Vísir - 18.10.1978, Side 5
VISIR Miðvikudagur 18. október 1978
5
JÓHANN ÖRN SIGURJÓNSSON SKRIFAR UM HEIMSMEISTARAEINVÍGIÐ í SKÁK:
Karpov með gjörunna stöðu í
Karpov : Kortsnoj
32. skákin.
Eftir hetjulegan lokasprett
hjá Kortsnoj, var sárgrætilegt
að sjá hvernig hann fór að ráði
sinu i gær. Hann var augsýni-
leea meira en lítið miður sin, og
taflmennskan óþekkjanleg frá
þvi sem verið hefur i siðustu
skákum. Fyrstu mistök hans
voruánefa byrjanavalið. í stað
þess að tefla áfram opna af-
brigðið af spánska leiknum,
valdi hann mjög þröngt og vafa-
samt afbrigði af Pirc-vörn, og
komst aldrei i takt við stöðuna.
Ekki bætti lír skák, að áður en
aðalátökin hófust, var hann
kominn i bullandi timahrak, og
hafði einfaldlega ekki tima i
lokin til að mæta margvislegum
hótunum heimsmeistarans.
Karpov tefldi þessa mikil-
vægustu skák lifs sins á óað-
finnanlegan hátt, nýtti öll tæki-
færi til hins itrasta og þegar
skákin fór i bið, voru viðbrögð
flestra á einn veg: , .Kortsnoj er
meðkoltapað tafl”. Það eru þvi
allar horfur á þvi að heims-
meistarinn næli sér i 350 þúsund
dalina, og haldi titli sinum.
„Ég er alltof sleginn til þess
að gera mér grein fyrir liðan
minni”, sagði einn aðstoðar-
manna Kortsnojs, stórmeistar-
inn Stean. Einhver spurði Tal
hvernig honum litist á biðskák-
ina. ,,Það þarf engan stór-
meistara til aö skilja þessa
stöðu”, varsvarið. Fréttastofan
Tass fór varlega i sakirnar og
lét sér nægja tilkynningu þar
sem sagði að skákin hefði farið i
bið og_ heimsmeistarinn hefði
betri stöðu og peð yfir. Kortsnoj
leit lauslega á biðstöðuna heima
áhóteli. Hann kvaðsthafa misst
af bestu leiðinni i byrjun, og
teflt veikt út i gegn. Karpov
fékkst ekki til að segja neitt,
„keppninni er enn ekki lokið”,
sagðieinn aðstoðarmanna hans.
En ýmislegt fleira skeði i
Baguio borg i gær. Áður en
skákin hófst, kröfðust Sovét-
menn þess að Ananda Marga
fólkið yrði fjarlægt frá bústað
Kortsnojs, ella myndi Karpov
ekki mæta til leiks. Kortsnoj
vissi ekkert um þetta, en að-
stoðarmaður hans, Keene lét
undan þessum kröfum og undir-
ritaði plagg þess efnis að An-
anda Marga fólkið yrði flutt á
braut. ,,Ég er að bjarga Karpov
frá þvi að láta dæma af sér
heimsmeistaratitilinn,, varð
Keene að orði, og var reiður
mjög. Óvist er hvort Kortsnoj
kann honum nokkrar þakkir
fyrir þetta framtak, og fyrir
bragðið missti áskorandinn af
hugleiðslustund með jókunum,
áður en skákin hófst. Sovéski
dulsálfræðingurinn dr. Zukhar
kom nú enn á ný fram i sviðs-
ljósið, eftir að hafa haldið sig I
öftustu röð, siðustu 15 skák-
irnar. Meðan á taflinu stóð,
flutti hann sig fram i 4. sætaröð-
ina, og rauf þar með samkomu-
lag það sem soveska skáksveit-
in hafði gert við aðstoðarmenn
Kortsnojs.
Askorandinn átti nóg með
skákina, og kom þvi ekki auga á
dr. Zukhar, en ýmsir veltu þvi
fyrir sér hvort hann myndi hafa
framkvæmt hótun sina frá þvi
fyrr i einvigunu, og fleygt
doktornum sjálfur á dyr.
Hvitur: Karpov
Svartur: Kortsnoj Pirc-vörn
1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 g6 4. Rf3
Bg7 5. Be2 (Karpov fer hægt i
sakirnar. Keres og Geller höfðu
einnig dalæti á þessum rólega
leikmáta, enda fær hvitur
jafnan mjög örugga stöðu, lausa
viðalla ævintýramennsku.) 5. ..
0-0 6.0-0 (Svartur er talinn jafna
taflið fljótt eftir 6. Be3 Bg4 7.
Dd2 Rc6 8. d5 Hb8, eða 6. Bf4
Rc6 7. d5 e5! 8. dxe6 Bxe6, Un-
zicker : Botvinnik, Varna 1962.)
6. .. c5?! (Nokkuð tvíeggjaður
leikur, sem leiðir til
Benóný-varnar. Larsen reyndi
6... Ra6? ! 7. Hel c5, gegn Smys-
lov i Monte Carlo 1967, en fékk
þröngt taflogerfitt.) 7. d5Ra6 8.
Bf4 Rc7 9. a4 b6 (Vilji svartur
br jótast úr þessari þröngu stöðu
sinni, verður hann að reyna 9. ..
h6 10. Bh4 g5 11. Bg3 Rh5, eða 10.
Be3 e6 og sprengja upp á mið-
borðinu.! 10. Hel Bb7 11. Bc4
Rh5 12. Bg5 Rf6 (Svartur finnur
enga viðunnandi áætlun, og
Kortsnoj hafði þegar eytt mikl-
um timaá byrjunarleikina.) 13.
Dd3 a6 14. Ha-dl (Karpov
kemur mönnum sinum i góðar
stöður, áður en lokaátökin
hefjast.) 14. .. Hb8 (Eina mót-
spil svarts, b6-b5, er þungt i vöf-
um og lengi að komast i gang.)
15. h3 Rd7 16. De3 Ba8 17. Bh6 b5
(Kortsnoj hafði notað 105 minút-
ur til að fá upp þessa þungu
stöðu, Karpov 75 minútur.) 18.
Bxg7 Kxg7 19. Bfl Rf6 20. axb5
axb5 21. Re2 (Baráttan er að
taka á sig ákveðna mynd.
Hvitur flytur lið sitt yfir á
kóngsvæng, á meðan svartur
leitar færa á drottningarvæng.)
21. .. Bb7 22. Rg3 Ha8 23. c3 Ha4
24. Bd3 Da8 (Loksins virðist
svartur veraað tosa um sig. En
það hefúr tekið sinn tima, og nú
á Kortsnoj ekki eftir nema 18
minútur á næstu 16 leikina, og
aðalátökin eftir.)
H
iL 4 t i 41
i 1 t
£ t
t t 11
a a
25. e5! dxe5 (Ef 24. .. Rfxd5 25.
Rh5+ gxh5 26. Dg5+ Kh8 27.
Dxh5 f5 28. Rg5 og vinnur. Eða
25. .. Kh8 26. Dh6 Hg8 27. Rg5 og
vinnur.) 26. Dxe5 Rxd5 27. Bxb5
Ha7 (Peð svarts á c5 er slæmur
veikleiki i stöðu hans, og á
kóngsvæng vofa ýmsar hótanir
yfir. Ekki beint glæsilegt ástand
i timahrakinu.) 28. Rh4 Bc8 (Ef
28. . Db8 29. c4 Dxe5 30. Hxe5 og
svarta staðan hrynur.) 29. Be2
Be6 30. c4! (Þar með fellur
c-peðiðoghvitur er kominn með
tvö samstæð fripeð.) 30. .. Rb4
31. Dxc5 Db8 32. Bfl Hc8 33. Dg5
Kh8 (Þvingað vegna ógnunar-
innar 34. Rh-f5+.) 34. Hd2 Rc6
(Hér átti Kortsnoj eftir tæpar
tvær minútur eftir af umhugs-
unartima sinum. Ef 34. . Bxc4
35. Bxc4 Hxc4 36. Hxe7 og
vinnur.) 35. Dh6 Hg8 36. Rf3 Df8
37. De3 Kg7 38. Rg5 Bd7.
39. b4! Da8 (Ekki 39. .. Rxb4 40.
Dxa7.)
40. b5 Ra5 41. b6 Biðleikurinn.
Ekki verður annaö séð en staða
svarts sé gjörtöpuð. T.d. 41. ..
Hb7 42. Ha2, og tvöfalda á a-lin-
unni. Eða 41. .. Ha6 42. c5.
SÍÐUSTU FRÉTTIR:
Kortsnoj gaf skákina i
morgun og hefur Karp-
ov þá tekist að halda
heimsmeistaratitlinum
i skák. Er einviginu þar
með lokið.
UNDRAEFNIÐ
MDD-M- TUNE
nýtt smuroliu-og eldsneytisbœtiefni fyrir allar
vélar nú komið til íslands.
SPARAR ELDSNEYTI — Bensinið i gamla verðiö
BÆTIR ÞJOPPUN — Eykur orku
HREINSAR BLONDUNGINN — MINNKAR GJALLMYNDUN
SPARAR SMUROLIU — LÆKKAR VIÐHALDSKOSTNAÐ
KERTI, HLJÓÐKÚTAR og PUSTRÖR endast lengur
STÓRMINNKAR SLIT VÉLARINNAR
LÆKKAR REKSTURSKOSTNAD BIFREIÐA 15-25%
Vestur-íslendingur fró verksmiðjunni í Californiu kynnir efni
þetta í verslun vorri daglega nsstu daga kl. 3-6.
•Inaust h.f
Síðumúii 7—9.
Sími 82722
Bókaskrá ÆSKUNNAR 1978
er komin út í tólfta sinn
Yfir 1000 bókatitlar.
Árgangurinn er yfir 500 siður.
Upplag 20 þúsund eintök.
Blaðið kemur út 9 sinnum á ári.
Skráin hef ur aldrei verið f jölbreyttari og bíður nú uppá yf ir 1000
bókatitla.
Þar er að f inna mesta úrval bóka á einum stað.
Áskrifendur ÆSKUNNAR láti afgreiðsluna vita ef þeir hafa ekki fengið
bókaskrána senda.
Hagstæðasta bókaverð/ sem er á markaðnum í dag.
ÆSKAN er stærsta og f jölbreyttasta barna- og unglingablað sem gefið
er út á íslandi í dag.
Gerist áskrifendur.
BARNABLAÐIÐ ÆSKAN
BÓKABÚÐ ÆSKUNNAR
sími 17336 - Laugavegi 56 - sími 14235
mBt