Vísir - 26.08.1977, Page 23
Páll Bergþórsson
veðurfræðingur
Þakkar
Páli
vinda-
frœðslu
og veð-
urbók
B.S. Sauðárkróki hringdi:
I Mig langar að koma á framfæri
þakklæti til sjónvarpsins og Páls
Bergþórssonar fyrir myndina um
vindana sem sýnd var i sjónvarp-
inu á miðvikudagskvöldið. Hún
var sérlega fróðleg og margt þar
að sjá og heyra, sem fólk hefur ef-
laust ekki almennt vitað fjrr.
Um leið og ég þakka Páli fyrir
skýran og greinargóðan texta
með myndinni og góðar veður-
lýsingar i sjónvarpinu vil ég nota
tækifærið til þessaðþakka honum
fyrir þá skemmtilegu þætti sem
hann hefur skrifað i Vísi í sumar.
Þessir þættir „Úr veðurbók vik-
unnar” hafa verið mjög
skemmtilegir aflestrar, lipurlega
skrifaðir og fullir af glettni og
skemmtilegum hugmyndum, eins
og hans Páls er von og visa.
Vona ég, að Páll Bergþórsson
haldi áfram að skrifa veðurbók-
ina fyrir Visi sem lengst.
V '
VÍSIR
vísar á
Yidskíplin
i—. ....
Hvers vegna ekki sýningar
sem fjökli fölks vill sjó?
Kjarvalsstaðir
G.M. Reykjavik hringdi:
Mér fannst mjög sérstæðar
umræður fara fram i útvarps-
þættinum Viðsjá á miðviku-
dagskvöld. Þar lýsti formaður
Félags islenskra myndlistar-
manna yfir þvi, að varlega yrði
að fara i það að fjölga viðburð-
um á Kjarvalsstöðum, þar sem
ekki mætti ofbjóða fólki. Þetta
finnst mér furðuleg skoðun.
Að sjálfsögðu á að reyna að
auka fjölbreytni þess, sem er á
boðstólnum fyrir borgarbúa,
eftir þvf sem unnt er. Það kom
vel fram, að það, sem boðið hef-
ur verið upp á, hefur verið held-
ur einhæft þann starfstima,
sem núverandi listráð hefur set-
ið.
Mér finnst. lika óeðlilegt að
fulltrúar myndlistarmanna
einna eigi þarna sæti i stjórn,
frekar en einhverjir aðrir lista-
menn. Hvers vegna er ekki
samið við Bandalag islenskra
listamanna i þessu sambandi?
Væri ekki eðlilegra að fulltrúar
sliks bandalags listamanna ættu
þarsæti, þannig að meiri breidd
yrði i þeirri liststarfsemi, sem
þarna fer fram?
Það er kannski ekki „lýð-
ræðislegt” i hugum mynd-
listarmanna, enda á vist að hafa
vit fyrir fólkinu. Það var
minnsta kosti sjónarmið tals-
manns þess listamannahóps i
nefndum útvarpsþætti. Hann
taldi ekki rétt að reyna að koma
þarna upp sýningum sem al-
menningur yfirleitt hefði áhuga
á, eða likur væru til að fjöldi
fólks sækti. Eitthvað
menningarlegra og merkilegra
ætti að vera þarna á boðstóln-
um.
Ég skii ekkert i borgaryfir-
völdum að láta myndlistarmenn
stjórna þessari menningar-
stofnun okkar Reykvikinga með
sérvisku og þröngsýni og vænti
þess, að annar háttur verði
hafður á nú, þegar nýtt listráð
hússins verður kosið.
HVER EU LAUN
KENNARA?
Arni S. á Akureyri simar:
Nú er mikið rætt og ritað um
kennaraskortinn i landinu og að
ráða þurfi marga kennara sem
ekki hafa réttindi. Sagt er að
þeir sem kennaramenntun hafi
vilji margir hverjir ekki stunda
kennslu vegna þess hve launin
eru lág.
Ég hef áhuga á að fá upp-
lýsingar um hver kennaralaun
eru og samanburð til dæmis á
launum kennara i barnaskólum
og menntaskólum, svo ekki sé
nú talað um þá sem kenna við
Háskólann.
Það þýðir ekki að vera alltaf
að fárast yfir lágum launum án
þess að nefna neinar tölur. Birt-
ið launastiga kennara og þá
fyrst getur fólk áttað sig á þvi
hvort kennarar eru eins lágt
launaðir og af er látið.
■-Hótel Borgarnes
Nýja veitingabúðin er opin frá kl. 8.00—23.30.
V.ið minnum á okkar
rúmgóðu og
snyrtilegu hótelherbergi.
Pantanir teknar
i sima 93-7119-7219
ui
Smurbrauðstofan
BJORfSJIIMrSI
Njólsgötu 49 - Simi 15105
PASSAMYNDIR *
teknar i litum
tilbúfriar strax 1
barna æ. ffölskyld
LJOSMYNDIR
AUSTURSTRÆTI 6 S.12644
HUSBYGGJENDUR-Einangrunarpiast
Afgreiöum einangrunarplast á
Stór-Reykjavíkursvæöiö frá
mánudegi - föstudags.
Afhendum vöruna á byggingar-
stað, viöskiptamönnum
að kostnaðarlausu.
Hagkvæmt verð
og greiösluskilmálar
við flestra hæfi
BorqarpiasTllr
Borqttrnc*! | ttiml 93-7370
hvöld og belgsrsiml 93-7355
Urval af
bílaáklæðum
(coverum)
Sendum
i póstkröfu.
Altíkabúðin
Hverfisgötu 72. S. 22677
Ég óska að gerast áskrifandi
Nafn
Heimili
Sveitafélag