Tíminn - 21.01.1969, Qupperneq 2

Tíminn - 21.01.1969, Qupperneq 2
2 TIMINN ÞRHDJUDAGUR 21. janúar 1969. SIGUNGALEIÐIR HÆTTU- LEGAR VEGNA HAFÍSS Á laugardag fór flugvél Land- ihelgisgæzlunuar í ískönnunarflug við Vestur- og Norðurland. Er víða rekís á siglingarleiðum og eru þær hættulegar skipum í myrkri. Vegna óhagstæðs veðurs sást ekki svo vel sem skyldi til ísbrúnarinnar og voru því flestar atJhuiganimar gerðar með ratsjá. í dag var ekki hægt að fara í ískönnunarflug vegna slæilís skyggnis. Tilkynnt var um ís út af Hornbjargi og við Látravík er um 100 metra breið, landföst ís- spönig en stakir jakar á reki þar fyrir utan. Er siglingaleið fyrir Horn sæmilega greiðfær £ björtu, en hœttuleg í myrkri. Eftirfarandi er úr skýrslu Gunnars H. Ólafssonar, skipherra sem stjórnaði ískönnunarfluginu s.l. laugardag. Á siiglingaleið frá Bjargi a'ð Deild eru hiættulegir jakar og smá ísrastir og mun sigling þar varasöm að nóttu til. Allmikið ís- hrafl og stórir jakar eru í mynni ísafjarðardjúps, og ís 1—3/10 5— 10 sjóm. út af Rit. ís þessi beyg- ir upp að Straumnesi oig virðist þar landfastur og er mikið ísrek allt að Kögri, en þar beygir hann frá og síðan upp að aftur um 5 sjóm. NA af Hombjargi. Siglinga- leiðin Straumnes að Óðinsboða virðist ófær í myrfcri og varasöm £ björtu. Frá Óðinsboða er greið- fær leið að Skaga £ björtu, ag þaðan greið sigl'ingaleið austur úr. fs, 1—3/10, er um 9 sjóm. £ NV af Rauðunúpum og 4—6/10 um 8 sjóm. utar, en út af Sléttu beygir Isinn í NA-læga stefnu. Stakir jakar og smá israstir eru þó á allri siglingaleiðinni fyrir Norðurlandi. í heild virðist norðan veðrið hafa brotið mifcið af ísröndinni og rekið £ átt að landi, en ís- magnið dýpra ekfci aukizt að sama skapi. ÍSLÁNO Candída í Þjóðleikhúsinu SJ-Reykjavík, mánudag. Á föstudagskvöld frumsýnir Þjóðleikhúsið lclkritið Candídu eftir írska rithöfundinn og gagn- rýnandann Bemard Shaw. Leik- stjóri er Gunnar Eyjólfsson, en Lárus Ingólfsson annast leik- myndir og búningateikningar. Gunnar Eyjólfsson hefur áður stjórnað uppsetningu á Candidu, árið 1948, er hann var nýkominn heim frá námi i Englandi. Þá ferðaðist hann um land ásamt leikflókknum Sex i bil og sýndi leikritið víðsvegar og einnig í Reykjavík. Lék Gunnar þá jafn- framt eitt aðalhlutverkið unga skáldið Marchbanks. Að þessu sinni leikur Sig- urður Skúlason skáldið, en Erlingur Gíslason leikur prestinn og sósíalistann séra Morell, en leikurinn fjallar um átök milli þeirra. Titilhlutverkið Candidu prestfrúna Ieifcur Herdís Þorvalds dóttir, og er nú æði langt siðan hún hefur sézt í aðalhlutverfci á sviði Þjóðleikhússins. Eru eflaust margir famir að sakna hennar. Aðrir leikarar enu Gísli Alfreðs- son, Valur Gisl'ason og Jónína Jónsdóttir. Candída er eitt af fyrstu lelk- rituim höfundarins og varð strax vinsælt. Það er eitt í flokki nokk- urra leikrita. Plays pleasant and unpleasant, eftir Shaw, en hann sfcrifaði fjölmörg leilkrit og* var einnig þefcktur gagnrýnandi bæði á tónlist og annað. Síhaw er ekki sizt þekktur fyrir formála að leik ritum sínum sem eru margir hve^jir langir og hafa þótt hinir merkustu, þá lét hann sig skipta kvenréttindamál en var þó alla tíð ókvæntur, svo nokkuð sé nefnt af lifsferli hans. Shaw fæddist í Dyflinni og hlaut Nóvelsverðlaun in árið 1925. Myndfci er af Erlingi Gíslasyhi og Herdísi Þorvaldsdóttur í hlut- venbum presthjónanna. Félag Framsóknar- jkvenna í Reykjavík Félag Framsóknarkvenna I Reykjavík heldur fund fimmtudag inn 23. janúar kl. 8,30 síðdegis í samkomusal Hallveigarstaða. Fundarefni: 1. Verkefni Félagsmálaráðs. Framsögumaður Sigríður Thorla- cius. 2. Fyrsta ferðin mín: Sólveig Alda Pétursdóttir flytur frásögn. 3. Félagsmál. Sigríður Myndin er af Herdísi Þorvaldsdóttur og Erlingi v.atnim sínum. Gíslasyni í hlut- I ! Heimdallur mótmælir afgr. útvarpsráös Eftirfarandi samþybkt var gerð á fundi Heimdallar FUS á laugardag. „Fundur Heimdallar FUS haldinn í Reykjavík 18. jan. 1969 mótmælir harðlega af- greiðslu útvarpsráðs á beiðni fjölmargra útvarpshlustenda um endurtekningu samtals- þáttar Arons Guðbrandssonar og Gu’ðmundar H. Garðarsson ar nýverið. Krefst fundurian þess, að út varpsráði verði sett eðlileg fundarsköp. Þá l'eyfir fundur- inn sér að vara við því, að forsvarsmenn annarra fjöl- miðlunairtækja eigi sæti í út- varpsráði sbr. ritstjórar þriggja dagblaða. Fjölmiðlunartækin eiga inn byrðis í samkeppni, og leyfir fundurinn sér að draga í efa, að forystumönnum annarra fjölmiðlunartækja sé gert rétt með þvi að setja þá sem hags- munaverði samkeppnisaðila síns. Með framangreindri sam- þykfct er ekki Iagður neinn dómur' á skoðanir sem fram koma í nefndum samtalsþætti. Samiþykkti fundurinn að senda ályktunina útvarps- ráði, þingflofckunum, dagblöð- unum, hljóðvarpi og sjón- varpi“. (Frá Heimdalli) Skák Friðriks og Kavaleks vakti mikla athygli í fyrstu umferð skákmótsins tetfldi Friðrik við téknesika stor- meistarann L. Kavalek. Friðrik hafði ;hvítt og fóru stórmeistararn ir varlega af stað og tefldu hvor- ugir í tvísýnu, en þegar á skéfcina leið kom Friðrik sér upp styrkri sókn og neyddist Kavalek til þess að getfast upp eftir 22 leiki. Skák þessi vakti hvað mesta athygli í fyrstu umferð mótsins og var hún biirt i nokkrum hollenzíkum blöð- um með lofsamlegum ummælum um tatflmennsku Friðriks. Hér fer skákin á eftir, skáfcunnendur. til fróðleiks fyrir Friðrifc Kavalek 1. Rgl—f3 Rg8—f6 2. g2—g3 g7—g6 3. b2—b3 Bf8—g7 4. Bcl—b2 0—0 5. Bfl—g2 d7—d6 6. d2—d4 Rf6—d7 7. Rbl—c3 e7—e5 8. Ddl—d2 Hf8—e8 9. d4xe5 Rd7xe5 10. Rf3xe5 Bg7xe5 11. 0—0—0 Rb8—d7 12. h2—h4 h7—h5 13. £2—f4 Be5—g7 14. g3—g4 h5xg4 15. h4—h5 Rd7—f8 16. h5—h6 17. Rc3—d5 Bg7—f6 Staðan eftir riks er þessi: þennan leik Frið- Sauðárkróksbúar, Skagfirðingar Framsóknarfélag Sauðárkróks held ur fund laugar- daginn 25. þ. m. kl. 1,30 síðdegis að Hótel Mæli- felli. Umræðuefni: Uppbygging iðn- aðar. Frummæl- andi Helgi Bergs framkvæmdastjóri. Stuðn- ingsfólk Framsóknarflokksins er hvatt tii að fjölmenna á fund inn. Stjórnin. Þegar hér er bomið hefur Frið rik skapað sér svo sterka stöðu að svartur á ekkert nema glötun- ina fyrir höndum. 17......... Bf6xc3f 18. Kclxb2 Rf8—h7 19. Dd2—c3 f7—f6 20. Rd5xc7 Bc8—í5 21. Dc3—c4f Kg8—18 22. c7xa8 Svartur gefst upp. Friðrik Ólafsson átti heldur erf itt uppdráttar um helgina á Bever wijk skákmótinu í Hollandi. í fimmtu umferð hafði hann hvítt gegn Doda, Póllandi, og tapaði skákinni vegna fljótfærnislegs leikjar í byrjun, sem leiddi til þess að Doda náði peði yfir. f Framnald a bls. 14 Yfirlýsing frá Húsavík Tímanum hefur borizt eftirfar- andi yfirlýsing frá Húsavík vegna fréttaskrifa um læknamálið þar á staðnum: ,í frétt á forsiðu Tímans 14. janúar s.l. segir svc m.a.: „Það sem á milli ber er að héraðs- læknirinn og aðstoðarlæknir- inn segjast ekki haf. nægilegan aðgang að sjúkrahúsinu fyrir siúklinea sína“. AJð fenenum upp lýsingum frá læknunum Gísla G. Auðunssyni og Ingimar 3. Hjálm- arssyni vill, fréttaritari Tímans á Húsavík taka fram: Ummæli þessi eru alröng og er slík blaða- merinska til óþurftar enda var áður búið að gefa út fréttatil- kynningu úm. að málið væri að leysast fyrir meðalgöngu Lækna- félags fslands. — Þormóður Jóns- som“.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.