Vísir - 13.09.1977, Síða 24
VÍSIR
^tnil (smti
Mesti slysatím-
inn framundan
Nú fer í hönd mesti
slysatiminn i umferðinni.
Haustmánuðirnir hafa á
undanförnum árum
reynst ökumönnum/ og
einnig gangandi vsgfar-
endum erfiðir og þá hafa
slysin orðið flest.
„Nú má fara aö búast viö
mjög breyttum aöstæöum”,
sagði Óskar Ólason yfirlög-
regluþjónn i Reykjavik i sam-
tali við Visi i morgun. „Veðrið i
gær og svo aftur i dag er ágætt
dæmi um hvernig aðstæður
breytast stöðugt þessa dag-
ana”.
Dauðaslys i umferðinni i
Reykjavik hafa orðið jafnmörg
núna i september og á sama
tima i fyrra eða fimm talsins.
Slysum hefur hinsvegar fækkaö
verulega, þvi að nú hafa um 30
færri slasast i Reykjavik heldur
en á sama tima i fyrra. Þar
munar mest um að slysum á
börnum hefur fækkað mjög
mikið”.
Nú hefur ökuhraðinn á götum
borgarinnar verið hækkaður úr
45 km á klukkustund i 50 kiló-
metra.
,,Já, það er rétt”, sagði Ósk-
ar. ,,En það er ekki þar með
sagt að ökumenn eigi sam-
stundis að auka hraðann Þessi
fimmtiu kilómetra hámarks-
hraði er miðaður við bestu að-
stæður. Nú fer hinsvegar
skammdegið i hönd, ising fer að
myndast á götunum og aðstæð-
ur allar að versna að mun. Það
er þvi full ástæða til að hvetja
alla sem leið eiga um borgina,
hvort sem þeir eru gangandi eða
fara með einhvers konar farar-
tækjum að sýna fyllstu að-
gætni”, sagði óskar að lokum.
—GA
Pessi „klukka ” sýmr hvernig slysin í september i fyrra skiptust
niöur á sólarhringinn. Dökku plattarnir eiga við árið i fyrra en þeir
röndóttu við árið 1975. i fyrra urðu 257 slys i september. 11% þeirra
urðu i kringum hádegisbilið eins og sjá má, og er hádegið ásamt
þeim tima þegar flestir koma heim úr vinnu, frá kl. 17-19, hættuieg-
asti timinn i umferðinni.
Bjargað úr lífsháska
út af Vestfjörðum
Varnarliðsmenn björguðu
bandarisku loftbelgsförunum
tveimur um fimm-leytið i gær.
Þessar myndir voru teknar um
það leyti. A minni myndinni sést
loftbelgurinn nókkru áður en
hann nauðlenti, og sjást menn-
irnir tveir greinilega i körfunni.
A stærri mytidinni eru loftbelgs-
menn nauölentir á hafinu, og
björgunarbelti er á leið til
þeirra ofan úr þyrlunní.
Björgunin gekk i alla staði vel,
og komið var með meonins tvo
til Reykjavikur i gærkvöldi,
einsog nánar segir frá á forsiðu
blaðsins i dag.
ESJ
VERKFRÆÐINGADEILAN LEYST
— samið um þrjár kauphœkkanir á þessu ári
Arnarflug:
Nýja flugvélin flýg-
Undirritaður hefur ver-
ið nýr kjarasamningur
Stéttarfélags verkfræð-
inga og samninganefndar
Reykjavikurborgar.
Sarnningurinn gildir að-
eins í sex mánuði eða til
15. mars og má því segja
aö hér sé aðeins um
bráðabirgðasamkomulag
að ræða.
Samkvæmt samningnum
hækka laun verkfræðinga nú
þegar um 7,5% og siöan um 3%
þann 1. nóvember og aftur um
3% 1. desember.
Einnig hafa verið gerðar
nokkrar minniháttar breytingar
til dæmis varðandi greiðslu ið-
gjalda til lifeyrissjóðs og hækk-
un á slysatryggingarfjárhæð i
sex milljónir króna.
Þessi atriði koma fram i sam-
eiginlegri yfirlýsingu aöila sem
send var fjölmiðlum. Var hún
raunar eitt af atriðum sam-
komulagsins og er Visir hafði
samband við Gunnar H.
Gunnarsson blaðafulltrúa verk-
fræðinga i morgun vildi hann
ekki ræða þessa samninga frek-
ar. —SG
ur fyrir Britanniu
Hin nýja flugvél Arnarflugs er
farin tií Bretlands og verður á
næstunni i leiguflugi fyrir
breska flugfélagið Britanniu.
Að sögn Magnúsar Gunnars-
sonar f r a m k væ m das t jóra
Arnarflugs er ekki ákveöið hve
langan tima þetta fyrsta verk-
efni vélarinnar tekur fyrir
Britanniu, en hún mun aðallega
vera i ferðum til Miðjarðarhafs-
landanna og Þýskalands. öll
áhöfn vélarinnar er starfsfólk
Arnarflugs. —SJ