Vísir - 26.08.1977, Page 18

Vísir - 26.08.1977, Page 18
18 c Föstudagur 26. ágúst 1977 VISIR j ° ★ ★★ ^ + ^ ★★★★ afleit slöpp la-la ágæt framúrskarandi Ef mynd er talin heldur betri en stjörnur segja til um fær hún + að auki,- Stjörnubíó: Ofsinn við hvítu linuna ★ ★ Háskólabíó: Leigjandinn ★ ★ ★ + Tónabíó: Roller&aH ★ ★ ★ Nýja bíó: Lucky Lady ★ ★ ★ Austurbæjarbió: Fanginn á 14. hæð ★ ★ ★ Gamlabió: ELVIS ★ ★ ★ Bæjarbíó: Framtíðarheimur + + Laugarásbíó: Gable og Lombard ★ + TOMABIO Simi 31182 Höfðingi eyjanna Master of the islands Spennandi bandarisk mynd, sem gerist á Hawaii eyjum. Leikstjóri: Tom Gries. Aðalhlutverk: Charlton Heston, Geraldine Chaplin, John Philip Law. Bönnuö börnum innan 12 ára. Sýnd kl. 5 og 9. flllSTURBtJAKKHÍ tSLENZKUR TEXTI Alveg ný Jack Lemmon mynd Fanginn á 14. hæð The Prisonerof Second Avenue Bráöskemmtileg ný, banda- risk kvikmynd i litum og Panavision. Aöalhlutverk: Jack Lemmon Anne Bancroft Sýnd kl. 5, 7 og 9 íæjakbIP —w=a“==-Sími 50184 Ekki núna félagi Sprenghlægileg ensk gaman- mynd, sem kemur öllum i gott skap. Aðalhlutverk : Leslie Phillips.Roy Kinnair, Carol Howkins Isl. texti sýnd kl. 9 Leigjandinn Hrollvekja frá snillingnum Itoman Polanski, sem bæði er leikstjóri og leikur aðal- hlutverkið og hefur samið handritið ásamt Gerard Brach. ISLENSKUR TEXTl. Aöalhlutverk : Roman Polanski, Isabelle Adjani, Shelly Winters. Bönnuð börnum Ilækkað verð. Sýnd kl. 5 og 9. tslenskur texti Bráðskemmtileg, ný banda- risk ævintýra- og gaman- mynd, sem gerist á bannár- unum i Bandarikjunum og segir frá þrem léttlyndum smyglurum. Hækkað verð. Sýnd kl. 5, 7.15 og 9.30. Stimplagerð Félagsprentsmiðjunnar hf. Spítalastíg 10 - Sími 11640 hafnorbíó 16-444 Maður til taks Bráöskemmtileg og fjörug ný ensk gamanmynd i litum, meö Richard 0 Sullivan Paula Wilcox, Sally Thomsett. Sýnd kl. 3-5-7-9 og 11 SIMI 18936 Ofsinn við hvítu línuna Islenskur texti Hörkuspennandi og viðburða- rik ný amerisk sakamála- mynd i litum. Leikstjóri: Jonathan Kaplan Aöalhlutverk: Jan-Michael Vincent, Kay Lenz, Siim Pickens Sýnd kl. 6, 8 og 10. Bönnuð börnum VISIR lauqabAi Simi 32075 Gable og Lombard They had more fhan love - they had fun. Ný bandarisk mynd, er segir frá lifi og starfi einhverra vin- sælustu kvikmyndaleikara fyrr og siðar — þeirra Clark Gable og Carole Lombard. Islenskur texti. Leikstjóri: Sidney J. Furie. Aðalhlutverk: James Brolin, Jill Clayburgh, Allen Garfield oe Red Buttons. Sýnd kl. 10. Hækkað verð. Siðasta sýningarhelgi Sting. Endursýnum i nokkra daga þessa frábæru mynd, með Paul Newman og Robert Redford i aðalhlutverkum. Sýnd kl. 5 og 7.30. Bönnuð börnum innan 12 ára. Umsjón: Arni Þórarinsson og Guöjón Arngrímsson. 1 —^ 7 J Auslurbœjarbíó: Fanginn ó 14. hœð ★ ★ ★ Fanginn á 14. hæð — Prisoner of Second Avenue Austurbæjarbió. Bandarisk. Árgerð 1975. Aðalhlutverk: Jack Lemmon, Anne Bancroft, Gene Saks. Handrit: Neil Simon. Leikstjóri: Melvin Frank. Mel Edison (Jack Lemmon) er alls ekki sáttur við umhverfi sitt, — stórborgina New York. Þessi kvikmynd er reyndar eins konar einvigi milli litla manns- ins Mel og hins risastóra borg- arbákns. Mel er „fanginn á 14. hæð”, kviksettur i skýjakljúfsíbúö sinni og Ednu konu sinnar, meö rúmglaðar þýskar flugfreyjur i næstu ibúð og hjón á efri hæð- inni sem eru svo dónaleg að hella úr vatnsfötu yfir Mel þegar reiðihans gagnvart borg- inni sýöur upp úr. Mel er reynd- arfyrstogfremst fangi eigin ör- væntingar. Skyndilega er stoð- um kippt undan lifi hans. Hann missir vinnuna, hitabylgja þrúgar hann, sorpdaunninn er kæfandi o.s.frv. Allt leggst á eitt til aö raska sálarró Mels. Hann fer sem sagt yfirum, eins og sagt er. Seinni hluti mynd- arinnar lýsir upprisu Mels, gagnárásar hans á umhverfið. Megin vandi fangans á 14. hæð er sá efnislegi tvistringur sem upp kemur þegar liða tekur á myndina. I upphafi viröist þetta ætla að verða stilfærö gaman- mynd af þvi tagi sem Neil Simon, gamanleikjakóngur Broadway og Jack Lemmon eru kunnastir fyrir. En eftir þvi sem Mel brotnar saman og missir FANGAUPPREISN f NEW YORK tökin á lífi sinu, fer myndin að nálgast persónulegt drama, — sögu af sálrænum átökum ein- staklings.sem geta tæpast talist fyndin. Stundum veit maður sumsé ekki hvort á að hlægja eða gráta. Þaö verður afturámóti að segja Lemmon til hróss að það er hann i hlutverki Mels sem leysir þessa efnislegu togstreitu upp, að svo miklu leyti sem það er unnt. Lemmon er sérkenni- legur leikari. I flestum mynda hans hefur mér þótt hann 85- 90% sveittur en aðeins 10-15% sniðugur. Leikur hans er gjarnan svo yfirgengilega taugaspenntur og hamagangur- inn og lætin svo óhófleg að mað- ur hefur hálfvirkennt mannin- um. En vissulega getur Lemmon leikið, og hann getur leikiö vel. Það kom ekki sist. fram i öðru tragikómisku hiut- verki I myndinni Save the Tiger sem Háskólabió sýndi fyrir einu ' eða tveimur árum. Honum virð- ist þvi henta vel að hafa alvar- legri grunntón i hlutverkum sin- um svo farsasprellið skeri ekki á öll tengsl hans við sannferðí' uga persónusköpun. 1 mörgum leikritum Simons er einmitt óræð blanda gamans ogalvöru af þessu tagi. Þau eru drama ogfarsi i nokkurn veginn jöfnum hlutföllum, og það veldur þvi að þau eru flest frá listrænum sjónarhóli ekki heil- steypt verk. En um leið eru þau mun ánægjulegri á aö horfa en hreinir og beinir farsar. Simon erkómiskur húmanisti, glöggur athugandi á mannlegt, og þá einkanlega bandariskt, samfé- lag. Melvin Frank, leikstjóri er þaulreyndur I gamanleikjagerð, bæði sem handritahlöfundur og stjórnandi og honum tekst bæri- lega upp hér. Myndin er hvergi mjög leiksviðsleg og tilfinn- ingunni fyrir skit og svita og þrúgandi bákni New York er allvel komið til skila. Gene Saks, sem sjálfurhefur leikstýrt fjölda gamanleikja, þ.á.m. eftir Simon, er lunkinn i hlutverki Harry, stóra bróður Mels en Anne Bancroft-- á misgóða spretti semeiginkona Mels, stoð hans og stytta. Og gaman er aö sjá Sylvester Stallone, sem á þessu ári náði heimsfrægö meö Rocky i örsmáu en þýðingar- miklu hlutverki. — AÞ.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.