Vísir - 17.07.1978, Side 7
Hver er skylda lœkna?
Lœknir neitor oð komo ó slysstað
Pétur SigurAsson Skátafélagi
Hafnarfjaröar haföi samband
viö blaöiö:
Fyrir nokkrum dögum vorum
viö i Skátafélagi Hafnarfjarðar
á ferð um Vestfirði. Þegar við
vorum stödd i Bjarkarlundi
ásamt félögiim úr Skátafélagi
Sauðárkróks gerðist það óhapp
að ein stúlka frá Sauðárkróki
fótbrotnaði og fór úr liði. Þar
sertí ég hef nokkra þekkingu i
hjáp i viölögum var ég beðinn að
lita á stúlkuna. Þegar ég sá
hvers kyns var taldi ég að ekki
ætti að hreyfa við stúlkunni
heldur ná i lækni.
Þaö var þvi hringt I lækninn I
Búðardal en hann sagðist ekki
geta komiö. Ekki gaf hann upp
neina ástæðu fyrir þvi að hann
gæti ekki komib á slysstað.
Sagði hann okkur aö koma með
stúlkúna i rútu til Búðardals og
skyldi hann þá láta lita á hana!
Þvi næst var hringt i lækninn á
Hólmavik. Hann sagðist ætla að
koma, en 20 minútum siðar
hringdi hann og afboðaöi komu
sina. I þeim svifum kom þarna
aö lögregluþjónn. Við sögðum
honum frá þvi hvað gerst hefði
og samskiptum okkar við lækn-
anna. Hann hringdi umsvifa-
laust i sýslumanninn sem siðan
kvaddi lækninn i Búðardal á
staðinn.
Þegar hann kom að Bjarkar-
lundi var hann hvorki með
sjúkrabörur né spelkur með sér.
Varð þvi ab fara i nærliggjandi
hús og fá lánaðar sjúkrabörur.
Þá voru liðnir þrir tlmar frá þvi
að stúlkan slasaðist. Sem betur
fer var veður gott þennan tima.
Stúlkan var siðan flutt með
sjúkraflugvél suöur til Reykja-
vikur .
Það verður að teljast stór-
furðulegt, svo ekki sé meira
sagt, að læknirinn i Búðardal
skuli neita blákalt að koma á
slysstað. Mér er spurn: Hver er
skylda lækna?
„BAUÐ ÞEIM AÐ
KOMA MEÐ SJÚKL-
INGINN TIL MÍN
I BUÐARDAL
##
Hr. ritstjóri.
Þann 6. jUIi s.l. birtist i blaöi
yðar lesendapistill, er fjallaöi
um slys, sem varð I Bjarkar-
lundi, A-Barð., 29. júni s.l. t
pistli þessum er fariö meiðandi
oröum og ósönnum um læknis-
störf min auk þess, sem svo er
frá pistlinum gengið, að ámæliö
fellur jafnt á félaga minn hér á
staðnum, sem enga sök á I þessu
máli. Verðe'g þvi aösvara Pétri
Sigurðssyni, Skátafélagi
Hafnarfjarðar#nokkrum orðum.
Ummræddan dag var hringt I
mig kl. 15:30 skv. bókum sim-
stöðvarinnar i Króksfjaröar-
nesi. Viðmælandi minn tjáði sig
vera i Bjarkarlundi, þar hefði
orðið óhapp og að þeirra mati
hefði viökomandi farið úr liöi á
ökkla. Baö hann mig um aðstoð.
Kvað ég hana sjálfsagða og
bauð þeim aö koma meö sjúkl-
Ég undirritaöur, Baldvin
Guömundsson, Búöardal, ók
Sigurbirni Sveinssyni, lækni, frá
Búðardal i Bjarkarlund,
fimmtudaginn 29.06.'78.
t sjúkrabiíreiö Dalahéraðs
voru, eins og ávallt, þegar um
slik tilvik er að ræða, bæði
inginn til mín f Búðardal. Var þá
spurt hvort óhætt myndi að
flytja sjúkling milli bila. Ég
sagði það óhætt I langflestum
tilfellum, ef varlega væri farið.
Kveðjur.
Fæ ég ekki séð enn, hvernig
túlka má þetta samtal, sem
„blákalda neitun” um að koma
á slysstað. Enn fremur má
benda á, að ekki var gerð
minnsta tilraun til að tala við
mig að nýju úr þvi að aðstand-
endur voru óánægðir með þessa
úrlausn, eins og á daginn kom.
Höfðu þeir þess i stað samband
við lækninn á Hólmavik, sem
gaf sömu ráð að eigin sögn.
Um skort á útbúnaði og
„kvaöningu sýslumanns” mun
ég ekki fjölyrða, heldur vfsa til
meðfvlgjandi yfirlýsinga, sýslu-
mannsins, Péturs Þorsteins-
sonar, og sjúkrabifreiða-
sjúkrabörur og hópslysakista,
sem hefir að geyma ýmsan út-
búnað til notkunar við slysrsvo
sem spelkur, lyf og annað þess
háttar.
Búðerdal 11.07.'78
Baldvin Guðmundsson,
sjúkrabifreiöastjóri.
stjórans, Baldvins Guðmunds-
sonar.
Um þátt blaös yöar i þessu
máli, hr. ritstjóri, mætti rita
langt mál. t stuttu máli hljótum
vér aðvera sammála um, að viö
slikar ritsmiðar, er vega að æru
manna, sé það lágmarkskrafa,
að þeir fái að gera athuga-
semdir í sama tölublaði, þvl
erfittgeturreynstaöhreinsa sig
af áburði, þegar frá liöur.
Að þessu mæltu mun ég ekki
eiga f frekari umræðu á þessum
vettvangi. Ef þurfa þykir mun
ég hins vegar sækja frekari
meiðingar og verja starfsæru
mina hjá þeim stofnunum
öðrum, sem til þess eru ætlaöar.
Með f ullri vinsemd
Sigurbjörn Sveinsson,
Búðardal
—
þær eru
frábærar
teiknimynda-
seríurnar í
VÍSI
HA HA
Ha HA
áskriftarsimi
m
VISIS er
86611
Yfirlýsing
frá sýslumanni
Vegna blaðaumsagnar i dagblaöinu Visi þann 6/7 1978 um læknis-
vitjun frá Búðardal að slysstað I Reykhólahreppi, staöfestist hér
meö að læknir frá Heilsugæslustöðinni I Búðardal fór að eigin frum-
kvæði á slysstað án nokkurra fyrirmæla frá þessu embætti, eftir að
hafa fengiö réttar upplýsingar um slysiö.
Sýslumaður Dalasýslu,
Pétur Þorsteinsson
f SJÚKRABÍLNUM
VORU BÆÐI
SJÚKRABÖRUR OG
HÓPSLYSAKISTA...
Ef svo er, þó bendum
i við ó mjög góða og
I óhrifaríka lausn:
Nýtt pH
Anti-perspirant púður
Fœst í apótekum og
snyrtivörubúðum
100 gramma
staukar
pllarma mcilicaa s
Hárgreiðslustöfan óðinsgötu 2
VALHÖLL §74.
v IuiiiiiiiiI
llllllll!lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
ER EITTHVAÐ AÐ FOTUM YÐAR?
Schofl
VORURNAR
HJÁLPA YÐUR
FAST I NÆSTA APOTEKI
KEMIKALIA HF
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiii