Vísir


Vísir - 22.10.1977, Qupperneq 7

Vísir - 22.10.1977, Qupperneq 7
VISIR Laugardagur 22. október 1977 7 Við minnum á okkar rúmgóðu og snyrtilegu Hótelherbergi. Pantanir teknar i sima 93-7119-7219 ameú Málningarfyrirtækið ,,Non Drip Jellipex" í Eng- landi, stóð ekki alveg undir nafni þegar þessi at- burður átti sér stað á götu í Liverpool. Vörubíllinn þurfti aðstansa snögglega, og það svo snögglega að málningartunnur á pallinum ultu um koll með slæmum afleiðingum eins og sjá má á myndinni. Málningin rann alls staðar og skreytti götuna tals- vert. Hafi bandaríkjamenn ekki efni á að fara í sumarleyfi erþeim ráðlagt að reyna það næst besta: að brjóta alríkislöggjöf ina, i þeirri von að þeir verði sendir í fangelsið í Eglon á herflugvellinum í Florída. Fangelsi þetta er ekki herfang- elsi. En öllu heldur mætti ætla aö þarna væri hressingarhæli eöa eitthvaö slikt. Reglurnar i þessu fangelsi gætu að minnsta kosti al- veg eins átt heima á einhverju sliku. Fangarnir hafa sérherbergi sem er teppalagt og með loftræst- ingu. Ekkert herbergjanna er i sama lit. Engar læstar dyr og engir huldir gluggar. í fangelsinu er herbergi vel búið endurhæfing- artækjum og annað með litsjón- varpi. Stunda iþróttir Fangar geta stundaö iþróttir að vild, þvi ekkert vantar til þeirra hluta. Tennisvellir eru tveir, að- staða fyrir hand- og körfubolta, golfvöllur og fleira. Fangar mega borða hvenær sem þeir vilja og geta þá valiö úr réttum. I tómstundum geta þeir Ekki er verra fyrir þá aö þjálfa sig svolitið, og til þess vantar ekki tæki. veriö eins og þeir vilja og mega vaka alla nóttina ef þeir kæra sig um. Skattgreiðendur greiða að sjálfsögðu kostnaðinn en tvær bygginganna, sem hýsa 96 „gesti” hvor, kosta 820 þúsund dollara. Tvær aðrar verða opnað- ar á þessu hausti og þær kosta 900 þúsund dollara. í fangelsið fara fangar sem ekki hafa framið ofbeldisglæpi og sem eiga að sæta fangelsisvist i þrjú ár eða minna. Einn af Wat- ergate-mönnum, E. Howard Hunt gisti t.d. fangelsið. Menn kæra sig litið um að strjúka og það hefur komið fyrir að fangar hafi heimsótt fjölskyld- ur sinar um helgar. En auðvitað fara þeir ekki og koma eins og þeim sýnist. Þeir verða að vinna svolitið að sjálfsögðu. Það sem þeir gera er að sjá um viðhald og fleira á flug- vellinum, svo sem að elá gras- bletti, vinna i vegavinnu o.fl. ■Hótel Borgarnes ..... Nýja veitingabúðin er opin frá kl. 8.00—23.30. Fangelsið líkist fremur heilsuhœli! Bílaleiga Kjartansgötu 12 — Borgarnesi - Simi 93-7395. Volkswagen Landrover Tennis er eitt af þvi sem fangar stunda að vild. Terry Moore— vill nefna flugfélagiö eftir Hughes d msjón: Edda Andrésdóttir LÆRÐIAÐ FLJUGA HJÁ HUGHES — er nú forseti flugfélags Nafn Howards Hughes kemur víða við. Terry Moore heitir leikkona, sem Hughes kenndi eitt sinn að fljúga. Leikkonan fyrrverandi er nú að verðá forseti eigin flug- félags, North Star Air- craft Corporation, sem er aðganga frá kaupum á 24 Convair 880 þotum frá Trans World Airlines. ,,Ég vona aö hann geti fylgst með þvi sem ég er að gera”, segir Moore. North Star keypti vélarnar fyrir 3.5 milljónir doll- ara til vöruflutninga til Miö- Austurlanda. „Þær fyrstu ættu að fljúga i desember”, segir Moore, „með kjúklinga til Iran”. Moore kveðst hafa lært að reka flugfé- lag af Hughes. „Ég var með honum i átta ár. Hann hafði mig með sér á alla fundi Lockheed og TWA”. „A hverjum degi flaug ég i einni af vélum Howards. Hann sat við hlið mér og kenndi mér að fljúga”. Hughes átti þátt i sköpun Con- vair 880 og Moore kveðst hafa viljað þoturnar, „vegna þess að þær eru hluti af honúm. Og ef ég fæ leyfi til, langar mig að breyta nafni flugfélagsins i „Howard Hughes Airlines”. — „Ég var Hughes sem nokkurs konar son- ur — sem hann aldrei eignað- ist”, bætir Moore við. PASSAMYIVDIR s teknar i Kiffum ftilbúnar sffrax I barna & flölskyldu LJOSMYNDIR AUSTURSTRÆTI 6 S.12644 Smurbrauðstofan BJORISJIfSJrM Njólsgötu 49 — Sími 15105 /

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.