Morgunblaðið - 09.01.2001, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 C 17HeimiliFasteignir
EINBÝLI - RAÐHÚS
SMÁRATÚN - ÁLFTANESI
Sérlega fallegt ca 170 fm einbýlishús ásamt
góðum 40 fm bílskúr. 1.000 fm falleg ræktuð
lóð með stórri suðursólverönd. Verð 18,9 m.
Áhv. 4,0 m. BYGGINGASJÓÐUR. Ákveðin
sala.
SKIPASUND Mjög mikið endurnýjað
og fallegt ca 180 fm einbýlishús ásamt 40 fm
bílskúr. Falleg ræktuð lóð. Í húsinu geta verið
tvær samþykktar íbúðir. Verð 22,3 m. Áhv. 4,4
m. BYGGINGASJÓÐUR.
VÍGHÓLASTÍGUR - NÝTT -
LAUST Vorum að fá til sölu mjög vel stað-
sett ca 250 fm einbýlishús ásamt ca 60 fm bíl-
skúr. Eignin er laus og til afhendingar nú þeg-
ar. Verð 23,5 m. Áhv 3,0 m.
HÆÐIR
AUÐBREKKA - NÝTT Mjög góð ca
145 fm efri sérhæð í tvíbýli. Eigninni fylgir
aukaherbergi í kjallara sem leigja má út.
Einnig fylgir eigninni góður 37 fm bílskúr.
Skúrinn hefur verið notaður sem stúdíóíbúð.
Verð 14,3 m. Áhv. 5,4 m. húsbr.
MIKLABRAUT Stórglæsileg ca 180 fm
mjög mikið endurnýjuð neðri sérhæð með 27
fm bílskúr. Glæsilegt gegnheilt parket á öllum
herbergjum og stofum. Hátt til lofts sem gefur
íbúðinni virðulegt yfirbragð. Húsið er teiknað
af Guðjóni Samúelssyni. Verð 18,9 m. Áhv. 6,1
m. húsbr. EIGN Í SÉRFLOKKI.
MIKLABRAUT Mjög falleg ca 130 fm
efri sérhæð ásamt risi sem er nokkuð undir
súð. 4 svefnherbergi og bílskúrsréttur. Verð
13,3 m. Áhv. 5,6 m. húsbr.
REYNIHVAMMUR Mjög góð neðri
sérhæð, ca 170 fm alls auk 31 fm bílskúrs. Bú-
ið er að skipta íbúðinni upp í tvær íbúðir, ca 31
fm stúdíóíbúð með sérinngangi, og ca 136 fm
5 herb. hæð. Verð 17,9 m. Áhv 7,3 m.
4ra HERB. OG STÆRRI
ÁLFHEIMAR Óvenju björt og skemmti-
leg ca 105 fm endaíbúð á 2. hæð með tvenn-
um góðum svölum. Snyrtileg og góð sameign.
Verð 12,7 m. Áhv. 4,7 m. húsbr.
AUSTURBERG - M. BÍLSK
K
. -
LAUS STRAX Glæsileg og mikið end-
urnýjuð 95 fm útsýnisíbúð á efstu hæð í góðu
fjölbýli ásamt bílskúr. Íbúðin er laus og til af-
hendingar strax. Verð 11,9 m. Áhv. 4,1 m.
EKKERT GREIÐSLUMAT.
HRAFNHÓLA
A
R - NÝTT Björt og
falleg ca 100 fm íbúð á 5. hæð í góðu lyftu-
húsi. Yfirbyggðar svalir. Mikið útsýni. Verð
10,9 m. Áhv. 5,8 m.
KLEPPSVEGUR - MEÐ AUKA-
HERB. Mjög mikið endurnýjuð og falleg
ca 100 fm íbúð á jarðhæð. Íbúðinni fylgir gott
íbúðarherbergi í risi sem hægt er að leigja út.
Íbúð og sameign í mjög góðu ástandi. Verð
10,9 m. Áhv. 2,3 m. BYGGSJ.
LUNDARBREKKA - M. AUKA-
HERB. Falleg 102 fm íbúð á 1. hæð. Íbúð-
inni fylgir gott kjallaraherbergi með aðgangi
að snyrtingu. Sameign er nýmáluð og teppa-
lögð. Verð 11,9 m. Áhv. 4,1 m.
RJÚPUFELL Í einkasölu ca 100 fm fal-
leg íbúð á 3. hæð frá inngangi. Íbúðin er
óvenju vel umgengin og í góðu ástandi. Mjög
góð sameign. Verð 10,5 m.
ÆSUFELL Sérlega glæsileg 4-5 her-
bergja 112 fm íbúð á 4. hæð í góðu lyftuhúsi
með miklu útsýni. Góður ca 24 fm bílskúr.
Húsvörður er í húsinu. Góð sameign.
HLÍÐARHJALLI - M. BÍLSK.
OG BYGG
G
SJ. Stórglæsileg björt og
skemmtileg 3ja-4ra herb. 100 fm íbúð á 1. hæð
með góðum svölum. Góður bílskúr fylgir íbúð-
inni. Verð 14,5 m. Áhv. 5,4 m. BYGGINGA-
SJÓÐUR. EIGN Í SÉRFLOKKI.
3ja HERBERGJA
DALSEL - MEÐ BÍLSK. Mjög fal-
leg 90 fm íbúð á annarri hæð ásamt stæði í
bílgeymslu. Verð 11,5 m. Áhv. 4,8 m
m
.
ENGIHJALLI - MEÐ BYGGSJ.
Ca 80 fm útsýnisíbúð á 7. hæð í góðu lyftu-
húsi. Stórar suðaustursvalir. Þvottahús á
hæðinni. Gervihnattasjónvarp. Verð 9,9 m.
Áhv. 3,4 m. BYGGINGASJÓÐUR.
HVERFISGATA Mjög góð ca 70 fm
íbúð á fyrstu hæð með sérinngangi. Eigninni
fylgja tvö sérbílastæði. Verð 7,3 m. Áhv. 1,0 m.
BYGGINGASJÓÐUR.
LEIFSGATA Mjög falleg ca 70 fm kjall-
araíbúð með sérinngangi. Verð 8,3 m. Áhv. 4,4
m. húsbréf.
2ja HERBERGJA
ÁLAGRANDI Glæsileg 65 fm íbúð á
fyrstu hæð með góðum suðvestursvölum.
Innréttingar og gólfefni allt sem nýtt. Áhv. 4,0
m. EIGN Í SÉRFLOKKI.
HVERFISGATA 65 fm íbúð á 2. hæð í
góðu steinhúsi. Húsnæðið er samþykkt sem
íbúðarhúsnæði en innréttingar vantar. Verð
7,3 m.
KLAPPARSTÍGUR Góð 61 fm íbúð á
þriðju og efstu hæð með möguleika á stækk-
un í risi. Verð 8,5 m. Áhv. 2,6 m.
MELHAGI NÝTT - LAUS Mjög
falleg, lítið niðurgrafin og mikið endurnýjuð
kjallaraíbúð með sérinngangi. Íbúðin er laus í
febrúar nk. Verð 8,5 m. Áhv. 3,6 m. húsbr.
SKEIÐARVOGUR Mikið endurnýjuð,
falleg og björt ca 65 fm kj.íbúð í endaraðhúsi
á þessum vinsæla stað. Verð 8,6 m. Áhv. 4,7
m. húsbr.
NÝBYGGINGAR
HÁSALIR Vorum að fá til sölu falleg 200
fm raðhús á mjög góðum útsýnisstað. Húsin
skilast fokheld, með gleri og gluggum, frá-
gengin að utan, lóð grófjöfnuð. Verð frá 13,9
m. ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG
TEIKNINGAR Á SKRIFSTOFUNNI.
SKÓLABRAUT - SELTJ.NESI -
LAUS Neðri sérhæð ca 140 fm auk 22 fm
bílskúrs. Eignin er fokheld að innan með gleri
og gluggum. Lóð verður grófjöfnuð. Gert er
ráð fyrir ca 45 fm sérsólpalli eða sérlóð að
sunnanverðu. Möguleiki er að fá eignina
lengra komna. Verð 14,9 m. TIL AFHENDING-
AR STRAX.
SELJENDUR ATHUGIÐ!
Vegna mikillar sölu vantar okkur allar stærðir eigna á sölu-
skrá. Skoðum og verðmetum eignir samdægurs. E
E
kkert
sko
o
ðunargjald. Bjóðum viðskiptavinum okkar 1,75% sölu-
laun og fríar auglýsingar tvisvar í mánuði í Fasteignabl
l
aði
Mbl., ef um
m
einkas
s
ölu er
r
að ræða, og 2,0% í alme
e
nnri sölu.
Leggjum ríka áherslu á vandaða og persónulega þjónustu.
ATVINNUHÚSNÆÐI
AUÐBREKKA - CA 1.500 FM
Ca 1.500 fm verslunar-, skrifstofu og þjón-
ustuhúsnæði á þrem hæðum. Innkeyrsla get-
ur verið inn á tvær neðri hæðirnar eða inn á
ca 1.000 fm. Húsnæðið býður upp á margvís-
lega notkunarmöguleika. Verð kr. 99,0 m.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR AÐEINS
VEITTAR Á SKRIFSTOFUNNI.
BÍLDSHÖFÐI - NÝTT Gott 200 fm
íbúðar- og atvinnuhúsnæði á tveim hæðum. Á
efri hæð er búið að útbúa 3ja herbergja 100
fm mjög góða íbúð. Neðri hæðin er mjög
snyrtileg og með stórum innkeyrsludyrum.
Verð 14,9 m. Áhv. ca 7,0 m.
DUGGUVOGUR Stórglæsileg og al-
gjörlega endurnýjuð ca 500 fm skrifstofuhæð
á áberandi stað með miklu útsýni yfir Elliða-
árdalinn. Eigninni má skipta upp í smærri ein-
ingar. Verð 44,0 m. Áhvílandi 26 m. góð lang-
tímalán.
FISKISLÓÐ Til sölu eða leigu 270-540 fm
mjög gott og vel útbúið fiskverkunarhúsnæði
sem uppfyllir allar kröfur til matvælafram-
leiðslu. Góð aðkoma og aðstaða fyrir gáma
fyrir utan. NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIF-
STOFUNNI.
AUÐBREKKA - NÝTT Efri hæð ca
400 fm með millilofti. 5 skrifstofuherbergi, stór
salur, 2 snyrtingar, kaffistofa og geymsla.
Húsnæðið er í góðri útleigu, leigutekjur ca
220 þús. á mán. Verð 28 m.
HAMRABORG Í einkasölu gott 125 fm
lager- og geymsluhúsnæði í hjarta Kópavogs.
Góð aðkoma. Verð 6,7 m.
HVERFISGATA Höfum til sölu allar
húseignirnar á Hverfisgötu 61, Reykjav. Verð
29,5 m. Allar nánari upplýs. á skrifstofunni.
SKEIÐARÁS Nýtt vandað glæsilegt og
bjart 220 fm skrifstofu- og þjónustuhúsnæði
á 1. hæð á mjög góðum stað við nýja Vífil-
sstaðaveginn. Sérinngangur og séraðkoma.
Eignin er til afhendingar strax, tilbúin til inn-
réttinga. Verð 15,9 m.
SKEIÐARÁS Nýtt vandað bjart og
glæsilegt ca 190 fm skrifstofuhúsnæði á
tveim hæðum á besta stað við nýja Vífils-
staðaveginn. Niðri er ca 26 fm móttaka og
uppi ca 165 fm bjartur salur. Sérinngangur og
séraðkoma. Eignin er fullbúin til innréttinga
og til afhend-
. nú þegar. Verð 12,7 m.
STÓRHÖFÐI/VIÐARHÖFÐI -
LAUST Ca 530 fm bjart og skemmtilegt
skrifstofuhúsnæði á annarri hæð. Eignin er
tilbúin til innréttinga. Hagstætt verð. HÚS-
NÆÐIÐ ER LAUST OG TILBÚIÐ TIL AFHEND-
INGAR NÚ ÞEGAR.
SÚÐARVOGUR Glæsilegt 250 fm mik-
ið endurnýjað skrifstofu- og verslunarhús-
næði á jarðhæð. Verslunarhúsnæði ca 90 fm,
skrifstofur ca 165 fm. Verð 20,3 m. Áhv. 11,1
m.
SÚÐAR
R
VOGUR 475 fm skrifstofuhús-
næði á 3ju hæð sem búið er að breyta í átta
leiguíbúðir og herbergi. Góð lofthæð. Næg
bílastæði á lóðinni. Góðar leigutekjur. Verð
22,8 m. NÁN-
. UPPLÝSINGAR Á SKRIFST.
SÚÐAR
R
VOGUR Ca 110 fm gott skrif-
stofu- og verslunarhúsnæði á jarðhæð.
Vandaðar innréttingar, færanlegir millivegg-
ir. Verð 8,3 m. Áhv. 2,8 m.
FASTEIGNASALA BRYNJÓLFS JÓNSSONAR EHF.
Barónsstíg 5, 101 Reykjavík,
Brynjólfur Jónsson, hagfr. og lögg. fasteignasali,
Jón Ól. Þórðarson hdl., lögg. fasteignasali,
Daníel G. Björnsson, sölumaður.
Sími 511 1555
Fax 511 1556 - BrynjolfurJonsson@simnet.is
Ídesembermánuði kom álitfrá Kærunefnd fjöleign-arhúsamála þar sem aðilardeildu um aukakostnað
vegna litabreytinga á gangi í fjöl-
býli við Flyðrugranda í Reykjavík.
Deilan snerist fyrst og fremst
um hvort framkvæmd stjórnar á
ákvörðun hefði verið lögleg þar
sem hún var ekki borin undir hús-
fund, en það er meginregla að bera
skuli allar sameiginlegar ákvarð-
anir í húsfélagi undir húsfund.
Ákvörðun um litabreytingu
Tveir íbúðareigendur bjuggu á
jarðhæð fjölbýlisins og var gang-
urinn við íbúðirnar gluggalaus og
dimmur. Húsfundur í húsfélaginu
tók ákvörðun um málning-
arframkvæmdir og litaval á sam-
eign hússins og var m.a. ákveðið að
mála ganginn á jarðhæðinni dumb-
rauðan.
Þegar málningarframkvæmdir
voru hafnar urðu íbúðareigend-
urnir á jarðhæðinni ósáttir við lita-
valið vegna aðstæðna. Í framhald-
inu stöðvuðu íbúðareigendurnir
málningarframkvæmdirnar og
kröfðust þess að gangurinn á jarð-
hæðinni yrði málaður í öðrum lit
og ljósari.
Stjórn húsfélagsins féllst á kröf-
ur íbúðareigendanna um litabreyt-
ingu án þess að bera þá ákvörðun
undir húsfund í húsfélaginu og var
nú gangurinn málaður í gulum lit.
Íbúðareigendurnir á jarðhæðinni
voru nú mjög sáttir og töldu að
málið væri úr sögunni gagnvart
sér.
Stjórn húsfélagsins sendi íbúðar-
eigendunum hins vegar reikning
fyrir litabreytingunni að fjárhæð
rúmlega 50.000 krónur. Íbúðareig-
endurnir mótmæltu kröfu hús-
félagsins og neituðu að greiða
reikninginn enda töldu þeir þetta
ekki sitt mál heldur húsfélagsins.
Engin mótmæli
Húsfélagið sendi málið til kæru-
nefndar fjöleignarhúsamála og ósk-
aði eftir áliti á þeirri deilu um
hverjum væri skylt að greiða auka-
kostnaðinn vegna litabreytinganna.
Húsfélagið, hér eftir nefnt álits-
beiðandi, hélt því fram fyrir kæru-
nefndinni að það hefði verið sam-
þykkt á löglegum húsfundi að mála
sameignina í ákveðnum litum og
m.a. ganginn á jarðhæðinni dumb-
rauðan.
Íbúðareigendurnir á jarðhæð-
inni, hér nefndir gagnaðilar, hafi
verið á húsfundinum og engin mót-
mæli hafi komið fram af þeirra
hálfu. Þá hafi gagnaðilar stöðvað
framkvæmdir í miðju verki og
krafist þess að litnum yrði breytt.
Taldi álitsbeiðandi að gagnaðil-
unum bæri að greiða aukakostn-
aðinn vegna litabreytinganna.
Gagnaðilarnir héldu því fram
fyrir kærunefndinni að þegar byrj-
að hafi verið að mála ganginn hafi
þeir séð að liturinn væri of dökkur
þar sem gangurinn væri glugga-
laus og dimmur fyrir. Því hafi þeir
leitað til álitsbeiðanda og krafist
þess að litnum yrði breytt í annan
ljósari lit. Krafan um aukakostn-
aðinn vegna litabreytinganna hafi
komið þeim verulega á óvart og
töldu þeir að litabreytingin væri
mál álitsbeiðanda en ekki þeirra
eingöngu.
Í áliti kærunefndarinnar kom
fram að meginreglan sé að allar
sameiginlegar ákvarðanir beri að
taka á húsfundi og sé tilgangurinn
með þeirri meginreglu að eig-
endum sé þar með gefinn kostur á
að mæta og taka þátt í umræðum,
ákvörðunum og atkvæðagreiðslu
um sameiginleg málefni. Kæru-
nefndin taldi að rétt hefði verið
staðið að ákvörðun húsfundar um
litaval á sameigninni allri.
Ekki borin undir húsfund
Í áliti nefndarinnar kemur svo
fram, að ákvörðun stjórnarinnar
um litabreytinguna á ganginum á
jarðhæðinni hafi hins vegar ekki
verið borin undir húsfund í hús-
félaginu og væri það þannig gagn-
stætt meginreglunni um ákvarð-
anatöku húsfélaga.
Auk þess hafi ekki legið fyrir að
litabreytingin hefði í för með sér
aukakostnað fyrir gagnaðilana og
tekur nefndin það skýrt fram að
álitsbeiðandi hefði átt að gera
gagnaðilum það ljóst að þeir
myndu bera af henni allan kostnað.
Það hafi ekki verið gert og því geti
álitsbeiðandi ekki krafið gagnaðil-
ana um aukakostnaðinn eftir á.
Niðurstaða nefndarinnar var því
sú, að gagnaðilum bæri ekki að
greiða aukakostnaðinn vegna lita-
breytinga á gangi jarðhæðarinnar.
Þetta álit kærunefndar sýnir
mikilvægi þess að bera allar
ákvarðanir sem varða sameiginlega
hagsmuni húsfélagsins undir hús-
fund. Þó hefur stjórn húsfélagsins
valdsvið í einstökum málum og get-
ur tekið ákvarðanir um ýmis mál-
efni er varða rekstur sameign-
arinnar án þess að bera þær undir
húsfund.
Daglegur rekstur
Stjórn húsfélags er rétt og skylt
að taka hvers kyns ákvarðanir sem
lúta að venjulegum daglegum
rekstri og hagsmunagæslu vegna
sameignarinnar. Þá getur stjórnin
látið framkvæma á eigin spýtur
minni háttar viðhald og viðgerðir
og bráðnauðsynlegar og brýnar
ráðstafanir sem þola ekki bið.
Allar aðrar ákvarðanir ber
stjórninni, áður en í þær er ráðist,
að leggja fyrir húsfund til umfjöll-
unar og ákvörðunar. Á það und-
antekningarlaust við um fram-
kvæmdir sem eru verulegar hvað
varðar kostnað, umfang og óþæg-
indi. Gildir hér einu þótt um æski-
legar og jafnvel nauðsynlegar ráð-
stafanir sé að ræða.
Lélegt litaval á gangi fjölbýlishúss
Hús og lög
eftir Elísabet Sigurðardóttir, hdl. /
bjarkielisabet@isholf.is
Höfundur er lögfræðingur hjá
Húseigendafélaginu.