Tíminn - 20.02.1969, Side 6
6
TIMINN
FIMMTUDAGUR 20. febrúar 1969.
ÚTSALA
Ullar og Terylene
síðbuxur
★
Buxnadragtir f telpna
og dömustærðum
★
Terylene kápur
unglinga
★
Barnakjólar
★
Barnakápur
★
Peysur — Pils —
Dömuslár o fl. o. fl
ISjádié
LJÓSAPERUR
Úrvalið er hjá
——
trulofunarhringar
Fljót afgreiðsla.
Sendum gegn póstkröfu.
GUÐM ÞORSTEINSSON
gullsmiður.
Bankastræti 12.
OKUMENN!
Látið stilla I tíma.
Hjólastillingar
Mótorstillingar
Ljósastillingar
Fljót og örugg þjónusta.
BÍLASKOÐUN
& STILLING
Skúlagötu 32.
Simi 13-100.
Hafnarstræti 23
léft og slétt
með
Husqvarna
Suðurlandsbraut 16.
Laugavegí 33. - Síml 35200.
Hemlaviðgerðir
Rennum bremsuskálar. —
slipum bremsudælur.
Límum á bremsuborða og
aðrar almennar viðgerðir.
HEMLASTILLING H.F.
Súðarvogi 14. Simi 30135.
JOHNS-MANVILLE
Glerullareinangrun
Fleiri og fleiri nota Johns
Manville glerullareinangrun-
ína með álpappanum.
Enda eitt bezta einangrunar-
efnið og jafnframt það
langódýrasta.
Þér greiðið álfka fyrir 4”
J-M gleruli og 2Y4 frauð-
plasteinangrun og fáið au'k
þess álpappír með!
Sendum um land allt —
iafnvel flugfragt borgar sig.
Jón Loftsson hf.
Sími 21344.
Hringbraut 121 — Simi 10600.
Akureyri: Glerárgötu 26.
James Fox sem Peter Marlove og George Segal í „King Rat" eftir Forbes.
Rottukóngurinn í fangabúð-
unum á frummálinu King
rat.
Leikstjóri: Bryan Forbes,
handrit eftir hann byggt á
samnefndri sögu eftir James
Cladwell.
Tónlist: John Barry, kvik-
myndari: Burnett Cufley.
Bandarísk frá 1965.
Sýningarstaður: Stjörnubíó,
íslenzkur texti.
Fyrir nokkrum árum sýndi
Háskólabíó fyrstu mynd Forb
es- „Whistle down the wind“
(ekkert nafn sett á myndina)
seinna kom „Seance on a wet
afternoon" (Miðilsfundur á
rigningarsíðdegi) og var helzt
talið til tekna í auglýsingum
að líkjast Hitchcockmyndum.
Stjörnubíó sýndi svo „The L-
shaped room“ og nú þessa frá
1965.
Forbes dregur strax í upp-
hafi skýrar myndir af lífinu í
fangabúðunum þar sem hver
einstakur berst við að halda
tórunni í sér og hlúa að dauf-
um vonarneista að einhvern
tíma linni. Einn fanganna,
King (George Segal), lifir
kóngalífi, til hans safnast þeir
peningar og annað fémætt, sem
fangamir eiga. Þegar hann er
spurður um leyndarmálið, svar
ar hann: „ég er bara heppinn".
Hann er hataður leynt og ljóst,
sérstaklega er Gray (Tom Cour
tenay) í nöp við hann og spáir
honum illum endalokum.
Þarna eru Bretar, Banda-
ríkjamenn, Kanadamenn og
Ástralíubúar og margt verður
ásteitingsefni. Veigalítil smáat
riði magnast í óleysanleg vanda
mál og lrfsbaráttan sýnir hvað
í mönnum býr. Margir bugast
algerlega, verða andleg reköld,
aðrir t. d. King eflast og fær-
ast í aukana. Hann einn hefur
nóg að borða og reykja, stund
um deilir hann af birgðum sín
um til þeirra, sem hann ætlar
að hafa not af seinna. Brask
hans við Japani gefur góðan
skilding í aðra hönd og þegar
hann kynnist Englendingi, Pet-
er Marlove (James Fox), sem
talar malajisku, tekst með
þeim vinátta, sem er ekki ein-
göngu bundin við þörf Kings
fyrir túlk.
Þar sem þá skortir fæðu til-
finnanlega, kemur King á rottu
eldi og selur vel. Þegar Mar-
love slasast undir tré og kol-
brandur kemst í handlegginn,
lítur út fyrir að verði að taka
hann af, en þá koma peningar
sér vel, því að þrátt fyrir skört
inn fæst margt fyrir þá. f fyrsta
skipti prúttar braskarinn mikli
King ekki, hvað sem það kost-
ar skal handlegg vinar hans
bjargað. Það tekst og dagarnir
líða, rétt fyrir uppgjöf Japana
finna þeir útvarp í fangabúð-
unum og í stað hefndarráðstaf
anna eru elztu foringjarnir
kvaddir til að hlýða á boðskap
keisarans um uppgjöfina. Þetta
er mjög áhrifamikið atriði í
myndinni þegar Japanirnir lesa
annar á japönsku en hinn þýð
ir jafnóðum á ensku og andlitin
greipt í stein.
Þegar King lætur þjón sinn
laga kaffisopa til að fagna sigr
inum, brýzt niðurbælt hatrið
út og þrátt fyrir spár yngri kyn
slóðarinnar í kvikmyndahúsinu
sem endurtók margoft „það
fer illa fyrir honum þessum"
berja fangarnir King ekki einu
sinni. Nokkrir dagar líða þar til
her Bandamanna kemur að
búðunum en þá eru allir svo
miður sín að enginn talar orð
við manninn sem sendur er á
undan nema King. Brátt hefj-
ast heimflutningar og King fer
með löndum sínum Bandaríkja
mönnum áleiðis heim og Mar-
love hleypur árangurslaust á
eftir bílnum til að kveðja King
sem vin en hann hefur áður
afneitað vináttu þeirra og talið
hana 10% sem hann greiðir
Marlove af gróðanum.
Myndir Forbes eru allar
mjög ólíkar að efnisvali og
„Seance of a wet afternoon“
mjög sérstæð, en alls staðar
skín í gegn mikil þekking á
viðfangsefninu og frábærlega
góð stjórn á leikurum. Myndin
er aldrei ömurleg þó að hún
sé átakanleg lýsing á mönnum
sem berjast um hvern matar-
bita eins og rottur og hrynja
niður úr blóðkreppusótt og
hvers konar hörgulsjúkdómum.
Forbes bregður upp góðum
myndum af daglegum störfum
og afþreyingum fanganna, hann
fer nærfærnum höndum um
það viðkvæma efni þegar tæpt
er á kynvillu. Sérstaklega þeg-
ar Gray reynir að reita Marlove
til reiði. hljóðlátri gleði „rottu
mannanna“ yfir fögnuði hinna
að fá kjötið er lýst með örfá-
fáum myndum.
Ég hef því miður ekki lesið
bók Cladwells og veit því ekki
hvort söguþræðinum er fylgt
kvæmlega í kvikmyndinni, en
það er ekki hjá því komizt að
halda að höfundurinn hafi
gert King enn djöfullegri en
hann er í myndinni. Falslaus
vinátta hans og Marloves á að
vera það eina sem gefur til
kynna að hann sé mannlegur.
Ódulið hatur Grays á honum er
vel skiljanlegt þar sem allar til
raunir hans til að góma King
mistakast.
Þetta er heiðarleg stríðs-
mynd, mennirnir ekki um-
vafðir hetjuljóma, óraunveru-
legir ,við sjáum niðurlægða
menn af aðstæðum sem eng-
inn þeirar ræður við. Forbes
er mjög alhliða leikstjóri hann
skrifar iðulega handritin að
myndum sínum og fjallar um
margvísleg efni. The wrong
box sem hann gerði 1966 hef-
ur hlotið metaðsókn og nýj-
asta mynd hans með Dame Ed
ith Evans í aðalhlutverkinu
The whisperer (Kjaftatífurn.
art sömuleiðis mjög rómuð
sem vel gerð og sérstapð mynd.
Brvan Forbes er einn af fáum
sem leg.aur til við ólfk viðfangs
efní og gerir þau eftirminni-
leg hverjum sem sér myndir
hans.
RAFSUÐUVÉLAR
Óskum eftir að kaupa rafsuðuvélar, með benzín,
eða diesel mótorum. Uppl. í síma 13728.
Áhaldaleigan.
Barna- og kvenfata-
verzlun til sölu
Á góðum stað, — í einu af nýrri hverfum borgar-
innar. Vönduð innrétting, ásamt góðum lager.
Uppl. í síma 24647, kvöld- og helgarsími 41230.
Aðalfundur
Framsóknarfélags Grindavíkur verður haldinn
sunnudaginn 23. febrúar, kl. 2 e.h. í Kvenfélags-
húsinu (uppi) — Venjuleg aðalfundarstörf. Jón
Skaftason, alþingismaður, mætir á fundinum.
Fjölmennið og takið með nýja félaga.
Stjórnin.
P.L.