Vísir - 22.10.1977, Page 11

Vísir - 22.10.1977, Page 11
VISIR Laugardagur 22. október 1977 Séö inn eftir öörum klefaganginum (Vlsism. J.A.) „Þá kemur læknir i fangelsið á laugardögum og geta þeir fangar sem þess óska hitt hann að máli. Einnig er kallað á hann utan þessá tima ef þörf þykir.” — Hvað með lyfjagjafir? „Lyf eru eingöngu gefin sam- kvæmt fyrirmælum lækna og sjá fangaverðir um að útdeila þeim og fara eftir þvi sem læknir hefur fyrirskipað.” — Kvarta fangar undan inni- lokunarkennd? „Almennt gera þeir það ekki, en sumir eru að sjálfsögðu nokkuð örólegir fyrst i stað, en yfirleitt sætta þeir sig við hlutskipti sitt. Nei, það er ekki mikið um það að þeir láti gremju sina bitna á okkur. Þó kemur það fyrir einkum þegar menn koma hingað inn og eru stundum i misjöfnu ástandi. En okkar hlutverk er ekki siður að gæta velferðar þeirra heldur en að standa vörð um þá”, segir Gunnar Marinósson. Einangrun ekki nægileg Eins og drepið er á i upphafi hafa bæði lögreglumenn og fangar kvartað yfir þvi að einangrun sé lé- leg ihúsinu. Vart má skrifa á ritvél svo hávaðinn heyrist ekki um allt og fangar hafa kvartað undan þvl aö þeir geti ekki sofið ef umgangur er. Það hlýtur óneitanlega að vera erfitt að halda föngum i einangrun þegar svo er ástatt og þvi er Gunn- ar spurður hvort fangar geti haft samband sin á milli. „Fangar geta ekki kallast á milli klefa, en það fer ekki milli mála að hávaði og umgangur heyrist um allt húsið”, svaraði Gunnar. Hann sagði að þegar tveir eða fleiri væru settir inn vegna sama málsins væri reynt aö raða þeim niður i húsið þannig að þeir væru ekki i klefum nálægt hver öðrum. Hins vegar væri aldrei hægt að slá þvi föstu að fangar gætu ekki náð sambandi, enda væru dæmi um slikt i sérbyggðum einangrunar- fangelsum erlendis eins og fram kæmi i fréttum. Hitakerfi hússins er mjög leiðin- legt i notkun að sögn Gunnars og erfitt að stilla hitann jafnt. Hitinn getur þvi verið misjafn og loftið frekar þurrt. Fangar ná sambandi við fanga- verði með þvi að ýta á hnapp sem er i sambandi við bjöllu. Þeir hafa aðstöðu til að fara i bað og nota hana mikið og þrifa sjálfir klefa sina. Þarf yfirleitt ekki að minna þá á það enda ekki mikil hreyfing sem þeir fá. Þó fá þeir sem þarna dvelja lengi að fara út i smágarð einu sinni á dag i fylgd fanga- varðar. Erfitt er þó að koma þvi við þegar margir dvelja samtimis i Siðumúla þar sem aðeins einn fær að vera úti i einu. Yfirheyrslur dómara og lögreglu fara fram i yfirheyrsluherbergi fangelsisins eða þá að fangar eru fluttir niður I aðsetur sakadóms og rannsóknar- lögreglu i Borgartúni. Þreytandi starf Gunnar Marinósson hefur verið fangavörður siðan árið 1968. Byrjaði i Hegningarhúsinu en hefur verið varðstjóri i Siðumúla siðan árið 1973. Samtals starfa 10 fanga- verðir þar og Gunnar segir að starfið sé slitandi, þvi fylgi talsverð spenna. „Það er ekki skemmtilegt aö loka menn inni. Ég hef sagt þaö áður að ég hefi fundið fyrir þvi aö þurfa að loka menn inni i klefa”. - Koma sömu menn oft? „Þvi miður er það svo að yfir- gnæfandi meirihluti kemur hér oft- ar en einu sinni. Aðallega er það vegna þjófnaðar og skjalafölsun- ar”. — Að lokum Gunnar, gætir þú hugsað þér aö vera læstur hér inni? „Ég vona að til þess komi aldrei. Hitt er svo annað mál, að ég hefði ekkert að óttast varðandi meðferð núverandi fangavarða kæmi til þess að ég gisti hér klefa”, sagöi Gunnar Marinósson varðstjóri að lokum. Við fengum ekki leyfi til að skoða auðan klefa eða taka þar myndir. Klefagangar eru tveir og gangur fyrir endanum. Fangaverðir sitja i herbergi meðfram þeim gangi og hafa þaðan yfirsýn yfir gangana en 11 Fangaklefarnir eru þröngir (Visism. B.G.) járnhlið skilur fangaálmurnar frá þverganginum. Þá mun vera hægt að fylgjast með þvi sem gerist i einum af klefunum á sérstökum sjónvarps- skermi og er það öryggisatriði. Myndir úr fangaklefa sem fylgja þessari grein og úr fangelsisgarði voru teknar áriö 1973 er fangelsiö var tekið i notkun sem gæslu- fangelsi. Við fengum hins vegar að taka myndir á göngunum. —SG NÚ GETA MENN HAFIÐ SIG TIL FLUGS OG SÉÐ HLUTI HORFNA ÚR AUGSYN Undanfarna 4 mánuöi hefur hið svonefnd TM-Sidhi kerfi verið kennt um viða veröld, en allir sem iðkað hafa innhverfa ihugun I að minnsta kosti 6mán- uði geta lært það. TM — Transcendental Meditation — eða innhverf ihugun er auðlærð huglæg tækni, en hún er grund- völlur þess að unnt sé að hag- nýta sér Sidhi kerfið. Sidhi er sanskritarorð og þýðir fuil- komnun. Með iðkun TM-Sidhi kerfisins er komið á fullkominni samvirkni milli hugar og lik- ama. Við skulum nú skoða nán- ar hvað oröið samvirkni merkir I þessu sambandi. Vitað er, aö ætiö er til staðar einhver samvirkni milli hugar og likama. T.d. ef hugurinn seg- ir við höndina, lyftu upp bókinni á boröinu, hlýöir höndin og ef hugurinn segir viö likamann, gangtu fram og náðu mér i kaffibolia, hlýöir likaminn. Ef hugurinn segir hins vegar við likamann.fljúgðu, þá geristalla jafna ekkert. Það er merki um að á þessu sviöi er um sam- bandsleysi aö ræða milli hugar og llkama, skort á samvirkni. Meö TM-Sidhi kerfinu er hægt að upphefja eða eyöa þessum Sturla Sighvatsson arkitekt skrifar um TM-Sidhi kerfið/ er hann segir að marki þáttaskil i sögu mann- legs atgervis ■- T skortiv og unnt er m.a. aö láta likamann lyftast með hugarafl- inu einu. Þegar iðka um 4000 manns TM-Sidhi kerfiö og iðk- endum fjölgar ört. Islenska íhugunarfélagið byrjar nú kennslu á þvi i framhaldi af al- mennum námskeiðum i inn- hverfri ihugun sem taka 7 kvöld. Allir iðkendur innhverfrar ihug- unar, sem kæra sig um, geta nú lært TM-Sidhi kerfið. Gangverk TM-Sidhi kerfisins. Við reglulega iðkun inn- hverfrar íhugunar losnar um streitu og andlegt atgervi vex svo mjög að hægt er að taka áður ónotaöa hæfileika tauga- kerfisins I gagnið með TM-Sidhi kerfinu. Nokkrir hæfileikanna eru t.d. þeir, að við-komandi geturhafiösig til flugs, séö hluti horfna úr augsýn, stækkaö skynjunarhæfni skynfæranna o.s.frv. Með tækni innhverfrar ihugunar er fengin bein reynsla af uppsprettu hugsunar eða þvl, sem eölisfræðingar kalla tóma- rými efnis (vacuum state of matter). Ef marka má skammtafræöi eölisfræðinnar (quantum mechanics) er tóma- rýmið gætt óendanlegri orku, það er aösetur allra náttúrulög- mála.allrar þekkingar og er aö- setur allra möguleika. Það er hreyfingarlaust, en heldur uppi öllum hreyfingum alheimsins. Þaö er gætt ástandi óendan- legra samtengsla. Þetta orku- svið virkjum við með innhverfri ihugun og einkum með TM-Sidhi kerfinu og getum að lokum fengið likamann til að v.erða við hvaða ósk hugarins sem vera skal. Fyrsta stig flugs. Iðkendur TM-Sidhi kerfisins iðka allir enn hið svonefnda fyrsta stig flugs, en regluleg iðkun leiðir til stööugra fram- fara og sifeilt meiri samvirkni milli hugar og llkama. A fyrsta stigi flugs lyftist likaminn um 30-40 sentimetra eöa jafnvel 1 metra og fiýgur _ 1-3 metra áfram. En búast má við áfram- haldandi þróunrétt eins og varð i venjulegu flugi og viö vitum aö fyrstu fiugvélarnar flugu ekki hátt og ekki langt, en þær flugu þó. Endanlegt markmið TM-Sidhi kerfisins Endaniegt markmiö TM-Sidhi kerfisins er að skapa fyrir- myndar einstaklinga sem hafa þroskað andiegt atgerfi til fulls og hagnýta sér náttúrulögmál tómarýmis efnis. Slikir ein- staklingar gera sjálfum sér og þjóðfélaginu mikið gagn, þvl að með beitingu þessa kerfis á sér einnig stað aukiö aðstreymi næringar vitundarlífs og sköp- unargreindar inn á vitundarsviö allra landsmanna, þannig að allir verða gæddir meiri sköp- unargreind og orku og eiga auð- veldara með að leysa vandamál sln. 1 lokin skal bent á, aö á tækninni innhverf Ihugun og TM-Sidhi kerfinu hafa verið geröar og eru enn framkvæmd- ar ýtarlegar visindalegar rann- sóknir sem sanna aö iökandinn verður heilsuhraustari, gæddur meiri sköpunargreind, náms- hæfni og orku.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.