Vísir - 17.09.1977, Side 19
VISIR Laugardagur 17. september
1977
C
Hringið í síma 86611 milli klukkan 13 og 15 eða skrifið til Vísis Síðumúla 14/ Reykjavík.
J
Hœg leið til
Hér birtist seinni hluti bréfsins
frá Kristjáni Sigurjónssyni:
Veikindi
Loks fór mér svo auövitaö
eins og svo mörgum drykkju-
manninum, að ég hafði eðlilega
engan tíma til þess að vera að
hugsa um svo smásálarlegan hlut
sem að hafa fastar tekjur, það
leyföi minn fársjúki likami alls
ekki að eigin mati og þvi til árétt-
ingar fór ég nú að hrella læknana
hvern á fætur öðrum til sönnunar
máli mlnu. Læknirinn sem ég svo
að slðustu leitaði til kom mér
fljótlega af sér oggaf mér tilvlsun
á magasérfræðing sem tókst aö
lokum að finna það út, eftir aö
hafa troöið ofan I mig heilli
myndavél og pumpað mig sundur
og saman, aö ég væri með smá-
vægilegar bólgur i magaopinu,
hvlllkt lán fyrir fáveikan mig,
þetta var sjálfsagt krónlskt, þótt
hann hefði ekki nefnt það, sem
engin meðul dygðu við. Með þá
fullvissu sveif allt meðalagumsiö,
sem hann hafði gefið mér, bein-
ustu leið I klósettið.
Þar sem læknar eru frekar
þekktir fyrir það að draga úr
sjúkdómslýsingu, þegar um al-
varlegan sjúkdóm er að ræöa en
hitt að þeir segi sjúklingi undan-
bragðalaust að hann sé dauöa-
dæmdur, rann það auðvitað smátt
og smátt upp fyrir mér að ég væri
sjálfsagt með blæðandi magasár
eða jafnvel krabba og ég væri
ábyggilega eitthvert læknisundur
og ætti mannlega séð að vera
steindauðurfyrir löngu. Einhvern
veginn tókst mér þó að halda mér
saman um þessar læknisfræði-
legu hugmyndir minar um sjálfan
mig við aðra, en það var tæpast
að furða þótt mér sviði sárt,
dauösjúkum manninum,
þegar ættingjar voru sifellt
að freta þvi á mig að ég væri ekk-
ert annað en andlegur og llkaleg-
ur aumingi sem ætti hvergi ann-
ars staðar að vera en á þar til
Léttir
meðfærilegir
viðhaldslitlir.
Ávallt fyrirliggjandi..
C~ varahlutaþjónusta.
r cO Þ. ÞORGRIMSSON & CQ
Armúla 16 • Reykjavik* simi 38640
0 0.
HOFim OPNAÐ
AÐ REYNIMEL 34
Bjóðum viðskiptavini okkar velkomna
á nýja staðinn og vekjum athygli
á því, að nú seljum við einnig
snyrtivörur í „Snyrtihorninu"
snyrtihornið
há rg reiðsl ustofa
HELGU JÓAKIMS
Reynimel 34, simi 21732.
gerðu hæli.
Ég brást auövitað viö á sama
háttogaörir alkóhólistar og mót-
mælti þessu af öllum kröftum og
lofaði bót og betrun þegar reynt
var að útskýra fyrir mér, með
takmörkuðum árangri, á hvaða
leið ég væri en það var auðvitað
hvorki fyrsta né siðasta loforðið i
þá áttina. Ekki fyrir það að ég
vildi það ekki heldur vegna þess
að ég bara gat alls ekki staðið við
það né heldur nokkuð annað er ég
lofaði að standa við. Að lokum
kom auðvitað að þvi að ættingjar
minir tdku til sinna ráöstafana
með mág minn framarlega i
flokki (Hann þorði ég eiginlega
aldrei að tæta I mig þótt aðrir
meðlimir fjölskyldunnar fengju
það óþvegið) Hann og móöir min
I sameiningu komu mér svo góö-
fúslega I skilning um þaö að ef ég
færi’ekki á sjálfviljugur á deild 10
a Kleppsspltalanum yrði gripið til
örþrifaráöa. Brengluð hugsun
mln eftir langvarandi drykkju
(þá staddur I vistlegum fanga-
klefa er lögregla staðarins hafði
fengið mér til umráöa) var ekki
upp á marga fiska en mér skildist
þóað mér væri heppilegra að láta
umyröalaust aö vilja þeirra og
þaö gerði ég loks með hjartað I
buxunum.
A deild 10 var ég svo fluttur
daginn eftir og innskráður. Ég
vissi auðvitað áður aö þarna voru
ofdrykkjumennirnir afvatnaðir á
viku til 10 dögum svo að mér
fannst að ég hlyti að geta haldið
þetta Ut eins og þeir og hugsaði
með mér að reyna aö sofa allan
timann. En ekki varð mér kápan
úr þviklæðinu. Égfékk að vísu að
sofa fyrstu nóttina I friði en strax
um morguninn var mér skipað á
lappir og I morgunmat ásamt
öðrum vistmönnum og þaðan I 1.
gráðu yfirheyrslu hjá lækni deild-
arinnar sem ólmur vildi vita
hvers vegna ég væri hingaö kom-
inn og hvað ég ætlaöist fyrir að
lokinni dvöl minni hérna. Ég gaf
honum auðvitaða svipaða skýrslu
fyrir
steinsteypu.
og ég hafði saumað saman og not-
að árum saman og gaf hann mér
þá fyrirheit um pláss á Vífilsstöð-
um, en þar er rekin endurhæf-
ingarstöð fyrir alkóhólista. Ég
skildi auövitað strax að mér var
vænlegastað taka þessu boði með
þökkum þótt þær þakkir næðu
tæpast til hjartans þá stundina.
Eftir nokkrurra vikna bið var
ég sem sé kominn þangað og átti
þar fyrir höndum 4 langar og
kveljandi vikur, að mér fannst,
enda fór þaö svo að á 18. degi var
ég búinn að útskrifa mig alheil-
brigðan sjálfur.
Heilbrigði min var þó ekki
meiri en það að ég fór heim til
pabba og mömmu aftur og fór að
gera ekki neitt, mér til afþrey-
ingar. Það lá næstum I augum
uppi hvernig þaö myndi enda en
mér tókst þó að halda mér þurr-
um i heila 29 daga áður en ég
sprakk. Það fylliri varð þó ekki
ýkja langt vegna þess að ég fór
sjálfur fram á það I ölvimunni aö
mér yrði útvegað pláss á Kleppi
að nýjú og var ég þar tekinn á
orðinu, bæði af aðstandendum,
læknum og lögreglu.
Átak
En nú var komið að mér að
geraeitthvaö meira en bara vilja.
Þann stutta tlma, er ég gisti nú
deild 10 að nýju notaöi ég að
mestu I það að finna mér vinnu og
húsnæöi fjarri foreldrum mtnum.
Að visu varð ég að fara heim til
foreldranna að nýju, þar sem ég
hafðiifá önnurhús aö venda, en nú
haföi ég þó þetta til þess aö hugsa
um og framkvæma. Líka var það
nú nýjung fyrir mér að taka
antabus inn á hverjum degi án
þessaö nokkur segði mér að gera
það eða fylgdist á nokkurn hátt
með þvl. Ég er nú farinn að llta
bjartari augum á lifið, vinnan og
húsnæöi er hvort tveggja kom-
ið.
Kanoríeyjar
sumri og sól
☆
Vikulega — alla föstudaga.
1. 2. 3. 4. vikna ferðir. Hótel
— ibúöarhótel — sumarhús
Playa Ingles
Las Palmas
Tenerife
☆
tslenskir fararstjorar. Þotu-
flug. Bókanir eru þegar
hafnar. Ekki missir sá er
fyrstur fær. Innborgun við
sta ðf estingu. Barnaaf-
sláttur. Hópafsláttur.
☆
Ferðaskrifstofa
Kjartans
Helgasonar
Skólavörðustlg 13A Reykjavik.
Pétur
Vignir
Jón Múli
Vigni í morg-
Magnús ólafsson skrif-
ar:
Hvernig væri að auka aðeins
fjölbreytnina I morgunútvarp-
inu góða? Þeir Pétur Pétursson
og Jóni Múli Arnason eru ágætir
svo langt sem þeir ná, en þeir
hafa verið einir um hitunina I
morgunútvarpinu i fjölda ára.
Það má fara aö breyta til.Gjör-
völl þjóðin þekkir oröiö tón-
listarsmekk þeirra kumpána og
veit á hverju hún á von á
morgnana.
Ég er með þá hugmynd i koll-
inum að fá eins og einn eða tvo
þuli til viðbótar og láta þá skipt-
ast um að sjá um morgunút-
varpið. Með þvi ykist fjöl-
breytnin um helming, ef svo má
taka til orða, þvi auk þess aö
röddunum fjölgaði, þá breyttist
tónlistin.
Vafalaust eru margir hæfir til
þessara starfa, en mér datt
Vignir Sveinsson I hug þegar ég
var að velta þessu fyrir mér.
Hann er vanur útvarpsmaöur
með mikla þekkingu á tónlist,
og gæti þá höfðað meira til ungu
kynslóöarinnar en þeir Jón Múli
og Pétur, sem mundi þá losna
við allt „bítlagargið” eins og
’ hann kynnir það. Vignir hefur
að undanförnu verið með þátt á
sunnudagsmorgnum og sýnt sig
mjög hæfan útvarpsmann.
Morgunútvarpið er alls ekki
þaö leiöinlegasta I útvarpsdag-
skránni, en þó svohún þætti þaö
skemmtilegasta þýöir það ekki
að viö þvi megi ekki hrófla. Það
er nauösynlegt að hrista annað
slagið upp f hlutunum. Ég fer
hinsvegar ekki frammá svo
mikiö aö sinni. Ég bið bara um
aukna fjölbreytni. Þaö getur
varla verið mikið mál fyrir jafn
úrræðagóða menn og þá sem
stjórna útvarpinu.
*
Lærið & ^
$A dansa
Innritun hefst mánudaginn 19.
september.
Dansskóli
Sigurðar Hákonarsonar
simi 41557 kl. 19-22
Dansskóli Sigvalda
simar 84750 kl. 10-12 og 13-19 52996
Og 76228 kl. 13-18
0 Dansskóli
Heiðars
Ásvaldssonar
simar
20345 76624
38126 74444
24959 21589
KL. 10-12 og 13.-19.
DANSKENNARASAMBAND ISLANDS
*
%
*
&
TRYGQING fyrir réttri tilsögn í dansi