Vísir - 12.11.1977, Síða 20

Vísir - 12.11.1977, Síða 20
VÍSIR gftnftsmtfc A SANYO 20" iitsiónvarpstœki fró sími 86611 r Opiö virka daga til kl. 22.( GUNNARI ASGEIRSSYNI er vinningurinn í Sunnudaga ki. 18-22 smáauglýsingahappdrœtti Vísis. DREGIÐ 21 NÓV. „Yandinn hefur ekki enn verið leystur" Klippa númerin o af um nœtur — segir samstarfsnefnd freðfisk-, saltfisk- og skreiðar- framleiðenda ,,Illt er til þess að vita, að Þjóðhagsstofnun telji lausn vera fundna á vanda fiskvinnslufyrir- tækja fram til 1. janúar n.k. þrátt fyrir að niður- stöður sýni taprekstur upp á um 2%”, segir i yfirlýsingu frá sam- starfsnefnd freðfisk-, saltfisk- og skreiðar- framleiðenda! sem blaðinu barst i gær- kvöldi. í yfirlýsingunni er vikið að nokkrum atriðum i skýrslu Þjóð- hagsstofnunar um afkomu frysti- húsanna sem sagt hefur verið frá i VIsi. Samstarfsnefndin bendir m.a. á, að I skýrslunni sé tap á fisk- vinnslunni i heild áætlað um 1300 milljónir á ársgrundvelli miðað við október-verðlag, og er þá tek- ið tillit til þeirrar 7% hækkunar viðmiðunarverðs, sem kom til framkvæmda 1. október, og gengissigs. Einnig er bent á, að greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins umfram markaðs- verð séu áætlaða^um 4.330 millj- ónir króna. Telur nefndin augljóst, að vandi fiskvmnslufyrirtækja hafi ekki enn verið leystur. Þá er þeirri skoðun lýst, að afkoma fisk- vinnslunnar sé lakari en skýrsla Þjóðhagsstofnunar segi til um þar sem langvarandi rekstrar- halli hafi haft neikvæð áhrif á ýmsa kostnaðarliði, ekki sist vexti. Lögreglan i Hafnarfirði hefur nóg að gera þessa dagana eða öllu heldur nætur við að klippa númer af óskoðuðum bflum. Auglýst hefur verið að klippt verði af þeim bilum, og er það gert á staðnum þar sem þeir sjást. Lögreglan nær ekki til þessara bila á daginn sem eðli- legt er, þar sem flestir eigenda vinna annars staðar en I Hafnarfirði svo sem i Reykjavlk og á fleiri stöðum. Hefur þvi verið mikið að gera siðustu nætur og mun lögreglan hafa klippt af 40-50 bflum siðast- iiðnar fjórar nætur. Það er þvi liklega eins gott að skella bfln- um I skoðun sem fyrst sé hann óskoðaður, þvi lltillar undan- komu er auðið. —EA —ESJ Einor til Danmerkur og Noregs Einar Ágústsson, utan- rikisráðherra, fer i heimsókn til Danmerkur og Noregs um mánaðamótin i boði utan- rikisráðherra þessara landa. Heimsókn hans til Dan- merkur verður 28. og 29. nóvember næstkomandi, en til Noregs 1. og 2. desember, segir i frétt frá utanrikis- ráðuneytinu. —ESJ. ' Atkvæði talin hjá bankamönnum. Frá hægri Karl Sigurðsson, Sólon Sigurðsson og Benedikt Guðbjartsson. (Visism. JA) BANKAMENN SAMÞYKKTU NÆR EINRÓMA Yfirgnæfandi meirihluti banka- ntanna samþykkti nýgerða kjara- samninga við almenna atkvæða- greiðslu. Kjiirsókn var um 90% og sögðu 1529 já, en 167 greiddu at- kvæði á móti. Auöir seölar voru 39 og ógildir seðlar tveir. Sólon( Sigurðsson formaður Sambands bankamanna sagði i samtali við Visi i gærkvöldi er talningu lauk, að nokkur atkvæði væru ókomin þar sem samgöngur tepptust vegna veðurs. Hann sagði að um 33 atkvæði gæti verið að ræða eða innan við 2% at- kvæöamagns og breýttu engu um samþykkt samninganna. Það voru þvi um 88% banka- manna sem samþykktu og innan við 10% sem voru á móti og var Sólon ánægður með þátttökuna og úrslitin. Bankarnir samþykktu samninginn fyrir sitt leyti i gær- dag. —SG Flugleiðir kaupa flugskýli fjögur 1 gær var gengið frá samn- ingum milli Flugleiða h.f. og Samgönguráðuneytisins um kaup Flugleiða á flugskýli nr. 4 á Reykjavikurflugvelli. Flugskýli nr. 4 á Reykjavik- urflugvelli, sem Flugleiðir hafa nú keypt, var fljótlega eftir bruna flugskýlis nr. 5 breytt I viðgerðarskýli en áður hafði þaö eingöngu verið notað til geymslu. Flugmálastjórn sá um viðgeröir á ytra byrði skýlisins og einangrun þess. Flugleiðir létu leggja i það hita, nýja raflögn og vinnuljós og byggðu ennfremur milli- vegg i skýlið. Ennfremur byggðu Flugleiðir 1000 fm. hús viö hlið flugskýlis nr. 4 sem notað er sem verkstæði, lager og skrifstofur. Kaupverð flug- skýlisins er 161,5 milljónir króna. HÆKKUN VERSLUNAR- ÁLAGNINGAR i ATHUGUN Nú er dýrara að ferðast með SVR Fargjöld með Strætisvögnum Reykjavikur hækkuðu i morgun og kostar nú farið fyrir fullorðna 70 krónur og 20 krónur fyrir börn. Hækkunin er að meðaltali 14,7%. . Farmiðaspjöld með 17 miðum kosta nú 1.000 krónur og með 38 miðum 2.000 krónur. Aldraðir og öryrkjar fá 38 miða farmiða- spjöld fyrir 1.000 krónur og 34 barnamiðar kosta 500 krónur. -SJ „Verðlagsnefnd hefur nú til meöferðar tillögu frá verðlags- stjóra um hækkun hinnar al- mennu verslunarálagningar og veröur málið væntanlega afgreitt á fundi nefndarinnar á miðviku- daginn”, sagði Björgvin Guð- mundsson formaður nefndarinn- ar I samtali við Visi i gærkvöldi. Aðspurður um hve mikil hækkun væri til umræðu sagöi Björgvin að ekki væri unnt aö skýra frá þvi meðan málið væri til meðferðar. Hann benti á að álagningin hefði ekki hækkað nokkuð á þriðja ár þrátt fyrir kostnaðarhækkanir. „Það er meiningin að lagfæra svolitið tekjustofna verslunarinn- ar og gera henni kleift að fjármagna þær miklu kostnaðar- hækkanir sem orðið hafa”, sagði Þorvarður Eliasson fram- kvæmdastjori Verslunarráðs er Visir bar þetta mál undir hann. Þorvarður sagði að allir væru sammála um að þetta þyrfti að gera en menn væru ekki sammála um hvernig ætti að framkvæma lagfæringu og i hvaö rikum mæli. „Það sem gerir máliö sérstak- lega erfitt er þaö, að þessi álagn- ingargrundvöllur sem nú er við lýði er rangur. Alagningin er allt of há á sumum vöruflokkum en langt fyrir neðan það sem nokk- urt vit er i á öðrum”, sagði Þor- varður ennfremur. Það væri þvi ekki heppilegt að setja eina og sömu hækkun á allt þegar ástand- ið væri svona fyrir og mönnum þvi vandi á höndum. Björn Jónsson forseti ASI sagð- ist ekki hafa setið siðasta fund verðlagsnefndar þar sem þetta mál var lagt fyrir. Hann ætti þvi eftir að kynna sér hvað þarna væri á ferðinni, en taldi vist að Alþýðusambandið væri ekki hrif- ið af miklum breytingum álagn- ingar. —SG Endurkaupin í athugun Engin ákvörðun hef- ur verið tekin um að- gerðir vegna versnandi aðstöðu Seðlabankans til endurkaupa birgða- og rekstrarlána. Að sögn Jóhannesar Nordals seðlabanka- stjóra er málið til um- ræðu og er verið að athuga leiðirtil úrbóta. —SJ

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.