Vísir - 28.04.1978, Qupperneq 7
vism Föstudagur 28. aprll 1978
Pierre Robert
Jone Hellen
SNYRTIVÖRURNAR VERÐA
KYNNTAR AF SNYRTISÉRFRÆÐINGI
FRÁ FYRIRTÆKJUNUM í SVÍÞJÓÐ í
EFTIRTÖLDUM VERSLUNUM.
Föstudag 28. 4
kl. 1-6
Snyrtivörudeildin
Glæsibæ'
Föstudagskvöld
Kynnir Margaretha sumarsnyrtinguna
frá PIERRE ROBERT
sumarið 1978
A ÚTSYNARKVÖLDI A HÓTEL SÖGU.
KOMIÐ
í VERSLANIRNAR,
KYNNIST NÝJ-
UNGUM,
FRÆÐIST U M
FEGRUN HJÁ
MARGARETHA
ODE
SEM KYNNIR SUM-
ARSNYRTINGUNA
1978.
c%lmerióka "
Tekinn af lífi
fyrir heróinsölu
Ný viðurlög hafa verið
tekin upp i Singapore við
eiturlyfjasölu. Fyrsti
maðurinn hefur verið
dæmdur eftir þessum
nýju lögum og var hann
tekinn af lifi.
I tilkynningu frá stjórninni
segir að Sin Tong 28 ára gamall
verkamaður hafi verið hengdur
fyrir að brjóta nýju lögin. Hann
var dæmdur til dauöa fyrir að
selja rúmlega tvö hundruð
grömm af heróini. Farið var fram
á að dómurinn væri mildaður en
allt kom fyrir ekki. Forseti lands-
ins synjaði einnig beiðni um að
milda dóminn yfir Sin Tong.
Nýju lögin kveða á um að
dauðadómi skuli framfylgt ef ein-
hver er staðinn að þvi að selja
meira en 15 grömm af heroini.
Bylting
íAfgtm-
istan
— forsetinn skotinn til bana
Forseti Afganistan,
Mohammed Daoud,
var skotinn til bana af
hermanni úr liði upp-
reisnarmanna. Þetta
var tilkynnt i útvarps-
stöðinni i landinu i nótt.
Herinn hefur tekið öll
völd i landinu, en
Daoud forseti hafði set-
ið á valdastóli i fimm
ár.
Byltingarráð hersins fer með
völdin i landinu. Herinn tók
völdin I gær, eftir mikla bar-
daga i höfuðborg landsins,
Kabúl. í bardaganum voru
notaðir skriðdrekar, flugvélar
og stórskotalið.
1 útvarpstilkynningunni sagði
aðDaoud forseti,sem var 68 ára
gamall, hefði neitað að gefast
upp. Þess vegna hafi hann og
hans lið verið máð út, einsog
það var orðað i tilkynningu frá
uppreisnarmönnum. Bróðir for-
setans, Mohammad Naim, var
einnig skotinn til bana af upp-
reisnarmönnum. í útvarpstil-
kynningunni var ekki greint ná-
kvæmlega frá þvi hvernig
dauða forsetans bar að, eða
hvenær það var.
1 uppreisninni voru notaðir
skriðdrekar, sovéskar flugvélar
og stórskotalið, eins og áður
segir. Árás var gerð á bústað
forsetans. Höllin mun hafa
brunnið til grunna, eftir þvi
sem fréttir herma. Einnig hafa
borist fréttir af þvi að flug-
völlurinn iKabul hafi orðið fyrir
árás, en þar var bækistöð flug-
hersins.
I tilkynningu frá uppreisnar-
mönnum, sem lesin var i út-
varpið, segir að æðsti maður
landsins sé Dagarwal Abdul
Khadir, hershöfðingi.
Tek til við
nýja kvikmynd
— sagði John Woyne, eftir að hann
útskrifaðist af sjúkrahúsi þar sem
hann gekkst undir hjartaaðgerð
Kvikm yndaleikarinn John
Wayne var útskrifaður at
sjúkrahúsi i' Massachusett - i
Bandarikjunum i gær, þar sem
hann gekkst undir mikinn
hjartauppskurð. Þegar hann
kom til Los Angeles i einkaþotu
sinni sagði hann við fréttamenn
að nú færi hann að vinna að
nýrri kvikmynd sem hann til-
greindi ekki nánar. Leikarinn
sem er sjötugur að aldri og
hefur leikið i yfir 200 kvikmynd-
um, sagði að hann ætlaði að
hvila sig i nokkra daga en hefj-
ast svo handa við nýju kvik-
myndina.
Fyrir fjórtán árum var John
Wayne skorinn upp við krabba-
meini i lunga en læknar sögðu
að sú aðgerð sem hann hefði
gengist undir nú væri ekki i
nokkrum tengslum við þá að-
gerð.
Málgagn kommúnista hefur fordæmt mannrán Rauðu herdeildarinnar. Hér er
mynd af þrem leiðtogum hennar, sem eru í haldi, og Rauða herdeildin krefst þess
að sleppt verði lausum.
Japanskur
leiðangur
á Norður-
pólnum
Leiðangur frá japanska há-
skólanum Nihon er nú á
Norðurpólnum. Leiðangurinn
notaði hundasleða til að kom-
ast á pólinn. Reynt hefur verið
að ná sambandi við leiðangur-
inn undanfarna daga, en það
hefur ekki tekist. Hann komst
á pólinn s.l. miðvikudag, en
ekkert hefur heyrst frá mönn-
unum siðan.
Þeir sem fyrstir komust á
Norðurpólinn voru Banda-
rikjamennirnir Robert Peary
og Matthew Henson. Þeir not-
uðu einnig hundasleða.
Kommúnistar fordœma
Rauðu herdeildina
Kommúnistaflokkur
Italiu réðst harkalega á
Rauðu herdeildina,
sem hefur haft Aldo
Moro fyrrum forsætis-
ráðherra landsins i
haldi i sex vikur.
Valdamenn kommún-
istaflokksins leggja
þunga áherslu á að ekki
verði samið við mann-
ræningjana, en for-
dæmir aðgerðir Rauðu
herdeildarinnar.
Enn hefur ekkert spurst til
Aldo Moro. Ekki er vitað hvort
hann er lifs eða liðinn. Nú eru
fjórir dagar siðan mannræn-
ingjarnir hótuðu að myrða
Moro, ef 13 félögum þeirra yrði
ekki sleppt úr fangelsi. Stjórnin
hefur hafnað þessari kröfu.
Svar við þessu kom frá Rauðu
herdeildinni. Hún réðst að for-
stjóra Fiat-verksmiðjanna i
Turin, en hann særðist i árás-
inni.
„Þeir vilja sýna að þeir geti
ráðist á hvern sem er og hvenær
sem er. Þeir vilja skapa skelf-
ingu og ringulreið”, sagði blað
kommúnista L’unita i forystu-
grein. Það er ljóst að ránið á
Aldo Moro er aðeins liður i að-
geröum Rauðu herdeildarinnar,
segir í blaðinu.
Leiðtogar Kristilegra
demókrata komu saman i gær-
kvöldi og þar var itrekuð sú af-
staða flokksins að ekki skuli
semja við mannræningja
Moros.
Stöðugt er hringt til lögreglu-
stöðva og dagblaða og gefnir
upp staðir, þar sem hægt sé að
finna Moro. En ekkert af þess-
um simtölum, hefur leitt lög-
regluna á réttu slóðina.