Vísir - 22.10.1977, Qupperneq 13
13
VISIR Laugardagur 22. október 1977
Obbinn af öllu helsta skólafólki iandsins á ráftstefnunni á Loftleiöum I gær.
„Við urðum að
vísa fólki frá"
Háskólamenn óhugasamir um framhaldsskólana
„Segja má að hér sé
samankominn obbinn
af öllum helstu skóla-
mönnum landsins”,
sagði Jónas Bjamason,
formaður Bandalags
Háskólamanna í sam-
taliviðVisii gær. Hann
var staddur á Hótel
Loftleiðum en þar fer
nú fram ráðstefna á
vegum bandalagsins
um menntun á fram-
haldsskólastigi.
„Tilgangur þessarar
ráöstefnu er aö sjálfsögöu
margvíslegur”, sagöi Jónas,
„meöal annars sá aö nú liggur
frammi fyrir frumvarp um
framhaldsskóla og BHM, ásamt
mörgum öörum aöilum hefur
fengiö frumvarpiö til umsagn-
ar.”
„Þá má benda á að miklar
breytingar hafa oröiö á mennt-
un á framhaldskólastiginu und-
anfarin ár, sem kalla á
breytingar f háskóla hvaö mat á
undirbúningi til háskólanáms
snertir.”
„Einnig er i gangi fjölgun
námsleiöa innan háskólans sem
kalla aftur á móti einnig á mis-
munandi undirbúning á fram-
haldsskólastigi”.
,,Til aö ræöa þessi mál eru
komnir milli 130 og 140 þátttak-
endur á ráöstefnuna sem er sú 4.
sem BHM gengstfyrir um fag-
leg og áhugamálefni. Við uröum
þó aö vi'sa nokkrum frá vegna
þess aö húsnæöiö tekur ekki
fleiri
„Með þessari ráöstefnu
hyggst BHM undirbúa umsögn
um lagafrumvarp um fram-
haldskóla og veita skólum á há-
skólastigi upplýsingar um þró-
un og fyrirsjáanlegar breyting-
ar á þvi sviði. Einnig fá félags-
menn upplýsingar um sömu
málefni.”
A ráöstefnunni veröur starfaö
ivinnuhópum, sem munu leitast
við aö svara ákveönum
spurningum. Frummælendur á
þessari ráöstefnu sem hófst i
gær og lýkur i dag eru Halldór
Guöjónsson, Jón Böövarsson,
Kristján J. Gunnarsson, ólafur
H. Cskarsson, Páll Skúlason,
Sveinbjörn Björnsson og Orn
Helgason. —GA
íslendingar
koupa hótel
í Danmörku
Eigendaskipti standa fyrir
dyrum á Hotei Falcon i Kaup-
mannahöfn. Þaö eru hjónin
Helga og Rolf Hansen sem rekiö
hafa hóteliö undanfarin ár, en
hann er finnskur en Helga er is-
lensk.
Kaupandi aö hótelinu mun
vera Inga Birna Jónsdóttir,
kennari viö Kennaraháskólann,
en hún dvelst f Kaupmannahöfn
I vetur.
Ekki hefur reynst unnt ab afla
nanari upplýsinga um málið enn
sem komið er, en um helgina
var auglýsing i einu dag-
blaðanna frá hótelinu, og voru
gefnar upplýsingar I síma
fyrirtækisins Hugmynd og
framtak hf. Ekki vildu þeir sem
þar uröu fyrir svörum gefa
neinarupplýsingarum eigendur
hótelsins en kváöu frétta vera
að vænta i lok vikunnar.
t auglýsingu frá Falcon hótel-
inu segir, aö þar sé töluð Is-
lenska og samkvæmt upplýsing-
um I sima þeim er upp var gef-
innerunntaögreiöa alltaö einn
þriöja af gistikostnaði hér
heima I islenskum peningum.
—AH
Seðlabankinn
kannast ekki
við kaupin ó
Hótel Falcon
„Viö höfum ekkert um þetta
heyrt, ég hef ekki heyrt á þetta
minnst fyrr en þd segir þaö
núna”, sagöi Siguröur Jóhanns-
son hjá gjaideyriseftirliti Seöia-
bankans er Visir bar undir hann
eigendaskipti á Falcon hótelinu
I Kaupmannahöfn.
Siguröur sagöi aö hámarks
eignayfirfærsla milli landa væri
300 þúsund krónur árlega ef fólk
flytti héöan, ,,og þaö kaupir
enginn hótel fyrir þá upphæö,
jafnvel þó nokkrir aðilar legöu
saman”, sagöi Siguröur.
Aöspuröur sagöi Siguröur, aö
ekki væri löglegt aö hafa eigna-
skipti milli landa, þannig aö ef
um þaö væri aö ræöa aö Is-
lendingar létu eignir sinar hér-
lendis upp i kaupverö á eignum
erlendis væri þaö ólöglegt.
—AH
er byggður á hinni velþekktu
reynslu er fengist hefur af Golf
og Passat, hann er því laus við
alla ,,barnasjúkdóma"______________________________________________________________________________
er sá nýjasti af
yngri kynslóð
inni frá
Volkswagen.
BEfltBV
glænyr, en jafnframt þraut
reyndur btll frá Volkswagen,
nýtizkulegur en þó sígildur i
útliti. Stórar, gáttmiklar dyr.
Sætisrými 2,34 ferm.
Farangursrými 515 litra, sem
jafnframt er stærsta farangurs-
rými i sambærilegum bilum og
það er til staðar, hvort sem þú
ert einn eða 5 manns i bilnum.
®)Nýr
frá
Volkswagen
Tækniþróuð, sparneytin 50 ha.
vatnskæld vél, sem liggur
þversum frammi bilnum.
Gormafjöðrun á hverju hjóli.
Tvöfalt hemlakerfi með kross-
deilingu. Framhjóladrif. alsam-
hæfður girkassi. 4 ganghraða-
argerö
1978
Sýnmgarbíll á staðnum igi
HEKLAhf
Laugavegi 170—172 — Slmi 21240
VESTUR-ÞYZK GÆÐAFRAMLEIÐSLA