Vísir - 20.10.1977, Blaðsíða 24
VlSIR
'gftiiftafflnj
Slys í
Keflavík
Slys varð á Ilafnargötu í Keflavlk
um miönætti i nótt. Fjórtán ára
piltur á skellinöðru lenti fyrir bil
og slasaðist pilturinn talsvert.
Hlaut hann m.a. opiö beinbrot.
— EA
Vitað um
f jögur inn-
brot í nótt
Þrjú innbrot voru framin I
nótt i fyrirtæki við Ártúns-
höfða, Þá var brotist inn i
smurstööina við Hafnarstræti,
en ekki var vitað um að brotist
hcfði verið inn á fleiri stööum,
þegar Visir haföi samband við
lögregluna i morgun.
Ekki var þá heldur komið i
ljós hvort miklu var stolið á
fyrrnefndum stöðum eða
hvort skemmdir voru unnar,
en unnið var að rannsókn. t
gærdag var veski stolið úr
verslun og munu 40-50 þúsund
krónur hafa verið í veskinu.
Virðist sem innbrotum og
þjófnuðum hafi fjölgað upp á
siðkastið.en i fyrri nótt var t.d.
brotist inn á fimm stöðum.
— EA
Verkfolli
aflýst í
Hafnarfirði
Verkfalli starfs-
mannafélags Hafnar-
fjarðar var aflýst um
klukkan 19.30 í gær-
kvöldi að aflokinni at-
kvæðagreiðslu um hinn
nýgerða k ja ra-
samning.
149 manns eða 90% félags-
manna tóku þátt i atkvæða-
grciðslunni. 78 greiddu at-
kvæði með en 71 á móti.
— GA
SMAAUGLYSINGAHAPPDRÆTTI VISIS!
17 okt — Eín öre,(í<* smáauglýsing og þó átt vinningsvon.
20. nóv. @ SAINIYO 20" litsiónvarpstœki fró
GUNNARI ÁSGEIRSSYNI er vinningurinn að þessu sinni.
simi
86611
Opiö virka daga tii kl. 22.00
Laugardaga kl. 10-12
Sunnudaga kl. 18-22
Samkomulag í gœrkvöldi m.a. um málefni kennara og leikara:
Fara aftur að rœða
//
stóru málin" í dag
,,Á fundinum í dag
verður farið að ræða um
stóru málin, sem eftir
eru, svo sem launaliðinn
og endurskoðunarréttinn,
en þetta er hvort tveggja
mjög mikilvægt atriði
fyrirokkur", sagði Krist-
ján Thorlacius, formaður
BSRB, í morgun.
,,Sú afstaða BSRB, að launa-
liður Reykjavikursamkomu-
lagsins sé óviðunandi, er ó-
breytt”, sagði Kristján
ennfremur.
Sáttafundur stóð til miðnættis
i nótt, en þá var ákveðiö að gefa
fundahlé til kl. 14 I dag.
I gærkvöldi var að sögn
Kristjáns og Haralds Steinþórs-
sonar, framkvæmdastjóra
BSRB, gengið frá ýmsum atrið-
um. M.a. var fundin lausn á þvi
launamisræmi, sem verið hefur
milli þeirra kennara, sem hafa
próf frá Kennaraskólanum
gamla, og þeirra sem hafa
Kennaraháskólapróf. Munu
kennarar, sem i dag eru i 10, 11
og 12. flokki hækka um einn
launaflokk frá 1. júli 1977. Þeir
kennarar, sem þá hafa ekki náð
þeim launaflokki, sem aðilar á-
kveða i sérsamningi fyrir kenn-
ara meö Kennaraháskólapróf
flytjist i þann launaflokk 1.
janúar n.k.
Lausn fannst einnig á vinnu-
timamálum leikara, sem nú fá
einn fridag i viku og ákvæði um,
að hámarksvinnutimi megi ekki
fara fram úr 45 stundum á viku.
Nokkrar aðrar breytingar
voru gerðar, og auk þess orða-
lagsbreytingar og leiðréttingar
á átta atriðum samningsins.
Stóru málin eru hins vegar
eftir, bæði launin og endurskoð-
unarrétturinn, og aukakröfur,
sem tengdar eru launaliðnum
að einhverju leyti.
—ESJ
Prófkjörsslagur að
hefjast í Sjólfstœðis-
flokknum
Prófkjör sjálfstæðism anna I
Reykjavik vegna alþingiskosn-
inganna i vor fer fram dagana 19.,
20. og 21. nóvember næstkom-
andi.
Visir leitaði til Jóhanns Haf-
stein, alþingismanns, og spurðist
fyrirum hvort hann hygðistfara i
prófkjör aö þessu sinni. Jóhann
vildi ekki tjá sig um málið, en
kvaðst mundu tilkynna kjörnefnd
flokksins ákvöröun sina þegar
þar aö kæmi.
Auk Jóhanns Hafstein sitja nú á
þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn i
Reykjavik Geir Hallgrimsson,
Gunnar Thoroddsen, Ragnhildur
Helgadóttir, Albert Guðmunds-
son, Pétur Sigurðsson, Ellert
Schram og Guðmundur H.
Garöarsson.
Friðrik Sophusson lögfræðingur
og fyrrum formaður SUS hefur á-
kveðið að gefa kost á sér í próf-
kjörinu og I samtali við Vfsi sagö-
ist Aslaug Ragnars, blaöamaöur
á Morgunblaðinu, ákveöin i að
taka þátt i prófkjörinu. Elln
Pálmadóttir borgarfulltrúi
kvaöstbúast við aðhún yrði með.
Visir hafði einnig samband við
Baldur Guðlaugsson lögfræöing,
og sagðist hann ekki neita þvi að
þessi möguleiki heföi komið til
umræðu og væri enn til umræðu.
Haraldur Blöndal kvaðst vera að
hugsa málið og Kristján J.
Gunnarsson fræðslustjóri sagöist
ekki hafa tekið ákvörðun i mál-
inu. Björn Þórhallsson viöskipta-
fræðingur sagði að ef menn leit-
uöu til sin varðandi þátttöku
myndi hann gefa þeim svar.
Fleiri nöfn hafa verið nefnd að
undanförnu og ættu málin að
skýrast næstu daga.
Rétt til að kjósa I prófkjörinu
hafa allir flokksbundnir sjálf-
stæðismenn 18 ára og eldri, og
auk þess allir stuðningsmenn
flokksins I Reykjavík sem hafa
kosningarrétt i vor.
—AH/—SG
I ATHUGUN AÐ KOMA BRAGGA
mtllt í ÁRB/TJARSAFNI
,,Það er rétt, að viö höfum
löngun til þess að koma bragga
fyrir hér meðal húsanna i Ar-
bæjarsafni”, sagði Nanna Her-
mannson, safnvörður i Arbæ, er
Visir innti hana eftir þvi hvort
til stæði að flvtja bragga upp i
Árbæ.
Nanna sagði þó, að ekkert
væri ákveðið i þessu skyni, en
sér virtist það fyllilega eiga rétt
a sér að koma þar fyrir bragga.
Þessi hús væru þáttur I sögunni,
braggar væru sögulegar
byggingar, og benda mætti á, að
um tima hefðu fimm hundruð
braggar verið I Reykjavik einni.
Þá hefðu einnig verið margir
braggar út um landið, en hús
þessi komu hingað til lands með
hernámsliði Breta I seinni
heimstyrjöldinni sem kunnugt
er.
Nanna sagði að enn væri búið I
nokkrum bröggum i Reykjavík,
og sér hefði verið sagt aö mikið
væri til af þeim úti á landi, til
dæmis á Austfjörðum.
Að lokum kvaðst Nanna Her-
mannson vilja nota tækifærið til
að biðja fólk sem ætti til myndir
innan úr bröggum að gera sér
viðvart, þvi safnið i Arbæ ætti
lítiö af slikum myndum. —AH
Einn fárra bragga i Reykjavik. Þeir munu hafa verið um 500 þegar
flest var, en eru nú aðeins örfáir eftir. Þó er enn búið I nokkrum
þeirra. Ljósmynd: JA
Lögbannsmálið tekið fyrir i morgun:
Páll S. Pálsson undirskrifar málsskjölin I morgun, en þá hafði lög-
bannsmáliö verið tekið til úrskuröar. Málið hefur forgang, og verð-
ur kveðinn upp dómur rétt fyrir hádegi i dag. „Maður spyr nú ekki
að karlmennskunni” sagði Páil, og likaöi þessi skjóta málsmeðferð
greinilega vel. — Ljósm.: JA
Fyrsta
sem fer fyrir dómstólana
Lögbannsmálið vegna verk-
fallsvörlsu við Hafrannsókna-
skipið Árna Friðriksson var tek-
ið fyrir hjá borgarfógetanum i
Reykjavik klukkan niu i morg-
un,Þá hafði Björn Jónsson lagt
fram skriflega greinargerð i
málinu, en hann var mættur
fyrir Guðmund Yngva Sigurðs-
son, sem fer með málið fyrir
BSRB.
Páll S. Pálsson, hrl. fer meö
málið fyrir Sjávarútvegsráðu-
neytiö, fyrir hönd Hafrann-
sóknastofnunarinnar.
Það er ólafur Guðgeirsson,
fulltrúi sem dæmir I málinu, og
kvaðst hann vænta þess að úr-
skurður lægi fyrir rétt fyrir há-
degi i dag, en málið fór i úrskurð
áp munnlegs málflutnings,
— AH
Heimsmeistaraeinvígið:
Skáksambandið vill fá
Höllina nœsta sumar
Skáksamband Islands hefur rit-
að borgaryfirvöldum bréf þar
sem óskað er eftir þvi að Skák-
sambandiö hafi forgang þegar til
þess kemur að ieigja Laugardals-
höllina út á næsta sumri..
Skáksambandiö hefur sem
kunnugt er boðist til að haida ein-
vigið um heimsmeistaratitilinn I
skák hér á landi næsta sumar, og
hefur óskað eftir leigu á Laugar-
dalshöllinni frá 20. júni og fram i
september.
Menn frá sambandinu hafa ver-
ið erlendis á ráðstefnu þar sem
fjailað var um framkvæmd
einvigisins. Miklar breytingar
voru gerðar á henni, frá þvi sem
áöur var, en ekki er vitað hvort
þær hafa áhrif á tilboö skáksam-
bandsins islenska.
—GA