stjórnmálanefnd, Hermála
nefnd, Efnahagsmálanefnd,
Vísinda- og tækninefnd og
Menntamálanefnd, og skiptum
við landarnir þessum störfum
á milli okkar. Ég átti sæti í
Menntamálanefnd og voru það
aðallega tvö mál, sem þar voru
á dagskrá þ.e. upplýsinga- og
útbreiðslustarfsemi annars veg
ar og hins vegar vandamál
æskufólksins, sem alls staðar
hefur verið ofarlega á baugi
að undanförnu. M.a. var út-
býtt í nefndinni ýmsum skýrsl-
um, sem safnað hafði verið á
vegum formanns hennar Karls
Mundt senators frá Suður-Da-
kóta um þær mótmælaaðgerð-
ir, sem stúdentar sérstaklega
hafa gengizt fyrir í ýmsum
borgum víðs vegar um heim,
og var þar talsverðan fróð-
leik að finna. Um þetta mál-
efni, æskuna og sambúð henn-
ar við þá eldri, fóru fram mikl-
ar umræður í menntamálanefnd
inni, sem margir þekktir þing-
menn frá ýmsum löndum tóku
þátt i. en ekki skulu þær frek-
ar raktar að sinni.
Hinar einstöku nefndir
komu sér saman um allmargar
tillögur sem síðar voru lagðar
fyrir þingið í heild og hlutu
þar allar staðfestingu. Til þess
að gefa nokkra mynd af því.
sem þarna fór fram mun éa
geta þessara tillagna í örstuttu
máli.
Frá menntamálanetnd komu
2 tillögur Önnur um sameig
inlega athugun Nato og Þing-
mannasambandsins á ung-
mennavandamálum í aðildar-
ríkjunum, en hin um námskeið
í stjórnunarfræðum, er halda
skal í Belgíu sumarið 1969.
Frá Vísinda- og tækninefnd
ein tillaga um aðstoð frá Nato
til að gefa út landfræðilegt rit
um Norður-Atlantshafssvæðið,
eins og þar er nánar skil-
greint. Frá hernaðarnefnd-
inni kom tillaga um áskorun
til ríkisstjórna þátttökuríkj-
anna að stýðja og framkvæma
ályktun ráðherrafundarins um
aukinn herstyrk og framlög í
því skyni. Frá Efnahagsnefnd
komu hvorki meira né minna
en 6 tillögur, enda var for-
maður hennar sprenglærður
þýzkur hagfræðiprófessor. Til
lögurnar voru þessar: a) Um
milliríkjaverzlun — þ.e. að
vinna að niðurfellingu tolla o.
fl. b) Um alþjóðasamvinnu á
sviði peningamála. c) Um eir-
ingu Evrópu. d) Um samvinnu
til framþróunar. e) Um meiri
greiðslujöfnuð milli aðildarríkj
anna. f) Um varúðarráðstafan
ir vegna lokaðra siglingaleiða.
Frá stjórnmálanefnd komu
einnig 6 tillögur Sú fyrsta fjall
aði um ástandið við Miðjarð-
arhaf og í nálægri Austurlönd-
um. Önnur fjallaði um samn-
inga við Sovétríkin í því skyni
að draga úr vígbúnaði. en sú
þriðja um sambúð Sovétríkj
anna og Vestur-Þýzkalands
Fjórða tillagan ^ar um ástand-
ið í Grikkiandi askorun til
grísku herforingjastjórnarinn-
ar um að endurreisa þingræð
ið tafarlaust m.a. með þvi að
gangast fyrir lýðræðislegum
kosningum. Fimmta tillaga
stjórnmálanefndar'nnar var á-
skorun til meðlimaríkjanna að
veita blngmannasambandinu
nokkra fiárupphæð til að nota
á ýmsan hátt, sem nánar er
greint í tillögunni Þá er að-
eins eftir að geta um eina til-
löguna, þessa sem mesta at-
hygli hefur vakið hér á landi,
enda mjög að vonum þar sem
hún snertir málefni íslands
beint. Þessi tillaga var borin
fram af þrem þingmönnum frá
Bretlandi, Þýzkalandi og Kan-
ada og var fyrsti flutnings-
maður hennar Roberts Ed-
wards sem mörgum íslending
um er að góðu kunnur m. a-
fyrir vinsamlega afstöðu í okk-
ar garð í þorskastríðinu svo-
nefnda. Tillagan vísar til verð-
lækkunar íslenzks gjaldmiðils
og þess hversu íslendingar eru
háðir fiskveiðum og fiskiðn-
aði og minnir á efnahagsleg-
an tilgang þingsins eins og
hann er skilgreindur í 2. grein
Nato-samningsins. Ályktunin
er síðan þannig, í lauslegri
þýðingu minni: Þingið leggur
til að Nato-ráðið skuli hið
bráðasta fara fram á það við
stjórnir meðlimaríkjanna að
aðstoða ísland með því að
gera kleift að bæta og breikka
grundvöll efnahags og iðnaðar
í landinu.
Málsatvik voru að öðru leyti
þau, eftir því sem ég bezt
veit, að R Edwards kom að
máli við Matthías Mathiesen
og tilkynnh honum að hann
mundi flytja tillögu í stjórn-
málanefndinni um málefni ís-
lands um það bil klukkustund
áður en tillagan kom fram.
Þeir Matthías, Friðjón og Bene
dikt báru þá saman bækur sín-
ar og kom ásamt um að engin
ástæða væri til annars en að
taka tillögunni vel. en mennía-
málanefnd nafði lokið störf-
um þennan dag, þannig að ég
var nýfarinn úr byggingunni.
þegar bessi tundur sendinefnd-
arinnar vaj- haldinn Síðar var
tillaga kynnt ráðamönnum
hér heima símieiðis og munu
þeir ekki fremu" en nefndar-
menn hafa séð ástæðu til þess
að amast við þeirri umhyggjn
fyrir málefnum fslands sem
þessi vinveittu þingmenn frá
Bretlandi, Kanada og Þýzka-
landi vildu láta koma fram í
tillöguformi á þinginu. Vegna
þeirra blaðaskrifa, sem orðið
hafa í blöðum hér, vil ég láta
það koma fram að ég hef enga
ástæðu til annars en að trúa
því að tillagan hafi komið þing
mönnum stjórnarflokkanna í
sendinefndinni jafnt á óvart
og hún kom mér, og veit ég
raunar að því er þann veg far-
ið. Ég skal svo að lokum bæta
því við hér, að persónuleg við-
brögð mín við tillögunni voru
þau að ég hefði fremur kosið
að hún hefði ekki komið fram,
en fannst eftir það ekki ger-
legt að mæla gegn henni.
Að öðru leyti var það sem
fram fór í áðalatriðum þetta:
Matthías Á. Mathiesen
greindi frá störfum þingsins á
liðnu starfsári. Manlio Brosio
framkvæmdastjóri, lýsti starf-
semi Nato og því sem þar er
efst á baugi um þessar mund-
ir, Halvard Lange ræddi ýmis
alþjóðamál. Lennitzer, yfirmað
ur herafla Nato-ríkjanna
ræddi m.a. atburðina í Austur-
Evrópu á s.l. sumri og við-
brögð manna á Vesturlöndum
við þeim og Piesse Harmel,
utanríkisráðherra Belgíu ávarp
aði fundarmenn.
Eins og menn vita hefur
þingmannasamband Nato
hvorto völd né fjármagn yfir
að ráða Það kemur saman til
þess að ræða hin ýmsu mál-
efni og gerir ályktanir þegar
því bíður svo við að horfa.
Þessar ályktanir ganga til Nato \
ráðsins og skilst mér að mjög .
sé undir hælinn lagt hver ör- ,
lög þeirra verða. Má því e.t.v.
segja að slíka: samkomur séu ;
Framhald á bls. 15.