Vísir - 20.10.1977, Blaðsíða 3
3
VISIR Fimmtudagur 20. október 1977
Smjör- og ostfjallið
fer sístœkkandi
Smjörbirgðir í landinu
voru 1070 lestir hinn fyrsta
október síðastliðinn. Er
það 645 lestum meira en
var á sama tíma í fyrra.
Á sama tima voru til 1320 lestir
af osti i landinu sem er 414 lestum
meira en i fyrra. Þá voru á sama
tima til 725 lestir af undanrennu-
dufti og 230 lestir af kálfafóðri.
Eru þetta meiri birgðir mjólkur-
afurða en til hafa verið mörg und-
anfarin ár, samkvæmt upplýsing-
um sem fram komu á fundi for-
ráðamanna allra mjólkursam-
laga i landinu ásamt fulltrúum úr
Framleiðsluráði og stjórn Osta-
og smjörsölunnar.
Þá kom einnig fram, að mikil
söluaukning hefur orðið á mysu
og virðist hún vera að verða vin-
sæll svaladrykkur. Fyrstu átta
mánuði þessa árs seldust 165 þús-
und litrar af mysu.
A þessu ári er áætlað að flytja
út eitt þúsund lestir af ostum, og
hafa þegar verið seldar út sex
hundruð lestir. Þar af eru 130
lestir af svokölluðum Óðalsosti en
frjáls innflutningur er á honum til
Bandarikjanna en annar ostainn-
flutningur þangað er háður leyf-
um.
I fundarlok var siðan samþykkt
ályktun, þar sem fulltrúar
mjólkursamlags skora á land-
búnaðarráðherra og rikisstjórn
að tryggja að lán út á birgðir
mjólkurafurða verði að minnsta
kosti 72% af heildsöluverði á
hverjum tima að niðurgreiðslum g
viðbættum.
Er bent á nauðsyn þess að leið-
rétting þessi komi til fram- -
kvæmda þegar við afgreiðslu
næstu afurðalána vegna þeirra
fjárhagslegu erfiðleika sem fyrir-
liggjandi birgðir valdi mjólkur-
samlögunum.
—AH
Nefnd fjallar
um
framkvœmd
verkfalls
lögreglumanna
Samkomulag hefur tekist milli
verkfallsmanna og lögreglustjóra
um að skipuð verði sérstök nefnd
innan lögregiunnar sem hittist 1-2
á dag til þess að ræða fram-
kvæmd verkfallsins að þvl er lög-
gæslu varðar.
Forráðamenn BSRB skýrðu frá
þessuá blaðamannafundii gær og
sögðu að i nefndinni yrði fulltrúi
lögreglustjóra ásamt fulltrúum
lögreglumanna.
—ESJ
Slitnað upp
úr samnínga-
viðrœðum í
Kópavogi
Slitnað hefur upp úr
samningaviðræðum Starfs-
mannafélags Kópavogskaup-
staðar og samninganefndar
bæjarins vegna ágreinings um
uppsagnarfrest með verkfalls-
re'tti.
í frétt frá samninganefnd
starfsmannafélagsins segir að
viðsemjendur hafi viljað breyta
11. grein samnings sem staðfest
var I bæjarráði 29. september.
Samninganefndin samþykkti
að leggja þetta atriöi og sam-
komulagið i heild fyrir félags-
fund og fá úr þessu skorið á
fyllilega lýðræðislegan hátt.
Félagsfundur var slðan hald-
Loðnunefnd notar
nú þefskynið eitt
inn á mánudaginn og þar sam-
þykkt að veita samninganefnd-
inni heimild til að undirrita
samninginn án fyrirvara um
samþykki félagsfundar ef 11.
greinin um uppsagnarákvæði og
verkfallsrétt væri i samningn-
um og fór fram atkvæðagreiðsla
um þetta mál. Hún fór þannig að
97 greiddu atkvæði með þessu
en 16 á móti og fjórir skiluðu
auöu.
A fundi samninganefnda
starfsmannafélagsins og bæjar-
ins á mánudagskvöld hafnaði
nefnd bæjarins þessu atriði og
lýsti yfir að slitnað heföi upp úr
samningaviðræðum. —SG
Sefti smáauglýsingu í Vísi:
Það verður ekki of-
sögum sagt af áhrifa-
mætti smáauglýsinga
Visis. Hér eru smá
dæmi:
t laugardagsblaði Visis 15.
janúar birtist auglýsing þar
sem þriggja herbergja ibúö var
auglýst til leigu. Um miöjan dag
I gær höföu auglýsingadeild Vis-
is borist 173 tilboö. Og þaö þrátt
fyrir aö engin póstþjónusta sé i
gangi.
Þá var i fyrradag auglýst I
smáauglýsingadálkinum eftir
starfskrafti i prentsmiöju. Um
miöjan dag I gær höföu rúmlega
fimmtlu umsóknir borist.
Fjöldi smáauglýsinga i
blaöinu fer nú stööugt vaxandi,
enda sina þessi dæmi glöggt hve
áhrifamikill vettvangur smá-
auglýsingarnar eru fyrir aug-
lýsendur.
Þess má aö lokum geta aö
drætti i happadrættinu hefur
veriö frestaö þar til verkfalli
lýkur vegna þess aö búast má
viö aö nokkur hluti greiöslna
fyrir smáauglýsingar sé f astur I
póstinum.
„Viö höfum ekki talstöövar og
náum ekki sambandi viö skipin en
reynum svona aö þefa uppi ein-
hverjar upplýsingar”, sögöu þeir
hjá loönunefnd er Visir haföi
samband viö skrifstofu nefndar-
innar I gær.
Loðnunefnd á aö fylgjast meö
afla skipanna og beina þeim til
hafna eftir þvi hvar hagkvæmast
er aö landa hverju sinni.
Nefndarmenn sögöust ekki hafa
neinar upplýsingar fyrir blöö þar
sem erfiðlega gengi aö fá nokkrar
fréttir um afla og annaö þótt ein-
hverjar fregnir bærust. _SG
Phantom þotur
í flugbanni
— en ísland varð þó aldrei „varnarlaust"
Bandariski flugher-
inn setti fyrir nokkru
flugbann á 1800
orrustuþotur sinar af
gerðinni F-4 Phantom,
þartil búið væri að
kanna hvort spurngur
væru i hluta af jafn-
vægisstýri vélanna.
Varnarliöið i Keflavik er með
F-4 orrustuþotur og Howard
Matson, blaðafulltrúi, tjáði VIsi
i gær að þær hefðu þegar verið
skoðaðar og landið þvl ekki
varnarlaust.
„Raunar kom aldrei' til þess,”
sagði Matson. „Strax og fyrir-
mæli bárust var hafist handa
við skoðunina, en vélarnar voru
skoðaðar ein og ein, hinar voru
tilbúnar að fara i loftið ef með
hefði þurft.”
,,Að sjálfsögðu er ekkert flog-
ið að „óþörfu” þegar svona
stendur á, en i neyðartilfellum
hefðu vélarnar verið sendar upp
hvort sem skoðun hefði verið
lokið eða ekki. Það kom þvi
aldrei til þess að engar orrustu-
flugvélár væru tiltækar.”
—ÓT
ÞESSI
RYMINGARSALA
VERÐUR EKKI
ENDURTEKIN
Herrabúðin er að hœtta, allt á að seljast.
Því er eins gott að standa klár á endasprettinum.
Einn, tveir og.
• Kórónaföt • Stakir jakkar
• Skyrtur, óvenju fjölbreytt úrval • Blússur
• Peysur ■ • Sólfatnaður m.a. Safarijakkar
• Sokkar, mikið úrval • Stakar buxur í miklu úrvali o.fl.