Vísir - 13.09.1977, Qupperneq 11
VISIR Þriðjudagur 13. september 1977.
n
Kristileg iþrótt
Föstudagur Loksins er að verða
dálitið mildara seinnihluta dags-
ins. Suður undan er regnþykkni
lægðar á Grænlandshafi, en yfir
okkur höfuðstaöarbúum er aöeins
fremur þunn gráblika, sem sól
skin oft i gegnum. Það var héla á
grasi og bflum i morgun, eins og
oft vill verða rétt áður en hann
hlýnar. Enn er bliðskaparveður á
sildarmiöum við Suðausturland,
og ekki er það verra á loðnuslóö-
um. En við spáum vaxandi
austanátt undan Vatnajökli. Nú
er verið að byrja melskurð i
Þorlákshöfn, og verður haldið
áfram á morgun og sunnudag. A
meðan er verið að lesa bibliuna i
belg og biðu á Suðurnesjum, og 70
klukkustundir eiga að duga. Þetta
erathyglisverð ný iþróttagrein og
sýnu kristilegri en til dæmis
hnefaleikar eða kvennaglima.
Hagnýt gæti hún lika verið. Mikið
er nú lagt úpp úr lestrarhraða, til
dæmis i sjónvarpi, og væri athug-
andi að velja i framtiðinni þuli
eftir þvi hvað þeir geta bunaö út
úr sér bibliunni á skömmum
tima. Ef óviðeigandi þætti að nota
heilaga ritningu i þessu skyni,
mætti bara leyna þvi með þvi aö
hafa svo hraðann á, að ekki skild-
ist eitt einasta orð.
Laugardagur NU er kominn
strekkingur á sfldarmiðin, en
lygnt á loðnumiöum. Um allt
norðanvert landið er bjart og
stillt, og hjá oss Reykvikingum er
ágætis veður. nokkuö hlýrra en
fyrr. Undir kvöldiö ljúkum viö
veðurbókinni með setningu . vik-
unnar eftir Flosa i Þjóðviljanum i
dag: „Það er óbærileg tilhugsun
að dansa tangó við konu, nema
maður nái henni riflega upp fyrir
mitti”.
Eins og gleðitár
SunnudagurÞetta var bliður dag-
ur eftir að talsvert hafði rignt um
nóttina i Reykjavik. Hitinn var að
visu nokkuð undir meðallagi, en
sólin skein, og fáir regndropar
voru ekki nema rétt eins og gleði-
tár. Gleði mun þó óviða hafa ver-
ið meiri á landinu um þessa helgi
en á Hornafirði. Þar var verið að
salta nýju sildina á laugardag, en
sildarsvuntur hafa þar verið
fáséðar i háa tið. Eftir erfiði
dagsins var slegið upp balli. Og
þar i sveit eru uppskeruhorfur
kartaflna sérlega góðar á þessu
ári. Maður fær bara vatn i munn-
inn af svona fréttum, ný sild, nýj-
ar kartöflur, ball um dimma sið-
sumarnótt.
Veður fyrirfram
og eftirá
Mánudagur. Nú er hann orð-
inn norðlægari, og talsverður
strekkingur úti á flóa, þó að inn
undir Elliðaám sé vindur hægur.
Loftið er afar tært, eins og vill
verða, þegar það er ættað noröan
að, en um leið kaldara én fyrr,
sólarhringshitinn aðeins 5 stig
móti 9,5, sem er meðallagið á
þessum árstima. Sjónvarp segir
verður hafa verið kyrrt og fagurt
á reisu Þorbjarnar hins sænska
fyrir austan fjall, en i sumum
fréttamyndunum brá þó fyrir
ansi snörpum gustum i uppsveit-
um Arnessýslu i sólskininu. Þetta
sýnir, að þaulvanir fréttamenn
geta jafnvel verið i vanda að lýsa
veðri eftir á á góðviðrisdegi.
Hvað mundi þá um erfiðleika
okkar spámanna að lýsa þvi
fyrirfram á illviðrisdegi? Annars
er mér þessi heimsókn sænska
forsætisráðherrans gleðiefni. Mér
finnst hún benda til, að nú sé um
það bil að ljúka þvi svartnærtti
hatursáróðurs gegn Svium og öllu
sænsku, sem hefur legið hér i
landi i rúman áratug. Það hófst
með þvi að tveir Sviar á ferðalagi
hér lýstu undrun sinni á þvi að við
skyldum láta erlent setulið hafa
einkarétt á sjónvarpi til lands-
manna. Þetta var meira en
Mogginn þoldi og velvakendur
hans og húsmæður, og sfðan hefur
mikill hluti þjóðarinnar varla
getað litið ýmis sænsk snilldar-
verk i sjónvarpinu réttu auga, svo
dæmi sé nefnt.
Göngur og megrun
ÞriðjudagurNú er hann hægari af
austri, en kaldur , þó talsveröur
sólarglenningur og þurrt fram á
kvöldið. Þá fór að rigna verulega,
og yfirleitt hefur það verið
einkenni á úrkomu vikunnar, að
„Ætlið þiö ekkiaðhætta þessum ögrunum Iminn garö?”
hún hefur fallið á nóttunni. Þegar
ég var i sveitinni i gamla daga,
var það þennan þriðjudag sum-
ars, sem fyrstu gangnamenn á
Arnarvatnsheiði lögðu upp, til
þess að leita Jökulkrókinn svo-
nefnda milli Eiriksjökuls og
Langjökuls, en ofan komu þeir á
sunnudag. En óviða voru lömb
feitari en i þessum efstu grösum.
Nú er hins vegar hafður uppi
áróður gegn feitu keti, og varla
mundu þeir forsvarsmenn megr-
unar i sjónvarpinu i kvöld vilja
brjótast með ærnu erfiði og kostn-
aði upp i Jökulkrók eftir þeirri
vöru. Þvi stygg voru þessi lömb,
og stundum varö að elta þau svo
að mörinn i þeim bráðnaði, að
sagt var.
Réttindaleysi og gos
Miövikudagur Kennslan er að
byrja i grunnskólum, og þau
gleðitiðindi eru sögð, að flestir
eða allir kennarar i Reykjavik
muni verða meö full réttindi til
starfa sins. Þeir geta nú barið sér
á brjóst og sagt hreyknir: Guö, ég
þakka þér, að ég er ekki eins og
aðrir menn. Þeir réttindalausu
verða hins vegar eins og
tollheimtumaðurinn i bibliunni aö
biðja guð að vera sér syndugum
liknsamur og láta sig hafa stöðu
úti á landi til að kenna sveita-
vargi. Þorbjörn og Sólveig halda
heim i dag i sama austan og
norðansvalanum og hefur verið
siðustu dagana.
Fimmtudagur Það hefur rignt
siðustu nótt eins og oftar i vik-
unni, en i dag er hægur norðan-
vindur og kuldi meiri en áöur,
þetta er rétt eins og októberveður
nema hvað sólin er hærra á lofti A
sjötta tlmanum siödegis er mikið
spurt um flugveður noröur I
Mývatnssveit, og þaö fylgir meö,
að nú sé von á gosi eftir 15 minút-
ur eða svo. Þetta stóöst með
furöulegri nákvæmni. 1 skyndi
gerði himnafaðirinn allsherjar
hreingerningu á norðlenskum
himni, svo að glóandi hraunfossar
litu sem fegurst út i forvitnum
augum i ljósaskiptunum. I þriðja
sinn hefur náttúran hrópað til
Kröflunga: Ætlið þið ekki aö
hætta þessum ögrunum i minn
garð? Er hægt að ætlast til
óendanlegrar þolinmæði af mér?
Ég framlengi vixilinn einu sinni
enn.
„Þetta er athyglisverö ný Iþróttagrein og sýnu kristilegri en til
dæmis hnefaleikar.”
BARÁTTU FYRIR BÆTTUM KJÖRUM
Frá fundinum aö Hótei Esju. (Ljósm. EGE)
Þá samþykkti fundurinn áskor-
un á stéttarfélag kennara um að
vinna að sameiningu kennara á
öllum skólastigum i eitt félag.
Var bent á, aö ástandið i launa-
málum kennara og kennaraskort-
ur sýni svo ekki veröi um villst
þörfina fyrir slika sameiningu.
Loks var þeirri eindregnu ósk
beint til útvarpsráös, að á kom-
andi vetrardagskrá verði fastur
þáttur um skólamál i hljóðvarpi
hálfsmánaðarlega og i sjónvarpi
mánaðarlega.
1 stjórn Félags skólastjóra og
yfirkennara á grunnskólastiginu
eru þeir Asgeir Guömundsson
formaður, Böðvar Stefánsson,
Ölafur H. Öskarsson, Pétur Orri
Þórðarson og Vilbergur Július-
son. 1 félaginu eru nú þegar um
160 skólastjórar og yfirkennarar
af 260 er starfa á grunnskólastig-
inu.
— SG
nægjandi menntunar og réttinda.
Hér er ekki aðeins vegið aö stétt-
arfélögum skólamanna, heldur
kemur fram ódulin litilsvirðing á
störfum þeirra.
Fyrst og fremst hlýtur þessi
stefna stjórnvalda þó aö bitna á
skólastarfinu i heild og þar með á
nemendum.
Fundurinn þakkar þvi einarö-
leg viðbrögö S.B.R. i þessu máli
og lýsir fullum stuðningi við þá
stefnu aö ráöa einungis réttinda-
menn til starfa.
Fundurinn skorar á mennta-
málaráðherra, skólayfirvöld, for-
eldra og aöra þá, er láta sig upp-
eldis- og fræðslumál varöa, aö
styðja skólamenn i baráttunni
fyrir bættum kjörum, bættri
stöðu og betri skóla.