Morgunblaðið - 09.01.2001, Side 2

Morgunblaðið - 09.01.2001, Side 2
Logafold 154 er steinhús á tveimur hæðum, alls 285,8 fermetrar, þar af er tvöfaldur bílskúr, 63,6 fermetrar. Ásett verð er 27,9 millj. kr., en húsið er til sölu hjá Hóli. Reykjavík - HJÁ fasteignasölunni Hóll er í sölu einbýlishús í Logafold 154. Þetta er steinhús, byggt 1984 og á tveimur hæðum. Alls er húsið 285,8 fermetrar, þar af er tvöfaldur bílskúr sem er 63,6 fermetrar. „Þetta er frábært hús, mjög opið og með fallegum sólskála,“ sagði Kjartan Róbertsson hjá Hóli. „Húsið skiptist þannig að í því eru þrjú stór svefnherbergi og tvær stórar og bjartar stofur. Hjóna- herbergið er 25 fermetrar með fataherbergi og glæsilegum glugga. Parket er á gólfum og loft tekin upp. Halógenlýsing er í gangi og baðherbergi nýlega endurnýjuð. Lóðin í kringum húsið er stór og húsið stendur á skemmtilegum stað með góðu útsýni, m.a. til skíða- brekku. Ásett verð er 27,9 millj. kr.“ Logafold 154 2 C ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir Óskir syrgjendanna Fjölskyldan hafði búið í lúx-usíbúð í einum af skýja-kljúfum borgarinnar.Ekkjan lagði fram þær óskir við arkitektinn að byggja hús þar sem hún og dætur hennar öðl- uðust sterk tengsl við jörðina og gróðurinn og, að húsið yrði L-laga til þess að allir fjölskyldumeðlimir gætu horft hver á annan. Af tilviljun var lóðin við hliðina á arkitektinum til sölu, en ekkjan hafði búið þar áður en hún gifti sig. Það var eins og hún vildi aftur ná tökum á minningunum, sem hjálpaði henni að sameina fjölskylduna á þessum erfiðu tímum. Í viðræðum ekkjunnar við arki- tektinn hvarf smátt og smátt áhersl- an á hagræðingu þjónusturýma en snerist stöðugt meira um táknrænt gildi rýmisins. Í stað L-formsins varð lögun steinteypts hússins U- laga vegna áhrifa ljóssins og tengsla íbúanna. Ævi hússins ÍU-húsinu voru tveir langirgangar. Annar þeirra endaði íherbergjum stúlknanna og hinn fór í gegnum eldhús og baðher- bergið og inn í herbergi ekkjunnar. Báðir gangarnir voru dimmir en leiddu inn í ljósið, uppsprettuna sem mátti finna í boga U-sins. Þetta opna fjölnota rými – notað til leikja, borð- halds og íhugunar – var hvítmálað og lagt hvítu teppi. Í þessu rými leystist ljósið upp og gaf mjúka áferð en rifa við loftið beindi dagsljósinu inn í beinni ská- línu. Áhrif ljóssins voru mikil, ekki síst vegna hreinhvíta veggjarins sem virtist vera flötur án dýptar. Það var eins konar tjald þar sem ímyndir og fljótandi skuggar íbúanna end- urvörpuðust. Það var rými sem tók tillit til mannlegrar vitundar en ekki einungis mannslíkamans. Eftir 21 ár hafði sorgartíminn runnið út og fjölskyldan var tilbúin að endurvekja tengsl sín við um- hverfið. Sú fyrsta sem flutti út var eldri dóttirin. Hún hafði aldrei hugs- að út í það hvort þægilegt eða óþægilegt væri að búa í húsinu. Sú tilfinning hefði e.t.v. best komið fram hjá hinum mörgu gæludýr- um sem þær höfðu haft. Dýrin höfðu engan veginn viljað vera ein í afgirtum húsa- garðinum. Hún sjálf talaði um húsið eins og það væri líkkista. Móðirin flutti síðar í minni íbúð en sem tónlistarfræðingur hafði hún notið þess hvernig tónlistin hafði endurkastast af berum veggj- unum. Yngri dóttirin varð síðust til þess að flytja en hún hafði öðlast visst fegurðarskyn í þessu húsi sem kom fram í doktorsritgerð hennar um Kandinsky og í starfi hennar sem forstöðumanns listasafns. Það síðasta sem við verðum vitni að í sögu hússins er áhrifamikil ljós- mynd sem sýnir niðurrif þess. Í stað þess að líta á það sem eyðileggingu heimilis var það merki um annað stig sem fjölskyldan gekk í gegnum. Niðurrif hússins var tákn um nýtt líf og leiðir af sér að við getum fjallað um það sem hús syrgjenda. Dr. Halldóra Arnardóttir, listfræðingur [sanchezarnadottir@arquired] Þaubyggðubæinn Einbýlishúsið U í Japan eftir Toyo Ito: hús fyrir syrgjendur Grunnmynd U-hússins. Hvítt tjald þar sem skugg- ar íbúanna endurkastast. Toyo Ito (f. 1941) arkitekt. Ævi hússins. Ein af óskum ekkjunnar var að allir fjölskyldu- meðlimir gætu horft hver á annan. EINBÝLISHÚSIÐ U var byggt árið 1976 í miðborg Tókýó. Það var hannað af arkitekt- inum Toyo Ito fyrir eldri systur hans, sem hafði skömmu áður misst eig- inmann sinn af völdum krabbameins. Árið 1997 var húsið rifið niður að Toyo Ito ásjáandi, en hvers vegna? Niðurrif U-hússins 1997. Efnisyfirlit Agnar Gústafsson ................................ 34 Ás ......................................................... 32-33 Ásbyrgi ...................................................... 45 Berg ............................................................. 27 Bifröst ............................................................ 4 Borgir .......................................................... 38 Brynjólfur Jónsson ............................... 17 Eign.is .......................................................... 41 Eignaborg ................................................. 28 Eignamiðlun .................................... 24-25 Eignaval ........................................................ 8 Fasteign.is .................................................... 9 Fasteignamarkaðurinn ........... 16 og 21 Fasteignamiðlunin ............................... 42 Fasteignamiðstöðin ............................ 34 Fasteignasala Mosfellsbæjar .......... 29 Fasteignasala Íslands ......................... 47 Fasteignastofan ........................................ 5 Fasteignaþing ............................................ 11 Fjárfesting ................................................ 33 Fold ............................................................... 35 Foss .............................................................. 40 Framtíðin .................................................. 46 Frón .............................................................. 39 Garður ......................................................... 29 Gimli ................................................................ 3 H-gæði ....................................................... 44 Híbýli ............................................................. 15 Holt .................................................................. 6 Hóll ............................................................... 36 Hraunhamar ................................... 22-23 Hreiðrið ....................................................... 15 Húsakaup ..................................................... 7 Húsið ............................................................. 18 Húsvangur ................................................ 43 Höfði .............................................................. 13 Kjöreign ...................................................... 37 Lundur ........................................................ 20 Lyngvík ........................................................ 16 Miðborg ........................................................ 12 Óðal .............................................................. 33 Skeifan ......................................................... 14 Smárinn ....................................................... 19 Stakfell ....................................................... 28 Valhús ........................................................... 10 Valhöll .................................................. 30-31 Þingholt ....................................................... 14

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.