Vísir - 26.08.1977, Blaðsíða 11
11
■N
VISIR Föstudagur 26. ágúst 1977
r—“—““"
Mikið íþróttahús í byggingu í
Kópavogi-rúmar 1000 óhorf endur
Búiö er að grafa fyrir grunni
mikils iþróttahúss viö Digra-
nesskúla i Kópavogi.
Kópavogskaupstaður og rikis-
valdið reisa þetta hús i samein-
ingu og skapast þar aðstaða
fyrir leikfimikennslu i kaup-
staðnum, jafnt sem fyrir ýmsar
iþrótta- og keppnisgreinar.
Húsinu er þó fyrst og fremst
ætlað að leysa hina miklu þörf
skólanna i kaupstaðnum fyrir
iþróttaaðstöðu. Fyrir eru eitt
litið iþróttahús við Kópavogs-
skóla og nýlegt hús (18x33m) við
Holtagerði i Vesturbæ Kópa-
vogs.
1 þessu nýja húsi verður
aðstaða á áhorfendasvæðum
sem rúmað geta allt að þúsund
manns.
Iþróttasalurinn sjálfur er um
45 metrar að lengd og rúmir 3Ö
metrar að breidd.
Þar gætu rúmast 2-3 körfu-
knattleiksvellir af löglegri
Þannig mun hiö nýja iþróttahús viö Digranesskóla I Kópavogi
lita út séö frá Skáiaheiöi. Bygginguna teiknaöi Magnús Guö-
mundsson, arkitekt.
Búiö er aö grafa fyrir grunni hins nýja fþróttahdss I Kópavogi, Digranesskólinn er I baksýn.
Visismynd: EGE
stærð og sjö badmintonvellir,
svo dæmi séu tekin.
Afast Iþróttaálmunni eru
hliðarbyggingar þar sem eru
fjórir stórir baðklefar, aðstaða
fyrir lækni, rúmgóð veitinga-
stofa, herbergi fyrir félags-
aðstöðu, þrekþjálfun, sauna,
stór geymslurými o.s.frv.
Að sögn Ólafs Gunnarssonar,
bæjarverkfræðings í Kópavogi,
er þegar búið að bjóða út
steypuvirkin og er kostnaður
bara við þau áætlaður umll3m
Jarðvegsframkvæmdum er
sem fyrr segir lokið og var
kostnaður við þær nálægt 20
milljónum.
Fyrirsjánlega verður kostn-
aðurinn við þetta mikia mann-
virki mjög mikill, og ekki gott
að segja til um hver hann
endanlega verður þegar húsið
kemst að fullu i gagnið eftir eitt
til tvö ár.
—HL
litlausir
losnaði sæti flokksins á Vestur-
landi. Ekki er vitað um neinn
sjálfsagðan eftirmann hans i
kjördæminu, en tilnefndir hafa
verið þeir Valdimar Indriöason
á Akranesi og Jósef Þorgeirsson
hjá Skipasmiðastöð Þorgeirs og
Ellerts á sama stað.
Hvorugur þessara manna er
að ráði þekktur fyrir utan
heimabyggð sina. Þó mun
Valdimar hafa vinninginn i þvi
efni vegna afskipta sinna af
málum sjávarútvegs. Hann
kemur vel fyrir, en það mun
Björn Bjarnason er einn af ailra
snjöllustu mönnum, sem nú
hafa afskipti af stjórnmálum i
Sjálfstæöisflokknum.
vera hægt aö segja um velflesta
þingmenn flokksins.
Enginn árangur i leit
að nýjum Ingólfi
Guðlaugur Gislason I Vest-
mannaeyjum mun ekki vera á
þviað láta af þingmennsku, þótt
kominn sé nokkuð til aldurs.
Hugsanlegur staögengill hans
er talinn vera Guðmundur
Karlsson, frystihúsforstjóri i
Eyjum.
En þetta framboð er aöeins
hluti af stærri mynd Suöur-
landskjördæmis, þótt málið sé
lagt svona fyrir hér, vegna þess
siðar að efna til sérstaks próf-
kjörs eða skoðanakönnunar i
Rangárvallasýslu, þar sem
Eggert Haukdal, bóndi á Berg-
þórshvoli bar sigur úr býtum.
Þessi svæðaprófkjör eru
næsta undarlegur siður, vegna
þess að kjördæmiö er auövitað
eitt og framboðslistinn einn, og
mun nú vera á döfinni krafa
þeirra austanfjallsmanna að
efna til Drófkiörs i kiördæminu
Björn Þórhallsson stjórnarfor-
maöur Dagblaösins er liklegur
til þess aö fara í framboö hjá
Sjálfstæöisflokknum.
öllu. Mun þaö meðal annars
vera hugsaö til aö leita að nýj-
um Ingólfi en sú leit ber auðvit-
að engan árangur.
Verst staddur i
Reykjaneskjördæmi
I Reykjaneskjördæmi er talið
að Sjálfstæðisflokkurinn sé
verststaddur um þessar mundir
fylgislega séð. Það getur auð-
vitað breyst fram að kosning-
um. Þar eru þriú efstu sætin
fulibókuö, eins og sagt er á flug-
þjónustumáli.
Við fyrri kosningar var
Styrmi Gunnarssyni boðið
fjórða sætið, en hann þáði það
ekki þá. Er þvi óliklegt aö hann
taki boðinu nú, enda má telja
fullvíst að hann vilji heldur sitja
áfram sem ritstjóri Morgun-
Aldrei heyrist ógætilegt orö frá
neinum af ráöherrum flokksins
eöa öörum forystumönnum
hans, nema þá helst Albert Guö-
mundssuni og Davfö Oddssyni.
blaðsins, en verða þingmaður
einhverntíma i framtiðinni.
Frá öðrum kjördæmum
flokksins er næsta litiö aö frétta,
og má raunar telja vist aö þar
verði um óbreytt framboð að
ræða. Það hefur yfirleitt verið
háttur Sjálfstæöisflokksins að
hreyfa sem minnst við framboð-
um, þegar hann á i erfiðleikum
vegna stjórnarstarfa, og fylkja
hinu hljóöláta liöi sinu fram til
kosninga óbreyttu I stað þess að
eiga á hættu óánægju vegna
breytinganna.
Eggert Haukdal varö hlut-
skarpastur I Rangárvallasýslu
af þvi aö sveitarmennirnir voru
fleiri en Hellumenn.
Tveir ungir menn i
trúnaðarstöðum
Borgarstjórnarkosningar
verða væntanlega á undan Al-
þingiskosningunum. Þar gilda
eiginlega önnur lögmál en i
kosningum almennt, vegna þess
að þrátt fyrir allt telja kjósend-
ur að þeir viti hvaö þeir haf a viö
óbreyttan meirihluta hér i
Reykjavik en viti ekki hvað þeir
hreppa verði meirihlutinn felld-
ur.
A þessu byggist langvarandi
meirihlutafylgi fiokksins i
Reykjavik. Þeir Davið Oddsson
og Markús örn Antonsson eru
vaxtarbroddar flokksins I
borgarstjórn. Þegar talaö er
um, að flokkinn skorti unga
menn með bein i nefinu, er
gjarnan bent á þá tvo sem dæmi
um flokksmenn í trúnaðarstöð-
um, sem þora að tala og segja á-
lit sitt.
Yfirleitt er slikum mönnum
vel tekið i flokknum, fáist þeir
til að stiga út úr þoku hógværðar
og litillætis. Daviö Oddsson hef-
ur ýmislegt til aö bera sem vek-
ur grunsemdir um aö hann eigi
eftir að lenda i fremstu rö'ð
þeirra sem með borgarmál fara
fyrir flokkinn á hverjum tima.
Viö fyrri kosningar var Styrmi
Gunnarssyni boöiö f jóröa sætiö I
Reykjaneskjördæmi, en hann
þáöi ekki þá, og óliklegt er aö
hann taki boöinu nú.
Timi til að hleypa ungu
mönnunum lausum
Þegar litiö er til stjórnmála-
ástandsins i landinu litur út
fyrir aö Sjálfstæöisfl. þurfi á
öllu sinu að halda i þeim kosn-
ingum sem í hönd fara. Honum
er eflaust bölvanlega við aö
þurfa að hrista af sér hinn lit-
lausa virðuleika eöa láta hann
af hendi i hávaðasamri kosn-
ingabaráttu. En nú er kominn
timi til aö hleypa ungu mönnun-
um lausum. IÞG