Vísir - 26.08.1977, Qupperneq 9
,Þetta eru mín
dagbókarblöð'
Tvœr danskar listakonur sýna verk sín í Norrœna
húsinu
„Dreymir um að
fara lil Parísar
fil frekara nóms"
„Þetta eru mín dag-
bókarblöö”, sagði Lone
Plaetner, dönsk lista-
kona sem opnaði í gær
sýningu á verkum sfnum
i kjailara Norræna húss-
ins ásamt samlanda
sinuin, Mable Rose.
Þær stöllurnar sýna
vatnslitamyndir, teikn-
ingar, oliupastelmyndir
og grafikmyndir og eru
myndirnar allar til sölu.
Myndir Mable Rose eru
21 talsins og Lone
Plaetner sýnir 33
myndir, flestar frá Is-
landi. Kom hún hingað
með myndirnar, en
Mable Rose átti ekki
heimangengt frá ungum
börnum sinum.
Lone hefur áður dvalið
þrlvegis á Islandi siðan
1972. Sagðist hún hafa
eignast marga góða vini
hér sem hefðu gert henni
Myndir Lone Plaetner eru flestar frá
tsiandi, en hún hefur dvalið hér I sam-
tals 7 mánuði á síðustu 5 árum.
Visismynd:EGE
Mable Rose með nokkur verka sinna.
kleyft að vinna að mynd-
um sinum viðs vegar um
land.
„Mér fellur svo vel að
vera hér, að ég þar ekki
meira en tvo tíma til að
finnast ég vera heima
hjá mér”, sagöi hún.
„Mér finnst loftið
ferskara hér og andstæður
i litum eru hvergi meiri.
Ahrifin sem ég verð fyrir
hér eru svo sterk að þær
hugmyndir sem ég fæ
meðan ég dvelst hér á
landi endast mér i mörg
ár. Ég get verið að vinna
með þær löngu eftir að
ég kem heim”.
Lone vinnur sem póst-
maður iheimalandi sinu,
en vinnudagar hennar
eru aðeins tveir i viku.
Segir hún þau laun sem
hún fái fyrir það nægja
sér fyrir brýnustu li'fs-
nauðsynjum. Allt sem
hún veiti sér þar fyrir
utan kveðst hún fjár-
magna með list sinni.
Canon !lrLR ra!!'nndls,j;,ð
/ZTTE3 TI SLR myndavel,
jcr\ U En°J L sem svo sannar-
lega gerir ÖLLUM
kleift að taka frábærar myndir.
Canon
/5TS oJqT| meðfærilegri
cí-STJiiLS] dJi aftrar mvnH:
er 30% ódýrari,
30% léttari og 30%
en
aðrar myndavélar
BUSINESS WEEK kallar hana
timamótasprengju og valda
gjaldþroti fjölda keppinauta.
NEWSWEEK kallar hana stór-
kostlegasta tækniundur í sögu
myndavélarinnar.
Canon býður upp áótal
ÆÍbÚ MÖGULEIKA:
• 25 gerðir linsa.
• Mótor, sem knýr áfram filmuna.
• Ifvirkt flash.
• Dagsetningarstimpil á filmuna.
Verð aðeins kr.
104.330.-
AUSTURSTRÆTI 7 Simi 10966.
Aldrei áður hefur ný myndavélartegund valdið slíku fjaðrafoki sem
Canon
ílandi tœkninnar, Þýskalandhvar hún valin MYNDAVÉL ÁRSINS
A Star is Born....Æl
„Ég býst við að ég dveljist á ís-
landi um það bil eitt ár, en siðan
dreymir mig um aö fara til
Parisarog haida áfram námi hjá
franska f i ðl u 1 e i k a r a n u m
Christian Ferras” sagði Anna
Rögnvaldsdóttir fiðluleikari, er
Visir ræddi við hana, en Anna er
nýkomin til Islands frá námi er-
lendis.
Þær Anna Rögnvaldsdóttir og
Agnes Löve efna til tónleika I
Norræna húsinu I kvöld klukkan
20.30, og verða það fyrstu tón-
leikar önnu. A efnisskránni verða
verk eftir Corelli, Johann
Sebastian Bach, Mozart og César
Franck.
Anna hóf nám i fiðluleik niu ára
gömul, árið 1958, í Tónskóla
Siglufjarðar. Siðan stundaði hún
nám við Tónlistarskólann i
Reykjavik hjá Ingvari Jónassyni
og Birni Ölafssyni og lauk þaðan
fiðlukennaraprófi vorið 1971.
Eftir það kenndi hún við ýmsa
skóla, lék i Sinfóniuhljómsveit Is-
lands og fór á hennar vegum á ár-
legt mót sinfóniuhljómsveita i
Orkney Springs i Bandarikjunum
sumarið 1972.
Hefur stundað nám hjá
Ungverjanum Béla
Katona
Anna fór til framhaldsnáms i
London fyrir fjórum árum siðan.
Þar stundaði hún fyrst nám við
Guildhall School of Music and
Drama hjá Yfrah Neaman og að
tilhlutan hans sótti hún sumar-
námskeið i Nizza i Frakklandi.
Fékk hún til þess styrk frá
franska sendifáðinu á tslandi.
Undanfarin þrjú ár hefur Anna
stundað nám við Trinity College
of Music hjá ungverska próf-
essornum Béla Kantona, sem er
að sögn önnu mjög virtur kennari
i London.
Agnesi Löve þarf tæplega að
kynna. Hún hefur komið fram á
fjölda tónleika og sem einleikari
með Sinfóniuhljómsveit Islands,
Anna Rögnvaldsdóttir og Agnes Löve á æfingu i Norræna húsinu.
Vlsismynd: EGE
og er þvi orðinn þekktur pianó-
leikari hérlendis.
Þær Anna og Agnes sögðust
hafa leikið saman áður i útvarps-
upptöku og þær búa i sömu götu,
svo að samstarf þeirra ætti að
vera mjög hentugt.
AHO
HER ER DROTTNING
DRAUMA ÞINNA
— segir Anna Rögnvalds-
dóttir, fiðluleikari, sem
nú heldur sína
fyrstu tónleika