Vísir - 17.07.1978, Qupperneq 16

Vísir - 17.07.1978, Qupperneq 16
20 Mánudagur 17. júli 1978 VISIR Húsnœðismálastjórn og Kvarði h.f.: Ríkisteikningarnar dýrari en frá einkafyrirtœkinu? Nokkurrar óánægju gætir meóal byggingarmanna og arkitekta vegna starfsemi Húsnæóismálastofnunar rikis- ins. Þaö er þá einkum starf- ræksla teiknideildar stofnunar- innar sem gagnrýnin beinist aft, efta þeim þætti starfseminnar sem aft húsbyggjendum snýr. Eitt helsta hlutverk HUsnæöismálastofnunar rikis- ins er aö vinna aö umbótum i byggingamálum og stuöla aö lækkun byggingakostnaöar i landinu. I lögum um stofnunina segir aö þessu hlutverki gegni hún meöal annars meö starf- rækslu teiknistofu er láti al- menningi i té hagkvæmar teikn- ingar og annist leiöbeiningar um hverskyns úrbætur og vinnutækni viö byggingu Ibúöarhúsnæöis. Þessi teiknistofa heitir nú tæknideild Húsnæöismálastofn- unar rikisins. Flestir munu sammála um þaöaö þessi starfsemi hafi leyst úr mjög brýnni þörf húsbyggj- enda, aö minnsta kosti fyrstu árin eftir aö hún tók til starfa, seint á sjötta áratugnum. Þær raddir fara þó sihækkandi sem segja aö stofnunin hafi gegnt sinu hlutverki og þörfin fyrir starfsemi hennar sé ekki lengur fyrir hendi. Rikiö sé þarna aö vasast i hlutum sem komi þvi hreint ekkert viö. Þvi til staöfestingarer sagt aö nú sé teiknistofur á hver ju strái sem geti veitt sömu þjónustiL arkitektar séu mun fleiri og aö 1 flestum tilvikum standist Einbýlishústeikning frá Húsnæöismálastofnun rikisins. Skýringar: Hús nettó 100.5 fermetrar. Hús biúttó 115.6 fermetrar. Vinkilhús. Hlutföli 1:100. Ml 'i-uA- gafl m iit'" iii ■Jii 1' .111 qLM iAi i ' ■ 11H i lt' Einbýlishústeikning frá Kvaröa h.f. Skýringar: Hús nettó 135.0 fermetrar. Hús brúttó 155.0 fermetrar. Vinkilhús. Hlutföll 1:100. stofnunin hvergi verösaman- burö viö einkafyrirtæki á þessu sviöi. Verjendur stofnunarinnar segja hinsvegar aö hún sé brautryöjandinn á þessu sviöi og þjóni enn hagsmunum hús- byggjendaframar ööru. Þá ekki sist úti á landsbyggöinni. Þeir sem viljileggja starfsemi henn- ar niöur séudæmigeröir fyrir þá talsmenn einkaframtaksins sem vilja láta rikiö annast rekstur óaröbærra hluta og bera tapiö en sjálfir vilji þeir svo koma inn I reksturinn þegar vel gangi og hiröa gróöann. Mikil vanþekking ríkjandi Akaflega litil umræöa hefur fariö fram um þessi mál I jföl- miölum og þótti þvi kjöriö tæki- færi aö leiöa fram fulltrúa beggja þessara sjónarmiöa ef það mætti verða til þess aö hleypa einhverjum umræðum af staö um þessi mál. Almennir húsbyggjendur i landinu eiga og fullan rétt á því aö ljósi sé varpaö á þótt ekki sé nema þá hlið sem aö þeim snýr I þessum efnum. Sannast sagna er rikjandi ákaflega mikil vanþekking meöal almennings um þessi mál. Þaö eru til dæmis margir sem halda að lánafyrirgreiösla frá Húsnæöismálastofnun sé bundin viö notkun teikninga frá þeirri sömu stofnun, en svo er alls ekki. Og svo eru þaö fullyröingar talsmanna einkafyrirtækjanna aö þeirra verö sé allt aö 30% lægra á sambærilegum teikn- ingum en teikningum frá Húsnæðismálastofnuninni. Standast þær fullyröingar? Þj ó n u s t a fyrirtækisins ein ka- ódýrari Vlsir aflaði sér teikninga frá einkafyrirtæki sem veitir sömu alhliða þjónustu og Húsnæöismálastofnunin gerir. Það er aö segja, I teikninga- „pakka” fyrirtækisins fyrir einbýlishús er auk hinnar eiginlegu íbúöarteikningar aö finna teikningar fyrir innrétt- ingar, buröarvirki, vatnsiagnir, frárennslislagnir, raflagnir og hitalagnir. A meöfylgjandi mynd má fá útlitssamanburö á teikningum einkafyrirtækisins annarsvegar og Húsnæöismálastofnunar rikisins hinsvegar.Reynt var aö velja sambærilegar teikningar og var „týpan”, sem I þessu tilviki er vinkilhús, algerlega valin af handahófi. Verömismunurinn er hins- vegar sá aö teikningapakki einkafyrirtækisins, sem er 135,0 fermetrarnettóá einnihæö, er á bilinu 260-270 þúsund. Samsvar- andi teikningapakki sem einnig er einlyft einbýlishús, 100.5 fermetrar nettó, kostar 325 þúsund frá Húsnæöismálastofn- un rikisins og er þó 35 fermetr- um minna. Hliöstæöur verömismunur reyndist á öllum sambærilegum teikningum sem Visir kannaöi af þessu tilefni. En hvernig stendur á þessum verömismun? Er þjónustu Húsnæöismála- stofnunar ekki þörf lengur? Þaö ásamt ýmsu ööru kemur fram I viðtölum sem Visir átti viö þá Sigurö E. Guömundsson, for- stjóra Húsnæðismálastofnunar rlkisins og Þorgils Axelsson, byggingatæknifræöing sem rek- ur eigin teiknistofu, Kvaröann h.f., f samkeppni viö teiknistofu Húsnæöismálastof nunar og fleiri fyrirtæki á þessu sviöi. —H.L.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.