Vísir - 14.11.1977, Síða 7

Vísir - 14.11.1977, Síða 7
Mánudagur 14. nóvember 1977 7 „Ég hef gert mig að mannveru á þessari 1 1 vinsœlustu plánetu" Mundir þú vilja leika aðra persónu? Ég er ekki viss. Menn segja að .... . c D það sé erfiðast að íeika sjáifan Ali með litlu dottur sina, Hana, umknngdur frettamonnum a Cate Koyal i si§ London. ihuga það. En það var gaman að véra með i þessu. Og gleymið ekki að ég er enn ungur, i blóma lifsins, ég er fallegur og ég hef gert sjálfan mig ab vinsælustu mannveru á þessari plánetu. Hversu mörgum hefur þú snúið til Múhameðstrú- ar? Það er ómögulegt að segja, en það hljóta að vera að minnsta kosti tvær milljónir. Hann kom með eins árs gamla dóttur sina með sér á fundinn og gaf henni m.a. að borða þar. Sú litla heitir Hana, sem þýðir hamingja. Hversu oft hefurðu séð kvikmyndina þína? Liklega tiu, tólf sinnum. Ég var hálf-smeykur við að gera þessa mynd, þar sem ég haföi aldrei leikið áður. En fólk sagði að ég hefði ekki gert annað um ævina en að leika. Að vinna við þessa mynd var eins og að leika sér að leikfangi, miðað við það sem ég hef gert i lifi minu. Hver er mesta kvikmyndast jarna í heimi? ,,Ég. Vitið þið um aðra kvikmyndastjörnu, ameriska eða enska, sem gæti farið til hvaða lands i heiminum sem er og mundi þekkjast um leið og hún (eða hann) stigu út úr flug- vélinni? Ég þarf ekki auglýs- ingu. Ég er meiri en nokkur önnur kvikmyndastjarna”. Það kemur liklega fæstum á óvart þetta svar Muhammads Ali. Spurningunni svaraði hann á blaðamannafundi sem haldinn var fyrir nokkru i London. Um 200blaðamenn mættu á fundirum en Ali var á ferðinni i London vegna kvikmyndar hans, The Greatest. Langar þig til aö sonur þinn feti i fótspor þín? ,,No sir”. Ég ætla svo sannar- lega að sjá til þess að sonur minn verði ekki boxari. Þó að Tom Jones sé góður söngvari, þarf sonur hans ekki endilega að verða það lika. Sama er að segja um fótboltakappa. Nei, sonur minn á að verða menntað- ur. Hann er sex ára gamall og hann talar þegar svolitið i ara- bisku, frönsku og itölsku. Lik- segir Muhommad Ali og kveðst œtlo að segja skilið við boxið urnar á að hann verði eins og ég eru 10 milijón ámóti einum. En hann getur menntað sig og íund- ið tilgang i lifinu. Ken Norton, andstæðing- ur þinn í boxinu, hefur líka fengið hlutverk í kvikmyndum (Mandingo og Drum). Værir þú til að leika svipuð hlutverk, þ.e. hlutverk þræla? Ég mundi ekki einu sinni Hversu lengi ætlarðu að halda áfram í boxi? Sá ferill er á enda runninn. Ég mun prédika nú. Ég veit að ég hef sagt áður að ég væri hættur, jn núna meina ég það. Ég hef gert upp hug minn i eitt skipti fyrir öll. Nú ætla ég að hjálpa fólki að vinna fyrir Guð. Og hvaö þá um framtíð- ina? Nú undirbý ég mig fyrir hina raunverulegu baráttu. Box var aðeins til þess að kynna mig fyr- ir heiminum. Nú mun ég snúa mér að trúnni. Það sem máli skiptir er frelsi, réttlæti og jafn- rétti mannkyns. Svo það sem þið sáuð mig gera i boxinu er lit- ið miöaö við það sem ég sný mér að nú. Guð mun dæma mig, ekki fyrir það hversu mikið ég græði á kvikmyndum, heldur á sam- skiptum minum við fólk. Ég nota boxið, kvikmyndir og myndavélar ykkar til að verða vinsæll svo fólk muni hlusta á mig. Vitur maður getur leikið kjána, en kjáni getur ekki leikið vitran mann. Það er vitur mað- ur sem veit hver tilgangur hans i liíinu er. —EA J ,’rtSÍI Opna tleiri ietöaiiHigiik'iiui Þegar fjölskyldan feröast saman og notar fjölskyldu- fargjöld, þá borgar einn fullt fargjald, en allir hinir aðeins hálft. Þannig eru íjölskyldufargjöld okkar er gilda nú allt áriö til allra Noröurlandanna og Bretlands. Fjölskyldufargjöld henta vel jafnt vetur sem sumar, og hvort heldur um er aö ræöa orlofsferð éöa viöskipta- erindi. Spyrjiö sölufólk okkar, umboösmenn og feröaskrif- stofumar um þessa auknu feröamöguleika allrar íjölskyldunnar. Fullt fargjald fyrir einn, hálft fyrir alla hina. fcfffnc46 tOFTLEIBIR ISLANDS

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.