Vísir - 13.01.1978, Blaðsíða 12
Föstudagur 13. janúar 1978 vism
c
j^»ilfurí)úöun
Brautarholti 6, III h.
Simi 76811
Móttaka á gömlum
munum:
Fimmtudaga kl. 5-7 e h
Föstudaga kl. 5-7 e.h. ^
Bílaleiga
Kjartansgötu 12 — Borgarnesi
Simi 9:1-7395.
Volkswagen Landrover
r
já
Nýr umboðsmaður okkar
ú Húsavik
GRÉTAR BIRG HALLSSON
Baugholti 23
Simi 96-41558
Húsavik.
VISIR
r
-Hótei Borgarnes
Ráðstefnuhótel
Gisti- og matsölustaður
Sendum út heitan og
kaldan mat.
Ennfremur þorramat.
30% fjölskylduafslúttur
af herbergjum frá
1/12 '77 - 1/5 78.
Odýrt og gott hótel i
sögulegu héraði.
(Sovgamet
'lpröttír
V
Körfubolti eins og
hann gerist bestur
— Troðfullt hús áhorfenda sá KR sigra ÍS með 107 stigum gegn
__ 104 í „þrumugóðum" leik í gœrkvöldi
„Þessi leikur sýndi vel^ að það er
geysileg breidd i KK-liðinu og þótt við
misstum tvo hæstu menn okkar útaf,
annan á slysavarðstofuna, þá tókst okk-
ur að halda i horGnu. Það eru góðir
körfuboltamenn á varamannabekknum
hjáokkur, menn sem sýndu að þeir geta
komið inná í erfiðum leikjum og staðið
sig af prýði. Þetta var sigur alls KR-
iiðsins” sagði Andrew Piazza þjálfari
KR eftir að Uð hans hafði borið sigurorð
af IS i 1. deildinni i körfubolta f Kenn-
araháskólanum i gærkvöldi 107:104.
Leikurinn var geysilega spennandi og
vei leikinn, einhver sá besti sem hér hef-
ur sést f langan tima. Enn ein sönnun
þess i hversu mikilli framför körfubolt-
inn er hér á landi.
Já, þeir fengu ýmislegt fyrir aurana
sina þeir,sem sáu þennan leik. Geysileg-
ur hraði var í leiknum á báða bóga, og
þrátt fyrir sterkan varnarleik á köflum
voru skoruð alls 211 stig. Það var þvi
fyrst og fremst sterkur sóknarleikur,
enda hittni leikmanna stórgóð á köflum
og erfitt að stöðva þá.
Stúdentarnir byrjuðu leikinn á þvi að
komast i 6:2, en það jöfnuðu KR-ingar
strax ogkomustyfir 11:8. Menn fylgdust
sérstaklega með þeim Jdni Sigurðssyni
og Dirk Dunbar hinum bandariska hjá
tS, og var oft stdrkostlegt að sjá viður-
eign þeirra. Jdn i sinum besta ham og
gaf Dunbar ekkert eftir nema siður væri
og þar eigum við sannarlega snilling.
Eins var Andrew Piazza þjálfari KR
góður, sterkur í vörninni og hitti vel.
KR-ingar sigu framiir og náöu mest
9 gtiga forustu i fyrri hálfleiknum, en
stúdentar sigu á og i hálfleik munaði
aðeins einu stigi, 52:51 fyrir KR.
KR-ingarnir héldu þessari forustu
sinni i siðari hálfleiknum og um miðjan
hálfleikinn munaði þd aðeins tveimur
stigum 78:76.
KT-ingar náöu nú mjög góðum kafla
og komust yfir 13 stig og virtust með
gjörunninn leik. Þeim tdkst þó illa að
nýta sér þessa yfirburði, voru á stund-
um fullfljdtir á sér i sókninni. Þetta
voru IS menn og þó einkum Dunbar
fljótir að nýta sér, og undir lokin var
spennan i hámarki. ÍS fékk 2 viti^r stað-
an var 107:103 fyrir KR og 20 sekúndur
eftir en aðeins annað þeirra nýttist,
107:104. Hefðisfðaraskotið einnig farið i
körfu KR-inga er ekki gott að segja
hvernig farið hefði, þvi að um leið og
leiktiminn rann Ut var Dunbar kominn i
skotfæri undir körfu KR-inga, en hitti
ekki.
En sigur KR var verðskuldaður, um
það eru flestir sammála. Sá sigur
vannst fyrst og fremst á mikilli baráttu
ogmikilíi breidd iliðinu, þótt þeir væru
bestir Andrew Piazza, Jdn Sigurösson,
Bjarni Jóhannesson og Einar Bollason.
Einar var Utaf á löngum kafla i siðari
hálfleik vegna meiðsla, en þá tók Bjarni
við og var óstöövandi. Þá meiddist
Kristinn Stefánsson fljótlega i leiknum
og varð að sauma sár hans saman á
slysavarðstofunni, en Kristinn haföi
byrjað leikinn mjög vel. En breiddin hjá
KR er mikil, og hún átti stóran þátt i að
fleyta liðinu yfir þennan leik.
Þótt 1S hafi tapað þessum leik er liðið
enn með i baráttunni um titilinn, en
mötherjarnir voru of sterkir að þessu
sinni, þótt liðið ætti mjög góðan leik.
Andstætt við KR, þá er breiddin ekki
mikil i liðinu. Má segja að þar séu 6
jafngóðir menn, hinir allmiklu slakari.
Langbesti maður þeirra i þessum leik
var Dirk Dunbar, en Kolbeinn Kristins-
son átti einnig goðan leik.
Stighæstir KR-inga voru Andrew
Piazza með 26 stig, Jón Sigurðsson með
25, Bjarni Jóhannesson með 24 og Einar
Bollason með 16, en hjá IS Dirk Dunbar
með 42 stig, Kolbeinn Kristinsson 21 og
þeir Bjarni Gunnar og Steinn Sveinsson
með 11 hvor.
Sérstök ástæða er til að minnast á þátt
dómaranna Kristbjörns Albertssonar og
Erlends Eysteinssonar. Þeir dæmdu
erfiðan leik mjög vel, voru ekki of áber-
andi í leiknum og ávallt sjálfum sér
samkvæmir. gk—.
Andrew Piazza, þjálfari KR, átti mjög góðan leik I gærkvöldi. Hér er hann aðbrjóta sér leiö framhjá þeim Bjarna Gunnari og
Steini Sveinssyni. Visismynd: Einar.
VISIR Föstudagur 13. janúar 1978
tprþttir
Árgerö 1978, verömæti um 2 millj. kr.
VERÐLAUNIN 1. FEBRÚAR.
FORD FAIRMONT
Argerö 1978, verömæti 3,4 millj. kr.
VERDLAUN'IN 1. APRIL.
0 SIMCA 1307
Argerö 1978, verömæti 2,3 millj. kr.
VERDLAUNIN 1. JUNl.
EKKI EINN—HELDUR 1..2..3.. BILAR I ASKRIFENDAGETRAUNINNI
VISIR
Simi 866II
VISIR
Simi 82260
VÍSIR
Simi 86611
VÍSIR
Simi 82260
VÍSIR
Simi 86611
VISIR
Don Quarrie
sigraði
„tvöfalt"
Don Quarrie frá Jamaica sigr-
aði bæöi i 100 og 200 metra hlaupi
á alþjóðlegu frjálsiþróttamóti
sem fram fór i Melbourne i Astra-
liu I gær. Hann hljóp 100 metrana
á 10.4 sekúndum og 200 metrana
hljóp hann á 20.05 sekúndum.
Annar i 100 metra hlaupinu
varð Paul Narracott frá Astraliu
sem hljóp á 10.6 og þriðji varð
Guy Abrahams frá Panama sem
hljóp á sama tima. I 200 metra
hlaupinu varð Colin McQueen frá
Ástraliu annar á 20.8 og þriðji
varð Paul Narracott á 21.1 sek-
úndu.
Olympiumeistarinn i 1500
metra hlaupinu John Walker frá
Nýja-Sjálandi, varð að gera sér
annað sætið að góðu i 800 metrun-
um^sem hann hljóp á 1:47.7 minút
um — Þar sigraði John Higham
frá Astraliu — hijóp á 1:47.1 min-
útu.
Lasse Viren frá Finnlandi sem
sigraði i 5000 og 10.000 metra
hlaupunum i Montreal keppti i
tveggja milu hlaupi og varð hann
næst siðastur i hlaupinu — hálfum
hring á eftir sigurvegaranum,
Eamonn Coghlan frá trlandi, sem
sigraði i hlaupinu. Ný-Sjálending-
arnir Red Dixon og Dick Quax
urðu svo i öðru og þriðja sæti.
Frá leik Fram og landstiösins i gærkvöldi — Janus Guðlaugsson er kominn frir inná linu, en Pétur Jóhannsson brýtur illilega á honum og
vltakast dæmt sem Jón Karlsson skoraði slðan ur. Visismynd: Einar.
Annegret Richter frá Vest-
ur-Þýskalandi sigraði í 100
metra hlaupi kvenna hljóp á 11.3
sekúndum — Realene Boyle frá
Astraliu sigraði i 200 metrunum á
23.1 og þar varð Irena Szewinska
frá Póllandi þriðja — hljóp á 23.9
sekúndum.
—BB
Landsliðið tapaði fyrir Fram
Fram sigraði islenska landslið-
ið i handknattleik i Laugardals-
höilinni með 29 mörkum gegn 28 i
gærkvöld, og ef marka má eitt-
hvað leik landsliðsins, má liðið
taka sig verulega á ef ekki á illa
að fara i Danmörku. Geir Hall-
steinsson og Axei Axelsson léku
að vlsu ekki með, en það afsakar
ekki þennan siaka leik.
Það voru Framarar sem skor-
uðu fyrsta mark leiksins og höfðu
siðan ávallt forystuna eftir það.
Axel Axelsson sem lék meö sinum
gömlu félögum var potturinn og
pannan i leik Fram og hefur hann
sennilega aldrei verið eins góöur
og i dag. Hvað eftir annaö átti Ax-
el glæsilegar linusendingar sem
gáfu mörk, eða þá hann skoraði
með hnitmiðuðum skotum.
Hjá landsliðinu var það fyrir-
liðinn — Jón Karlsson sem bjarg-
aði þvi sem bjargað varð og skor-
aði hann hvorki meira né minna
en 15 mörk. Þar af voru sjö úr
vitaköstum og sýndi Jón mikið
öryggi i þeim, þar til i lok leiksins
að honum mistókst á siðustu sek-
úndunum.
Eins og fyrr sagði höfðu Fram-
arar ávallt frumkvæðiö i leikn-
um, þeir komust i 11 : 7 og i hálf-
leik var staðan 15 : 12 — hreint
ótrúlegar tölur sem segja sina
sögu um slaka vörn og mark-
vörslu landsliösins.
I siðari hálfleik héldu Framar-
ar svo lengstum þessu forskoti,
eða þar til tiu minútur voru til
leiksloka að Viggó Sigurðssyni
var vikið af leikvelli fyrir fullt og
allt — og uröu þvi landsliðsmenn
að leika einum færri það sem eftir
var. Um brottrekstur Viggós er
það að segja — að sá dómur var
nokkuð strangur, en réttlætanleg-
ur. Hann vildi fá dæmt aukakast,
en fékk ekki — og mótmælti svo
kröftulega við annan dómarann,
að hann sá sitt óvænna og sendi
Viggó i „bað”.
Eftir að landsliðsmenn voru
orðnir einum færri var eins og
þeir geröu sér grein fyrir þvi að
alvara var á feröum og meö
ágætum leik tókst þeim að jafna
27 : 27 og siðan var aftur jafnt 28 :
28. Framarar komust i 29 : 28,
þegar ein minúta var eftir — og á.
lokasekúndunum fékk landsliðið
möguleika á að jafna úr vitakasti
sem Jóni Karlssyni mistókst aö
skora úr.
Framarar léku vörnina nokkuö
framarlega og setti þaö allan
sóknarleik þeirra landsliðsmanna
úr böndunum — og furðar maöur
sig á að liðið skyldi nánast ekkert
svar eiga við þessu.
Flestir landsliðsmennirnir áttu
slakan dag að þessu sinni að Jóni
Karlssyni undanskildum — og
virtust margir leikmannanna
hreinlega ekki vera með sjálfum
sér.
Hjá Fram var Axel Axelsson
besti maðurinn, en auk hans átti
Birgir Jóhannsson mjög góðan
leik og gerði margt laglegt.
Mörk Fram: Axel Axelsson 9
(3), Birgir Jóhannsson 3, Jens
Jensson 2, Arnar Guðlaugsson 2,
Arni Sverrisson 2, Gústaf Björns-
son 2, Sigurbergur Sigsteinsson 2,
Ragnar Hilmarsson 2, Atli Hilm-
arsson 2, Pétur Jóhannsson 2 og
Jóhannes Helgason eitt mark.
Mörk landsliðsins: Jón Karls-
son 15 (7), Gunnar Einarsson 4,
Bjarni Guðmundsson 2, Viggó
Sigurðsson 2, Björgvin Björgvins-
son 2 og Arni Indriöason, Ólafur
Einarsson og Þorbjörn Guð-
mundsson eitt mark hver.
— BB
Staöan 11. deild lslandsmótsins
I körfuknattleik er nú þessi:
ÍS— KR 104:107
UMFN 7 6 1 651:545 12
KR 7 5 2 556:459 10
Valur 7 5 2 515:566 10
1S 7 5 2 610:598 10
ÍR 7 3 4 576:623 6
Fram 7 2 5 558:614 4
Þór 7 2 5 465:503 4
Armann 7 0 7 546:683 0
Næstu leikir eru á morgun, en
þá leika Fram og UMFN —Kæru-
mál er i gangi milli KR og Þórs,
og er á töflunni hér að ofan reikn-
að með sigriÞórsí þeirri kæru, en
KR-ingar munu áfrýja þeim úr-
skurði.