Morgunblaðið - 09.01.2001, Side 1
þriðjudagur
9. janúar 2001
Prentsmiðja
Morgunblaðsins blað C
Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum allsstaðar á landinu
Þau
byggðu
bæinn
Hús fyrir
syrgjendur 2
Úthlutun
lóða
Fyrsta
heimilið
Blómstrandi
rómantík
í Þingholt-
unum 23
Stendur
með þér í
orkusparnaði
Hornafjörður - ÖLL fasteignin Vík-
urbraut 20 á Höfn í Hornafirði er nú
til sölu hjá Eignamiðluninni, bæði
hús og rekstur, en í húsinu er nú rek-
ið Flugleiðahótel.
Húsið er alls 1.533m² og byggt
1966–1967. Á jarðhæð er veitingasal-
ur, sem tekur 55 manns í sæti, og á 2.
hæð er veitingasalur, sem er um
160m² og tekur um 120 manns í sæti.
Á báðum þessum hæðum er bar.
Hótelherbergi eru 36, öll með baði.
Á jarðhæð eru 10 herbergi, 13 her-
bergi á 2. hæð og 13 herbergi á 3.
hæð. Herbergin eru á bilinu 11–20m²
að stærð.
Núverandi eigandi, Flugleiðahótel
hf., eignaðist hótelið 1996 og á árun-
um 1997–1998 fór fram töluverð
breyting og endurnýjun á ýmsum
hlutum hússins, m.a. á hluta her-
bergja, gestamóttöku, veitingasal og
bar. Kostnaður við þessar fram-
kvæmdir var umtalsverður. Hótelið
hefur hlotið þrjár stjörnur í flokkun
Ferðamálaráðs. Það stendur á góð-
um útsýnisstað og lóðin er stór og
með malbikuðum bílastæðum.
„Það er kjörið tækifæri fyrir
trausta og dugmikla aðila að reka
þetta hótel,“ sagði Stefán Hrafn Stef-
ánsson hjá Eignamiðluninni. Hann
kvað söluhorfur allgóðar. „Reyndar
er markaðurinn fyrir eign af þessu
tagi ekki stór og kaupendahópurinn
ekki fjölmennur,“ sagði hann. „En
það eru til staðar áhugasamir og dríf-
andi aðilar sem treysta sér vel og
hafa bolmagn til þess að fara út í
rekstur af þessu tagi.
Eins og hjá öðrum hótelum á
landsbyggðinni þá er nýtingin hjá
þessu hóteli yfirleitt mjög góð yfir
sumarmánuðina en síðan minni á jað-
artímunum. Nú er unnið að því að
efla og byggja upp ferðaþjónustu á
þessu svæði enn frekar á jaðartím-
unum og þá í tengslum við skoðunar-
ferðir eins og jöklaferðir erlendra
ferðahópa og kvikmyndagerðarhópa
sem hafa verið hér talsvert á ferðinni
undanfarin ár. Talið er, að enn megi
auka og efla starfsemi hótelsins með
auknu markaðsstarfi.“
Stefán Hrafn kvað þessa eign vera
í góðu ástandi. „Nefna má, að nýlega
voru lagðir umtalsverðir fjármunir í
endurnýjun á anddyri og gestamót-
töku og börum og herbergjum. og allt
endurnýjað í takt við nýja tíma,“
sagði Stefán Hrafn, sem kvað það
sjaldgæft að fá eign af þessu tagi í
sölu, enda væru þær ekki margar til.
Ekkert fast verð er sett á hótelið,
en óskað eftir tilboðum. Að sögn Stef-
áns eru verðhugmyndir eigenda mjög
sanngjarnar. Áhvílandi eru 57 millj.
kr. í mjög hagstæðum langtímalán-
um, þar af 51 millj. kr. með 5,5% vöxt-
um. Ekki er útilokað, að seljandi geti
lánað hluta útborgunar og afhending
gæti farið fram fljótlega.
Flugleiðahótelið
áHöfn til sölu
Húsið er þrjár hæðir og alls 1533 ferm. Á jarðhæð er veitingasalur, sem tekur 55 manns í sæti og á 2.
hæð er veitingasalur, sem er um 160 ferm. og tekur um 120 manns í sæti. Á þessum hæðum er bar.
Hótelherbergi eru 36, öll með baði. Á jarðhæð eru 10
herbergi, 13 herbergi á 2. hæð og 13 herbergi á 3. hæð.
!!"
!! #
$
"
! %!&'!
(!
)!&%*!
(!
%+!&,%!
(!
,-!&*!
!
!!
" # ! %*.
%/+
%/.
%,+
%,.
%%+
%%.
%.+
%..
0$
1
2 3-- 4 %..
% #
!
/ #
!
5 #
!
%,! #
6
6
$ %& &&&
" ' # &&& &&%
,+.
,*+
,*.
,/+
,/.
2
3)' 4 %..
77 8 9 7 7 : ; < =
$$
(> 8$
$$
%*.
%,.
%..
).
5.
*.
,.
.
3-. 3-, 3-* 3-5 3-) 3..
?2!
#
,,!&,)!
(!
;7 8 9 7 7 : << =
Fjölbýli setur
svip á
austursvæði
Grafarholts 26