Vísir - 14.08.1978, Blaðsíða 15
• *-* 'r - *
VISER Mánudagur 14. ágúst 1978
Flugsýning í
Reykjavík
til að minnast 50 ára afmœlis
innanlandsflugs á íslandi
Flugsýning veröur haldin i
Reykjavik þann 26. ágúst næst-
komandi til aö minnast 50 ára af-
mælis innanlandsflugs hér á
landi.
Aö sýningunni standa Vélflug-
félag íslands og íslenska flug-
sögufélagiö.
A sýningunni veröa sýndar
flestar einkaflugvéíar lands-
mannafráýmsum timum, en þær
er frá árinu 1943 til 1978. Þá veröa
sýndar farþegavélar, flugfloti
Landhelgisgæslunnar og Land-
græöslunnar. Varnarliöiö mun
bæði sýna vélar i flugi og á jörðu
niðri, og stefnt er aö þvi að fá
hingað erlendar flugsveitir og
listflugmenn.
Þá munu Islendingar sýna list-
flug, svifflug og fallhlifarstökk,
og áhorfendum gefst kostur á út-
sýnisflugi ýfir bæinn.
Sem fyrr segir er ætlunin aö
halda sýninguna þann 26. ágdst,
en til vara er 27. ágúst ef veöur
bregst.
—AH.
Þótt fangar séu trúaðir:
Taka ekki þátt í
kirkjulegu starfi
Þátttaka refsifanga f kirkju-
legu starfi er þvi sem næst engin
en margir eru trúarlega þenkj-
andi. Aöeins 30% þeirra taka þátt
I einhverju félagslifi þegar taliö
er aö um 70% manna séu í ein-
hverri félagsstarfsemi.
Þessar niðurstööur koma fram
i ritgerð um trúarllfs- og félags-
fræðilega könnun meöal fanga á
Islandi. Tveir guðfræðinemar
stóöu að þessari könnun, Þór-
steinn Ragnarsson og Valdimar
Hreiðarsson, og hefur ritgerðin
veriðgefin Ur 1100 eintökum. HUn
er 170 bls. að stærö og fæst i Bök-
sölu stUdenta viö Hringbraut.
1 bókarfregn segir að markmið
þessarar könnunar hafi verið þri-
þætt: að gefa yfirlit yfir fangels-
ismál á Islandi, að rannsaka fé-
lagslega aðstöðu fanga á íslandi
og að rannsaka á hvern hátt riki
og kirkja geti betur sinnt þörfum
fanga.
—KS
Afleiðing sirkusmálsins:
HÆTTA AÐ VtlTA
UNDANÞÁGUR FRÁ
SKtMMTANASKATTI
— skátarnir halda sinni undanþágu
Menntamálaráöuneytiö hefur
ákveðið aö nota ekki framvegis
þá heimild'Sem felst ilöguni/um
skemmtanaskatt aö veita
undanþágu frá grciöslu skatts-
ins. Hins vegar telur ráðuneytið
ekki ástæöu til frekari aögeröa
vegna þeirrar undanþágu sem
Bandalag isl. skáta fékk vegna
sirkussins, samkvæmt þeim
fréttum sem Visir aflaöi sér i
morgun i Menntamála-
ráöuncytinu.
1 frétt frá menntamálaráðu-
neytinu segir aö BIS hafi upp-
fyllt öll skilyrði sem sett höfðu
veriö fyrir undanþágu frá
skemmtanaskattinum. En
framvegis verða ekki veittar
fleiri undanþágur og rökstyöur
ráðuneytiö það með þvi aö erfitt
sé að fylgjast með þvi, svo
öruggt sé,að undanþágur séu
ekki misnotaðar.
Þá rýri slikar undanþágur
tekjur sem félagsheimilasjóður
og Sinfóniuhijómsveit íslands
eiga aö njóta af skemmtana-
skattinum. Eðlilegt verði að
teljast að við samningu fjárlaga
sé leitað eftir fjárframlögum
frá Alþingi til stuðnings góðum
málefnum.
Að lokum telur menntamála-
ráðuneytiö að undanþágur frá
skemmtanaskatti geti leitt til
misréttis þar sem sumum hug-
kvæmist að sækja um undan-
þágur en öðrum ekki þótt um
álika mikilvæg menningar- og
liknarmál kunni að vera að
ræða.
—KS
POLSKU
gúmmíbátarnir
12 ára reynsla hefur sannað endingu þeirra og gœði
20% afsláttur
af ðllum viðleguútbúnaði
ZEFIR
jgm|
Lengd: 205 cm
Breidd: 114 cm
♦ Buröarþol: 200 kg
Þyngd: 10 kg
Lofthólf: 2
Fyrirferð:65x36cm
REK1N
Lengd: 400 cm
Breidd: 78 cm
Burðarþol: 200 kg
Þyngd: 23 kg
Lofthólf: 6
Fyrirferð 67x12x85
Verðkr:
OZA 250
Lengd: 250 cm
Breidd: 117 cm
Burðarþol: 200 kg
Þyngd: 24 kg
Lofthólf: 3
Fyrirferð: I03x37cm.
Mótorstærð: 1—5hö
OZA 270
STANDARD
Lengd: 270 cm
Breidd: 117 cm
Buröarþol: 200 kg.
Þyngd: 26 kg.
Lofthólf: 3
Fyrirferð: 103x37
2ja manna.
Mótorstærð: 1-5 hö.
Lengd: 260 cm
Breidd: 115 cm
Buröarþol: 300 kg
Mótorstærö: 1-5 hö
Þyngd: 33 kg
Lofthólf: 2
Fyrirferð: (2 pk)
105x35 cm
+ 75x5x55 cm
2)
í J
r
ATH: ÁRAR - 2 gerðir fyrirliggjandi
Póstsendum um allt land.
Geymið auglýsinguna.
TÓmSTUnDfíHÚSIÐ HF
Laugauegi 164-Reukiauit $=21901