Vísir - 18.10.1978, Blaðsíða 3
vísm
MiOvikudagur
18. október 1978
næsta löndunarstaö. Þetta
veldur veiöitapi hjá skipunum
og oft á tiðum auknum kostnaði
hjá útgerðinni.
Við f innum einnig fyrir þvi að
ekki gætir nægilegs skilnings
hjá mönnum i landi á störfum
okkar og við erum ekki metnir
til móts við þau verðmæti sem
við öflum i þjóðarbúið. bað er
sláandi aðeitt af fyrstu verkum
nýs s jávarútvegsráðherra er að
rýra kjör sjómanna miöað við
þær launahækkanir spm orðið
hafa i landi. Þegar ákvörðun
fiskverðs var rekin fyrir
skömmu var einkum gætt hags-
muna frystihúsanna en sjómenn
látnir sitja á hakanum”.
Auglýst mest
þegar vel gengur
Nú berast öðru hverju fréttir
af svimandi háum launum
sjómanna. Eru loðnusjómenn
og þá einkum skipstjórar með
tekjuhæstu mönnum i landinu?
,,Það hefur einhverra hluta
vegna verið mikill ljómi yfir
þessum veiðum. Þegar vel
gengur þá gefur þetta vel af sér
en það koma dauðir timar inn á
milli. Þetta er auglýst mest
þegar vel gengur þannig að
menn sjá ofsjónum yfir þessu.
Þeirsem eruá stærstu bátunum
og veiðamesthafa góðar tekjur,
það vita allir, en það er lika
mikið á sig lagt. Hins vegar eru
tekjurnar minni þegar skip-
stjórarnir eru tveir um skipið
Skipstjórahluturinn á Hákoni i
heild 9 fyrstu mánuði þessa árs
er liklega rúmar 10 milljónir en
það hefúr lika verið stanslaust
úthald frá áramótum. Eftir
vetrarvertið var farið á
spærlingsveiðar og i sumar var
farið á loðnu við Kanada.”
En hver er framtiðin fyrir
loðnuveiðar. Er loðnan ekki of-
veidd eins og sildin?
„Ég er bjartsýnn á að þaö
verði framhald á þessum
veiðum. Að visuþarf að fylgjast
vel með stærð stofnsins og gæta
þess að hann verði ekki ofveidd-
ur. Einnig er brýnt að viö
leggjum okkur fram um betri
vinnslu og nýtingu aflans
þannig að verðmætin fari ekki
til spillis.” -KS
«
E?
U
■
■
■
i
■
■
I
■
K
ísfirskir sjómenn
A myndinni sést starfsfólk Flata- og Hofsstaöaskóla
Flataskóii 20 óra í dag:
Mikil flugeldasýning í
tilefni afmœlisins
„Þaö hefur veriö ánægjulegt aö
taka þátt i vexti byggöarlagsins i
gegnum skólann. Nemendafjöldi
hefur hér fimmfaldast á meöan
ibúafjöldi hefur liölega þrefald-
ast,” sagði Vilbergur Júliusson
skólastjóri i Flataskóla i Garða-
bæ, en skólinn er 20 ára i dag, en
börn i Garðahreppi sóttu áður
skóla til Hafnarfjaröar, Reykja-
víkur og viðar.
Nemendafjöldi i skólanum
fyrsta árið var 137, en eru nú 737.
Fjölmennasti árgangurinn er 12
ára en það eru 144 nemendur. Vil-
bergur sagði að nemendum
fækkaði hins vegar og væru
bekkjardeildir fjórar i árgöngum
7-11 ára.
Arið 1977 var stofnað útibú i
safnaðarheimili kirkjunnar fyrir
börn á aldrinum 6-9 ára.
Skólinn var meðal annars
stofnaður til að börnin þyrftu ekki
að fara yfir Vifilsstaðaveg.
Fyrsta áriö störfuðu aðeins
fjórir fastir kennarar við skólann
en nú starfa 65 manns við báða
skólana. Vilbergur Júliusson
hefur verið skólastjóri frá upp-
hafi.
1 dag munu nemendur gera sér
glaðan dag með skemmtanahaldi
innan skóla, kvikmyndasýning-
um og fleiru, en i kvöld klukkan 20
veröur mikil flugeldasýning við
skólann á vegum hjálparsveitar
skáta og Flugeldaiðjunnar Þórs-
merkur fyrir bæði eldri og yngri
nemendur skólans sem og alla
bæjarbúa. Skólakór Garðabæjar
mun syngja i útvarpið i tilefni af-
mælisins en nýlega er komin út
plata með söng kórsins.
A föstudaginn verður haldið af-
mælishóf i Skiphól, sem hefst
klukkan 19. Starfsfólk, fyrrver-
andi og núverandi sem og nem-
endur elstu árganga skólans eru
velkomnir. Þátttökuskal tilkynna
til skólaritara sima 42756.
—BA—
mótmœla
Áskorun
Torfusamtakanna
til yfirvalda:
Rekið af
ykkur
slyðruorðið
„Torfusamtökin benda á,
að umhverfisvernd og þá
ekki sist verndun gamallar
byggðar, er málefni sem á
þessum áratug hefur unniö
fylgi aimennings i siauknum
mæli. Afstaöa isienskra
stjórninálamanna hefur hins
vegar ekki verið i samræmi
við þessa þróun."
Svo segir i fundarsam-
þykkt Torfusamtakanna sem
horist hefur blaöinu. Þar
segir að meöal stjórnmála-
manna hafa meira boriö á
loforöum en efndum i þess-
um efnum. Prófsteinn á viö-
horf stjórnvalda, rikis og
borgar, sé viöhorfiö til Bern-
höftstorfunnar, Grjótaþorps
og Þingholtanna i Reykja-
vik.
Samtökin beina þeim ein-
dregnu tilmælum til rikis-
stjórnar og borgarstjórnar
aö þær reki af sér slyöru-
oröiö og hefjist handa meö
raunhæfum aögeröum til
björgunar og varðveislu
handa komandi kynslóöum.
_________________
„Hef engin
loforð gefið"
„Ég hef engu lofaö varö-
andi bundiö slitlag á þjóö-
vegi landsins, þaö er ekki á
minu færi að gera það,”
sagði Tómas Arnason fjár-
málaráöherra viö Visi en i
frétt VIsis s.l. mánudag af
landsþingi Félags islenskra
bifreiöareigenda telur
heimildarmaöur blaösins aö
ráðherra liafi gefið loforö um
lagningu hundins slitlags á
þjóðvegina á næstu 10 árum.
„Ég vil aö næsta ár veröi
notaö til undirbúnings þessa
máls”, sagöi Tómas, „og
siðan yröi hafist handa á
áratugnum frá 1980 til 1990
hverjir svo sem fara meö
stjórnvölinn allan þann tima
er annaö mál.” —KS
„tsfirskir sjómenn mótmæla
harðlega þeirri kjaraskeröingu
sem felst i seinustu fisk-
verösákvörðun, sem er I engu
samræmi viö launaákvarðanir til
annarra stétta”, segir i yfir-
lýsingu sem samþykkt var á
fundi i Sjómannafélagi lsfiröinga.
Þar segir ennfremur aö efna-
hagsvandi islensku þjóöarinnar
verði ekki leystur meö kjara-
skerðingu þar sem lengst sé
gengiö á kjör sjómanna.
Góð feeilsa
ep
feveps iwaRRS
ertu með?
Marga hefur lengi 'angað til að geta spilað svolítið á gítar á góðri stund sér og
öðrum til ánægju en einhvern veginn ekki komið því i verk að læra. Ef þú ert
meðal þeirra, pá er tækifæri þitt runnið upp. Ný kennslustækni hefur litið
dagsins Ijós á (slandi. Þú getur látið drauminn rætast og verið farinn að spila
svolítið. meira að segja eftir nótum, eftir skamman tíma - bara með
bráðskemmtilegu heimanámi. Svarið er námskeiðið Leikur að læra á gitar, frá
Gítarskóla Ólafs Gauks - 2 kassettur og vönduð, litprentuð 52 síðna bók. Þú
lest kafla í bókinni, athugar skýringarmyndir, en þegar kemur að þessu merki:
hlusta ÍSJd
setur þú kassettutækið af stað, og færð leiðbeiningar kennara og yfir 20 lög,
sem hver einasti íslendingur þekkir, til að leika með. Aðferð, sem getur ekki
brugðizt. Allt kennsluefnið er sérunnið fyrir íslenzka nemendur. Þekktir
hljómlistarmenn ieika með þér lögin á kassettunum, og þér tekst fljótlega að
leika með. Textar eru prentaðir við hvert lag í bókinni.
Á 2 KASSETTUM OG BÓK
Einnig tekið við
pöntunum í síma
85752
Nýja GÍTARNÁMSKEIÐINU fylgja
tvær langar kassettur með leiðbein-
ingum kennara, yfir 20 lögum sem
allir þekkja til að leika með og alls
kyns léttum æfingum til að auðvelda
námið samhliða bókinni.
Bókin, sem fylgir GÍTARNÁM-
SKEIÐINU er 52 siður, öll litprentuð
á vandaðan pappír, með einföldum
skýringum og fjölda mynda. Bókin
og kassetturnar eru í sérhönnuðum
plastumbúöum. Glæsileg og vönduð
gjöf, ef svo ber undir.
Fullkomið
GÍTAR
námskeið
fyrir kr.
17.000
-ótrúlegt!
PÖNTUNARSEÐILL
Gjöriö svo vel aö senda mér undirrit. í póstkröfu gítarnámskeiöiö
Leikur að læra á gítar, tvær kassettur og bók, verð kr. 17.000 auk
sendingarkostnaöar.
Utanáskrlft: Gítarskóli Ólafs Gauks, pósthólF 806, 121 Reykjavfk. I