Tíminn - 05.12.1968, Qupperneq 14
14
TIMINN
FIMMTUDAGUR 5. desember 1968.
IPRÓTTIR
Framhaid at bls. 13
náði Fram knettinum og Gylfi
Hjálmarsson innsiglaði sigur
Fram með því að skora 16:14.
Mörk Fram skoruðu: Ingólfur
7 (3 úr víti) Sigurður E. 3, Arn
ar og Jón P. 2 hvor, Ingvar og
Gylfi H. 1 hvor. Mörk KR: Hilm
ar og Árni 3 hvor, Sigurður Ó.
Sigmundur og Geir 2 hver, Gunn
ar H. og Halldór 1 hvor.
Dómarar voru Magnús V. Pét
ursson og Björn Kristjánsson.
Þeir höfðu frekar lélega stjórn
og voru allt of gjarnir á að reka
leikmenn út af, en 6 sinnum fengu
leikmenn „reisupassann“ í ekki
' sérlega hörðum leik.
FRAKKLAND
Framhald at bls. 1.
í tilkynningu þeirra segir, að
vinnustöðvunin sé mótmæli
gegn stjórn Renault verksmiðj
anna — eða svo er það látið
heita — vegna þess að hún
hafi brugðizt loforðum er hún
gaf við lausn verkfallsdeiln-
anna í-júní s.l. Af hálfu stéttar
félaga hefur verið löngð á-
herzla á að hin yfirlýsta vinnu
stöðvun standi einnig í sam-
bandi við sparnaðaráætlun
stjórnarinnar.
Fyrir utan það að vera
fyrstu skipulögðu mótmælin
gegn sparnaðaráætluninni
marka vinnustöðvanirnar hjá
Renault annars konar tóma-
mót. Fyrsta skipti síðan í maí,
komu leiðtogar franska stúd-
entasambandsins, UNEF, og
forytumenn CGT saman til
fundar, og verður þetta varla
skilið öðru vísi en að aftur
sé að myndast samband milli
verkalýðshreýfingarinnar og
stúdenta, en sameiginlega
voru þessir tveir frönsku þjóð
félagshópar næstum búnir að
koma fransku stjórninni á
kné í vor. Samvinnan var að
vísu endaslepp i vor, þar eð
þegar verkfallsbylgjan reis
hvað hæst, sneri CGT við blað
ínu og ásakaði stúdentana um
ófrjósama stjórnleysisstefnu. |
í yfirlýsingu frá UNEF í
dag segir að stúdentar verði
nú að kveðja út lið til þess
að sýna raumhæfan stuðning
við verkfall Renault-starfs-
mannanna. Fréttaskýrendur í
París telja fimmtudags-vinnu-
stöðvunina vera lið í ná-
kvæmum og vel skipulögðum
áformum frönsku -verkalýðs
hreyfingarinnar um mótmæla-
aðgerðir gegn sparnaðaráætl-
un stjórnarinnar.
Sparnaðarráðstafanirnar hafa
í för með sér að hallinn á
viðskiptajöfnuðinum við út-
lönd 1969 minnkar um 85.080
milljónir ísl. króna. Álögur á
neyzluvörur og þjónustu munu
einnig hækka og auknir skatt-
ar hafa þau áhrif að vísitala
framleiðslukostnaðar hækkar
um 2 stig.
ÖNGÞVEITI
Framhald ai bls. 1
nótt né dag, það er alltaf verið
að hamast á honum, bæði í blöð
um og útvarpi og af öllum. Það
eru líka margir trillusjómenn,
sem eru algjörlega á móti tog-
veiðunum, því þeir telja þær
taka svo mikið frá sér. Það er
þó ekki neitt, sem máli skiptir
hér sunnan lands, aftur er það
annað mál fyrir norðan, t.d. á
Húsavík. Þar finnst mér eðlilegt
að þeir séu vondir vegna togveið
anna. Svo er það nefndin, sem
um þessi mál fjallar. Mín skoðun
er sú, að það sé ómögulegt að
hafa í henni tóma þingmenn. Það
hefði átt að setja í hana skip-
stjóra, og einhverja, sem eru í
nánari snertingu við sjóinn.
Hilmar Rósmundsson skipstjóri
í Vestmannaeyjum sagði í við-
Hagkaup - pöntunarlisti
Vegna sífelldra.verðbreytinga reyndist útilokað að
gefa út pöntunarlista fyrir þessi jól, en við viljum
þess í stað vísa á pöntunarlista nr. 3 1967 og nr. 1
og 2 1968, og gera þá ráð fyrir eðlilegum verð-
breytingum sem hafa orðið síðan.
Eins og venjulega er tekið á móti pöntunum í
síma.
Upplýsingar veittar um nýjar vörur og verð.
■^iiiiMiuuiyiutiio'iininiuiiuniiii.iuMiuimuiJiy'»»*»»»»».
t.'iV.Yi i'iYim'a.
•i>i,iWut>Qiiiiiiiiiiiiiiiiiii.ii>>'. n i (i i
•■UUMl»lllll|l'..l’U<l»Ml*í*a<.'fc***l»*»>«'.IVIll»wl*,,»*
póstverzlun
Bolholti 6, símar 30980, 30975
ÞAKKARÁVÖRP
Innilega þakka ég öllum þeim sem heiðruðu mig
á sjötugs afmæli mínu 25. nóvember s.l. með heim-
sóknum, gjöfum og skeytum og gerðu mér daginn
ógleymanlegan.
Lifið heil.
Jón Friðriksson,
Hömrum.
Öllum úr heimavist minni og vítt um land allt,
manni, börnum, tengda- og barnabörnum, systkinum
og tengdafólki, sendi ég hjartans þakkir fyrir stórar
gjafir, blóm, símtöl og skeyti, þann 1. desember s.l.
á 70 ára afmæli mínu. Guð blessi ykkur.
Steinunn Hjálmarsdóttir, Reykhólum.
tali við blaðið í dag: — Okkur
lízt ekkert á þetta, vægast sagt.
Það verður skilyrðislaust að
breyta þessum lögum, svo hægt
sé að vera við veiðarnar, án þess
að vera^um leið að brjóta lögin.
Það er staðreynd hér í Vestmanna
eyjum, að hér er ekki hægt að
stunda útgerð með togveiðarfær
um, án þess að vera innan við
þessa línu, sem nú gildir.
— Eins og kunnugt er, er þann
ig háttað hér, að séu ekki þessir
bátar gerðir út, þá er þetta
byggðarlag í voða, sagði Hilmar.
— Það má alveg reikna með
því, að verði farið að taka menn
í landihelgi og beita þessum að-
ferðum, sem beitt var í Reykja-
vík núna síðast, að menn bindi
báta sína, þangið til einhver
breyting kemur aftur. Það er
alveg útilokað annað. Það hefur
enginn maður efni á því eða kær
ir sig um að vera dæmdur og
talinn óbótamaður vegna þessa.
Veiðarnar hafa verið stundaðar
svona, af því að horft hefur verið
fram hjá þessu, og það látið
afskiptalaust. Æskilegast væri
að sjálfsögðu, að lögunum væri
breytt, svo menn gætu verið við
þetta, án þess að brjóta lands-
lögin.
— Við iítum á þetta sem lang
stærsta málið, sem hefur verið á
döfinni hjá okkur lengi. Þetta
er náttúrlega þjóðhagslega mikið
mál líka. Við vitum, að útflutn
ingurinn héðan frá Vestmannaeyj
um hefur rokkað þetta frá 13
—15% af heiidinni ,og hér búa
2% af þjóðinni. Það er alveg
óhætt að bóka það, að--verði þetta
tekið þessum tökum, legst allt
atvinnuiif hér niður. Hér eru um
60 bátar gerðir út, og um 40 eiga
engin önnur veiðarfæri en þessi
togveiðarfæri, og útilokað er að(
afla sér annarra eins og ástandið
er.
Um togveiðarnar sagði Sverrir
Júlíusson á fundi LÍÚ í dag:
,.Ég tel ákvarðanir í \>r y '
máli megi ekki dragast lengi, ríkt
sem algert öngþveiti hefur ríkt
í togveiðunum lengi undanfarið.
Stjórnvöld geta ekki lengur skot
ið sér undan því að koma þessum
málum í viðhlítandi horf, og er
þatF stórfellt hagsmunamál
margra útgerðarstaða að það sé
gert hið allra fyrsta.“
19,2 MILLJ.
Framhaid aí bls. 1
Það hefur viðgengizt lengi að
íslendingar hafi farið með ís-
lenzka peninga út í stórum stíl.
Er nærtækt dæmi um þetta þeg-
ar kjólakaupmaður nokkur hér
í Reykjavík skipti hundrað þús-
und krónum í banka í London
fyrir um þrem árum ,og komst
það aðeins upp vegna þess að
gjaldkerinn í bankanum hafi mis
talið sig er hann lét manninn
hafa pundin. Einhverjir aðilar í
London gátu þá komið bankan-
um á sporið hver þessi maður
var, og fengu kassa af kampa-
víni fyrir greiðann.
20% þjóðarinnar kaupir rafmagn
af Rafmagnsveitum ríkisins, það
er að segja dreifbýlið, Þessi 20%
greiða þegar 20 til 30% hærra
rafmagnsverð, en fbúar á Reykja
víkursvæðinu og er ekki hægt að
velta enn þessari stórauknu skuld
yfir á fólk í sveitum og kaup-
túnum landsins. Enn er ekki bú
ið að taka neina ákvörðun um
hvað gera skuli.
Á þessu ári er áætlað að Raf
magnsveitur ríkisins greiði 80
milljónir króna í vexti og afborg
anir af lánum. Árið 1969 átti
að óbreyttu gengi að greiða 90
milljónir króna í vexti og afborg
anir en vegna gengisbreytingarinn
ar hækkar þessi upphæð í 125
milljónir, og eru þá aðeins talin
samningsbundin lán.
Eins og fyrr er sagt hefur eng
in ákvörðun verið tekin um hver
á að greiða þær gffurlegu upphæð
ir sem bætast á skuldir Rafmagns
veitna ríkisins vegna gengislækk-
unarinnar. Sjálfsagt verður skulda
byrðinni velt yfir á rafmagns
kaupendur á einn eða annan hátt.
Hitt er líka til í dæminu, að
láta reka á reiðanum og hætta við
fyrirhugaðar rafvæðingarfram-
kvæmdir á næsta ári, eða árum,
og láta Rafmagnsveitur ríkisins
um það höfuðverkefni að greiða
gengisfellingarskuldirnar um ó-
fyrirsjáanlega framtfð og mun fólk
í ýmsum sveitum landsins þá
þurfa að notast við olíulampana
um sinn.
MEÐALVERÐMÆTI
Framhala ai bls. 16.
aflaverðmætið í ár er aðeins um
20% af aflaverðmætinu 1966.- En
aflamagnið er aðeins 15.6% af
aflamagni ársins 1966.
— .Yfirlitið sýnir einnig, að
þær tilraunir, er gerðar voru á
þessu ári til verkunar aflans um
borð í veiðiskipunum langt aust-
ur í hafi, svo og sala ísienzku
síldveiðiskipanna á ísvarinni sfld
í erlendum höfnum, hefur bækkað
meðalverðmæti hins mjög svo
rýra afla. Þá ræddi formaðurinn
vátryggingarmál fiskiskipanna,
lána- og vaxtamál o: fl., en eink
um gengisbreytinguna 12. nóv. s.
1 og frumvarp það, sem lagt hef
ir verið fram á Alþingi um, ráð-
stafanir vegna sjávarútvegsins.
Fundarstjórar voru kosnir Jón
Árnason, Akranesi og Margeir
Jónsson Keflavík, en fundarritari
Gunnar I. Hafsteinsson. Síðan var
kosin kjörbréfanefnd, og sam-
kv. niðurstöðu hennar eru fulltrú
ar á fundinum um 100 að tölu.
Þá var kosið í aðrar nefndir
fundarins, en þeim ætlað að
starfa í kvöld og á morgun.
Að lokinni ræðu formanns og
kosningu nefnda í dag var flutt
skýrsla sambandsstjórnar fyrir
liðið starfsár. Var þar um að
ræða umfangsmikla greinargerð
um málefni sjávarútvegsins á
starfsárinu og afskipti sambands
stjórnarinnar af þeim.
SKULDIR
Framhald af bls 16
inu væri eins viðkvæmt fyrir geng
isbreytingum og Rafmagnsveitur
ríkisins, þar sem framkvæmdir all
ar byggðust að mestu á eriendum
lánum. Auk þessara skuldahækk
ana bætist við að verð á olíu sem
notuð er á dieselrafs'töðvar Raf-
mangsveitnanna hækkar um 10
milljónir króna á ári vegna geng
isbreytingarinnar.
Eitt þeirra vandamála sem rfk
isstjórnin á við að glíma um
þessar mundir er hvernig á að
mæta þessum auknu skuldum Raf
magnsveitnanna og_ hvar á að
taka þá oeninga. í fyrra voru
gerðar þær ráðstafanir að hækka
rafmagnsverð til að mæta 118
milljón króna aukaskuldinni. Um
HAFÍS
Framhald af bls. 16.
arinnar. Sagði Stefán að skýrsla
viðskiptamálaráðuneytisins væri
samin með allt annað markmið í
huga, og ætji hún engan veginn
v:ð í þessu tilfelli. Skýrsla haf-
ísnefndar sýndi noktunina þann
tíma sem hafíshættan er mest,
en hin meðaltalsnotkun allt árið
og meðaltalsnotkun nokkurra ára.
Þá væri í skýrslu viðskiptamála-
ráðuneytisins talið geymslurými
sem ekki hefði verið notað og
ekki væri nothæft
Nefndi Stefán nokkur dæmi um
mismuninn á skýrslunum, og sagð
ist Stefán hafa upplýsingar sínar
frá síðustu dögum frá bæjar-
stjórum, oddvitum og afgreiðslu-
mönnum olíufélaganna f skýrslu
viðskiptamálaráðuneytisins er
sagt að olíubirgðir á Húsavík end
ist í 133 daga en bæiarstjórinn
segir þær endast í aðeins 75 daga.
f Ólafsfirði er sagt að birgðirnar
endist í 97 daga en mun ekki
endast nema í 60—70 daga. f
Hrísey er talið að olíubirgðirnar
endist í hvorki meira né minna en
500 daga, en þá er talinn með
geymir sem er ónothæfur, og
birgðarými þar er aðeins til 60
daga. í einu tilfelli — Raufarhöfn
eru olíubirgðirnar taldar muni
endast lengur að dómi hafísnefnd
ar en í skýrslu viðskiptamólaráðu
neytisins.
Stefán benti á í ræðu sinni að
í ísavetri mætti búast við meiri
olíunotkun heldur en í meðalári,
og þyrfti að vinda bráðan bug
að því að tryggja nægt geymslu
rými fyrir olíu á næstunni, þar
sem jafnvel mætti búast vi’ð ís
við landið upp úr áramótunum.
Ekki mætti láta glepjast af góð
viðrinu undanfarnar vikur, því
hafísinn myndaðist norður í höf
um, og þar hefðu einmitt á und
anförnu verið þannig Veðurskil-
yrði að búast mætti við mikilli
ísmyndun.
GÖNG
Framhald af bls. 16.
flugstöðvarbyggingu á flugveUm-
um.
Skúli Guðmundsson talaði í
tilefni af svari ráðherrans, en
hann hafði viðhaft þau ummæli
að nú mætti fara að sjá fyrir
endann á Norðurlandsáætlun.
Kvaðst Skúli, fyrir hönd þing-
manna í Norðurlandskjördæmi
vestra fara fram á það við ráð
herrann að þingmenn fengju nú
að sjá plaggið um Norðurlandsáætl
un jafnvel þótt eftir væri að
Skrifa nokkur orð í lok þess.
f þessum umræðum töluðu
einnig Gísli Guðmundsson, Ey-
steinn Jónsson, Lúðvík Jósefs-
son og Sigurvin Einarsson, og
töluðu þeir um áætlanagerð í
kjördæmum sínum. Bar þar m.
a. á góma það framtak sveitarfé
laga á Austurlandi að hafa að
sjálfsdáðum hafizt handa um
gagnasöfnun í sambandi við Aust
urlandsáætlun. Þá kom það fram
að Vestfjarðaáætlun nær alls ekki
yfir alla Vestfirði og heldur ekki
yfir stóra málaflokka þar. Stranda
sýsla innsti hluti ísafjarðardjúps
og Austur-Barðastrandasýsla eni
ekki með í áætluninni, og þar hef
ur ekki verið fjallað um sam-
göngur á sjó né rafmagnsmál,
sem hljóta þó að skiþta þessi
byggðarlög miklu máli, engu síð
ur en samgöngumálin.
Á VÍÐAVANGI
Framhald aí bls. 5
ríður honum ekki alveg að
fullu, ef marka má frásögn
Akureyrarblaðs, sem er á
þessa leið:
„Miklar breytingar hafa að
undanförnu staðið yfir á húsi
Landsbankaútibúsins á Akur-
eyri og segja fróðir menn, að
kostnaður við breytingarnar
verði um 15 milljónir króna.
Til samanburðar má geta þess,
að á síðasta fundi bæjarstjórn
ar Akureyrar var rætt um
byggingu nýs barnaskóla, og
áætlun um kostnað hljóðaði
upp á 13,5 millj. kr. Eftir
þessu að dæma hefði mátt
byggja nýjan barnaskóla fyrir
það fé, sem farið hefur í
breytingarnar hjá Landsbank-
anum, og hefði þó orðið eftir
nægjanlegt fé til að kosta
myndarlegt reisugildi.
En ekki er öll sagan frá
Landsbankanum sögð með
þessu. í Glerárhverfi er unnið
að því að setja upp útibú. Um
það bil sem það tekur til
starfa, er sennilegt að hafizt
, verði handa með útibú í Inn-
bænum, á Syðri-Brekkunni og
Ytri-Brekkunni“.
Þetta er sem sagt afar sól-
rík lýsing á starfi Landsbank
ans á Akureyri..