Vísir - 26.08.1977, Page 4
c
Föstudagur 26. ágúst 1977
VISIR
Indiánar leggja kvörtun fyrir fund Sameinuðu þjóðanna:
VILJA ALÞJOÐLEGAR
REFSIAÐGERÐIR GEGN
BANDARÍKJAMÖNNUM
Hópur ameriskra
indiána tilkynnti i dag,
að hann ætlaði að bera
fram kvartanir sinar
vegna framkomu
Bandarikjamanna i
þeirra garð upp á fundi
Sameinuðu þjóðanna i
næsta mánuði.
Samningsráð ameriskra indi-
ána.sem er til húsa i San Fran-
cisco, ætlar að fara fram á al-
þjóðlegar refsiaðgerðir gegn
Bandarikjamönnum vegna þess
sem indiánarnir kalla nýlendu-
stjórn þeirra i vesturhluta
Bandarikjanna, og viröingar-
leysis rikisstjórnarinnar fyrir
samningum þeim sem gerðir
voru við indiána seint á nitjándu
öld.
Samningsráðið mun bera mál
sitt upp á ráðstefnu um stöðu
ameriskra indiána sem haldin
verður i Genf á vegum Efna-
hags- og félagsmálaráðs Sam-
einuðu þjóðanna. Veröur það i
Samningsráð ameriskra indiána ætlar að bera upp kvartanir vegna
framkomu Bandarikjamanna við þá á ráðstefnu Sameinuöu þjóö-
anna um stöðu ameriskra indiána I Genf.
fyrsta sinn sem ameriskir vangi siðan Iroquoarnir leituðu
indiánar greina frá vandamál- án árangurs til Þjóðabanda-
um sinum á alþjóðlegum' vett- lagsins árið 1923.
lrankeisari kemur I opinbera
heimsókn til Tékkóslóvakiu I
dag.
íranskeisari
fer til Prag
transkeisari og kona hans,
Farahkeisaraynjakoma idag
til Tékkóslóvakiu i fimm daga
heimsókn i boöi forseta lands-
ins, Gustav Husak.
Búist er við að keisarinn
ræði við Husak um ollulindir
trans. Sovétrikin hafa tilkynnt
viöskiptavinum sinum i Aust-
ur-Evrópu að þau geti ekki
lengur annað eftirspurn þeirra
eftir hráoliu. Tékkóslóvaki'a
hefur þvi snúið sér til trans
um hjálp til aö fullnægja orku-
þörf sinni, og hefur veriö und-
irritað samkomulag til 20 ára
milli landanna, um sölu á hrá-
oliu til Tékkóslóvakiu sem
hefjist árið 1981. Samkomu-
lagiö er liður i samningi sem
undirritaður var i fyrra um
efnahagslegt, visindalegt og
tæknilegt samstarf milli trans
og Tékkóslóvakiu.
Flug til og fró Bretlandi lamast:
Og nú er líka öng-
þveiti í Frakklandi
Verkfall aðstoðar-
manna flugumferðar-
stjóra á Bretlandi hófst
á miðnætti í nótt.
Aðstoðarmennirnirsem eru 850
talsins, kröfðust 14-20% launa-
hækkunar en rikisstjórnin taldi
aö hún gæti ekki veitt hana, þar
sem þaö bryti i bága við stefnu
hennar um takmörkun á launa-
hækkunum. Ljóst er aö verkfallið
mun hafa mjög lamandi áhrif á
allt flug til og frá Bretlandi i aö
minnsta kosti fjóra daga og sem
dæmi má taka, að flugfélagið
British Airways aflýsti i gær sjö-
tiu og fimm af tvö hundruð brott-
ferðum á vélum sinum.
Aðstoðarmenn flugumferðar-
stjóra i Frakklandi hófu i dag tiu
daga hægagangs aðgerðir til að
leggja áherslu á kröfur sinar um
hærri laun og betri vinnuaðstöðu,
og hefur ástandiö i samgöngum
ekkert batnað við það. Talsmenn
franskra flugfélaga segjast að
visu ekki búast við að flugferöum
verði aflýst, en hinsvegar séu lik-
ur á margra klukkustunda töfum.
Hefur þetta valdið miklum vand-
ræðum á alþjóðlegu flugvöllun
um i Paris enda er ferðamanna-
straumurinn nú I hámarki.
Alvarleg stjórnarkreppa í Hollandi:
Fóstureyðingar
hindra fœðingu
nýrrar stjórnar
Hollendingar standa nú and-
spænis alvarlegri stjórnar-
kreppu eftir að tilraunir Joop
den Uyl forsætisráðherra
landsins, til að mynda sam-
steypustjórn mið- og vinstri
flokka mistókust. Búist er við,
að Júliana drottning ræði við
leiðtoga stjórnmálaflokkanna
og ráðgjafa siha i dag um samn-
ingaviðræöur sósialista og
kristilegra demókrata um iaga-
frumvarp til lögleiðingar
fóstureyðinga, en þær fóru út
um þúfur I gær.
Forsætisráöherrann tjáði
drottningu, að hann gæti ekki
myndað rikisstjórn vegna þess,
aðhann væri sannfærður um, aö
kristilegir demókratar mundu
ekki fást til samvinnu um laga-
frumvarpið i næstu stjórnartið.
Den Uyl hefur gert itrekaöar
tilraunir til að mynda rikis-
stjórn siðan almennu kosning-
unum lauk 25. mai siðastliöinn.
Hann sagði i gær aö hann væri
sannfærður um aö stjórn, sem
gæti ekki komið sér saman um
að lögleiða fóstureyðingar I Hol-
landi, myndi einnig eiga I erfið-
leikum með stefnu sina i félags-
málum og dómsmálum.
Soares reynir að
bjarga byltingunni
KOMU I VEG FYRIR
SPRENGJUTILRÆÐI
Lögreglan f Karlsruhe I Vest-
ur-Þýskalandi kom seint i gær-
kvöld i veg fyrir árás á skrif-
stofu aðalsaksóknarans þar
Kurt Redmann. Nú eru liðnir
fimm mánuðir siðan fyrirrenn-
ari aöalsaksóknarans Siegfried
Buback var skotinn til bana á
ieið til vinnu.
Enn hafa aöeins borist óljósar
fergnir af atburðinum, en
blaðafulltrúi saksóknarans seg-
ir, að mörgum sprengjum hafi
verið komið fyrir við vegg skrif-
stofubyggingarinnar. Sprengju-
sérfræðingum lögreglunnar
tókst hins vegar að taka
sprengjurnar úr sambandi, og
ullu þær þviengu tjóni. Lögregl-
an hefur afgirt svæðiö i kringum
bygginguna og vinnur nú aö
rannsókn málsins.
Meira en þrjátiu vinstrisinn-
aðir öfgasinnar, margir þeirra
sakfelldir borgarskæruliöar,
eru nú i hungurverkfalli i fang-
elsum í Vestur-Þýskalandi, til
þess að leggja áherslu á kröfur
sinar um betri aðbúnað I fang-
elsunum. Hefur lögreglan verið
mjög á varðbergi undanfarið
gegn árásum stuðningsmanna
þeirra utan fangelsanna.
//
Mario Soares, forsætisráðherra
Portúgals hefur skýrt frá þvi aö
fyrirhugað sé að hefja mikiar
endurbætur I efnahagsmáium til
þess aö reisa við fjárhag rikisins
og styrkja lýðræðið I sessi.
1 ræðu sem útvarpaö var i gær,
sagði Soares, að gengi portú-
galska gjaldmiðilsins verði látið
fljóta en gengið var fellt um 15% I
febrúar siðastliðinn. Soares sagði
að gengisfellingin heföi haft of al-
varlegar afleiðingar til þess að
ráðlegt væri að gripa til hennar
aftur, en hins vegar yrði gengið
lagfært litillega af og til.
Þá tilkynnti Soares, að verð á
bensini verði hækkað um 25%,
vextir af fjárfestingarfé hækkaðir
og útgjöld rikisins skorin niður
um 10-20%. Fyrirtækjum, sem
standa illa fjárhagslega verður
leyft að lækka laun starfsfólks
sins og rikisstjórnin mun leggja
aukna áherslu á þá stefnu sina að
hvetja til meiri umsvifa á hinum
frjálsa markaði og aukinnar er-
lendrar fjárfestingar.
Soares sagði að rikisstjórnin
gerði sér alveg ljóst aö hin nýja
stefna mundi vekja gremju
margra landsmanna en hún væri
samt sem áður nauðsynlegur
þáttur I að koma Portúgal á rétt-
an kjöl. Búast má við, aö viðbrögð
kommúnista i Portúgal við þess-
um aðgerðum verði mjög harka-
leg og byrjaði Soares þegar aö
vernda sig gegn þeim. Hann
sagöi, að minnihlutastjórnin
ætlaði ekki að sviKja sósialism-
ann, heldur bjarga byltingunni.
Sósialisma yrði ekki unnt að
koma á fyrr en fjárhagurinn hefði
verið bættur og lýðræðið tryggt.
Kommúnistar sökuðu Soares
nýlega um að láta Alþjóöagjald-
eyrissjóðinn ráða stefnu stjórnar-
innar i efnahagsmálum, en þvi
svaraði Soares svo i útvarpsræð-
unni, að án erlendra lána, heföu
Portúgalar staðið andspænis
hungursneyð. Hann bætti viö að
engin hætta væri á að tekin yröi
upp matvælaskömmtun, en hins
vegar yrði farið að skammta ben-
sin ef ekki yrði farið að bera á
verulegum orkusparnaði fyrir
árslok.