Vísir - 21.11.1978, Síða 6
6
•;!!!! Æskan SF-140 er til sölu
j!|!| Öll endurbyggð 1975 og skipt um vélar og
!!!!! tæki.
|| SKIPASALA SUÐURNESJA SIMI 92-1733 |
Nýr veitingastadur
SIIlftQukftffí SRagsss
Þribjudagur 21. nóvember 19.sVTfil H.
OPIÐ FHA KL. 8.00-20.00 ALLA VIRKA DAGA
LAUGARDAGA FRA KL. 8.00-16.00
J u SMBJU- 1
ýKAFFI ir Skeiton Ispon
N^Smiftjuveour
] KaupgarÖu
g 1 S ai J
3 f
ll
Framreiöum rétti dagsins i
hádeginu, ásamt öllum teg-
undum grillrétta.
fJtbúum mat fyrir mötuneyti,
einnig heitan og kaldan veislu-
mat, brauö og snittur.
Sendum, ef óskaö er.
SÖLUTURN OPINN ALLA DAGA VIKUNNAR
PANTANIR í SIMA 72177
LEIGJUM UT 50-120 MANNA SAL A KVÖLDIN OG UM
HELGAR.
Breyttwr opnwnartimi
OPID
KL. 9-
Amerísku styUurnar
frá tee Borten nýkomnar
No»g bllastaaAi a.m.k. ó kvöldin
lilDMLWlXIIR
IIAI NARSI R i: i'l simi 12717
MIKIÐ PERMANENT
LÍTIÐ PERMANENT
Nú er rétti timinn til þess að panta permanent
fyrir jól. Við höfum hið vinsæla froðu-
permanent.
Hárgreiðslustófan bðinsgötu 2
I? TP Sími
1 22138
Ktmm
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiniii
Shaba f öldudal'-
eftir innrásina l
Kolwezi hefur enn yfir sér
ömurlegan og óhugnanlega blæ,
þótt sex mánuöir séu liönir frá
þvi aö uppreisnarmenn réöust
inn i Shabahéraöiö I Zaire og lit-
uöu göturnar I Kolwezi i blóöi
Ibúanna.
Draugalegur drungi býr yfir
yfirgefnum húsunum, sem eru
flakandi i örum eftir velbýssu-
kúlur og sprengjuvörpuárásir.
Þau standa flest ennþá auö frá
þvi aö uppreisnarmenn létu
greipar sópa um allt nýtilegt 1
þeim.
Óttinn leynist I hverjum
skugga og útgöngubann rikir
þar frá miðnætti til sólarupp-
komu dag hvern. Þær fáu
hræöur, sem þarna hafast við
eru hvumpnar eins og gæsa-
hópur og mundu ekki dvelja
deginum lengur ef gæsluliðið
hyrfi á brott.
Þaö vantar ekki mikiö á, aö
innrásarliöi uppreisnarmanna
hafi tekist þaö sem var mark-
miö innrásarinnar i Shaba.
Nefnilega aö eyðileggja þetta
námuhéraö sem fyrrum var
aðaltekjulind Zaire. Hundruö
manna svartir sem hvitir voru
drepnir i árásinni, og allir þeir
erlendu tæknimenn sem unnu
við þennan- mikilvæga námu-
iönaö flúöu óhugnaöinn. Þeim
var um megn aö dvelja lengur á
þessum slóðum, eftir þessa ægi-
legu reynslu. Fæstir þeirra
bjuggust viö aö veröa nokkurn
tima sömu menn og áöur.
Gæsluliöið sem heldur vörð
um Kolwezi, bægir öllum ófriöi
frá I bili. En um áramótin næstu
veröur aftur komiö á borgara-
legri stjórn i Shaba. Það er svo
annað mál hvort aftur næst það
efnahags- og stjórnmálalega
jafnvægi sem áöur rikti i þessu
héraöi.
Rústirnar i Kolwezi spegla I
sinni dapurlegu mynd efna-
hagsástandiö I Zaire, sem áöur
haföi aöalgjaldeyristekjur sinar
af koparnum úr Shaba. Árásin
sem aö endingu var svo hrundiö
af frönskum og belgiskum fall-
hlifahermönnum, sem komu til
liössinnis viö Zaire-her, lamaöi
þetta iönaöarhéraö. Efnahagur
Zaire sem áöur stóö höllum fæti
hefur veriö á stööugri niöurleiö
siöan. Safnast hafa 3 milljaröa
dollara skuldir viö útlönd.
Gjaldmiöill Zaire hefur hrapað
jafnt og þétt I gengi og svo er
komiö aö lánadrottnar hafa sett
stjórn Zaire ströng skilyröi fyrir
frekari efnahagsaöstoð.
Mobutu Sese Seko, forseti
Zaire varö aö byrja á þvi aö láta
lausan hóp pólitiskra fanga
leysa úr ágreiningi viiS-tiokkur
nágrannariki og endurskTpu-
leggja banka- og skattheimtu-
kerfi lands sins.
Breytingarnar á bankakerf-
inu miöuöu aö þvi aö standa bet-
ur I skilum við afborganir á
skuldum vegna innflutnings.
30% skattur á öllum útflutningi
átti aö renna til þess aö greiöa
upp slikar skuldir. — En lána-
drottnarnir sem nýlega komu
saman I Brussel til þess aö fjalla
um erfiöleika Zaire voru ekki of
sannfæröir um einlægni Zaire-
stjórnar til þess aö standa i skil-
um. Ýmsir töldu aö þarna væri
einungis um sýndarráöstafanir
aö ræöa.
Ýmis grundvallarvandamál
eins og ofboösleg spilling I em-
bættiskerfi landsins eru enn
óleyst þrátt fyrir ýmsar tilraun-
ir valdhafa til aö uppræta þau.
Hvaö sem öllum efnahagsaö-
geröum liöur, þá eru vestrænir
erindrekar I Kinshasa (höfuö-
borg Zaire) á einu máli um, aö
þær muni til litils ef hernaöar-
legt öryggi landsins er ekki
tryggt.
Zaire sem áöur hét belgiska
Kongó, öðlaöist sjálfstæöi 1960
— til þess eins aö klof na strax og
sundrast 1 innanlandsófriöi sem
upp spratt þegar Moise
Tshombe, forsætisráöherra
Katanga-héraös. stofnaöi sjálf-
stætt riki, sem siöan heitir
Shaba.
Þessi rfki sameinuöust þó aft-
ur eftir nokkurra ára ófriö og
miklar blóösúthellingar. En
suöurhlutilandsins, Shaba (sem
áöur hét Katanga) hefur síöan
veriö ólgublettur og ógnun
öryggi landsins. — Það voru
landflótta Kátangahermenn
sem haldiö hafa hópinn i útlegö
sinni i nágrannarikinu Angóla
er innrásina geröu i Shaba i mai
i sumar. Þaö er flestra hald, aö
þeir hafi gert innrásina með vit-
und og vilja Angólastjórnarinn-
ar og jafnvel veriö fluttir að
landamærunum i ökutækjum
Kúbuhermanna. Eftir árásina
sór Angólastjórn af sér alla
hlutdeild I þessu hervirki
Katangaskæruliöanna og eflir
þvi sem kvisast hefur geröi hún
ráöstafanir til þess aö hefta at-
hafnamöguleika Katanga-út-
laganna innan sinna landa-
mæra.
Fæstir trúa þvi aö svo fjöl-
mennt liö sem Katangaupp-
reisnarmennirnir drógu aö
landamærum Zaire, hafi getað
veriö i flutningum, án þess aö
Angólastjórn heföi af þvi pata
og stjórnin I Kinshasa getur
ekki reitt sig á að slik innrás,
eins og i Shaba-héraöið i sumar,
geti ekki endurtekiö sig.
Fyrir innrásina voru nokkur
þúsund útlendinga starfandi i
Kolwezi og námasvæöunum I
kring. Af þeim hafa einungis
rúmlega 100 snúiö aftur eftir
blóöbaöiö. Þetta eru aöallega
verkfræöingar, flestir franskir
eöa belgískir. Þeir hafa allir
lýst þvi yfir, aö þeir fari um leiö
og gæsluliöiö enda bera þeir
ekkert traust til Zaire-stjórnar-
innar og enn siður til Zaire-hers.
Viöureignir Zaire-hers viö
Katangahermenn er ein sam-
felld hrakfallasaga sem væri
enn sorglegri fyrir Zaire ef úr-
valssveitir frá Marokko, Frakk-
landi eöa Belgfu hefðu ekki
ávallt hlaupiö til og bjargaö
honum frá algerum ósigrum.
Þaö segja menn kunnugir
námaiönaöinum i Shaba, aö
ekki dugi minna en 200 eöa 300
útlendinga i lykilstörf til
þess aö halda rekstrinum gang-
andi. Hvaö þá ef byggja á aftur
upp þaö sem uppreisnarmenn
eyöilögöu. Þó eru allir sammála
um aö Zairebúar sem tóku viö
störfum útlendinganna, þegar
þeir fluttu burt, hafi staöið ótrú-
lega vel I slnu stykki.
Opinberlega voru Zairebúar
skipaðir i allar forstjórastööur
námaiönaöarins núna I septem-
ber siöasta, sem var þó raunar
ekkert annaö en formleg
staöfesting á þeim starfa, sem
þessir menn höföu gegnt frá þvi
aö útlendingarnir fóru.
Mobutu forseti fékk samiö viö
Angólastjórn um, aö bæki-
stöövar Katangamanna yröu
fluttar lengra inn I Angóla frá
landamærum Zaire. Fólk i
Shaba er þó engan veginn
öruggt um sig. — 1 innrásinni i
maí sýndi þaö sig lika aö þaö
voru ekki hvitu mennirnir sem
mest þurftu aö óttast af hálfu
uppreisnarmanna. Tifallt fleiri
innfæddir voru drepnir en út-
lendingar.
Fólk heldur þó kyrru fyrir
meöan gæsluliö Senegal og
Marokkó gætir friöarins. En þaö
kvlöir þeim degi, sem þessir
verndarenglar þeirra þurfa aö
snúa heim Sá dagur hlýtur aö
renna upp einhvern tima.
Þetta gæsluliö er tilkomiö
fyrir beiöni Mobútu forseta.
Þetta eru úrvalssveitir,. vel-
þjálfaöar, velagaöar og vel
vopnaöar, sem hvaöa nútlma-
her mundi velsæmdur af.
a
■
■
■