Vísir - 22.10.1977, Síða 14
14
Laugardagur 22. október 1977
VISIR
Engir fundir yfirmanna lög-
reglunnar um verkfallsaðgerðir
Athugasemd fró lögreglustjóranum í Reykjavík
Visi barst í gær athuga-
semd frá Sigurjóni Sig-
urðssyni/ lögreglustjóra í
Reykjavík vegna frásagn-
ar í blaðinu í fyrradag,
sem höfð var eftir tals-
mönnum BSRB á blaða-
mannafundi þeirra. Fer
athugasemdin hér á eftir.
1 grein i dagblaðinu Visi,
fimmtudaginn 20. þ.m., er eftir-
farandi: „Samkomulag hefur
tekist milli verkfallsmanna og
lögreglustjóra um að skipuð verði
sérstök nefnd innan lögreglunnar
sem hittist 1-2 á dag til þess að
ræða framkvæmd verkfallsins að
þvi er löggæslu varðar. Forráða-
menn BSRB skýrðu frá þessu á
blaðamannafundi i gær og sögðu
að i nefndinni yrði fulltrui lög-
reglustjóra ásamt fulltrúum lög-
reglumanna.”
Greinin var undirrituð með
upphafsstöfunum ESJ.
Af þessu tilefni skal tekið fram
að Kristján Thorlacius og Mar-
grét R. Bjarnason frá BSRB áttu
fund með mér þriðjudaginn 18.
þ.m. Greindi ég þeim frá þvi að
ég færi i einu og öllu eftir úrskuröi
kjaradeilunefndar og skýrði frá
hverjar áætlanir hefðu verið
gerðar til þess aö draga úr lög-
gæzlu i samræmi við hann. Á
fundinum kom fram ósk um að
Lögreglufélag Reykjavikur ætti
greiðan aðgang að upplýsingum
um löggæzluáætlanir og sam-
þykkti ég að formaður félagsins
ætti daglegar viðræður við yfir-
lögregluþjóna.
Þegar hinsvegar kom i ljós að
stjórn lögreglufélagsins gerði það
að ófrávikjanlegu skilyrði að á
fundunum yröi fjallað um sam-
ræmingu verkfallsaðgerða, taldi
ég forsendur fyrir þeim brostnar
enda ætlunin að ræöa eingöngu
um ástand mála og á hvern hátt
ákveðið hefði verið að haga lög-
gæzlu.
Reykjavik 21. október 1977.
Sigurjón Sigurðsson.
Reykjavíkurmyndir Jóns biskups
komnar á litprentuð kort
i fyrsta. sinn eru nú gefnar út
sem kort, þrjár myndir eftir Jón
Helgason biskup (1866-1944), og
ailar eru þessar myndir frá
gömlu Reykjavik eða skömmu
fyrir og um aldamótin siöustu.
Sú elsta sýnir bæinn um 1870, og
það eru Dómkirkjan, Mennta-
skólinn viö Lækjargötu og
Tjörnin, sem mest ber á á þess-
ari fallegu mynd. Þá er mynd,
sem sýnir Lækjargötu og lækinn
um 1894 og þar blakta danskir
fánar við hún. Sú þriðja sýnir
Bankastræti eins og það var um
1903.
Allar þessar myndir eru I eign
Árbæjarsafns, sem góöfúslega
iéði þær til þess að af þessari út-
gáfu gæti orðiö. Myndirnar eru
litgreindar og prentaðar i Gra-
fik h.f. en Sólarfilma sf. gefur
þær út. Kortin eru i tveim stærð-
um, bæði venjulegri póstkorta-
stærð og einnig helmingi stærri
eða 15x21 cm en báðar gerðir
eru tvöfaldar og bæði án innanf
prentunar og einnig með hefð-
bundnum jóiakveðjum á þriðju
siöu.
Kortaútgáfan er hin vandaö-
asta, og likleg til aö njóta vin-
sælda.
40 litprent-
aðar prjóna-
uppskriftir
— á íslensku
Fjörutiu litprentaðar
prjónauppskriftir á islensku
er aö finna i Prjónabókinni
Elinu, en annað bindi hennar
er nú komið út.
Höfundar uppskrifta eru
jafnmargir uppskriftunum, en
efnt var til samkeppni um efni
I þetta bindi bókarinnar. Var
sérstök dómnefnd sem valdi
flikurnar úr miklum fjölda
sem barst.
í bókinni, segir m.a.: „Það
er von útgefanda að Prjóna-
bókin Elin megi bæði örva til
hannyrða og kveikja nýjar
hugmyndir listrænna kvenna
og karla, sem fitja upp á
prjón.”
Það er Ullarverksmiöjan
Gefjun á Akureyri sem gefur
bókina út i umsjá auglýsinga-
deildar Sambandsins.
— EA
rftáoii
KÁRSNESBRAUT1
FUÖLRITUNARSTOFA,
KÁRSNESBRAUT 117 -sími 44520
AUSTURSTRÆTI 8 -slmi 25120
★ Ljósritum á skrifpappir og skjalapappir.
★ Ljósritum húsateikningar.
★ Öll ljósritun afgreidd meðan beðið er.
★ Fjölritum á flestar gerðir af pappir, t.d. karton, N.C.R.
pappir og fl.
★ önnumst gerð bæklinga eyðublaða og fl.
if Reynið viðskiptin.
Útsölustaðir SóLó-húsgagna í Reykjavík:
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121, simi 10600
SÓLó-húsgögn
Kirkjusandi, sími 35005.
sterkur en léttbyggóur
Taunus 26M 6 cyl, með power stýri og bremsum
Sjáifskiptur. Verð kr. 1 millj. Hagstæð kjör.
Willys station árg. ’55 með 6 cyl Chevrolet vél.
Benz stólar. Toppbill. Verö kr. 1 milljón (skipti)
WUlys Wagoneer '74. Ekinn 60 þús. km. Verö kr
2.5 millj.
Mercedez Benz 280 SEL. Beinskiptur. Verð kr. 1,7
miilj.
Opið laugardaga og sunnudaga.
Okkur vantar allar tegundir bUa á skrá
Bilasalan Höfðatúni 10