Vísir - 11.10.1978, Side 7

Vísir - 11.10.1978, Side 7
7 VISIR Miðvikudagur 11. október 1978 c Verður mnniir itiirffnnf mramnaia o friðargœslu í Líbanon? Enn kveða við spreng- ingar og skothríð i austur- hluta Beirút/ höfuðborgar Líbanon/ og vekja kvíða um, aðaftur muni brjótast út átök milli sýrlenskra herflokka og kristinna manna. Þrátt fyrir vopnahléö, sem tók gildi á laugardaginn, hafa fjórtán verið drepnir i slikum skærum. — Elias Sarkis Libanonforseti og Hafez Al-Assad Sýrlandsforseti komu vopnahléinu i kring. Sarkis er nii staddur i heimsókn I Kuwait, en hann er á feröalagi á milli þeirra Arabarikja, sem lagt hafa til liðsafla meö fé til aö halda úti friöargæsluliði i Libanon. Um 30.000 manna herafli er i Libanon til þess aö gæta friöar, en 90% þess liðs eru sýrlenskir her- menn. Þeir hafa átt i bardögum við kristna menn og hægri sinna i Beirút, og vandséð hvorir hafa átt upptök og sökina á þeim átökum. Lita hægrimenn á lið Sýrlendinga sem hernámsliö. Aöalmarkmið Sarkis i feröa- laginu er að telja Saudi-Arabiu og furstadæmin við Persaflóa á að auka liðsafla sinn i Libanon og láta þá leysa Sýrlendingana af hólmi á stöðum, þar sem mest er amast við veru þeirra. Kristnir menn hafa lýst þvi yfir, að þegar renni út sá timi, sem friðargæsluliðið skuli vera i Libanon (26. október næstkom- andi) vilji þeir ekki, að vera þess veröi framlengd. — Þeir hafa lýst þvi yfir, að friðar sé ekki að vænta i Libanon, meðan svo mikiö sem einn sýrlenskur her- maöur veröi i landinu. Súdan, sem er meöal þeirra, er lagði til lið I friöargæslusveitirn- ar, segist munu kalla heim sina menn, þegar gæslutiminn rennur út. Leigubílstjórar i London efndu nýlega til mótmæla vegna verðlags- ákvæða þess opinbera sem hindra að þeir geti hækkað taxta sina. Um 1.500 leigubilum var ekið til ráðherrabústaðarins i Downingstræti 10, þar sem mótmælabréf var afhent. Fóru mótmælin friðsamlega fram en myndin hér var tekin yfir Downingstræti, þegar leigubilahersingin fyllti götuna. Kólera skýtur upp kollinum f Bandaríkjunum Bandarísk heilbrigðis- yfirvöld rannsaka kóleru, sem komið hefur upp í Louisiana en það er í fyrsta sinn í hartnær heila öld sem kóleru verður vart í Bandarikjunum. Smith nœr ekki eyra Carters Carter Bandaríkjafor- seti hefur ákveðið að leyfa lan Smith forsætis- ráðherra Ródesíu ekki að ná fundi sínum, meðan hinn síðarnefndi er stadd- ur í Bandaríkjunum. Á blaðamannafundi í gær sagði Carter, að hann teldi enga ástæðu til þess að eiga viðræður við Smith, sem hefur átt fundi með Cyrus Vance, utanríkis- ráðherra. Smith leitar eftir stuöningi Bandarikjastjórnar og annarra vesturálfurikja við bráðabirgöa- stjórn hvitra manna og hinna hóf- samari úr hópi þjóðernissinna blökkumanna. Bandarikjastjórn og Bretar sem hafa reynt aö hafa milli- göngu um að meirihluti ibúa Ródesiu, þ.e.a.s. blökkumenrv fengju notið atkvæðisréttar til jafns við hvita hafa ekki viljaö ljá máls á ööru en bráðabirgða- stjórnin færi að tillögu þeirra og tæki upp viðræður við skæruliða- hreyfingar þjóðernissinna. Telja þeir vonlaust að friði verði komiö á i Ródesiu öðru visi en allir aðil- ar setjist að samningaborðinu. Bráðabirgðastjórnin hefur hinsvegar ekki fengið sig til aö setjast að samningaborði meö leiðtogum skæruliðanna, sem staöið hafa að hinum hryllileg- ustu fjöldamorðum meöal blökkumanna og hvitra manna. Rannsóknin beinist meðal ann- ars að skelfiski frá þeim hluta Louisiana þar sem kólerutilfellin hafa komiö upp. Niðurstaða hennar ætti aö liggja fyrir i næstu viku. Embættismenn farsóttareftir- litsins segja að allir þeir, sem kóleruna hafa fengið, hafi borðaö krabba frá þessum slóðum. Eitt kólerutilfelli gaf sig fram i ágúst en tiu til viðbótar komu fram i næsta mánuöi. Þótt kólera hafi verið mannskæð plága I sögu mannkynsins, hafa engir þessara sjúklinga komist i lifshættu. — Visindamennirnir segja að þessi kólerutilvik séu af sama toga og sú kólera sem sýkt hefur hundruö þúsunda frá þvi að hún breiddist út frá Asíu upp úr 1960. Kvistar af þessum sama kólerumeið hafa fundist i Afriku, Sovétrikjunum og Portúgal. Siðast braust út kólera i Banda- rikjunum 1911 en það var i hópi innflytjenda sem sýkst höföu fyrir komuna þangaö. Kólera var landlæg i Bandarikjunum i kring- um 1880. Kólerufaraldur gekk þar 1832 og 1873, og liföu sjúklingarnir oft ekki sólahringinn eftir að fyrstu einkennin komu fram hjá þeim. Leggja til, að Helsinki■ hópurinn fái friðar- verðlaunin Fulltrúadeild Bandarikja þings samþykkti i gær ályktun um að styðja tilnefningu Hel sinkihópsins i Sovétrikjunum til friðarverðlauna Nóbels. Oldungadeildin samþykkti svipaöa ályktun I júli i sumar. Helsinkihópurinn svonefndi er mannréttindahreyfing, sem einsett hefur sér að fylgjast meö þvi heima i Sovétrikjun um, að yfirvöld standi viö mannréttindaákvæöi Hel- sinkisáttmál!án|s, afsprengis öryggismálaráöstefnu Evrópu. Þingmenn i Bretlandi, Belgiu, Kanada og Noregi hafa gert ályktanir, þar sem lagt er til, aö þessi mannrétt- indahreyfing fái friöarverð- launin. JAFNRETTI í RÓDESÍU í fyrsta sinn, siðan hvitir menn komu til Ródesiu, eygja blökku- menn möguleika á að sitja við sama borð og hvitir og fá að ferðast i sömu almenningsvögn- um og þeir, liggja á sömu sjúkrahúsum, sækja sömu skólana og sitja við hlið þeirra. Bráðabirgðastjórn landsins hefur kunngert, að öllu kynþátta- misrétti skuli útrýmt — meö einu skilyröi. Nefnilega aö hvitir samþykki i þjóðaratkvæða- greiðslu þeirra á meðal og aö þingið i Salisbury (hvitir I meiri- hluta) leggi blessun sina á þaö, en það þykir nánast formsatriöi, svo vissir eru menn um aö sam- þykktin fáist. Þessi tilkynning var birt, með- an Ian Smith forsætisráöherra Ródesiu er I heimsókn i Washington, þar sem hann leitar stuönings viö bráðabirgðastjórn Ródesiu. Þessi tilkynning hefur mælst vel fyrir — erlendis. Heima I Ródesiu hafa menn ekki mikla trú á, að þessa nýja hugarþels muni gæta mikiö i verki fyrst I staö. EBE skiptir sér ekki af selveiðinni Náttúruverndarmenn Greenpeace-samtak- anna hafa snúið sér til Efnahagsbandalagsins og mælst til þess að það hlutaðist til um, að sela- dráp norskra selveiði- manna við Orkneyjar verði stöðvað. Finn-Olaf Gundelach, erindreki landbúnaðar- og fiskveiðinefndar EBE, hefur lýst þvi yfir, aö EBE geti ekki komiö þvi i kring, en hefur heitiö þvi, að EBE muni beita sér fyrir rannsókn á þvi, hver áhrif gráselurinn hafi á afkomu fiskistofna. Skoraö hefur verið á bresku stjórnina að gera kunnar niður- stööur og gögn þeirrar visinda- legu athugunar, sem bresk yfir- völd segjast byggja þá ákvörðun sina á að ætla fækka gráselnum við Orkneyjar.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.