Vísir - 11.10.1978, Side 3
vism Miðvikudagur 11. október 1978
3
„Þröngt mega sáttir sitja" getur átt við um þessa f jóra
ráöherra. Kjartan Jóhannsson kemur sér fyrir í nýja
ráöherrastólnum.
Frá guösþjónustunni í Dómkirkjunni.
Yngsti þingmaöurinn/
Gunnlaugur Stefánsson#
mætir til þings.
Visismynd GVA.
Aö lokinni guðsþjónustu gengu
þingmenn fylktu liöi yfir i
Alþingishúsið, og á eftir þeim
eiginkonur ráÖherranna og sendi-
menn erlendra rikja.
Forseti tslands, Dr. Kristján
Eldjárn, setti Alþingi og flutti
stutt ávarp. Sagði hann m.a. að
timabundnar breytingar á af-
stööu milli þings og þjóðar yllu
þvi, að oft, og að sinni hyggju
mjög um of, væri talað um
þverrandi veg Alþingis I augum
almennings og áhugaleysi um at-
hafnir þess.
,,En það sem talað er á hverri
Forseti Islands, Dr.
Kristján Eldjárn, setur
hundraðasta löggjafarþing
islendinga.
tið er eins og gárur á vatni, mis-
munandi eftir þvi hvaöan og hve
mjög vindurinn blæs. Hið rétta er
að islenska þjóðin veit enn sem
fyrri harla vel til hvers hún hefur
kosið Alþingi, virðir starf þess og
skilur hvað hún á undir þvi og
þeirri rikisstjórn sem ábyrgð ber
fyrir þvi. Svo er fyrir að þakka,
þvi þá væri komið illt i efni, ef
þjóðin léti sér i léttu rúmi liggja
hvernig þessum stofnunum tekst
til um forystu og úrræði i málefn-
um vorum.”
Forseti bauð velkomna til
starfa nýkjörna alþingismenn og
Nokkrir nýliðar á þingi, talið frá v. Friðrik Sóphusson, ólafur Ragnar Grímsson,
Vilmundur Gylfason, Eiöur Guðnason og Jóhanna Sigurðardóttir.
nýskipaða rikisstjórn og þakkað
störf fyrra þingliðs og fyrri rikis-
stjórnar.
Kvaðst forseti hafa veitt þvi
athygli, að á þessu nýja þingi
mætti skipta þingmönnum i þrjá
nokkurn vegin jafn fjölmenna
hópa. Fyrst mætti nefna þá, sem
þegar hefðu setiö lengur eða
skemur á Alþingi þegar hann
hefði fyrst sett Alþingi fyrir rétt-
um 10 árum. í öðrum hópnum
væru þeir þingmenn, sem bæst
hefðu i hópinn siðan og fram til
siðustu kosninga. t þriðja hópnum
væru þeir þingmenn, sem nú
koma til þings i fyrsta sinn, og
iiklega væri sá hópurinn ivið fjöl-
mennastur.
,,0rö er á þvi gert að aldrei hafi
eins margir nýliðar komiö til
þings og eftir siðustu alþingis-
kosningar og margir hverjir ung-
ir aö árum. Þetta er spegilmynd
þess að timinn liður og allt er
breytingum háð. Endurnýjun er
óhjákvæmileg, þótt enginn geti
fullyrt, hversu ör hún ætti helst að
vera. En svo munu margir mæla
aö gott sé gamalli og gróinni
stofnun að um sali hennar berist
lifgandi andvari sem oft fylgir
nýjum mönnum. Og ekki þarf að
draga i efa, að þaö sé ungum
mönnum fagnaðarefni og eggjun
að hafa hlotið traust samborgara
sinna til að taka sæti á Alþingi,
þvi ekki er auðséð hvar i
þjóðfélagi voru annað eins tæki-
færi býðst til að neyta óþreyttra
krafta sinna til góðs fyrir land og
lýð. Ég tel mig vita fyrir vist aö
með þvi hugarfari gengur hver
þingmaður inni þetta gamla
hús.”
Að loknu ávarpi forseta minnt-
ust alþingismenn fósturjarðar-
innar með þvi að risa úr sætum og
hrópa ferfalt húrra.
Aldursforseti þingsins, Oddur
ólafsson, fjórði þingmaður
Reyknesinga tók siðan að sér að
stjórna fyrsta fundi sameinaðs
Alþingis, og fór fram skoöun kjör-
bréfa. Eftir að þau höfðu verið
samþykkt samhljóöa var fundi
frestað. Verður honum fram
haldið i dag klukkan tvö, og fer
þá væntanlega fram kjör forseta
sameinaðs Alþingis og deilda.
Sjálfs-
œvisaga
Hagalíns
— fram til 1920
gefin út á ný
Almenna bókafélagið hefur,
i tiiefni af áttræðisafmæii
Guðmundar G. Hagalins, gefiö
út að nýju fimm fyrstu bindin
af sjáifsævisögu hans. öii hafa
þau verið ófáanleg i langan
tima.
Bækurnar heita: Ég veit
ekki betur, Sjö voru sólir á
lofti, Ilmur liðinna daga, Hér
er kominn Hoffinn, Hrævar-
eldar og himinljómi.
Þessar bækur komu út á
timabilinu 1951 — 1955 og seld-
ust allar upp á skömmum
tima. Þær fjalla um bernsku
og æsku höfundar, námsár
hans, blaöamennsku o.fl. i
Reykjavik fram um 1920.
Eftir að þessi bindi eru kom-
in út, eru fáanleg 7 bindi af
sjálfsævisögu Hagalins, þvi
enn fást bækurnar Stóð ég úti i
tunglsljósi (1974) og Ekki
fæddur I gær (1970).
Gert er ráð fyrir aö sjálfs-
ævisaga Guðmundar Hagalins
veröi samtals 9 bindi. Fila-
beinsturninn, sem út kom 1959
er nú ófáanleg og 9. bindið er
höfundur að skrifa núna, en
það kemur væntanlega út á
næsta ári. ___
II
Olíufélagið Skeljungur hf
Höfum opnaó nýtísku
Bensínstöð í
Garðabæ
Höfum opnað glæsilega bensín- og þjónustustöð í Garðabæ,
á mótum Bæjarbrautar og Vífilsstaðavegar.
Þar verður rekin fjölþætt bifreiðaþjónusta, svo sem:
Bensín- og olíusala frá nýtísku tölvudælum.
Verslun með fjölbreytt úrval bifreiðavarnings.
Ákjósanleg aðstaða til að hreinsa, þvo og ryksuga bíla.
Síðar hefst starfræksla smurstöðvar og skyldrar þjónustu.
Garðbæingar og aðrir vegfarendur.
Gjörið svo vel og reynið þjónustuna, verið velkomin
á Shellstöðina í Garðabæ. Sími 42074