Vísir - 28.04.1978, Qupperneq 12
Föstudagur 28. apríl 1978 VISIR
12
Ingi R. Helgason hrl.
hefur sent rikissaksókn-
ara eftirfarandi bréf og
óskaðeftir birtingu á því
i Vísi:
Hr. saksóknari rikisins
Þórður Björnsson
Reykiavik.
Ingi R. Helgason, lögfrœðingur Alþýðubankans:
Óskar eftir opinberri
Lougavegi 37 - 12851, Laugavegi 89 - 13008, Hafnarstrœti i7 - 13303, Glœsibœ
Reykjavik, 24. april 1978
Ég undirritaður, Ingi R. Helga-
son hrl., Laugavegi 31 hér i borg,
leyfi mér hér með að snúa mér til
yðar, hr. saksóknari, meö beiðni
um að rannsakaðar verði fyrir
dómi með opinberum hætti eftir-
greindar sakargiftir á hendur
mér sem lögmanns Alþýðubank-
ans hf. i dagblaðinu VtSI dagana
17. og 22. april 1978:
1. Fyrsta sakargift: „Það hefði
auðvitað engum átt að vera það
betur ljóst en lögmanni bankans,
sem annaðist tryggingartöku hjá
nefndum- aðilum...” (VtSIR, 17.
april 1978)
Af þessu tilefni verði rannsak-
að, hvort ég hafi gerzt sekur um
refsivert athæfi i sambandi við
tryggingartökur vegna útlána
bankans til Guðna Þórðarsonar,
Sunnu hf. og Air Viking hf. Rann-
sóknin beinist sérstaklega að þvi,
hvort mér hafi borið samkvæmt
stöðuumboði minu að annast
tryggingartökuna, hvort ég hafi
verið beðinn af bankastjórn að
taka tryggingar eða meta þær,
áður en féð var látið úti, og hver
hafi raunverulega tekið þær
tryggingar, sem teknar voru i
bankanum á móti þessum útlán-
um þar til i október 1975, er
bankaeftírlit Seðlabankans kom á
vettvang.
2. önnur sakargift: „Þátttaka
lögfræðings Alþýðubankans i
máli þessu sýnist einnig vera
mjög athyglisverð. 1 þvi sam-
bandi vekur mesta eftirtekt, að
hann hefur tekið við greiöslum til
Air Viking erlendis frá, er nota
átti til þess aö lækka skuldir fyr-
irtækisins við bankann. Pening-
arnir voru á hinn bóginn notaðir
til þess að greiða innistæðulausar
ávisanir, er forstjóri fyrirtækis-
rannsókn vegna starfa
sinna við Alþýðubankann
ins hafi gefið út persónulega. Við
rannsókn málsins var leitt i íjós,
að þessi ráðstöfun var gerð án
samþykkis beggja bankastjór-
anna.” (VISIR 22. aprfl 1978.)
Af þessu tilefni verði rannsak-
að, hvort ég hefi gerzt sekur um
refsiverðan verknað, er ég skilaði
bankanum hinn 10. nóvember
1975 með skriflegri skilagrein
greiðslu á innistæðulausum tékk-
um á reikning Guðna Þórðarson-
ar 60100, er ég hafi fengið til inn-
heimtu samkvæmt skriflegri inn-
heimtubeiðni dags. 29. okt. 1975.
Rannsóknin beinist einkum að
þvi, hvort ég hafi fengið frá
bankastjórninni sérstök fyrir-
mæli um innheimtu þessa um-
fram innheimtubeiðnina og hver
þau hafi verið.
3. Þriðja sakargift: „Þá vekur
það óneitanlega mikla athygli i
þessum upplýsingum, að lögfræð-
ingur Alþýðubankans hefur tekist
á hendur utanlandsferðir i þvi
skyni a2£>@Qa erlendra lána fyrir
Air Viking. En lögfræðingur Al-
þýðubankans á jafnframt sæti i
bankaráði Seðlabankans. Eftir að
hafa fengið vilyrði fyrir sviss-
nesku láni leggur lögfræðingur
Alþýðubankans og bankaráðs-
maður i Seðlabankanum fyrir
hlutaðeigandi stjórnvöld, að þau
samþykki slika lántöku fyrir Air
Viking. Ekki var látið við það
sitja að fyrirtækið gerði það
sjálft. Bankaráðsmaður i Seðla-
bankanum og lögfræðingur Al-
þýðubankans hefur með þessu
móti gerzt milligöngumaður
aðila, sem er i þess háttar van-
skilum við Alþýðubankann að
varðar við lög. Þessi hlið málsins
er óneitanlega alvarleg fyrir Al-
þýðubankann, er nú vinnur að þvi
að öðlast traust á ný og nýtur vel-
vilja flestra aðila i þeirri við-
leitni En hér vaknar spurningin
um, hvaða siðgæðiskröfur i fjár-
málum á að gera til bankaráðs-
manna i Seðlabankanum.” (VIS-
IR, 22. april 1978).
Af þessu tilefni verði rannsak-
að, hvort ég hafi gerzt sekur um
refsivert athæfi með þvi að leita
eftir erlendu láni til handa Air
Viking hf. 1975 og afla heimildar
til þeirrar lántöku hérlendis, þeg-
ar lánslofoðrið iá fyrir. Rann-
sóknin beinist einkum að þvi,
hvort bankastjórnin hafi beðið
mig að útvega hið erlenda lán og
svo hvort lánsútvegun min til Air
Viking hf hafi eins og á stóð farið i
bág við hagsmuni Alþýðubankans
hf. á þann hátt, að eigi hafi sam-
rýmztstörfum minum fyrir bank-
ann.
Sá ritstjóri VISIS, hr. Þorsteinn
Pálsson, Háaleitisbraut 43 i
Reykjavik, sem skrifaði rit-
stjórnargreinina 22. april 1978 er
jafnframt ábyrgðarmaður blaðs-
ins, sbr. ákvæði laga um prent-
rétt, en hann er sjálfur lögfræð-
ingur og veit, að ég er ekki starfs-
maður Alþýðubankans hf.
Þessi ritstjóri telur sig nú hafa
birt i blaði sinu upplýsingar, sem
nægja mundu til ákæru á mig fyr-
ir refsiverðan verknað i sam-
bandi við ofangreindar sakargift-
Ég neita staðfastlega þessum
fullyrðingum ritstjórans en neyð-
ist af tilefni þeirra til að gera þá
kröfu, að með sjálfstæðri opin-
berri rannsókn liggi það alveg
ljóst fyrir, hvort ég'er sekur eða
ekki um þær ávirðingar, sem rit-
stjórinn ber á mig i nefndri rit-
stjórnargrein og hefur látið lesa
upp fyrir allan landslýð i Rikisút-
varpinu, og skiptir hér engu,
hvort aðrir eru sekir eða saklaus-
ir.
Þess vegna krefst ég sérstakrar
opinberfar rannsóknar.
Virðingarfyllst,
Ingi R. Helgason.
VISE OVIÐKOMANDI
Athugasemd ritstjóra.
Vegna þessa bréfs þykir rétt að
taka fram:
1. í viðtali vgjvisi 17. apríl sl.
kom Jón Hallsson fyrrum banka-
stjóri Alþýðubankans fram með
ýmsar upplýsingar i Alþýðubanki
málinu svonefnda, sem áður
höfðu ekki birst. t framhaldi af
þvi leitaði Visir eftir áliti þeirra,
sem komu við sögu i viðtalinu.
Fyrrverandi formaður banka-
ANORAKAR OG
AMERÍSKU HÁSKÓLA
BOLIRNIR KOMNIR
ráösins vildi ekkert um málið
segja og ekki heldur fyrrum með-
bankastjóri Jóns Hallssonar. Til
Inga R. Helgasonar náðist ekki
þrátt fyrir itrekaðar tilraunir.
2. i framhaldi af upplýsingum
þeim, sem fram komu i viðtalinu
við Jón Hallsson birti Visir
forystugrein 22. april. Þar er
óskað eftir frekari skýringum
rikissaksóknara á þeirri ákæru,
sem út var gefin i málinu. Visir
hefur ekki kveöið upp neinn dóm
um refsivert athæfi Inga R.
Helgasonar i þessu sam bandi,
enda ekki hlutverk blaðsins. 1
umræddri forystugrein er hins
vegar vakin athygli á þvi að Ingi
R. Helgason ásamt fleiri aðilum,
sem ekki hafa sætt ákæru i mál-
inu, eru viðriðnir með ýmsum
hætti þaö fjáres-iiavafstur, sem
liggur til grundvallar þessum
ákærum. Það segir hins vegar
ekkert um það, hvort þeir hafi
gers^.brotlegir við hegningarlög.
3. Með híiðsjón af framansögðu
má ljóst vera, að ósk Inga R.
Helgasonar um opinbera rann-
sókn á þvi hvort þau atriði. sem
nefnd eru I viðtalinu- við Jón
Iiallsson og umræddri forystu-
grein Visis, séu refsiverð, er Visi
með öllu óviðkomandi.
4. Ingi R. Ilelgason hefur eftir
að hafa sent bréf sitt til rikissak-
sóknara hafnað boði Visis um að
gera grein fyrir málinu frá sinum
sjónarhóli. Ritstj.
Félagsprentsmiöjunnar hf.
Spítalastíg 10 — Sími 11640
Góð ryðvörn
tryggir endingu
og endursölu
BÍLARYÐVÖRNhf
Skcifunni 17
a 81390