Vísir - 17.07.1978, Qupperneq 11
vism Mánudagur 17. júli 1978
11
Skólar og vegir til sveita-
stjórna — Sjúkrahús og
hafnir til ríkisins
— þetta er meðal annars lagt til í skýrslu
um verkefnaskipti ríkis og sveitafélaga
sveitarfélaganna og aö stjórn og
rekstur skólanna verði svo sem
fært þykir lögð i hendur heima-
manna. Einnig að sérstakri sam-
starfsnefnd um skólakostnað
verði falið að kanna hvernig
hugsanlegur aðstöðumunur milli
sveitarfélaga verði jafnaöur.
Þá leggur nefndin til að fram-
haldsskólakerfið lúti samræmdu
skipulagi, þannig að námsefni
verði skipað i skilgreinda náms-
áfanga. Meö þessu er stefnt að þvi
að nemendum verði auðveldaö að
flytjast milli skóla.
Fræösluráð hvers fræðsluum-
dæmis skipuleggi i samráði við
menntamálaráðuneytið þaö
framhaldsnám, sem hægt er að
halda uppi innan fræösluumdæm-
Gunnar Thoroddsen, félagsmála-
ráðherra, skipaði verkefna-
skiptanefndina iupphafi árs 1976.
anna. 1 hverju fræðsluumdæmi
verði starfræktur fjölbrautaskóli,
menntaskóli, iðnskóli og aðrir
framhaldsskólar samkvæmt mati
menntamálaráðuneytisins og
fræðsluráðs.
Kostnaður vegna framhalds-
skólanna verði greiddur af rikis-
sjóði.
Kristján J. Gunnarsson skilaði
séráliti, þar sem efnislega er gert
ráð fyrir samaðild rikis og
Gunnlaugur Finnsson, fyrrver-
andi alþingismaður, sem til-
nefndur var I verkefnaskipta-
nefndina af ráðhcrra.
ölvir Karlsson, bóndi f Þjórsár-
túni, tilnefndur af Sambandi is-
lenskra sveitarfélaga.
sveitarfélaga aö rekstri fram-
haldsskólans.
Nefndin leggur það og til aö
fullorðinsfræðsla verði stjórn-
unarlega og rekstrarlega skipu-
lögð sem þáttur i hinu almenna
skólakerfi. Þá er miðað við það að
rikið greiði kennslulaun en
sveitarfélögin annist rekstrar-
kostnað.
Að lokum er lagt til varðandi
menntamálin að tónmennta-
fræðsla, önnur en tónmennta-
kennarafræðsla og fræösla i
grunnskólastigi, verði kostuð af
sveitarfélögum.
Daggjöld sjúkrahúsa og
sjúkrasamlög verði lögð
niður
Tillögur nefndarinnar í heil-
brigðismálum miða að endur-
skoðun heilbrigðiskerfisins i
heild. Þeir þættir, sem nefndin lét
sérstaklega til sin taka voru yfir-
stjórn heilbrigðismála, tilhögun
sjúkrahúsakerfisins og heilsu-
gæslu auk breytinga á sjúkra-
tryggingakerfinu.
Varðandi yfirstjórn heilbrigðis-
málanna leggur nefndin til, aö
verksvið Heilbrigðsmálaráðs
tslands verði einskorðað við heil-
brigösmál og sjúkratryggingar.
Með tilliti til þessarar breyt-
ingar á verksviði ráðsins verði
skipan þess breytt þannig, að i þvi
eigi sæti auk landlæknis, tveir
fulltrúar sveitarfélaga, tveir full-
trúar heilbrigðisstétta og tveir
fulltrúar tilnefndir af heilbrigöis-
málaráðherra.
Nefndin leggur til að komið
verði á fót heilbrigðisráðum, sem
verði stjórnunar- og umsagnar-
aðili heimamanna i öllu er að
heilbrigðismálum lýtur.
Þá er lagt til að öll sjúkrahús
verði i eigu og yfirstjórn rikisins
og að allur kostnaður vegna
þeirra greiðist meö fjárveitingu á
Steinþór Gestsson, fyrrverandi
alþingismaður, var tiinefndur af
ráðherra.
Kristján J. Gunnarsson, fræðslu-
stjóri í Reykjavik, skipaður af
ráðherra i nefndina.
fjárlögum hvers árs. Fjármögn-
un með daggjöldum verði hætt.
Varðandi heilsugæslustöðvar
er þaö lagt til, að rekstur þeirra
verði i höndum heilsugæslu-
stjórna og að kostnaöur vegna
þeirra greiðist af sveitarstjórn-
unum. Laun lækna og hjúkrunar-
liös greiðist aftur á móti af rikinu.
Þá taki rikiö þátt i stofnkostn-
aði heilsugæslustöðva til móts við
sveitarfélögin. Jöfnunarsjóður
sveitarfélaga verði efldur þannig,
aö hann geti haft áhrif i þá átt að
jafna þann aðstööumun, sem til-
lögur þessar leiða af sér.
Lagt er til varðandi þennan
málaflokk, aö ákveðnir útgjalda-
þættir núverandi sjúkratrygg-
inga verði áfram greiddir af
Tryggingastofnun rikisins, svo
sem sjúkradagpeningar, sjúkra-
flug, gervilimir o.s.frv. Aðrir liðir
sjúkratrygginga eins og tann-
lækningar, lyf, sem notuö eru á
heilsugæslustöðvum og fleira
verði greitt af hlutaðeigandi
heilsugæslustjórn.
Miðað er við aö sjúkrasamlög
verði lögð niður, i þess stað taki
heilsugæslustjórnir aö sér tviþætt
verkefni. Það er að sjá um fjár-
mál heilsugæslustöðvanna og
annast umboðsstörf fyrir Trygg-
ingastofnun rikisins.
Þátttöku ríkisins í dag-
vistunarmálum veröi hætt
Efnisatriði annarra tillagna eru
meöal annars, að ekki sé ástæða
til breytinga á núverandi tilhögun
hitaveituframkvæmda né
rekstrarformi þeirra og að fjár-
mögnun vatnsveituframkvæmda
veröi samræmd og rikið annist
vatnsleit og meiri háttar til-
raunaboranir.
Langtimasjónarmið I félags-
heimilamálum skal að áliti
nefndarinnar vera það að sveitar-
félögin sjálf og/eða félagasamtök
reisi og reki félagsheimili.
Nefndin leggur það til að rikis-
framlög til iþróttamannvirkja
fari eftir reglum um skólakostn-
að. Þegar félagasamtök standa
að byggingu með sveitarfélagi,
leggi þessir aðilar fram sam-
eiginlega um 50% , en um skipt-
ingu þeirra á milli fari eftir fyrir-
fram gerðum samningi.
Æskulýðsmál eiga að mati
nefndarinnar að vera i grund-
vallaratriöum verkefni sveitar-
félaga, félagasamtaka og ein-
staklinga innan þeirra vébanda.
Rikiö skuli þó styðja landssam-
tök, er starfa að æskulýösmálum.
1 dagvistunarmálum leggur
nefndin til að þátttöku rikisins
veröi hætt en kostnaöurinn greið-
ist af hlutaðeigandi sveitarfélagi
og þeim, er þjónustuna nota.
Gunnlaugur Finnsson skilaði sér-
áliti þess efnis að ótimabært sé
að fella niður rikisþátttöku I
stofnkostnaði.
Málefni aklraðra verði i höndum
sveitarfélaga, samtaka aldraöra
og einkaaöila. Húsnæðismála-
stofnun rikisins fjármagni að
hluta ibúðabyggingar fyrir
aldraöa.
Landið allt verði skipu-
lagsskylt
Nefndin telur að bygging og
rekstur almenningsbókasafna og
héraðsskjalasafna sé verkefni
sveitarfélaga og nefndin leggur
til að sveitarfélögin reki eigin
byggðasöfn. Að öðru leyti sam-
einist sveitarfélögin um rekstur
byggða- og náttúrugripsafna.
Nefndin gerir það aö tillögu
sinni að stjórn almannavarna
verði bæöi I höndum rikisvaldsins
og einnig sveitarfélaganna. Einn-
ig að löggæslumál skuli vera i
höndum rikisvaldsins eins og ver-
iö hefur.
Vinnumiölun og atvinnuleysis-
skráning verði i verkahring
sveitarfélaganna og aö það skuli
háð ákvörðun einstakra sveitar-
stjórna hver þátttaka sveitar-
stjórna i atvinnumálum skuli
vera.
Nefndin leggur það til að landið
allt verði skipulagsskylt og stjórn
skipulagsmála verði með áþekk-
um hætti og verið hefur. Varðandi
þennan lið skiluðu þeir Bjarni
Einarsson og Kristinn V.
Jóhannsson áliti, sem felur það
meðal annars i sér að sveitarfélög
ein sér eöa i gegnum samtök sin
annist undirbúning að sinu skipu-
lagi i samráði við skipulags-
stjórn. Auk þess skal skipulag
tveggja eða fleiri samliggjandi
þéttbýlisstaða vera sameiginlegt.
Hafnarframkvæmdir
verði að öllu kostaðar af
ríkinu
Tillögur nefndarinnar i sam-
göngumálum eru i þremur þátt-
um, hafnarmál, vegamál og flug-
mál, 1 hafnarmálum hniga tillög-
ur nefndarinnar i þá átt að hafnar
framkvæmdir samkvæmt nánari
skilgreiningu verði kostaöar 100%
af riki i staö 75% eins og er i dag.
Þá er átt við dýpkun hafna, ytri
mannvirki og ákveðna þætti innri
hafnarmannvirkja.
Þá leggur nefndin það til aö
hafnarframkvæmdir, sem að öllu
eru greiddar úr rikissjóði. skuli
skipulagöar og unnar af Hafnar-
málastofnun eða á hennar veg-
um.
Við áfangaskil hafnarfram-
kvæmda afhendi rikið sveitar-
félagi þann áfanga til eignar og
umráða, enda sé framkvæmdum
við áfangann að fullu lokiö og
komi sveitarfélaginu að notum.
Þá er lagt til að fjögurra ára
áætlun um hafnarmál verði lögð
fyrir alþingi til samþykktar. Dag-
legur rekstur hafna verði að öllu
leyti i höndum hlutaðeigandi
sveitarstjórna.
Ý mislegt annað er lagt til varð-
andi hafnarmálin, sem* of langt
mál yrði að rekja hér lið fyrir liö.
Þá er álit nefndarinnar i vega-
og gatnamálum aö gatnagerö i
þéttbýli verði verkefni sveitar-
félaga og kostuð af þeim. Núver-
andi skilgreining á þjóövegum i
þéttbýli verði endurskoöuð og þar
sem umferöarþungi fer yfir
ákveðin mörk, greiði rikssjóður
helming stofnkostnaöar.
Akveðið hlutfall tekna vega-
sjóös renni til gatnagerðar i þétt-
býli og aö hluti sýsluveganna
verði lagður undir þjóövegakerf-
ið, samkvæmt nánari athugun.
Að lokum skal getið tillögu
nefndarinnar i flugmálum, en þar
er lagt til að rikisvaldið skuli
áfram hafa meö hendi stjórn
flugmála, þar með er talda flug-
vallagerð. —H.L.
! áfangaskýrslu verkefnaskiptanefndarinnar er meðal annars lagt til að þátttöku rikisins I dagvistunar-
málum verði hætt og kostnaðurinn greiðist af sveitarfélögunum og þeim er þjónustuna nota.