Vísir - 18.10.1978, Qupperneq 10
10
VÍSIR
útgefandi: Reykjaprent h/f
iFramkvæmdastjdri: DaviðGuömundsson
Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm.
ólafur Ragnarsson
Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta:
Guðmundur Pétursson. Umsjón meö helgarblaði: Arni Þórarinsson. Blaöa-
menn: Berglind Asgeirsdóttir, Edda Andrésdóttir, Elías Snæland Jónsson,
Guðjón Arngrlmsson, Jón Einar Guðjónsson, Jónína Mikaelsdóttir, Katrín Páls
dóttir, Kjartan Stefánsson, Óli Tynes, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi
Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson,Jens
Alexandersson. utlitog hönnun: Jón Oskar Hafsteinssdn, Magnúsólafsson.
Auglýsinga-og sölustjóri: Páll Stefánsson Askriftargjald er kr. ^oo kr.
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson á mánuöi innanlands.
Auglýsingar og skrifstofur: Síöumúla 8. Verð i lausasölu kr. 120 kr.
Símar 86611 og 82260 eintakið.
Afgreiösla: Stakkholti 2—4 sfmi 86611 Prentun Blaöaprent h/f.
Ritstjórn: Siðumúla 14 simi 86611 7 linur
Þú getur orðið
nœstur
Undanfarna daga hafa ekki orðið nein alvarleg slys í
umferðinni og árekstrar hafa verið með minna móti
miðað við þennan árstíma. Það verður ef til vill til þess,
að menn draga úr varkárni sinni í umf erðinni en slíkt má
ekki gerast.
Þetta ár er orðið meira slysaár en mörg hin síðustu og
við verðum að taka höndum saman um að koma í veg
fyrir að niðurstaða slysaskýrslnanna verði óhagstæðari
en orðið er.
Við megum ekki láta þetta hlé hafa sljóvgandi áhrif á
okkur og það má heldur ekki verða til þess að umf erðar-
ráðog f jölmiðlar haldi að sér höndum. Það er of seint að
vakna, þegar slysin eru orðin.
Dauðaslysintvö, sem urðu á gangbrautum í Reykjavík
í haust, þegar ekið var á börn, sem voru á leið yf ir götur,
ýttu við fólki og fjölmiðlar lifnuðu svolítið í kjölfar
þeirra.
Vísir hefur birt viðtöl við fórnarlömb umferðarslys-
anna undanfarið og er þess að vænta að reynsla þess
fólks verði lesendum blaðsinsvíti til varnaðar. Slíkt efni
og annað efni um umferðarmál verður birt áfram, en
það þarf meira til.
Á það hefir verið bent hér í Visi, að umferðarf ræðsl-
unni þurf i ekki síður að beina til hinna f ullorðnu en barn-
anna, og ekki sé síst þörf á að vekja ökumennina til um-
hugsunar um umferðarmálin.
Það er Ijóst, að slíkt kostar talsvert fé, en það er skoð-
un Vísis, að f ráleitt sé að spara fé hins opinbera á þessu
sviði, þar sem allar fyrirbyggjandi aðgerðir af þessu
tagi séu góð fjárfesting fyrir þjóðfélagið.
Umræður í fjölmiðlum undanfarið hafa án efa haft
áhrif í þá átt að draga úr umferðarslysunum og af þvl
sést, að hægt er að fækka árekstrum, slysum, dauðsföll-
um og meiðslum og minnka það f járhagslega tjón, sem
fólk verður fyrir af völdum umferðarslysa og óhappa.
Oftá tíðum virðist fólk ekki átta sig á hörmulegum af-
leiðingum umferðaslysanna fyrr en það lendir sjálft í
slíkum slysum. í viðtölunum, sem Vísir hefur þegar birt
hefur komiðskýrt i Ijós hvernig slys geta gjörbreytt lífi
og högum þeirra, sem í þeim lenda.
„Framsætið brotnaði og ég þeyttist aftur. Við það
hryggbrotnaði ég og lamaðist. Ég er alveg lömuð í fótun-
um og ég býst ekki við því að fá máttinn aftur", segir
ung kona, tveggja barna móðir, sem lenti í umferðar-
slysi á Hafnarf jarðarveginum. Og til viðbótar við þá
likamlegu fötlun, sem slysið hafði í för með sér, bætast
f járhagslegar áhyggjur vegna takmarkaðra bóta þótt
hún hafi verið í fullum rétti.
Alltof oft eru það börnin, sem lenda í umferðarslysun-
um. „Ég var að ná í bolta, þegar bíllinn keyrði á mig",
sagði sjö ára gamall drengur á Borgarspítalanum við
Vísi. Hann bætti því við, að hann vissi vel að ekki mætti
hlaupa fyrirvaralaust út á götuna, en hann hefði „bara
gleymt því" í þetta sinn.
Hann slapp þó betur en f imm árastúlka,sem nú liggur
á Grensásdeild Borgarspítalans. Hún var að koma heim
af gæsluvelli, þegar bifreið ók á hana með þeim af leið-
ingum, að hún lamaðist upp að brjósti.
Allt of margir telja að aldrei komi neitt fyrir þá, —
aðrir lendi í umferðaróhöppum og slysum. En ef menn
hugsa alvarlega um þessi mál, sjá þeir, að þótt þeir fari
sjálf ir með gát eru þeir ekki öruggir Hér verða allir að
taka saman höndum. Þú getur orðið næstur.
—OR
m_______
Miövikudagur 18. október 1978 visra
Söluhorfur góðor
á minkaskinnum
— segir Skúli Skúlason umboðsmaður Hudson Bay
„Útlit er mjög gott hvaö varö-
ar söluna i ár en um 20 þúsund
skinn fara á markaöinn frá
tslandi i vetur”, sagöi Skúli
Skúlason umboösmaöur Hudson
Bay, en þaö fyrirtæki er stærst
þeirra sem selja skinn á heims-
markaöi, þegar hann var spurö-
ur um söluhorfur á skinnum.
Uppboö á minkaskinnum
verður i London i desember og
febrúar. tslensku skinnin fara á
markaðinn i febrúar. „Gæði
skinnanna héðan hafa verið
mjög svipuð og frá Norðurlönd-
um, nema hvað stærð varðar, en
það hefur heldur verið að lag-
ast”, sagði Skúli.
Betri aðstaða hér en á
Norðurlöndum
„Það er min skoðun að við
eigum að leggja stund á svip-
aðar búgreinar og gert er á
Norðurlöndum. Við eigum fisk-
inn, sem er um 80 prósent af
fóðri sem til þarf. Ef þetta
gengur ekki hjá okkur, þá á
þetta ekki að ganga hjá hinum.
Aðstaðan er betri hér en á
Norðurlöndum t.d. i sambandi
við fóðrið.”, sagði Skúli.
Gott verð á refaskinnum
„Verð á refaskinnum hefur
verið um 40 sterlingspund fyrir
bláref. Það hefur farið hækk-
andi. Refaskinn er hægt að nota
i staðinn fyrir skinn á villtum
dýrum, sem eru að verða fágæt.
Ný tækni er notuð i verkun og
litun skinna. Einnig koma hér
nátturuverndarsjónarmið inn i
myndina. Það er talið æskilegra
að rækta dýrin, og fá skinnin
þannig, heldur en að eyða þeim
úti i náttúrunni. Ég hef orðið var
við að nokkuð margir hafa á-
huga á þvi að fara utan og
nema þessa búgrein. Til að
byrja með refabú þarf milli tiu
til fimmtiu tæfur.”, sagði Skúli
Skúlason.
Gísli Boldur Garðarsson skrifar:
Á Alþingi er i dag tvenns konar
st jórnarandstaöa. Hin hefö-
bundna stjórnarandstaöa er i
höndum Sjáifstæöisflokksins og
viröast menn þar ætla aö fara ró-
lega af staö. Það veröur hins veg-
ar ekki sagt um stjórnarand-
stööuna innan Alþýöuflokksins.
Hinir ungu þingmenn þess flokks
hafa þegar lagt fram á Alþingi
mál sem ganga þvert á sam-
starfsyfirlýsingu rikisstjórnar-
innar. Og þeir boöa aö fleiri slik
muni fylgja. t viötölum viö höf-
und þessarar greinar hafa þing-
menn sumir látið i veöri vaka aö á
næstunni komi til meö aö reyna á
þaö hvort rikisstjórnin sveigi
meira inn á stefnu Alþýöuflokks-
manna en gert var viö myndun
rikisstjórnarinnar. Ef ekki geti
dagar hennar brátt veriö taldir.
Nóvember er mánuður sporð-
drekans, — drekans sem lýstur
óvini sina með eituroddi svo þeir
hljóta bana af. Svo gæti farið aö
rikisstjórn ölafs Jóhannessonar
gæti i nóvembermánuði fengið að
kenna á eituroddi stjórnarand-
stöðunnar innan stjórnarflokk-
anna. Búist er við aö i nóvember
reyni i fyrsta sinn verulega á
grundvöll stjórnarsamstarfsins
og er mál manna að komist rikis-
stjórnin i gegnum þá erfiðleika,
geti Islendingar allt eins búist viö
langlifri stjórn.
Það ágreiningsmál meðal að-
standenda rikisstjórnarinnar sem
að öllum likindum mun fyrst lita
Nú telja Alþýöuflokksmenn aö ýmsir þingmenn Alþýöubandalagsins
muni keppa viö þá um aö koma fram meö þau umbótamál, sem þeir
fyrrnefndu böröust fyrir f kosningunum. Þeir séu aö „stela” hinum
ýmsu málum svosem löggjöf um bann viðhringamyndun.!
dagsins ljós er frumvarp til
breytingar á skattalögunum.
Niðurfærsluaðgerðir rikis-
stjórnarinnar hafa i för með sér
mjög aukinn kostnað fyrir rikis-
sjóð, og hefur ólafur Jóhannesson
boðað að þvi verði mætt með
auknum skattaálögum. Alþýðu-
bandalagsmenn hafa itrekað sagt
að þeir telji að auka beri skatt-
heimtu i formi tekjuskatts.
Gefum ekki eftir um þuml-
ung
Stór hópur þingmanna Alþýðu-
flokksins, — jafnvel allir þing-
menn flokksins munif snúast önd-
verðir gegn hvers konar tilraun
til þess að auka skattheimtu i
formi tekjuskatts. Alþýðu-
flokkurinn hefur það á stefnuskrá
sinni að afnema beina skatta, og
hefur margsinnis flutt tillögur
þess efnis á þingi. Væntanlega
verður lögð fram i dag þings-
ályktunartillaga frá Sighvati
Björgvinssyni um afnám tekju-
skatts.
„Við gætum aldrei samþykkt
auknar tekjuskattsálögur”, sagði
einn úr hópi yngri þingmanna Al-
þýðuflokksins. „1 okkar hópi er
mikil óánægja með það hvernig á
málum var haldið við stjórnar-
myndunina og það er ljóst að við
gefum ekki þumlung eftir til við-
bótar.” Annar þingmaður þessa
flokks sagðist þess fullviss, að
a.m.k. einn ráðherra flokksins,
Kjartan Jóhannsson myndi fyrr
segja af sér en að samþykkja að
rikisstjórnin bæri fram slikt
frumvarp.
„Forklúðraðir efnahags-
bjálfar"
Visitölumálið gæti einnig orðið
vendipunktur i stjórnarsamstarf-
inu. Telja yngri þingmennirnir i
Alþýöuflokknum að grundvöllur
stjórnarsamstarfsins sé brostinn
ef ekki tekst með endurskoðun á
visitölukerfinu að koma endan-
lega i veg fyrir sjálfvirkar vixl-