Vísir - 25.05.1978, Síða 5

Vísir - 25.05.1978, Síða 5
VTSIR Fimmtudagur 25. mai 1978. 5 Birna er hér með einn af söfnunarlistunum sem hún hefur látið ganga til að fjármagna Argentínu- ferðina. Vísismynd: JA mjög litið næstu 35 ár. Arið 1975 var það svo að Guðfinnur Kjartansson þáverandi for- maður Taflfélags Reykjavikur hvatti konur mjög til að mæta hjá félaginu og gerast virkari i skákinni. Upp úr þessu var stofnuð Kvennadeild innan Tafl- félagsins og voru i upphafi um 50 konur i henni. Þeim fækkaði svo þegar farið var að halda mót og við höfum ekki náð töl- unni upp i þetta aftur. Þessi deild á sinn fulltrúa i stjórn Taflfélagsins sem á vist að heita ég. Kratar leggja niður gðmlu kosningavélina „Við teljum að það jaðri við persónunjósnir að útsendarar stjórnmálaflokkana fylgist með þvi i kjördeildum hverjir séu búnir að kjósa og ætlum þvi að afnema þetta fyrirkomulag” sagði Benedikt Gröndal for- piaður Alþýðuflokksins á blaða- mannafundi i gær sem haldinn var til að kynna það að flokkur- inn ætlaði að leggja niður gömlu kosningavélina. Benedikt sagði, að ljóst væri að það fólk sem ynni i kjördeild- um væri notað til að fylgjast með þvi hverjir væru búnir að kjósa, þannig að flokkarnir gætu þrýst á kjósendur, sem þeir teldu sina, til að fara á kjörstað. Þetta kerfi kvaðst hann telja að færi i bága við anda leynilegra kosninga, þar sem kjósandi fengi ekki flóafrið fyrr en hann hefði fariö á kjör- stað. Istaðinn fyrir þetta kerfi, sem hefur bundið um 250 manns i starfi eingöngu i kjördeildum, hefur starfsemi Alþýðuflokksins nú veriö byggð upp af trúnaðar- mönnum, sem allir eru sjálf- boðaliðar og munuhver fyrir sig tala máli flokksins. Þessir menn eiga að hvetja kjósendur svo sem vini, kunningja, og starfs- félagatil stuðnings við flokkinn. Benedikt sagði á fundinum að ljóst væri að fólk kynni þvi illa að njósnað væri um skoðanir þess og fylgst með ferðum þess. Þetta hefði best komið í ljós i siðustu skoðanakönnunum Visis og Dagblaðsins, þar sem stór hópur þeirra sem spurðir voru neitaði að svara þvi hvað þaö myndi kjósa i Borgarstjórnar- kosningunum. Þetta hlutfall hefði verið mun hærra en i svipuðum skoðanakönnunum sem framkvæmdar væru er- lendis. Á fundinum var vakin athygli á þvi, að merkingar i kjörskrá sem geröar hefðu verið i próf- kjöri Alþýðuflokksins fyrir Borgarstjórnarkosningarnar, heföu aliar verið fjarlægðar. 1 þessum kosningum ætlaði flokkurinn ekki að styðjast við gömlu merkingarnar og gögn trúnaöarmanna yrðu einkamál þeirra. Engar merkingar yrðu þvi færðar inn i kjörskrá flokks- ins á kjördegi. A blaðamannafundinum var borin fram fyrirspurn varð- andi rekstur Alþýðublaðsins og hvernig útkoma þesshefði verið tryggð i bili. Benedikt Gröndal sagöi að 15 alþýðuflokksmenn hefðu persónulega gengist i ábyrgð fyrir þvi tapi sem kynni aö verða á útgáfu blaðsins, og skuldum þess fram i ágúst. Þeir reikningar yrðu siðan gerðir upp á flokksþinginu i haust. —BA. Finnst þér þörf á að hafa kyngreind félög innan skákarinnar? Við verðum að athuga aö þessi iþrótt hefur verið einokuð af karlmönnum i margar aldir og það tekur þvi nokkurn tima að þjálfa upp skákkonur sem eru verulega góðar. Slikt gerist ekki á fáeinum árum eða ára- tugum. Konurnar þurfa þvi fyrst og fremst á félagslegum styrk að halda á meðan þær eru að byggja sig upp i skákinni. Ég get nefnt sem dæmi um það hvað kvenfólkið á erfitt uppdráttar i skákinni aö innan Taflfélags Reykjavikur starfar unglingadeild fyrir börn á aldrinum 7-14 ára. Bæði kynin eiga þar greiðan aðgang og stúlkur sýndu verulegan áhuga á þvi að vera þarna á jafnréttis- grundvelli. Strákarnir flæmdu þær hins vegar hreinlega á brott. Ég tók þvi til ráös að taka stúlkurnar i skákkennslu til min i vetur. Þetta voru 56 nemendur sem ég leiðbeindi og siðan kepptu þær við strákana einu sinni i viku. Er skák erfið iþrótt? Alveg geysilega Sá sem ætlar að stunda hana af einhverju ráði þarf að vera þrekmikill og út- haldsgóður. Skákmaður þarf að geta einbeitt sér algjörlega að viðfangsefninu. Skákin er gifur- legt andlegt og likamlegt álag og einhvern veginn gengur maður að þessu með allt öðru hugarfari heldur en til dæmis spilamennsku. Þar skiptir ekki svo óskaplega miklu máli hvort sigur vinnst en i skákinni held ég að engum einasta manni sé sama hvort hann vinnur eða tapar. Lestu mikið skák- timarit? Það hef ég aldrei gert og þeg- ar ég byrjaði á þessu aftur þá var það e.t.v. fyrst og fremst vegna þess að ég hélt að heilsan væri alveg búin að gefa sig og ég vildi hafa eitthvað sem ég gæti dundað við. Það var aldrei ætlunin að ég færi út i keppni eða þess háttar, en einhvern veginn æxlaðist þetta svona og ég hef verið valin i olympiu- skáksveit þá sem vonandi verður hægt að senda til Argen- tinu. Hefurðu einhver önn- ur áhugamál? Ég hef nú fengist við að mála og teikna en segja má að kindurnar minar séu eitt aðal- áhugamálið og svo auövitað barnabörnin en þau eru 19 tals- ins og ég á von á að verða lang- amma á hverri stundu. Reyndar á ég svolitið erfitt með að stunda allt þaö sem ég heföi áhuga á að sækja til Reykjavikur þar sem við hjónin erum billaus og siðasti vagninn hingað uppeftir fer fyrir klukkan 8 á kvöldin, þannig aö ég þarf oft að fá að gista i bænum þegar skákmót og fundir eru i Taflfélaginu. Við kvöddum Birnu og kindurnar hennar með hálf- gerðum söknuði og héldum inn i borgina á nýjan leik. Sjálfsagt væri margt öðruvisi ef mann- fólkið ætti allt jafnrikuleg áhugamál og Birna og ekki þarf að óttast að langamman úr Bakkakoti sem Birna veröur væntanlega orðin verði ekki virðulegur fulltrúi okkar i Argentinu. —BA já ^■1 glÍÍÍÍÍ liiiiiiie Maturogkaffi Á2 m herbergjum með hand- laug og útvarpi: Bókasafn, verslun og setustofa. Sturtur, gufubað og íþróttasalur. Stutt í sund. Dagblöð og sími. Rómuð náttúrufegurð. Fæði 1 Fyrir starfshópa, fjölskyldu- fagnaði og hópferðir. Pantið með fyrirvara. Ráðstefnurfundirnámskeió Stakar máltíðir eða afsláttar matarkort, hálft eða fullt fæði.^m Sjálfsafgreiðsla. Fyrir allt að 250 manns. Leitið upplýsinga og verðtilboða. Börn Pantanir og upplýsingar Frítt fœði og gisting fyrir börn með foreldrum til 8 ára aldurs. Matur á hálfvirði fyrir 8—12 ára. I síma 17-3-77 Reykjavík og 93-7102 (Símstöðin Borgarnesi) Sumarheimilinu Bifröst. Orlofstímar 1978 Húsmœðravikan 4 dagar. Uppselt Laus herbergi Uppselt Uppselt ? Bifrost ortofsdvöl sumarið 1978 Islenskur orlofsstadur yffhmr'mir iíttf W w 1* u >■ i ■ 1 TffýHIPfj Í^g| •

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.