Vísir - 21.11.1977, Side 10

Vísir - 21.11.1977, Side 10
10 VISIR utgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Daviö Guömundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson(ábm) ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmund ur Pétursson. Umsjón meö Helgarblaöi: Árni Þórarinsson Blaöamenn: Elias Snæland Jónsson, Guðjón Arngrímsson, Jón Oskar Hafsteins- son, Kjartan L. Pálsson, Kjartan Stefánsson, Magnús Olafsson, Oli Tynes, Sigur- veig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson Ljósmyndir: Jón Einar Guðjónsson, Jens Alexandersson. Auglýsinga og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Auglýsingar og skrifstofur: Siöumúla 8. Símar 86611 og 82260 Afgreiösla: Stakkholti 2-4, Sími 86611 Ritstjórn: Síðumúla 14. Sími 86611, 7 línur. Askriftargjald kr. 1500 á mánuöi innanlands. Verö i lausasölu kr. 80 eintakið. Prentun: Blaöaprent h.f. Hringlandaháttur Þegar sólstööusamningarnir svonefndu milli Alþýðu- sambandsins og vinnuveitenda voru geröir í sumar er leiö, lagði ólafur Jóhannesson viöskiptaráöherra mikla áherslu á, aö þaö hafi fyrst og fremst verið fyrir hans atbeina aö samkomulag tókst. Og málgagn hans sá um að koma boöskapnum til þjóðarinnar. Rétt er, að ríkisstjórnin stuðlaði meö fyrirheitum um ýmiss konar opinberar aðgerðir að lausn kjaradeilunnar. Þetta blað benti hins vegar á, að samningarnir myndu leiða til nýrrar verðbólguholskef lu. Þau sannindu voru reyndar flestum augljós. Viðskiptaráðherra fullyrti þvert á mót, að þeir þyrftu ekki að hafa nein verðbólgu- áhrif og gagnrýndi Vísi mjög harkalega fyrir að hafa sagt umbúðalaust það sem lá í augum uppi. En nú hafa veður skipast í lofti. Verðbólguholskef lan er riðin yfir, og sýnilegt er, að vandinn fer vaxandi verði ekkert að gert. Það kveður líka við annan tón í málgagni viðskiptaráðherra. Þar er dag eftir dag vakin athygli á þvi, að kjarasa mningarnir haf i komið dýrtíðaröldunni a f staðá ný. Og i stað þessaðhæla sér af samningunum tal- ar viðskiptaráðherra um nauðsyn þess, að vísitölukerfi þeirra verði afnumið, þvi að það sé verðbólguhvetjandi. Með rækilegri hætti er tæpast unnt að kúvenda í mál- flutningi. Borgurunum er á hinn bóginn Ijóst, að hringl- andaháttur af þessu tagi er ekkert gamanmál. Meðan hann ræður ríkjum er litil von til þess að samstaða verði innan ríkisstjórnarinnar um skynsamlegar aðhaldsað- gerðir i efnahagsmálum. Kauphækkanir umfram aukningu þjóðarframleiðslu, eins og samið hefur verið um á þessu ári, eru alls ekki eina orsök verðbólgunnar. Þar koma f jölmörg önnur at- riði til. En vitaskuld er það rétt, sem viðskiptaraðherra viðurkennir núna, en neitaði að horfast i augu við í sum- ar, að þessir samningar settu verðbólguhjólið af stað á nýjan leik, eftir að verðbólgan var komin niður í 26%. Kjarasamningarnir standast ekki miðað við rikjandi aðstæður i efnahagsmálum. Það er þvi rétt, sem við- skiptaráðherra segir núna, að gildandi verðbótakerfi á laun er þrándur i götu þess, að veitt verði viðnám gegn ringulreiðarverðbólgunni. Ólafur Jóhannesson þarf því i raun og veru að ógilda þá samninga milli launþega og vinnuveitenda, sem hann hældi sér sem mest af að hafa komið á fyrir aðeins f jórum mánuðum. En miklu meira þarf að koma til, ef veita á það aðhald, sem dugir gegn verðbólgunni. I fyrsta lagi er óhjá- kvæmilegt að hætta við áform um þær miklu skatta- hækkanir, sem f járlagafrumvarpið gerir ráð fyrir. Með öllu eróverjandi að hækka skatta á sama tíma og raska þarf gerðum kjarasamningum. Við slíkar aðstæður þarf þvert á móti að lækka skatta, ef sæmilegur friður á að rikja á vinnumarkaðnum. Augljóst er því að skera þarf niður framkvæmdir og þjónustu til samræmis við þá beint skattahækkun,sem ráðgerð er í f járlagafrumvarpinu. Þá er óhjákvæmilegt að skjóta vegagerðarbyltingunni á frest og hætta við áformaða 15 króna hækkun bensingjalds. Hvort tveggja er slæmt og færa má gild rök að því, aðhagkvæmara sé að leggja varanlega vegi um landiðen viðhalda vegleys- unum. Kjarni málsins er hins vegar sá, að það markmið er mikilvægara að ná jafnvægi i þjóðarbúskapnum. Og þar til því er náð verður að skjóta ýmsum góðum um- bótamálum á frest. Jafnframt þessu er nauðsynlegt að hætta öfugri notk- un Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins. Eins og sakir standa er hann notaður til að viðhalda þenslu i stað þess að jafna hagsveiflur í sjávarútvegi. Ennfremur er brýnt að stöðva skuldasöfnun ríkissjóðs i Seðlabankanum i þeim tviþætta tilgangi að draga úr spennu í f jármálum og rýra ekki möguleika bankans til lánafyrirgreiðslu við atvinnuvegina. En bankakerfið er nú í raun og veru sprungið vegna óraunhæfrar vaxtapólitíkur. Að þessu þarf að hyggja við þær endurreisnaraðgerðir, sem óhjá- kvæmilegar eru á næstunni. Mánudagur 21. ndv Lögin gefa þeim, sem það vilja, möguleika til þess að beita órétti í greinarkorni, sem Björgvin Guðmundsson skrifar í Vísi þ. 7. nóvem- ber s.l., gerir hann tilraun til þess að réttlæta fram- komu sína gagnvart öðr- um þeim stjórnmála- flokki, sem hann er full- trúi fyrir í borgarstjórn Reykjavíkur þ.e.a.s. Samtökum frjálslyndra og vinstri manna — (J- list'ann). Björgvin bregður sér í gervi uppfræðara um sveitarstjórnarmál nánar tiltekið um varamenn í kosningabandalögum. Punktakerfi lyginnar Þaö mætti segja aö hann rök- styddi þar mál sitt eftir „punktakerfi hvitu lyginnar”, þvi aö hann nefnir ekki tilefni greinar minnar i Visi 2. þ.m. en það var rangur fréttaflutningur j sambandi viö prófkjör Alþýöu- flokksins vegna væntanlegra borgarstjórnarkosninga. Hann vitnar sér til verndar i 20. gr. sveitarstjórnarlaga, sem ekki á við i þvi sambandi, sem um var að ræða og enginn hefur verið að deila um, en þaö mun hins vegar með vilja gert að sleppa þeirri málsgrein úr sömu lagagrein, þeirri er ég vék að: ,,Nú forfallast aðalfulltrúi um stundarsakir vegna veikinda eöa annars og er honum þá rétt að tilnefna þann af varamönn- um sinum, sem taka skal sæti hans á meðan”. Hér er kveðið á um rétt aöalfulltrúa til tilnefn- ingar varamanna hvar sem er af listanum, þegar um er að ræöa forföll um stundarsakir. Þaö sem ég sagöi: Að lög mæltu svo fyrir, að þaö sé algjörlega i hendi hins kjörna borgarfull- r . Steinunn Finnboga- dóttir segir, að þrátt fyrir ákvörðun Björg- vins Guðmundssonar að kalla hana ekki til vara á borgarstjórnar- fundi hafi skrifstofa borgarstjóra ávallt sent henni sem fyrsta varamanni öll skjöl ^borgarstjórnar. trúa að kalla varamenn til starfa i borgarstjórn, stendur þvióhaggað.en þennan rétt not- aði borgarfulltrúinn Björgvin til þess að útiloka fulltrúa sam- starfsflokksins frá störfum allt kjörtimabilið. Það er þvi út i hött að reyna aö skjóta sér með þeim hætti, sem hann gerir, bak við lögin. En hins ber að geta að þessi lög gefa þeim, sem það vilja möguleika til þess að beita órétti eins og berlega sannast hér og þá leið valdi „jafnaðar- maöur” Björgvin Guðmunds- son. Skrifstofa borgarstjóra sendir ávallt 1. varamanni hvers lista öll skjöl borgar- stjórnar og þau hefi ég fengið send allt kjörtimabilið og segir það sitt. Bjarni vildi sjálfur losna við varamannsskyldurn- ar Það má ekki annað skilja af skrifum Björgvins Guðmunds- sonar en að ég hafi samið um það að fulltrúi Samtakanna yrði útilokaður frá störfum i borgar- stjórn allt kjörtimabilið aö kosningum loknum. Þetta er nú málflutningur, sem borgarfull- trúanum þýðir ekki að bjóða eðlilega þenkjandi fólki. Slikri fjarstæðu trúir enginn. Og mér er spurn, til hvers heldur maðurinn að stjórnmálaflokkar geri með sér kosningabanda- lög? Þá lætur Björgvin að þvi liggja, að ég muni ekki vera ýkja ólik honum að innræti þvi ég hafi á sinum tima misnotað rétt minn gagnvart Bjarna Guðnasyni. Björgvin veit þaö án efa, að Bjarni óskaði eftir þvi sjálfur að vera laus við þær skyldur 1. varamanns að sitja borgarstjórnarfundi i forföllum aðalfulltrúa, svo sem venja er og samkvæmt tilmælum hans var annar maður kallaður i borgarstjórn, i forföllum. Annars eru þetta tvö óskyld mál. Tilraun Björgvins Guðmunds- sonar til þess að hnekkja þvi, sem fram kom i minni fyrri grein þ. 2. nóvember s.l., hefur þvi með öllu mistekist. Alkunna er, hversu mjög skort- ir á það hér á landi, aö þrigrein- ing rfkisvaldsins i löggjafarvald, framkvæmdavald og dómsvald sé i heiðri höfð. Þar koma bæði til það óhjákvæmilega samspil Alþingis og rikisstjórnar, sem af þingræðisreglunni leiöir, tilhögun sýslumanna- og bæjarfógetaem- bætta, en þessir embættismenn eru i senn dómsvald og stjórn- vald, og loks tilhneiging stjórn- málaflokkanna og stjórnmála- mannanna til að gina yfir sem mestu. Til skamms tima konjust menn t.d. upp með að gegna sýslumanns- eða bankastjóraem- bættum samhliða þingmennsku. Þau viðhorf hafa sem betur fer verið aö festa rætur, að slikt fari ekki saman, menn verði að velja og hafna. Mig langar hér á eftir að fara nokkrum orðum um einn þátt landsstjórnar okkar

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.